Valreglur kynntar fyrir landslið kylfinga 50 ára og eldri
Nýjar valreglur fyrir landslið kylfinga 50 ára og eldri hafa tekið gildi. Reglurnar gilda fyrir eldri landslið Íslands sem taka þátt í Evrópumótum á vegum EGA.
Í kvennaflokki verða sex kylfingar valdir. Tveir efstu kylfingarnir á stigalista LEK tryggja sér sæti, en fjórir aðrir koma úr efstu sætum Íslandsmóts eldri kylfinga.
Í karlaflokki verður landsliðið skipað fjórum kylfingum þar sem efsti kylfingurinn á stigalista LEK fær sjálfkrafa sæti á meðan þrír koma úr Íslandsmóti eldri kylfinga.
Ef áhugakylfingur sem hefur áunnið sér rétt á landsliðssæti í gegnum LEK
öldungamótaröðina afsalar sér þeim rétti mun áhugakylfingur í sæti fyrir neðan á LEK
öldungamótaröðinni hljóta sæti í liðinu. Ef áhugakylfingur sem hefur áunnið sér rétt á
landsliðssæti í gegnum Íslandsmót eldri kylfinga í flokki 50 ára og eldri afsalar sér þeim rétti
mun áhugakylfingur í sæti fyrir neðan í Íslandsmóti eldri kylfinga í flokki 50 ára og eldri hljóta
sæti í liðinu.
Skilyrði og ábyrgð
Til að vera gjaldgengir þurfa kylfingar að hafa náð tilskildum aldri, vera með íslenskan ríkisborgararétt og vera félagar í golfklúbbi innan vébanda GSÍ.
Afreksstjóri GSÍ mun tilkynna landsliðin formlega eigi síðar en 1. ágúst ár hvert.
The post Valreglur kynntar fyrir landslið kylfinga 50 ára og eldri appeared first on GR Golf.
Recent Posts







