Ástand og framkvæmdir valla – skýrsla vallarstjóra

Sigríður GR Golf • 23. maí 2026

Share this article

Með hækkandi sól eykst tilhlökkunin að komast út á golfvellina okkar. Tilhlökkunin sést vel á fjölda manns í Básum á blíðviðrisdögum, en augljóslega eru félagsmenn orðnir ansi golfþyrstir!

Líðandi vetur hefur verið risjóttur og ekki langt síðan snjómokstur þurfti til að komast að klúbbhúsum okkar.

Við höfum tekið saman stutta samantekt af ástandi valla okkar og fer hún hér eftir.

 

Korpan

Ástandið á Korpunni er keimlíkt því sem var fyrir um þremur árum, þegar vorið kom alltof seint. Gróft á litið sýnist okkur völlurinn í svipuðu standi og í marsmánuði í fyrra.


Við erum búnir að bera á allar flatir og teiga, en það er að gerast seint sökum þess að frost er enn að fara úr jörðu og flatirnar mjög mjúkar sem kallar á mikla varkárni í umgengni.


Völlurinn er farinn að grænka og vonandi tekur hann hratt við sér næstu daga, en sumar flatirnar eru ekki að koma neitt sérstaklega vel undan vetri. Kal er á nokkrum stöðum og sum álagssvæði illa farin. Þau verða meðhöndluð um leið og aðstæður leyfa. Það er staðreynd að grasið okkar þolir vetrarhörku illa og áherslan þarf að vera á að ná upp æskilegri og sterkari grastegundum í flatirnar, litið fram á veginn. Við munum gata, sanda, yfirsá og nota dúka þar sem þarf, en ekkert mun koma í stað tíma og góðs veðurfars.


Eins og sakir standa áætlum við opnun síðar en undanfarin ár, líklega helgina 23.-24. maí. Við viljum ekki opna svo snemma að völlurinn líði fyrir það í margar vikur eftir opnun, við þekkjum að um leið og við opnum fyllist völlurinn af kylfingum með tilheyrandi álagi.

 

Grafarholt

Flatir okkar hafa verið að koma ágætlega undan vetri, þrátt fyrir áhyggjur af þurrum frostmánuðum í vetur, en vandræðabörnin 2. og 6.flöt kalla á frekari umhirðu og vinnu sem við munum sinna. Við vonumst til að ástandið lagist hratt með hækkandi hitastigi.


Við höfum sandað, borið á og höfum hafið vökvun þar sem þörfin er hvað mest. Völtun fer fram um leið og við treystum okkur til, en frost er enn í jörðu svo við erum að taka einn dag í einu og feta okkur áfram. Götun og yfirsáning verður framkvæmd þar sem þarf.


Teigar virðast flestir hverjir ágætir og við höfum nýlokið við að gefa þeim áburð. Götun og söndun fer svo fram fljótlega á þeim. Ennfremur vonumst við til að valta brautirnar á næstu tveimur vikum þegar frostið er farið.


Af framkvæmdum í Grafarholti er þetta helst:


1.braut:    Nær öll jarðvinna er búin, en lokafrágangur er eftir og mun fara fram um mánaðarmót eða þegar frostið er farið. Vökvunarkerfi er fullfrágengið. Vinna við glompur hefst um mánaðarmót og tekur um 2 vikur. Við vonumst til að tyrfa í kringum miðjan maímánuð, en það fer allt eftir veðurfari. Við viljum freista þess að taka ekki torf of snemma, þar sem æskilegt er að fá vöx og styrk í grasið áður en það verður skorið og flutt til okkar. Við vonumst til að geta leikið á nýrri fullkláraðri 1. braut ásamt nýjum teigum á 2. braut um miðjan júnímánuð.


3.teigar:   Teigar hafa verið mótaðir og búið er að leggja vökvunarkerfi í þá alla. Teigstæðið er mjög glæsilegt. Verið er að setja jarðveg í hliðar teiganna, til styrkingar, og svo þarf að setja þunnt grunnlag ofan á teigana fyrir tyrfingu. Tyrfing mun fara fram á svipuðum tíma og á 1.braut og ættu því að verða leikhæfir í síðari hluta júní, ef vel gengur. Þriðja flötin er að dafna og við vonumst til að geta opnað inn á hana fullbúna seinna í sumar.


10.flöt:   Vinna við jarðvegsmótun er hafin sem og ísetning dren-lagnar etc. Þessi vinna heldur áfram í sumar og við lokun vallar í haust hefst einnig vinna við nýja teiga fyrir 11.braut, en áætlun miðast við að ný 11. braut verði tekin í gagnið næsta vor.



Gamla æfingasvæðið hefur verið notað sem “geymsla” fyrir jarðveg okkar og er ekki mikil prýði af í dag. Við munum reyna að gæta snyrtimennsku hér, en augljóst er að þetta verður töluverð sjónmengun á meðan stærsti hluti framkvæmdanna gengur yfir.

 

Þegar þetta er skrifað er enn frost í moldarsvæðum og háu grasi á um 10-15cm dýpi. Vonumst við til að það hverfi hratt en þetta tefur allt ferlið okkar meðan varir. Opnun í fyrra var líklega amk. einni viku of snemma og miðað við álagið sem kemur strax á velli okkar við opnun, þá getur það auðveldlega gert stöðuna hratt verri. Við horfum því til helgarinnar 23.-24. maí fyrir opnun, en það verður auglýst nánar um leið og aðstæður leyfa.

 

Bestu kveðjur,
Vallarsvið GR


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 20. ágúst 2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana. Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar. Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september frá kl. 09:00-18:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan. Íslandsmót unglinga 15-18 ára Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 15-16 ára Stúlknaflokki 17-18 ára Piltaflokki 15-16 ára Piltaflokki 17-18 ára Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum. Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 12 ára og yngri Piltaflokki 12 ára og yngri Stúlknaflokki 13-14 ára Piltaflokki 13-14 ára Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á sex stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna. Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni. Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr öllum sex deildunum hér fyrir neðan. 1. deild kvenna – 50+, Gs - GOLFKLÚBBUR sUÐURNESJA Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 1. deild karla – 50+, GÖ - GOLFKLÚBBUR ÖNDVERÐANESS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild kvenna – 50+, GVG - GOLFKLÚBBUR VESTARR Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild karla – 50+, GSG - GOLFKLÚBBUR SANDGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 3. deild karla – 50+, GHG - GOLFKLÚBBUR HVERAGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 4. deild karla – 50+, GHD - GOLFKLÚBBURINN HAMAR DALVÍK Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit
Eftir Sigríður GR Golf 18. ágúst 2026
Mikið áhorf mældist á útsendingar RÚV frá Íslandsmótinu í golfi 2026, sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Uppsafnað áhorf yfir þrjá útsendingardaga mældist 18,3% og náðu útsendingarnar til tæplega 50 þúsund áhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Áhorfið jókst um 26% frá Íslandsmótinu 2025, þegar uppsafnað áhorf mældist 14,5%. Fjöldi áhorfenda jókst jafnframt úr rúmlega 38 þúsund í um 49 þúsund. Áhorf á Íslandsmótið hefur nú rúmlega tvöfaldast frá árinu 2021, þegar 23.850 manns fylgdust með mótinu. Áhorfið jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Um 17 þúsund manns horfðu á útsendinguna á föstudeginum, 26 þúsund á laugardeginum og 36 þúsund á sunnudeginum. Karlar horfðu aðeins meira en konur. Uppsafnað áhorf meðal karla mældist 19,4%, eða um 26 þúsund áhorfendur, samanborið við 17,3% og um 23 þúsund áhorfendur meðal kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu mældist uppsafnað áhorf 19%, en 17,1% á landsbyggðinni. Mikill áhugi á heimasíðu mótsins Nýr skor- og upplýsingavefur Íslandsmótsins fékk einnig frábærar viðtökur. Alls heimsóttu 22.370 notendur skorvefinn á keppnisdögunum fjórum og um 10 þúsund virkir notendur fylgdust þar með mótinu daglega. Samanlagt voru síðuflettingarnar 553.163 og meðalheimsóknin var rúmar tólf mínútur. Mikill áhugi var á mótinu, bæði í beinni útsendingu RÚV og meðal þeirra sem fylgdust með stöðunni í rauntíma á netinu. Hér má nálgast heimasíðu mótsins og alla tölfræði. Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í golfi annað árið í röð. Metnaðarfull umgjörð mótsins, umfangsmikil útsending RÚV og frammistaða keppenda skiluðu sér í mesta áhorfi sem mælst hefur á Íslandsmótinu undanfarin ár. 
Eftir Sigríður GR Golf 17. ágúst 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild karla árið 2026 eftir 5-0 sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í úrslitaleik mótsins á Hellu í dag. Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur titilinn, og sá 27. frá upphafi. GR vann A-riðil með 2,5 stig eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Sveit GM endaði í öðru sæti riðilsins og fylgdi GR í undanúrslitin. Riðill GR Í undanúrslitum mætti GR liði Golfklúbbsins Keilis og vann þar 4–1 sigur. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson unnu fyrri fjórmenninginn 5&3 og Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu þann síðari 2&1. Í tvímenningunum unnu Hákon Örn Magnússon og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sína leiki, en Markús Marelsson sótti eina stig GK. GKG vann B-riðil með fullt hús stiga, og vann Golfklúbb Mosfellsbæjar 3–2 í undanúrslitum. GR og GKG mættust því annað árið í röð í úrslitaleiknum. GR tók öll fimm stigin í úrslitaleiknum GR byrjaði úrslitaleikinn af krafti og vann báða fjórmenningana. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson sigruðu Guðjón Frans Halldórsson og Kristófer Orra Þórðarson 5&4. Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu gegn Ragnari Má Garðarssyni og Skúla Gunnari Ágústssyni. Leikurinn var jafn eftir sautján holur en GR vann átjándu holuna og þar með leikinn. Sigurður Bjarki Blumenstein vann Hjalta Kristján Hjaltason 2&1 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson vann Aron Snæ Júlíusson, 1&0. Hákon Örn Magnússon lék gegn Sigurði Arnari Garðarssyni í síðasta leiknum, en úrslit mótsins voru þá þegar ráðin og sigur GR staðfestur. Lokatölur urðu 5–0. Lið GR á Íslandsmótinu skipuðu: Jóhann Frank Halldórsson, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson, Arnór Tjörvi Þórsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson, Elvar Már Kristinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) Golfklúbburinn Keilir (GK) Golfklúbbur Mosfellsbæjar (GM) Golfklúbbur Suðurnesja (GS) Golfklúbbur Selfoss (GOS) Golfklúbbur Akureyrar (GA) Golfklúbbur Bolungarvíkur (GBO) – leika í 2. deild á næsta ári  Hér má sjá öll úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu dagana 13.-15. ágúst 2026. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi meistari karla, en klúbburinn sigraði mótið í 26. skiptið á Leirdaldsvelli í fyrra. Átta sveitir eru í efstu deild: 1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbbur Suðurnesja, GS 8. Golfklúbbur Bolungarvíkur, GBO Karlasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Arnór Tjörvi Þórsson Böðvar Bragi Pálsson Elvar Már Kristinsson Guðmundur Ágúst Kristjánsson Hákon Örn Magnússon Jóhann Frank Halldórsson Jóhannes Guðmundsson Sigurður Bjarki Blumenstein Tómas Eiríksson Hjaltested Liðsstjóri er Guðmundur Ágúst Kristjánsson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 9, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 4 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 13.-15. ágúst. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbburinn Keilir sigraði árið 2025 eftir frábæran úrslitaleik gegn GR, þar sem tvær viðureignir fóru í bráðabana. Sveit GM hafði unnið mótið þrjú ár í röð þar á undan, og mæta nú á heimavöll. Átta lið taka þátt í efstu deild í ár: 1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbburinn Setberg, GSE 8. Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS Kvennasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Ásdís Rafnar Ásdís Valtýsdóttir Berglind Björnsdóttir Erna Steina Eysteinsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Margrét Jóna Eysteinsdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir Svandís Eva Brynjarsdóttir Liðsstjóri er Páll Birkir Reynisson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 6 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst. Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár. LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbb Keilis sem fór þannig að GR vann leikinn 2,5 stig á móti 0,5 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt 🏆 Sveitina skipuðu: Guðrún Garðars Líney Rut Halldórsdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Stefanía Margrét Jónsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Margrét Geirsdóttir Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. 🏆 Sveitina skipuðu: Gunnsteinn Skúlason Hans Isebarn Kjartan B. Guðmundsson Ragnar Ólafsson Þórhallur Sigurðsson Walter Hjartarson  Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. 🥉 Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Einar Long Hannes Eyvindsson Jónas Kristjánsson Karl Vídalín Óskar Sæmundsson Ragnar Ólafsson Sigurður Hafsteinsson Sigurjón Árni Ólafsson Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn! Vel gert - áfram GR! 💙
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir. Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun. Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals. Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari. Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn. Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi. Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari. Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli. Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins Hér má sjá myndapakka frá mótinu
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026. Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023. Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig. Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar. Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni. Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Árangur Perlu í mótum sumarsins má finna í töflunni hér að neðan. Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig. Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum. Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn. Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar. Til hamingju með árangurinn Perla Sól og Aron Emil!
Show More