Vellir félagsins formlega lokaðir fyrir veturinn
Á sama tíma og við þökkum félögum og öðrum kylfingum sem hafa spilað vellina okkar í sumar þá tilkynnum við að ákvörðun hefur verið tekin að loka Landinu og þar með hefur öllum lykkjum Korpunnar verið lokað ásamt Grafarholtsvelli og Grafarkotsvelli.
Við minnum á að Thorsvöllur er opinn allt árið eins og áður. Á sama tím minnum við á Bása, þar sem hægt er að mæta, nýta Trackman tæknina og ef kuldinn sækir að þá er svo auðvelt að kvekja á hitalömpunum – notalegt! Inniæfingaaðstaða Korpunnar er einnig opin yfir vetrartímann og verður hægt að sjá hvenær hún er opinn og hvenær hún er upptekinn vegna æfinga hér.
Áfram GR![]()
![]()
![]()
Golfkveðjur,
Stjórn og starfsfólk GR
The post Vellir félagsins formlega lokaðir fyrir veturinn appeared first on GR Golf.
Recent Posts







