Lexus mótið- úrslit - vallarmet og hola í höggi hjá okkar kylfingum
Sigurður Bjarki Blumenstein tók forystuna í karlaflokki eftir frábæran annan hring og hring dagsins áöðrum keppnisdegi átti Þóra Sigríður Sveinsdóttir, sem setti nýtt vallarmet af teigum 52.
Sigurður Bjarki var efstur fyrir lokahringinn
Töluverðar breytingar urðu á stöðunni í karlaflokki á öðrum hring. Sigurður Bjarki Blumenstein, GR, lék sig upp í efsta sætið og er samtals á átta höggum undir pari. Sigurður lék hring dagsins á 64 höggum, sjö undir pari, sem er besti hringur mótsins til þessa.
Jóhanni Frank Halldórsson var jafn í þriðja sæti fyrir lokahringinn á fjórum höggum undir pari.
Böðvar Bragi fór holu í höggi
Böðvar Bragi Pálsson, GR, átti högg dagsins á öðrum keppnisdegi, þegar hann fór holu í höggi á 9. holu Leirdalsvallar. Draumahöggið hjálpaði honum að færa sig upp stöðutöfluna og inn í toppbaráttuna fyrir lokahringinn, en Böðvar er jafn í fimmta sæti á þremur höggum undir pari.
Þóra Sigríður setti nýtt vallarmet
Þóra Sigríður Sveinsdóttir átti þó besta hring dagsins á öðrum keppnisdegi. Hún lék Leirdalsvöll á 68 höggum og setti með því nýtt vallarmet af keppnisteigum kvenna (52). Þóra fékk fimm fugla og tvo skolla á hringnum og lék á þremur höggum undir pari.
Vallarmetið skilaði Þóru mikilli hækkun upp stöðutöfluna. Hún deildi öðru sætinu fyrir lokahringinn með Fjólu Margréti Viðarsdóttur, en þær voru báðar á sjö höggum yfir pari. Perla Sól Sigurbrandsdóttir var höggi á eftir þeim í fjórða sæti.
Lokahringurinn og úrslit
Daníel Ísak hafði fyrsta sætið af Sigurði Bjarka eftir frábæra spilamennsku í gegnum allt mótið. Hann lék hringina þrjá á 68, 68 og 67 höggum og var því undir pari alla keppnisdagana.
Sigurður Bjarki lauk leik á sjö höggum undir pari, þremur höggum á eftir Daníel og var jafn í öðru sæti mótsins. Sigurður Bjarki lék lokahringinn á 72 höggum.
Tómas Eiríksson Hjaltested átti einnig góðan lokahring og jafnaði skor Daníels, 67 högg. Hann færðist upp í sjöunda sætið og lauk mótinu á einu höggi undir pari. Jóhann Frank Halldórsson varð jafn í fjórða sæti á þremur höggum undir pari. Böðvar Bragi Pálsson, sem fór holu í höggi á 9. holu á öðrum keppnisdegi, varð sjötti á tveimur höggum undir pari.
Karen Lind hóf lokahringinn með fjögurra högga forskot og hélt forystunni allan daginn. Hún lék lokahringinn á 76 höggum, fimm yfir pari, og lauk mótinu á 221 höggi, átta höggum yfir pari.
Þóra Sigríður Sveinsdóttir varð önnur á 16 höggum yfir pari. Hún lék besta hring flokksins á öðrum keppnisdegi þegar hún kom í hús á 68 höggum, þremur undir pari, og setti nýtt vallarmet.
Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Guðrún Birna Snæþórsdóttir deildu þriðja sætinu á 17 höggum yfir pari. Guðrún Birna lék næstbesta hring lokadagsins í kvennaflokki, á 78 höggum, en Karen átti besta skor dagsins með 76 högg.
Mótið var það sjötta á GSÍ mótaröðinni í sumar og jafnframt síðasta mótið fyrir Íslandsmótið í golfi, sem fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst.
Recent Posts













