Stefnumót við oddvita, framtíð golfs í Reykjavík
Í aðdraganda borgarstjórnarkosninganna 2026 bjóðum við til opins fundar þar sem oddvitar helstu framboða ræða framtíðarsýn sína um uppbyggingu og áframhaldandi vöxt golfíþróttarinnar í Reykjavík.
Hvernig ætla flokkarnir að styðja við golf sem lýðheilsu- og fjölskylduíþrótt?
Hver er framtíðarsýn þeirra varðandi aðstöðu, uppbyggingu og aðgengi?
Hvernig verður mætt aukinni eftirspurn og löngum biðlistum?
Golfíþróttin hefur vaxið hratt á undanförnum árum og er mikilvægur hluti af útivist, heilsu og félagslífi borgarbúa. Nú er rétti tíminn til að ræða hvert stefnir og hvaða ákvarðanir þarf að taka til framtíðar.
Á fundinum fá oddvitar tækifæri til að kynna sín sjónarmið og svara spurningum úr sal.
Staðsetning:
Golfskálinn, Korpúlfsstöðum
Dagsetning:
21. apríl 2026
Tími:
19:30
Fundarstjóri: Oddur Þórðarson, Fréttamaður
Allir eru hjartanlega velkomnir – kylfingar, áhugafólk og allir sem vilja taka þátt í samtalinu um framtíð golfíþróttarinnar í borginni.
Boðið verður uppá léttar veitingar
Mætum og tökum þátt
The post Stefnumót við oddvita, framtíð golfs í Reykjavík appeared first on GR Golf.
Recent Posts







