Ragnhildur Kristinsdóttir mætt á þriðja mót LET Access
Sigríður GR Golf • 5. júní 2026
Arkea Montauban Ladies Open mótið á LET Access mótaröðinni hefst í dag. Mótið er það þriðja á LET Access tímabilinu, en leikið er á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi.
Ragnhildur Kristinsdóttir er meðal keppenda ásamt þeim Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir.
Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Ragnhildur hefur hafið tímabilið af krafti og er í fjórða sæti stigalistans eftir tvö mót. Hún varð önnur í síðasta móti LET Access, og stóð uppi sem sigurvegari Korpubikarsins á GSÍ mótaröðinni um síðastliðna helgi.
Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf
•
5. júní 2026
Kæru félagar, Staðarreglur í Grafarholti og á Korpúlfsstöðum hafa verið uppfærðar og er helsta breytingin sú að nú leikum við hreyfingalaust golf, þ.e. nú eru hreyfingar ekki leyfðar, hvorki á flötum né á snöggslegna almenna svæðinu. Við vekjum athygli kylfinga á því að það er ábyrgð hvers og eins leikmanns að kynna sér ávallt staðarreglur þess vallar sem spilaður er. Hér fyrir neðan má finna hlekk á staðarreglur fyrir Korpúlfsstaði, Grafarholt og Thorsvöll. GSÍ hefur sett í gildi reglugerð sem heimilar ekki leikna hringi til forgjafara frá 1. júní til 15. október þegar um hreyfingar á flötum er að ræða. Hlekk á tilkynningu GSÍ og reglugerð GSÍ má finna hér að neðan ásamt hlekk á fréttina “Hvers vegna er ekki heimilt að leyfa bætta legu á flötum?” frá GSÍ. Staðarreglur í Grafarholt Tímabundnar staðarreglur í Grafarholt Staðarreglur Korpúlfsstaðir Staðarreglur Thorsvöllur Reglugerð um forgjafartímabil á Íslandi Reglurgerð um hvenær heimilt er að skrá skor til forgjafar Grein frá GSÍ - Hvers vegna er ekki heimilt að leyfa bætta legu á flötum
Eftir Sigríður GR Golf
•
4. júní 2026
Kæru félagar! Eins og þið hafið séð, þá hafa staðið yfir framkvæmdir við endurbætta 1. braut í Grafarholti. Framkvæmdir hófust í októbermánuði 2024 við mótun nýrrar flatar. Síðastliðið vor var sáð í flötina og forflöt og hefur það svæði fengið að dafna síðan þá. Síðastliðið haust hófust framkvæmdir við brautina sjálfa, allt frá veg að nýju forflötinni, með mikilli jarðvegsmótun, ísetningu vökvunarkerfis o.s.frv. Frá því í vor hefur vinnan haldið áfram, með gerð glompa og nú síðast tyrfingu á brautinni. Tyrfingin tókst með eindæmum vel. Brautin er að okkar mati glæsileg, þar sem mikil vinna og metnaður hafa verið lögð í öll smáatriði. Brautin var hönnuð af Tom McKenzie. Lykilmenn í framkvæmdinni hafa verið vallarteymið okkar í Grafarholti, þeir Darren Lee Farley og Bjarni Grétar Sigurðsson ásamt Ellerti Þórarinssyni, yfirmanni framkvæmda og Styrmi Guðmundssyni, forstöðumanni vallarsviðs. Ekki má gleyma verktökunum, en þar ber sérstaklega að nefna Steindór Eiðsson á jarðýtunni, Sveinn Steindórsson gröfumann og Chris Elrick frá Skotlandi, sem tók að sér lokafrágang á glompunum, sem eru glæsilegar á að líta. Við færum þessum hópi, sem og öðrum starfsmönnum sem að hafa komið, sérstakar þakkir. Fyrstu vikurnar verða brautarglompurnar ekki í leik, þær eru enn sandlausar og merktar grund í aðgerð. Við biðjum kylfinga sérstaklega um að að gæta sérstaklega að því, þegar boltar eru sóttir, að ganga varlega um kanta glompanna, þar sem þeir eru einkar viðkvæmir og þurfa lengri tíma til að styrkjast og gróa. Eins og þið sjáið á myndum, var við gerð glompanna notað sérstakt einangrunarlag í jarðveginn sem á að koma í veg fyrir að steinar komi upp í glompurnar vegna frostlyftinga. Lengd brautarinnar Teigur 63 – 335 metrar Teigur 57 – 319 metrar Teigur 52 – 295 metrar Teigur 46 – 287 metrar Við opnun 1. brautar í Grafarholti verður jafnframt 2. braut opnuð og verður Grafarholtsvöllur því leikinn sem 18 holu völlur frá og með næstkomandi laugardegi. Stjórn og starfsmenn GR þakka félagsmönnum fyrir þá þolinmæði og stuðning sem sýndur hefur verið meðan á framkvæmdunum hefur staðið. Við hlökkum til að opna þessa glæsilegu nýju 1. braut og taka á móti kylfingum á laugardaginn kemur. Stjórn og starfsmenn GR

Eftir Sigríður GR Golf
•
4. júní 2026
Tvö fyrstu mótin í LEK-mótaröð eldri kylfinga eru nú að baki, en mótaröðin samanstendur af sjö spennandi mótum víðs vegar um landið. Byrjun sumars hefur sannarlega reynt á keppendur. Í Þorlákshöfn tók grenjandi rigning á móti kylfingum og í Grindavík voru það hvassir vindar sem settu svip sinn á keppnina. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hafa þátttakendur sýnt mikla seiglu, keppnisskap og einstakan dugnað. Mótaröðin hefur mikið vægi, enda telja sex af sjö mótum til vals á landsliðum LEK. Hvert stig getur því skipt sköpum fyrir þá kylfinga sem stefna á landsliðssæti. Þá hlýtur stigahæsti áhugamaðurinn í flokki 50+ sæti í landsliði Golfsambands Íslands 50+, sem gerir keppnina enn áhugaverðari. Keppt er í fjölmörgum flokkum karla og kvenna, bæði með og án forgjafar, og hafa kylfingar úr GR farið afar vel af stað. Félagið stendur sterkt í A-flokkum karla 50+, 55+ og 65+ án forgjafar. Jón Karlsson úr GR leiðir keppnina í flokki 50+, á meðan Einar Long, einnig úr GR, situr á toppnum í bæði 55+ og 65+ flokki án forgjafar. Þá vann Steinunn Sæmundsdóttir glæsilegan sigur í 65+ flokki kvenna á mótinu í Grindavík. Þetta er glæsileg byrjun hjá GR-ingum og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá okkar kylfingum. Næsta mót LEK-mótaraðarinnar fer fram á Strandarvelli á Hellu sunnudaginn 14. júní. Stigalista fyrir alla flokka má finna hér Hér má finna nánari úrstli úr móti 1 Hér má finna nánari úrslit úr móti 2

Eftir Sigríður GR Golf
•
4. júní 2026
Fyrsta mót í Golf14 mótaröð GSÍ fór fram um liðna helgi á Nesvelli Nesklúbbsins. Metskráning var í mótið og voru alls 167 ungir kylfingar skráðir til leiks. Mótið var haldið á Nesvellinum hjá Nesklúbbnum. Ísak Hrafn Jónasson keppti í flokki 11-12 ára drengja og endaði í 2 sæti í mótinu á átta höggum undir pari (-8). Hann spilaði fyrri 9 holurnar á 30 höggum og seinni 9 holurnar á 32 höggum. Ísak Hrafn tapaði ekki höggi á mótinu, hann fékk 5 fugla á fyrri hringnum og 3 á þeim seinni. Golfklúbbur Reykjavíkur var með 16 unga og efnilega kylfinga á mótinu og má sjá árangur þeirra hér að neðan. Önnur úrslit má finna hér Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Ísaki Hrafni innilega til hamingju með árangurinn sem og öðrum kylfingum klúbbsins með sinn árangur. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir kylfingar skráðu sig til leiks og tóku þátt í fyrsta móti sumarins. Næsta mót hefst á morgun, Golf14-Icewear bikarinn sem er spilaður hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Eftir Sigríður GR Golf
•
2. júní 2026
Annað mót Unglingamótaraðar GSÍ fór fram dagana 30.–31. maí á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Leiknar voru 54 holur, 36 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Alls voru 102 keppendur skráðir til leiks og var Golfklúbbur Reykjavíkur með 16 efnilega keppendur á mótinu Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, klúbbmeistari GR 2025, sigraði í stúlknaflokki eftir frábæra spilamennsku. Ásdís lék hringina þrjá á samtals 217 höggum (74-69-74) eða 4 höggum yfir pari og tryggði sér sigur eftir gífurlega spennandi lokakafla. Ásdís vann með einu höggi og varð á undan þremur kylfingum sem urðu jafnar í 2. sæti. Þess má geta að Ásdís lék annan hringinn sinn á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari, glæsilegur hringur. Ásdís varð Íslandsmeistari unglinga í holukeppni árið 2024 og er þetta því hennar annar sigur á mótaröðinni. Glæsileg byrjun á keppnissumrinu hjá Ásdísi, einum af okkar efnilegustu kylfingum. Hjá piltunum var það Birgir Steinn Ottósson sem endaði í 14. sæti í flokki 15-18 ára piltar, á +4 höggum (73-72-72). Nánari úrslit má finna hér Við óskum Ásdísi innilega til hamingju með sigurinn og öðrum kylfingum með sinn árangur. Næsta mót fer fram hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar 4.-6. júní. ÁFRAM GR! 💙

Eftir Sigríður GR Golf
•
1. júní 2026
Korpubikarinn 2026 í samvinnu við First Water fór fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 29.-31. maí. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og Aron Snær Júlíusson, GKG, stóðu uppi sem sigurvegarar eftir frábæra spilamennsku um helgina. Hér má sjá lokastöðu mótsins. Ragnhildur var jöfn í þriðja sæti fyrir lokahringinn en lék frábært golf á lokadeginum. Hún kom í hús á 65 höggum, sex höggum undir pari, og vann mótið með fimm högga mun. Eftir erfiða byrjun á mótinu lék Ragnhildur síðustu 26 holurnar á ellefu höggum undir pari. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, varð önnur á einu höggi undir pari. Perla fékk flesta fugla allra í kvennaflokknum, alls fjórtán. Hún vann fyrsta mót tímabilsins og styrkti stöðu sína á toppi stigalistans með árangrinum. Eva Kristinsdóttir, GM, og Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, urðu jafnar í þriðja sæti á tveimur höggum yfir pari. Eva Fjóla Ragnhildur og Perla Í karlaflokki vann Aron Snær mótið eftir harða baráttu við Aron Emil Gunnarsson, GOS, sem varð annar. Aron Emil hafði leitt mótið frá fyrsta hring, en góð spilamennska Arons Snæs á öðrum og þriðja hring gerði gæfumuninn. Aron Snær hefur nú unnið bæði mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og er með örugga forystu á toppi stigalistans. Veigar Heiðarsson, GA, varð þriðji á þremur höggum undir pari. Korpubikarinn var hans fyrsta mót á tímabilinu hér heima, en Veigar var nýverið að ljúka sínu fyrsta tímabili í bandaríska háskólagolfinu. Við þökkum keppendum öllum kærlega fyrir þátttöku í Korpubikarnum. Golfklúbbur Reykavíkur í samvinnu við First Water

Eftir Sigríður GR Golf
•
1. júní 2026
Lengri opnunartími í Básum ☀️⛳ Frá og með deginum í dag lengjum við opnunartímann í Básum á kvöldin. Sumaropnun frá 1. júní - 31. júlí er sem hér segir: Mánudaga - fimmtudaga kl. 06:00-23:00 síðustu boltar seldir kl. 22:30 Föstudaga - laugardaga kl. 06:00-20:00 síðustu boltar seldir kl. 19:30 Sunnudaga kl. 06:00-22:00 síðustu boltar seldir kl. 21:30

Eftir Sigríður GR Golf
•
29. maí 2026
Hj á okkur í Golfklúbbi Reykjavíkur er flott og öflugt eldri borgara starfs. Í fararbroddi fara nokkrir vaskri menn sem nýta hin ýmsu tækifæri til að hafa gaman saman og skipuleggja hina ýmsu viðburði fyrir heldri kylfinga klúbbsins. Í vetur var farið af stað með Golfhermamót 70 ára og eldri kylfinga GR. Mótaröðin stóð saman af fjórum mótum og leikið Nítjándu, golfhermaaðstaða á Bíldshöfða. Hver umferð stóð yfir í einn mánuð og höfðu keppendur 2 tilraunir til að leika völl hvers mánaðar og betra skorið gilti. Í mótaröðinni voru eingöngu spilaðir íslenskir vellir. Í fyrsta umferð var Grafarholtið spilað, í annari umferð var það Leirdalurinn hjá GKGK, í þriðju umferð var "ferðast" á Jaðarsvöll á Akureyri og síðasta umferðin var leikin "á" Hvaleyrinni. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karlaflokki með forgjöf og efsta sætið í kvennaflokki. Einnig voru veitt verðlaun fyrir efsta sæti án forgjafara. Úrslitin úr fyrstu Golfhermamótaröð 70 ára og eldkri kylfinga GR voru þessi: Karlaflokkur með forgjöf Hákon Hákonarson - 36 - 37 - 41 - 34 - samtals 114 punktar Ásmundur R Richardsson - 31 - 38 - 35 - 36 - samtals 109 punktar Valur Jónatansson - 35 - 38 - 34 - 33 - samtals 107 punktar Kvennaflokkur með forgjöf Anna Sigurjónsdóttir - 20 - 36 - 30 - 40 - samtals 106 punktar Úrslit í flokki án forgjafar Hans Isebarn - 30 - 34 - 38 - 36 - samtals 108 punktar.

Eftir Sigríður GR Golf
•
29. maí 2026
Korpubikarinn í samvinnu við First Water hófst í dag, föstudaginn 29. maí á Korpúlfsstaðavelli. Mótið er annað mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum. Smelltu hér til að sjá stöðuna Keppendahópurinn er sterkur líkt og önnur ár í þessu flotta móti. Íslandsmótið í golfi verður einnig leikið á Korpúlfsstöðum seinna í sumar. Í karlaflokki eru 72 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.7, lægsta forgjöfin er +5.4 og hæsta forgjöfin er 5.1. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf. Fjórir af fimm efstu kylfingum Reykjanesmótsins eru á meðal keppenda. Þar á meðal eru Aron Snær Júlíusson og Tómas Eiríksson Hjaltested, sem báðir unnu til verðlauna í því móti. Akureyringurinn Veigar Heiðarsson mætir einnig í sitt fyrsta mót á tímabilinu, en hann kemur inn af krafti eftir að hafa leikið í bandaríska háskólagolfinu í vetur. Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 1, lægsta forgjöfin er +4 en sú hæsta er 6.1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir stefnir á sinn annan sigur í röð eftir flotta frammistöðu fyrr í maí. Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir er einnig á meðal keppenda, en hún endaði önnur í LET Access móti í síðustu viku. Keppendur eru alls 90, og koma þeir frá 15 klúbbum víðsvegar af landinu. GR á þar flesta kylfinga eða tuttugu og sjö alls. GKG kemur þar á eftir með sextán keppendur, og GM sendir fjórtán. Sjö klúbbar eru með keppendur í bæði kvenna- og karlaflokki.

Eftir Sigríður GR Golf
•
27. maí 2026
Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar 2026 fór fram í Þorlákshöfn 23.–25. maí. Fullt var í mótið, alls 81 keppandi, þar af 13 frá GR — þriðji fjölmennasti klúbburinn á mótinu. Helstu úrslit voru þessi, Sebastian Blær Ómarsson endaði í 7. sæti í flokki 15-18 ára piltar, á tveimur höggum undir pari (72-70-72). Sebastian Blær var í hópi þeirra átta efstu sem luku mótinu á undir pari. Birgir Steinn Ottósson fylgdi fast á eftir í 11. sæti á +4 samtals. Hjá stúlkunum var það Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir sem endaði í 9. sæti í flokki 15-18 ára stúlkur, á +13 höggum (80-77-72). Ásdís átti frábæran lokahring sem hún lék á pari vallarins. Erna Steina Eysteinsdóttir endaði í 11. sæti og bætti skor sitt á hverjum hring. Nánari úrslit má finna hér Til hamingju krakkar með flott fyrsta mót.! Næsta mót fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar 30.–31. maí. ÁFRAM GR

