Haraldur Franklín bjartsýnn fyrir móti vikunnar – hefur leik í dag!
Haraldur Franklín Magnús, einn af okkar fremstu atvinnukylfingum, hefur leik á CIRCA Cape Town Open mótinu í Suður-Afríku á morgun. Mótið er annað mót tímabilsins á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næst sterkasta í Evrópu.
Leikið verður á Royal Cape Golf Club í Höfðaborg, sem er höfuðborg Suður-Afríku. Völlurinn er par 72 og 6.121m langur. Í viðtali fyrir mótið sagðist Haraldur spenntur fyrir því að spila völlinn, þar sem aðstæður hentuðu honum vel. Hitinn er töluvert lægri en í mótinu sem fór fram í síðustu viku og vindurinn meiri.
Haraldur hefur leik kl. 07:10 að staðartíma og er í holli með Spánverjanum Victor Pastor og hinum ítalska Lorenzo Scalise. Þetta er annað mótið í fjögurra móta törn Haralds í Suður-Afríku.
Áfram Haraldur Franklín – áfram GR!
The post Haraldur Franklín bjartsýnn fyrir móti vikunnar – hefur leik í dag! appeared first on GR Golf.
Recent Posts







