Perla Sól og Aron Emil eru stigameistarar 2026

Sigríður GR Golf • 11. ágúst 2026

Share this article

Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026.


Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023.


Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins

Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig.


Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar.


Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni.


Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli.


Árangur Perlu í mótum sumarsins má finna í töflunni hér að neðan.


Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron

Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig.


Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum.


Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni.


Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn.


Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar.


Til hamingju með árangurinn Perla Sól og Aron Emil!

Mót Sæti Stig
Reykjanesmótið 1. sæti 1.000
Korpubikarinn 2. sæti 700
Powerade-mótið 5. sæti 400
Íslandsmótið í holukeppni 3. sæti 660
Hvaleyrarbikarinn 2. sæti (jöfn) 625
Lexusbikarinn 3. sæti (jöfn) 500
Íslandsgolfið í golfi 4. sæti 675
Samtals 4.560

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 25. september 2026
Dagbjartur var í þriðja sæti eftir fyrsta hring upp á 68 högg. Í dag lék hann bæði fyrri og seinni níu holurnar á 36 höggum og kom inn á 72. Hann er samtals á sex höggum undir pari og deilir fjórða sætinu með Sebastian Eidsæther Syr frá Noregi og David Lundgren frá Svíþjóð. Hlynur Bergsson er jafn í efsta sæti Folksam Championship í Svíþjóð fyrir lokahring mótsins. Hann lék annan hringinn á 70 höggum, þremur undir pari, og er á sjö höggum undir pari í heildina. Dagbjartur Sigurbrandsson er jafn í fjórða sæti, aðeins einu höggi á eftir Hlyni. Folksam Championship er leikið á Barsebäck Golf & Resort. Völlurinn er par 73 og er mótið hluti af Nordic Golf League. Fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 24. september 2026
Atvinnukylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson fóru báðir vel af stað á Folksam Championship í Svíþjóð. Mótið fer fram dagana 23.-25. september á Barsebäck Golf & Resort og er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum, fimm undir pari , og er í þriðja sæti mótsins. Hlynur kom inn á 69 höggum, fjórum undir pari , og er jafn í fjórða sæti. Dagbjartur fékk sex fugla og einn skolla á hringnum. Hann lék fyrri níu holurnar á 33 höggum og þær seinni á 35. Hlynur fékk einnig sex fugla, auk tveggja skolla. Norðmaðurinn Sebastian Eidsæther Syr leiðir mótið á sjö höggum undir pari. Okkar menn eru skammt á eftir og í góðum málum fyrir næstu hringi. Íslendingarnir eru hlið við hlið á stigalista mótaraðarinnar: Dagbjartur í 30. sæti og Hlynur í því 31. Báðir hafa þeir best verið í fjórða sæti í sumar  Fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 23. september 2026
Hlutverk dómara í golfi er afar mikilvægt enda stuðlar góð dómgæsla að sanngjarnri keppni, réttri framkvæmd golfreglnanna og faglegri umgjörð móta. Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til dómara þurfa þeir að viðhalda þekkingu sinni og sækja reglulega námskeið og endurmenntun. Í ársbyrjun 2025 innleiddi The R&A ný viðmið fyrir menntun golfdómara. Með breytingunum voru kröfur auknar og meiri áhersla lögð á verklega reynslu samhliða góðri þekkingu á golfreglunum. Jafnframt var námsefni fyrir dómara uppfært og fjórða námsstigið, svokallað „Level 4“, tekið upp fyrir umsjónaraðila mótaraða atvinnukylfinga. GSÍ hefur þýtt stóran hluta námsefnisins og nýtir það meðal annars á námskeiðum fyrir héraðs- og landsdómara. Auknar kröfur eru einnig gerðar til þeirra sem stefna að alþjóðlegum dómararéttindum. Eftir að hafa lokið prófi og námskeiði The R&A í mótahaldi og dómgæslu, Tournament Administrators and Referees School (TARS), á þriðja námsstigi þurfa dómarar að sýna fram á reynslu af dómgæslu á hæsta stigi. Þar getur meðal annars verið um að ræða störf á Íslandsmótum eða GSÍ mótaröðinni. TARS er leiðandi námskeið The R&A á þessu sviði og fjallar bæði um dómgæslu og framkvæmd golfmóta. Dómarar þurfa að skrá þessa reynslu og fá hana staðfesta af dómaranefnd GSÍ. Að lágmarki þurfa þeir að hafa sinnt 120 klukkustundum við dómgæslu að loknu námskeiðinu áður en réttindin eru staðfest. Nicholas Anthony Cathcart-Jones, Nick "okkar" og Gunnar Gylfason eru fyrstu íslensku dómararnir sem ljúka þessu nýja ferli. Að loknu prófi og námskeiði fengu þeir réttindi sem alþjóðadómarar GSÍ. Þeir hafa nú skilað inn starfsskýrslum sínum, sem dómaranefnd GSÍ hefur staðfest, og The R&A hefur gefið út viðurkenningarskírteini þeirra. Báðir höfðu áður öðlast landsdómararéttindi og búa yfir áralangri reynslu af dómarastörfum, líkt og aðrir dómarar sem GSÍ sendir á námskeið The R&A í St Andrews í Skotlandi. Nick og Gunnar hafa þar með öðlast alþjóðlega viðurkennd réttindi til að sinna dómgæslu þar sem gerð er krafa um þriðja stigs dómararéttindi. Dómarar GSÍ sem hafa þessi réttindi eru núna 13 talsins og að auki er einn í ferlinu að safna reynslu. Golfklúbbur Reykjavíkur er ótrúlega stolt af því að hafa Nick hjá sér og við óskum Nick og Gunnari hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga.
Eftir Sigríður GR Golf • 22. september 2026
Haraldur Franklín Magnús lauk keppni jafn í 33. sæti á Open de Portugal mótinu, sem fram fór á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon í Portúgal dagana 17.-20. september. Mótið var hluti af HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Haraldur lék hringina fjóra samtals á þrettán höggum undir pari. Hann hóf mótið af krafti og lék fyrsta hringinn á 66 höggum, fimm höggum undir pari, þar sem hann fékk fimm fugla og tapaði engu höggi. Á öðrum hring lék Haraldur á 70 höggum, einu undir pari, og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn. Hann bætti síðan við hring upp á 67 högg á laugardeginum og fór inn í lokahringinn á tíu höggum undir pari. Haraldur lék lokahringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Hann fékk þrjá fugla og tvo skolla auk þess sem hann fékk örn á sautjándu holu. Fugl á lokaholunni skemmdi ekki fyrir og lokaniðurstaðan því þrettán högg undir par. Árangurinn í Portúgal skilaði Haraldi 14,4 stigum á stigalista HotelPlanner Tour og færði hann upp um tólf sæti. Hann er nú í 148. sæti listans með 77,6 stig. Haraldur hefur leikið sautján mót á HotelPlanner Tour á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn í átta þeirra. Besti árangur hans í sumar kom á German Challenge í júlí, þar sem hann endaði jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari. Frammistaðan í Portúgal var því næstbesti árangur Haralds á mótaröðinni í sumar og jafnframt hans lægsta heildarskor miðað við par á tímabilinu. Flottur árangur hjá Haraldi, sem er einnig skráður í Abu Dhabi Challenge mótið sem hefst þann 30. september. Hér má sjá úrslit Open de Portugal | Hér má sjá stigalista HotelPlanner Tour
Eftir Sigríður GR Golf • 18. september 2026
Kæru kylfingar vegna mikillar bleytu á vellinum og í jörðinni eftir rigningar síðustu daga hefur verið tekin ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla að minnsta kosti framyfir helgi. Við þökkum skilninginn! 💙 Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 17. september 2026
Bændaglíma GR 2026 verður leikin laugardaginn 26. september á Grafarholtsvelli, mótið er innanfélagsmót. Athugið að skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist inn á kt. 650913-0270 og 0133-15-380680. Mótsgjald er kr. 10.950 Mæting í klúbbhús kl. 11:00 og ræst út af öllum teigum samtímis kl. 12:00 og verður þema dagsins Gulur september 💛. Hver leikmaður getur keypt sér 1-3 Mölligana fyrir 1.500 kr. hvern og mun ágóði af sölu Mölligana renna óskiptur til Píeta samtakanna sem sinna mikilvægu forvarnarstarfi. Við hvetjum því alla leikmenn að taka Gulan september alla leið 💛 Keyrt verður um völlinn með snapsa til þess að keppendur hafi orku fyrir allar þær þrautir sem lagðar verða fyrir. Pylsupartý verður inn í húsi á 1. teig og 10. teig ásamt bjór, gos og Prosecco. Skráning í Bændaglímu hefst á morgun, föstudaginn 18. september kl. 13:00 og fer fram í mótaskrá á Golfbox, athugið að lið geta valið teig og skráð sig saman. Að leik loknum verður blásið til borðhalds þar sem liðin bera saman bækur sínar í skálanum í Grafarholti og verðlaunaafhending fer fram í framhaldinu. Matseðill kvöldsins hjá Mjöll og Gumma verður þessi: Forréttur Koníaksbætt humarsúpa m/nýbökuðu brauði og smjöri Aðalréttur Grilluð nautasteik m/piparsósu, bátakartöflum, grilluðum maís og klettasalati. Eftirréttur Sætir bitar og kaffi Leikfyrirkomulag mótsins er Texas scramble höggleikur með forgjöf, fjórir leikmenn saman í liði. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í liðakeppni og nándarverðlaun þeim leikmanni sem næstur er holu eftir upphafshögg á öllum par 3 holum vallarins. Félagsmenn eiga von á skemmtilegu kvöldi í góðum félagsskap á þessu lokakvöldi tímabilsins. Við minnum á að aldurstakmark til þátttöku í Bændaglímu er 20 ár. Undanfarin ár hafa færri komist að en vilja og viljum við því biðja kylfinga að senda afskráningu á netfangið sigridur@grgolf.is eigi síður en kl. 14 föstudaginn 25. september, til þess að hægt sé að bjóða kylfingum af biðlista inn. Hlökkum til að sjá ykkur! Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 16. september 2026
Kæru kylfingar vegna mikillar bleytu og rigningar í dag og eitthvað næstu daga verða engir golfbílar leyfðir á völlum félagsins þar til annað verður gefið út. Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 15. september 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson tryggðu sér sæti á öðru stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour með frammistöðu sinni á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi.  Nítján efstu kylfingarnir komust áfram. Til að ná þeim árangri þurfti að minnsta kosti að leika á fjórum höggum undir pari, og voru íslensku kylfingarnir þrír á enn lægra skori. Dagbjartur náði bestum árangri Íslendinganna og endaði jafn í sjötta sæti á níu höggum undir pari. Hann lék hringina fjóra á 71, 69, 70 og 69 höggum og endaði sex höggum á eftir sigurvegara mótsins. Sigurður Arnar lék frábært golf á lokahringnum og kom inn á 68 höggum, fjórum undir pari. Hann lyfti sér upp í 11. sætið og lauk mótinu á sex höggum undir pari. Ragnar endaði jafn í 14. sæti á fimm höggum undir pari. Hann lék best á öðrum keppnisdegi þegar hann kom inn á 67 höggum og endaði mótið með. Úrslit íslensku kylfinganna: T6. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69-70-69 (-9) T11. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70-73-68 (-6) T14. Ragnar Garðarsson, 73-67-73-70 (-5) 29. Aron Snær Júlíusson, 69-71-75-72 (-1) T36. Logi Sigurðsson, 74-72-74-69 (+1) T40. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74-71-70 (+2) T54. Hlynur Bergsson, 76-72-73-73 (+6) T58. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74-76-74 (+8) Aron var næstur því að komast áfram en hann endaði í 29. sæti á einu höggi undir pari. Finninn Miikka Mäkinen sigraði mótið á 15 höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og vann með þriggja högga mun. Annað stig úrtökumótanna fer fram dagana 29. október til 1. nóvember á fjórum völlum á Spáni. Þar leika Dagbjartur, Sigurður Arnar og Ragnar um sæti á lokastiginu, sem fer fram á INFINITUM Golf í Tarragona dagana 6.-11. nóvember. Á lokastiginu verða leiknir sex hringir og fá 15 efstu kylfingarnir keppnisrétt á DP World Tour fyrir tímabilið 2027. Lokastaða mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 10. september 2026
Fjórir íslenskir kylfingar eru á meðal 20 efstu eftir tvo hringi á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Már Garðarsson eru jafnir í 11. sæti en Sigurður Arnar Garðarsson er jafn í 16. sæti. Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi og verða leiknir fjórir hringir. Alls eru átta íslenskir kylfingar meðal 82 keppenda, en einungis efstu nítján komast áfram á næsta stig. Ragnar átti besta hring Íslendinganna á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 67 höggum, fimm höggum undir pari. Hann er, ásamt Dagbjarti og Aroni á fjórum höggum undir pari í mótinu. Aron Snær náði þeim magnaða árangri að fá albatross á þrettándu holu vallarins á öðrum hring. Hann lék par fimm holuna því á tveimur höggum eða þremur undir pari. Sigurður Arnar er höggi á eftir þremeningunum og hefur leikið hringina tvo á 71 og 70 höggum. Á fyrsta hring mótsins fékk Sigurður holu í höggi á sautjándu braut vallarins. Magnað afrek. Staða íslensku kylfinganna eftir tvo hringi T11. Aron Snær Júlíusson, 69-71 (-4) T11. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69 (-4) T11. Ragnar Már Garðarsson, 73-67 (-4) T16. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70 (-3) T47. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74 (+2) T47. Logi Sigurðsson, 74-72 (+2) T57. Hlynur Bergsson, 76-72 (+4) T60. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74 (+5) Þjóðverjinn Martin Gründemann er í forystu á tíu höggum undir pari, einu höggi á undan Taylor Paul frá Englandi.  Staða mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 10. september 2026
Íslenska 75+ landsliðið stóð sig með mikilli prýði á móti sem fram fór í Burgauberg-Neudauberg í Austurríki. Það tóku 20 þjóðir þátt í mótinu. Íslanska liðið hafnaði í 4. sæti í betri bolta með forgjöf og í 12. sæti án forgjafar . Spennan var mikil allt fram á síðasta keppnisdag, en þá var íslenska liðið í baráttu um sjálft 1. sætið. Aðstæður reyndu verulega á keppendur, enda fór hitinn yfir 35 gráður á lokadeginum - ekki alveg hitastigið sem við Íslendingar venjumst hér heima. Liðið skipuðu þeir: Axel Alfreðsson Gunnsteinn Skúlason Hans Óskar Iseban Helgi Hólm Tryggvi Þór Tryggvason Þórhallur Sigurðsson Liðsstjóri íslenska liðsins var Sigurjón Árni Ólafsson . Helgi, sem er 85 ára, var jafnframt næstelsti keppandi mótsins! Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur og glæsilega frammistöðu í Austurríki!
Show More