Ragnhildur á meðal 10 efstu í Svíþjóð
Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni héldu áfram góðri spilamennsku sinni í Svíþjóð í vikunni.
Swedish Strokeplay mótið á LET Access mótaröðinni fór fram dagana 1.-3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir.
Ragnhildur Kristinsdóttir náði besta árangri íslensku kylfinganna og endaði jöfn í fimmta sæti á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur lék hringina þrjá á 74, 72 og 71 höggi, en par vallarins er 73. Hún endaði mótið af miklum krafti og fékk tvo fugla á síðustu þremur holunum.
Eftir mótið er Ragnhildur í 10. sætii á stigalista LET Access mótaraðarinnar. Efstu sjö kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.

Recent Posts









