Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur - skráning hefst á morgun
Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti miðvikudaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót.
Keppnisfyrirkomulag
Leikið verður samkvæmt Greensome-fyrirkomulagi þar sem tveir kylfingar mynda lið.
Við útreikning liðsforgjafar fær liðið:
- 60% af leikforgjöf kylfings með lægri forgjöf
- 40% af leikforgjöf kylfings með hærri forgjöf
Hámarksforgjöf:
- Karlar: 24
- Konur: 28
Ræsing
Ræst verður út samtímis af öllum teigum kl. 09:00. Kylfingar eru vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega svo allir komist á sinn rásteig fyrir ræsingu.
Verðlaun
Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin auk nándarverðlauna á öllum par 3 holum vallarins.
Skráning
Skráning hefst í mótaskrá Golfbox þriðjudaginn 9. júní kl. 13:00.
Mótsgjald
Mótsgjald er 9.500 kr. á mann og greiðist inn á reikning hjá veitingasala. Athugið að skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist.
Upplýsingar um reikning:
- Reikningsnúmer: 0133-15-380680
- Kennitala: 650913-0270
- Reikningshafi: Vagninn 1935 ehf.
Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu.
Matseðill
Forréttur
Þrjár tegundir af tapas-snittum:
- Hráskinka
- Reyktur lax
- Skampi-rækjur
Aðalréttur
Heilsteikt nautalund með:
- Béarnaisesósu
- Bátakartöflum
- Grænmetisvendi
- Sellerírótarmauki
Eftirréttur
- Konfekt og kaffi
Pylsupartý!
Byrjað verður að afgreiða pylsur um það bil 1½ klukkustund eftir að golfið hefst.
Hæ hó, jibbí jei – það styttist í Hjóna- og parakeppnina!
Golfklúbbur Reykjavíkur ⛳🏌️♀️🏌️♂️
Recent Posts









