GR – dagurinn – opið hús á morgun, Sumardaginn fyrsta!
Á morgun, Sumardaginn fyrsta verður opið hús hjá okkur í Golfklúbbur Reykjavíkur. Við ætlum að koma okkur í gírinn fyrir komandi golfsumar – opið verður frá kl. 11:00 – 15:00.
Félagsmenn er hvattir til að koma sýna sig og sjá aðra, kynna sér starfsemi klúbbsins og sækja pokamerkin sín fyrir sumarið.
Meðal þess sem verður í boði er eftirfarandi:
Afhending pokamerkja.
Boltakort Bása á 30% afslætti.
Fatnaður frá ÍSAM til mátunar og pöntunar á góðum kjörum – GR línan 2026
.
Starfsfólk 66° Norður verður á staðnum og býður upp á fatnað sem kjörin er í golfið á góðum afslætti.
Rekstrarstjóri íþróttastarfs GR verður á svæðinu. Þar er hægt að fá upplýsingar m.a. um æfingar og golfleikjaskólann fyrir sumarið 2026.
Kvennanefnd GR mætir og kynnir sitt frábæra starf.
Kynning á félagsstarfi – MercedesBenz bikarinn (Holukeppni GR) og FootJoy bikarinn (Liðakeppni GR).
Forstöðumaður golfvallasviðs verður á svæðinu og gefur félagsmönnum nýjustu upplýsingar um framkvæmdir og ástand valla.
Dómari lætur sig ekki vanta og er til í spjall við bæði þaulreynda sem og minna reynda kylfinga.
Léttar veitingar í boði – kaffi, kleinur og kaka – eitthvað fyrir alla!
Hlökkum til að sjá sem flesta!
Golfklúbbur Reykjavíkur
Ath! Inniæfingaaðstaðan á 2. hæð Korpu verður lokuð til kl. 16:00 þennan dag.
The post GR – dagurinn – opið hús á morgun, Sumardaginn fyrsta! appeared first on GR Golf.
Recent Posts






