Nýtt skipurit og ráðning forstöðumanns vallarsviðs GR

Sigríður Guðmundsdóttir • 23. febrúar 2026

Share this article

GR hefur innleitt nýtt skipurit, þar sem starfsemi klúbbsins er deilt niður á sex svið (sjá á myndinni hér fyrir neðan).  Tilgangur með innleiðingu skipuritsins er að bregðast við umfangsmeiri rekstri, skerpa á ábyrgð hvers sviðs og auka skilvirkni.  Yfir hverju sviði er forstöðumaður, sem ber ábyrgð á því, undir framkvæmdastjóra.

Samhliða þessari breytingu hefur GR ráðið nýjan starfsmann í stöðu forstöðumanns vallarsviðs, Styrmi Guðmundsson.

Styrmir er fæddur 1975, er með menntun í markaðhagfræði frá Copenhagen Business School í Danmörku og viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands. Áður en hann hóf viðskiptafræðinámið lærði hann golfvallarumsjón (National Certificate in Greenkeeping) við Elmwood College í Skotlandi, líkt og margir vallarstjórar hér á landi. Síðastliðin 20 ár hefur hann starfað hjá fyrirtækjum í fjármálageiranum. Áður vann hann sem vallarstarfsmaður hjá Nesklúbbnum og Golfklúbbi Sandgerðis. Á síðasta ári starfaði hann hjá Ferndown Golf Club á Englandi, þar sem hann var meðlimur, en Styrmir er reyndur og góður kylfingur. Hann er með mjög mikla rekstrar- og stjórnunarreynslu, þekkingu á umhirðu og rekstri golfvalla ásamt alhliða þekkingu á íþróttinni.

Ráðning Styrmis sem forstöðumanns vallarsviðs GR er hrein viðbót við starfsliðið sem sinnir golfsvæðum GR. Rekstur GR hefur vaxið verulega á undanförnum árum.  Samhliða hefur klúbburinn staðið í umfangsmiklum framkvæmdum og innviðafjárfestingum. Verkefnin hafa orðið fleiri og umfangsmeiri og er sinnt allt árið um kring. Vallarsviðið er umfangsmikið, þegar horft er til rekstrartalna, fjölda starfsmanna, framkvæmda og fjárfestinga. Að þessu öllu athuguðu var það mat stjórnar að tímabært væri að ráða inn nýjan stjórnanda yfir þessu sviði.

Við væntum mikils af Styrmi og bjóðum hann velkominn til starfa fyrir GR.

Stjórn GR

Recent Posts

Graslendi við ströndina undir dramatískum skýjuðum himni við sólsetur, með vatni og fjarlægri strandlengju.
Eftir Sigríður Guðmundsdóttir 22. apríl 2026
Á morgun, Sumardaginn fyrsta verður opið hús hjá okkur í Golfklúbbur Reykjavíkur. Við ætlum að koma okkur í gírinn fyrir komandi golfsumar – opið verður frá kl. 11:00 – 15:00. Félagsmenn er hvattir til að koma sýna sig og sjá aðra, kynna sér starfsemi klúbbsins og sækja pokamerkin sín fyrir sumarið. Meðal þess sem verður […] The post GR – dagurinn – opið hús á morgun, Sumardaginn fyrsta! appeared first on GR Golf.
Sólbjartur golfvöllur með löngum skuggum, trjám, krókóttum stíg og hvítum byggingum nálægt vatni við sólsetur
Eftir Sigríður Guðmundsdóttir 20. apríl 2026
Kæru félagsmenn Rétt eins og kom fram í fréttabréfi um liðna helgi að þá er inniæfingaaðstaðan á Korpu lokuð á morgun, þriðjudaginn 21. apríl, vegna stefnumóts við oddvita framboða í Reykjavík. Við hvetjum öll til að mæta á stefnumótið og hafa þannig áhrif á framtíð okkar ástsælu íþróttar í borginni. Staðsetning: Korpa, 2. hæð Tímasetning: […] The post Inniæfingaaðstaðan á Korpu lokuð – þriðjudaginn 21. apríl appeared first on GR Golf.
Þrír bláir fánar veifa á háum stöngum við heiðskíran himin
Eftir Sigríður Guðmundsdóttir 20. apríl 2026
Básar opna kl. 15:00 á morgun þriðjudaginn 21. apríl og miðvikudaginn 22. apríl vegna framkvæmda, þar sem unnir er að því að leggja nýtt gervigras á útisvæði Bása.     The post Básar opna kl.15:00 – þriðjud. 21. apríl og miðvikud. 22. apríl appeared first on GR Golf.
Sólbjartur golfvöllur með sandbyrgjum, grænum brautum og vatnshindrun nálægt trjám
Eftir Sigríður Guðmundsdóttir 17. apríl 2026
Stór hópur íslenskra afrekskylfinga er á meðal keppenda á Sand Valley Spring Series Final mótinu sem fer fram í Póllandi dagana 17.-19. apríl. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og er þetta þriðja og síðasta mót hópsins á Sand Valley svæðinu. Við eigum okkar fulltrúa á […] The post Lokamótið hjá Dagbjarti í Póllandi hefst í dag – Sand Valley Spring Series Final appeared first on GR Golf.
Eftir Sigríður Guðmundsdóttir 17. apríl 2026
Sumardaginn fyrsta, þann 23. apríl ætlar Golfklúbbur Reykjavíkur að halda opið hús á Korpu. Við ætlum að koma okkur í gírinn fyrir komandi golfsumar – opið verður frá kl. 11:00 – 15:00. Félagsmenn er hvattir til að kom sýna sig og sjá aðra, kynna sér starfsemi klúbbsins og sækja pokamerkin sín fyrir sumarið. Meðal þess […] The post GR dagurinn – opið hús á Sumardaginn fyrsta þann 23. apríl – hlökkum til að sjá ykkur! appeared first on GR Golf.
Eftir harpa 15. apríl 2026
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 2026 bjóðum við til opins fundar þar sem oddvitar helstu framboða ræða framtíðarsýn sína um uppbyggingu og áframhaldandi vöxt golfíþróttarinnar í Reykjavík. Hvernig ætla flokkarnir að styðja við golf sem lýðheilsu- og fjölskylduíþrótt? Hver er framtíðarsýn þeirra varðandi aðstöðu, uppbyggingu og aðgengi? Hvernig verður mætt aukinni eftirspurn og löngum biðlistum? Golfíþróttin hefur vaxið […] The post Stefnumót við oddvita, framtíð golfs í Reykjavík appeared first on GR Golf.
Tyrknesk tafla: nótnaskrá með lista yfir listamenn, nótur, trúnaðarupplýsingar og búninga.
Eftir harpa 15. apríl 2026
Daníel Ísak Steinarsson, Hlynur Bergsson og Dagbjartur Sigurbrandsson eru allir á meðal efstu kylfinga Sand Valley Masters mótsins sem lýkur í dag. Mótið, sem fer fram á Sand Valley golfsvæðinu í Póllandi, er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu. Stór hópur íslenskra afrekskylfinga var á meðal keppenda mótsins […] The post Þrír í toppbaráttu fyrir lokahring Sand Valley Masters appeared first on GR Golf.
Tveir einstaklingar sitja fyrir innandyra, hvor um sig með appelsínugulan snakkpakka fyrir framan bláan, merktan bakgrunn.
Eftir harpa 9. apríl 2026
Um páskana var haldið púttmót í Korpunni, bæði fjölskyldupútt og liðakeppni. Vel var mætt í fjölskyldupúttið og gaman að sjá krakkana spreyta sig. Boðið var uppá veitingar eftir púttið og öll börn fengu að snúa lukkuhjóli. Öll börn fóru glöð heim með einhvern glaðning. Þökkum öllum sem komu og tóku þátt. Úrslitin voru eftirfarandi Fjölskyldustund sæti […] The post Vel heppnað páskapútt appeared first on GR Golf.
Eftir harpa 31. mars 2026
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna í maí stendur Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) fyrir opnum fundi þar sem rætt verður um framtíð golfs og útivistar í Reykjavík. Fundurinn er einstakt tækifæri fyrir kylfinga og áhugafólk til að eiga samtal við fulltrúa stjórnmálaflokkanna um eitt stærsta íþrótta- og lýðheilsumál borgarinnar. Golf hefur á undanförnum árum styrkt stöðu sína sem ein […] The post Látum þetta verða líflegan og vel sóttan viðburð. Opinn fundur um framtíð golfs í Reykjavík appeared first on GR Golf.
Eftir harpa 30. mars 2026
Laugardaginn 4. apríl ætlum við að efna til skemmtilegs liða púttmóts fyrir GR félaga. Mótið er frá 14:00-17:00 – 2 saman í liði. Spilaðir 2 hringir og betri hringur hvors liðsfélaga gildir inn í liðsskorið. Veitt eru verðlaun fyrir 1.-3. sæti og einnig dregið úr skorkortum. Hvetjum alla GR félaga til að mæta og hafa […] The post Liðakeppni – Páskapútt appeared first on GR Golf.
Show More