Lokamótið hjá Dagbjarti í Póllandi hefst í dag – Sand Valley Spring Series Final
Stór hópur íslenskra afrekskylfinga er á meðal keppenda á Sand Valley Spring Series Final mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 17.-19. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og er þetta þriðja og síðasta mót hópsins á Sand Valley svæðinu. Við eigum okkar fulltrúa á svæðinu, ríkjandi Íslandsmeistari í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson er á meðal íslensku keppendanna.
Leikið er á ný á Sand Valley Golf Resort svæðinu í norðurhluta Póllands.
Í öðru mótinu endaði Dagbjartur Sigurbrandsson í áttunda sæti.
Alls eru eru sjö íslenskir kylfingar þátttakendur í mótinu og er þrjú sannkölluð Íslendingaholl í dag, þar sem sex keppendur raðast saman í þrjú holl í dag. Dagbjartur Sigurbrandsson er í holli með Daníel Ísak í dag.
Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Einnig er hægt að vinna sér inn þátttökurétt með því að vinna þrjú mót á sama tímabilinu. Haraldur Franklín Magnús leikur á HotelPlanner Tour, en sú mótaröð hefst aftur í maí.
The post Lokamótið hjá Dagbjarti í Póllandi hefst í dag – Sand Valley Spring Series Final appeared first on GR Golf.
Recent Posts






