Aðalfundur GR – almenn ánægja með störf stjórnar

Sigríður Guðmundsdóttir • 4. desember 2025

Share this article

Aðalfundur Golfklúbbs Reykjavíkur var haldinn á Korpúlfsstöðum þriðjudaginn 2. desember og voru yfir 160 félagsmenn sem mættu á fundinn. Formaður félagsins, Gísli Guðni Hall, gerði grein fyrir skýrslu formanns um störf stjórnar á árinu. Harpa Ægisdóttir, fjármálastjóri, kynnti ársreikning félagsins og fór yfir fjárhagsáætlun komandi starfsárs. Fundarstjóri var Ólafur Arinbjörn Sigurðsson.

Gísli Guðni bauð sig fram til áframhaldandi formennsku og hefur nú sitt fimmta ár sem sitjandi formaður.

Sitjandi stjórnarmenn í aðalstjórn, kosin á aðalfundi 2024 eru Brynjar Jóhannesson, Kristín Eysteinsdóttir og Ólafur William Hand. Kosið var þrjú sæti til tveggja ára í aðalstjórn á nýliðnum aðalfundi, sjálfkjörin var Elín Sveinsdóttir. Guðmundur Arason fékk áframhaldandi kosningu til tveggja ára.  Þá var kosinn Hrannar M. Hallkelsson, en hann var í varastjórn.

Í varastjórn til eins ár voru kjörin Þórey Jónsdóttir, Arnór Ingi Finnbjörnsson Jón Karlsson, en sá síðastnefndi kemur nýr inn.  Stjórn og varastjórn Golfklúbbs Reykjavíkur er því fullskipuð fyrir komandi rekstrarár.

Margeir Vilhjálmsson gaf ekki kost á sér, en hann hefur setið í stjórn frá árinu 2014.  Gísli þakkaði honum fyrir góð störf, en fáir hafa komið jafn mikið við sögu í rekstri og stjórn klúbbsins á þessari öld.  Hann réði sig sem vallarstjóri í Grafarholti 1995 og síðan framkvæmdastjóri GR á árunum 1998 til 2008.  Hann var kosinn í stjórn GR 2014 og hefur setið þar til nú.  Gísli þakkaði honum fyrir ómetanleg störf og stuðning.

Rekstur klúbbsins gekk vel á starfsárinu 2024-2025 og námu tekjur alls 878 milljónum króna og rekstrarafgangur 76,4 milljónir. Heildareignir nema 1.839 milljónum króna og eiginfjárstaðan sem og lausafjárstaðan er sterk. Á rekstrarárinu störfuðu 18 heilsársstarfsmenn hjá klúbbnum og að auki 75 sumarstarfsmenn. Að öðru leyti vísar stjórn klúbbsins til meðfylgjandi ársreiknings um rekstur og fjárhagsstöðu.

Golfklúbbur Reykjavíkur annast rekstur 18 holur golfvallar og 6 holu æfingavallar í Grafarholti ásamt rekstri 36 holu golfvallar (4×9, þ.e. Sjórinn, Áin, Landið og Thorsvöllur) á Korpúlfsstöðum. Enn fremur rekur klúbburinn æfingaaðstöðu Bása í Grafarholti auk inniæfinga- og félagsaðstöðu á Korpúlfsstöðum.

Eins og undanfarin ár voru miklar framkvæmdir á vallarsvæðum félagsins á starfsárinu. Í Grafarholti var það lokafrágangur á nýrri 1. flöt, uppbygging á nýrri 3. flöt og uppbygging á nýju teigum á 4. braut. Uppbygging á nýrri 11. flöt og hafist var handa við uppbyggingu og sléttun og endurmótun 1. brautar.  Það á eftir að tyrfa brautina en framkvæmdinni er lokið að öðru leyti.  Samhliða þessum framkvæmdum var komið upp nýju salerni við 6. teig og í vetur mun öðru slíku verða komið fyrir í rjóðrinu á milli 13. og 15. brautar.

Stærstu framkvæmdir á Korpu á liðnu starfsári var áframhaldandi malbikun stíga á Ánni og Landinu ásamt frágangi við stígagerð, hellulögn og uppstigum við teiga. Þessi verkefni hafa verið samhangandi.  Í vetur hefst svo lokafrágangur á þeim hluta sem eftir stendur við 26. og 27. braut, sem er lítið í samanburði við það sem nú er lokið.  Byggðir voru upp fimm  nýir teigar, á 3., 5., 8. og 23. braut. Ný púttflöt við Korpu sem hefur verið í uppbyggingu síðastliðin tvö ár var formlega tekin í notkun í upphafi tímabilsins. Sama á við um Korpu og í Grafarholti að ný salerni voru tekin í notkun. Á Korpu eru þau staðsett á 6. teig og við 15. og 23. teig. Áframhaldandi vinna við að koma upp slátturþjónum hélt áfram og er þeirri vinnu lokið fyrir Landið.

Fjárhagsáætlun GR 2026 var samþykkt.  Félagsgjöld 2026 verða:

Félagsmenn 19-26 ára, kr. 87.900
Félagsmenn 27-74 ára, kr. 175.700
Félagsmenn 75 og eldri, kr. 150.600
Félagsmenn 75 ára og eldri*, kr. 113.000
*enda hafi félagi verið í GR í a.m.k. 10 ár samfellt

Leiknir hringir á árinu voru 107.897 samanborið við 93.309 á árinu á undan. Félagsmenn léku 5.410 hringi á vinavöllum félagsins og vinavallasamningar því vel nýttir í ár. TagMarshal er nýtt kerfi sem tekið var í notkun fyrir tveimur árum.  Stykki með staðsetningarbúnaði, sem kylfingar taka með sér út á völl, verða eftirleiðis nefnd spori .  Hugmyndin er fengin frá góðum félagsmanni, Jóni Hermanni Karlssyni, en nokkrar fleiri góðar höfðu komið fram.  Allt frá stofnun klúbbsins hefur mikið verið lagt upp úr að finna nýyrði fyrir orð í ensku golfmáli og þeirri hefð viljum við viðhalda.  Tagmarshal kerfið hefur annars reynst okkur afar vel, það gefur starfsmönnum og eftirlitsmönnum upplýsingar um stöðu leiktíma á völlum félagsins. Meðal leikhraði á Korpu í ár var 4:10.47 og í Grafarholti var meðal leikhraði 4:13:17 – miðast þessir tímar við 18 holu leik. Kynjahlutfall í klúbbnum er 35% konur á móti 65% karla og stendur í stað á milli ára.

Á komandi ári er fyrirhugað að halda áfram framkvæmdum.  Helstu framkvæmdir í Grafarholti verða – opnun nýrrar 1. brautar, uppbygging á nýjum teigum og glompum á 3. braut, opnun nýrrar 3. flatar síðla sumars, uppbygging á nýrri 10. flöt ásamt nýjum teigum fyrir 11. braut, sem farið verður í næstkomandi haust.

Á Korpúlfsstöðum verður Íslandsmót 2026 haldið.  Fyrir mótið verður allri stígagerð og frágangi þeim tengdum lokið.  Nokkrir nýir bakteigar hafa verið gerðir, í því augnamiði að gera völlinn að enn meira krefjandi keppnisvelli.  Gengið verður frá nýju útiplássi og þrifaðstöðu framan við skála.

Stefnt að því að hefja uppbyggingu á nýrri vélageymslu/þjónustuhúsi á Korpu árið 2026, en það er háð skilyrðum um leyfi og ásættanlega fjármögnun.

Í Básum er fyrirhugað að gera nýtt þjónusturými þar sem komið er inn í Bása og klæða skilrúm á 1. og 2. hæð til að fyrirbyggja slysahættu.

Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar Árna Tómassyni og Guðmundi Frímannssyni, endurskoðendum, fyrir sína vinnu og kjörnefnd fyrir sitt starf.  Sérstakar þakkir færum við Ólafi Arinbirni Sigurðssyni fyrir faglega og góða fundarstjórn og félagsmönnum fyrir sína þátttöku.

Stjórn, framkvæmdarstjóri og starfsfólk klúbbsins þakkar félagsmönnum fyrir gott starfsár.

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 20. ágúst 2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana. Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar. Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september frá kl. 09:00-18:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan. Íslandsmót unglinga 15-18 ára Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 15-16 ára Stúlknaflokki 17-18 ára Piltaflokki 15-16 ára Piltaflokki 17-18 ára Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum. Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 12 ára og yngri Piltaflokki 12 ára og yngri Stúlknaflokki 13-14 ára Piltaflokki 13-14 ára Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á sex stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna. Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni. Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr öllum sex deildunum hér fyrir neðan. 1. deild kvenna – 50+, Gs - GOLFKLÚBBUR sUÐURNESJA Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 1. deild karla – 50+, GÖ - GOLFKLÚBBUR ÖNDVERÐANESS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild kvenna – 50+, GVG - GOLFKLÚBBUR VESTARR Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild karla – 50+, GSG - GOLFKLÚBBUR SANDGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 3. deild karla – 50+, GHG - GOLFKLÚBBUR HVERAGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 4. deild karla – 50+, GHD - GOLFKLÚBBURINN HAMAR DALVÍK Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit
Eftir Sigríður GR Golf 18. ágúst 2026
Mikið áhorf mældist á útsendingar RÚV frá Íslandsmótinu í golfi 2026, sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Uppsafnað áhorf yfir þrjá útsendingardaga mældist 18,3% og náðu útsendingarnar til tæplega 50 þúsund áhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Áhorfið jókst um 26% frá Íslandsmótinu 2025, þegar uppsafnað áhorf mældist 14,5%. Fjöldi áhorfenda jókst jafnframt úr rúmlega 38 þúsund í um 49 þúsund. Áhorf á Íslandsmótið hefur nú rúmlega tvöfaldast frá árinu 2021, þegar 23.850 manns fylgdust með mótinu. Áhorfið jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Um 17 þúsund manns horfðu á útsendinguna á föstudeginum, 26 þúsund á laugardeginum og 36 þúsund á sunnudeginum. Karlar horfðu aðeins meira en konur. Uppsafnað áhorf meðal karla mældist 19,4%, eða um 26 þúsund áhorfendur, samanborið við 17,3% og um 23 þúsund áhorfendur meðal kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu mældist uppsafnað áhorf 19%, en 17,1% á landsbyggðinni. Mikill áhugi á heimasíðu mótsins Nýr skor- og upplýsingavefur Íslandsmótsins fékk einnig frábærar viðtökur. Alls heimsóttu 22.370 notendur skorvefinn á keppnisdögunum fjórum og um 10 þúsund virkir notendur fylgdust þar með mótinu daglega. Samanlagt voru síðuflettingarnar 553.163 og meðalheimsóknin var rúmar tólf mínútur. Mikill áhugi var á mótinu, bæði í beinni útsendingu RÚV og meðal þeirra sem fylgdust með stöðunni í rauntíma á netinu. Hér má nálgast heimasíðu mótsins og alla tölfræði. Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í golfi annað árið í röð. Metnaðarfull umgjörð mótsins, umfangsmikil útsending RÚV og frammistaða keppenda skiluðu sér í mesta áhorfi sem mælst hefur á Íslandsmótinu undanfarin ár. 
Eftir Sigríður GR Golf 17. ágúst 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild karla árið 2026 eftir 5-0 sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í úrslitaleik mótsins á Hellu í dag. Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur titilinn, og sá 27. frá upphafi. GR vann A-riðil með 2,5 stig eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Sveit GM endaði í öðru sæti riðilsins og fylgdi GR í undanúrslitin. Riðill GR Í undanúrslitum mætti GR liði Golfklúbbsins Keilis og vann þar 4–1 sigur. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson unnu fyrri fjórmenninginn 5&3 og Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu þann síðari 2&1. Í tvímenningunum unnu Hákon Örn Magnússon og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sína leiki, en Markús Marelsson sótti eina stig GK. GKG vann B-riðil með fullt hús stiga, og vann Golfklúbb Mosfellsbæjar 3–2 í undanúrslitum. GR og GKG mættust því annað árið í röð í úrslitaleiknum. GR tók öll fimm stigin í úrslitaleiknum GR byrjaði úrslitaleikinn af krafti og vann báða fjórmenningana. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson sigruðu Guðjón Frans Halldórsson og Kristófer Orra Þórðarson 5&4. Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu gegn Ragnari Má Garðarssyni og Skúla Gunnari Ágústssyni. Leikurinn var jafn eftir sautján holur en GR vann átjándu holuna og þar með leikinn. Sigurður Bjarki Blumenstein vann Hjalta Kristján Hjaltason 2&1 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson vann Aron Snæ Júlíusson, 1&0. Hákon Örn Magnússon lék gegn Sigurði Arnari Garðarssyni í síðasta leiknum, en úrslit mótsins voru þá þegar ráðin og sigur GR staðfestur. Lokatölur urðu 5–0. Lið GR á Íslandsmótinu skipuðu: Jóhann Frank Halldórsson, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson, Arnór Tjörvi Þórsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson, Elvar Már Kristinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) Golfklúbburinn Keilir (GK) Golfklúbbur Mosfellsbæjar (GM) Golfklúbbur Suðurnesja (GS) Golfklúbbur Selfoss (GOS) Golfklúbbur Akureyrar (GA) Golfklúbbur Bolungarvíkur (GBO) – leika í 2. deild á næsta ári  Hér má sjá öll úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu dagana 13.-15. ágúst 2026. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi meistari karla, en klúbburinn sigraði mótið í 26. skiptið á Leirdaldsvelli í fyrra. Átta sveitir eru í efstu deild: 1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbbur Suðurnesja, GS 8. Golfklúbbur Bolungarvíkur, GBO Karlasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Arnór Tjörvi Þórsson Böðvar Bragi Pálsson Elvar Már Kristinsson Guðmundur Ágúst Kristjánsson Hákon Örn Magnússon Jóhann Frank Halldórsson Jóhannes Guðmundsson Sigurður Bjarki Blumenstein Tómas Eiríksson Hjaltested Liðsstjóri er Guðmundur Ágúst Kristjánsson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 9, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 4 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 13.-15. ágúst. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbburinn Keilir sigraði árið 2025 eftir frábæran úrslitaleik gegn GR, þar sem tvær viðureignir fóru í bráðabana. Sveit GM hafði unnið mótið þrjú ár í röð þar á undan, og mæta nú á heimavöll. Átta lið taka þátt í efstu deild í ár: 1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbburinn Setberg, GSE 8. Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS Kvennasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Ásdís Rafnar Ásdís Valtýsdóttir Berglind Björnsdóttir Erna Steina Eysteinsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Margrét Jóna Eysteinsdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir Svandís Eva Brynjarsdóttir Liðsstjóri er Páll Birkir Reynisson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 6 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst. Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár. LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbb Keilis sem fór þannig að GR vann leikinn 2,5 stig á móti 0,5 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt 🏆 Sveitina skipuðu: Guðrún Garðars Líney Rut Halldórsdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Stefanía Margrét Jónsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Margrét Geirsdóttir Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. 🏆 Sveitina skipuðu: Gunnsteinn Skúlason Hans Isebarn Kjartan B. Guðmundsson Ragnar Ólafsson Þórhallur Sigurðsson Walter Hjartarson  Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. 🥉 Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Einar Long Hannes Eyvindsson Jónas Kristjánsson Karl Vídalín Óskar Sæmundsson Ragnar Ólafsson Sigurður Hafsteinsson Sigurjón Árni Ólafsson Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn! Vel gert - áfram GR! 💙
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir. Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun. Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals. Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari. Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn. Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi. Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari. Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli. Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins Hér má sjá myndapakka frá mótinu
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Perla Sól Sigurbrandsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur og Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss eru stigameistarar GSÍ mótaraðarinnar árið 2026. Aron Emil fagnar sínum fyrsta stigameistaratitli en Perla Sól vinnur titilinn í annað sinn. Hún varð einnig stigameistari árið 2023. Perla Sól á meðal efstu fimm í öllum mótum sumarsins Perla Sól lék í öllum sjö mótum GSÍ mótaraðarinnar og lauk tímabilinu með 4.560 stig. Hún var 860 stigum á undan Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur, sem varð önnur með 3.700 stig. Mikill stöðugleiki einkenndi sumar Perlu, en hún hafnaði í einu af fimm efstu sætunum í öllum mótum mótaraðarinnar. Perla hóf tímabilið á sigri í Reykjanesmótinu og fékk þar 1.000 stig. Hún varð önnur í Korpubikarnum, fimmta í Powerade-mótinu í Þorlákshöfn og þriðja á Íslandsmótinu í holukeppni. Hún deildi öðru sætinu í Hvaleyrarbikarnum og varð jöfn í þriðja sæti í Lexus-bikarnum á Leirdalsvelli. Perla lauk svo sumrinu í fjórða sæti á Íslandsmótinu í golfi á Korpúlfsstaðavelli. Árangur Perlu í mótum sumarsins má finna í töflunni hér að neðan. Aðeins 110 stig skildu að Aron og Aron Baráttan um stigameistaratitilinn í karlaflokki var spennandi. Aron Emil lauk tímabilinu með 4.178 stig, einungis 110 stigum meira en Aron Snær Júlíusson, sem varð annar með 4.068 stig. Aron Emil lék í öllum sjö mótum sumarsins og var aldrei neðar en í sjöunda sæti. Hann vann ekki mót á tímabilinu en stöðug og góð frammistaða skilaði honum fyrsta stigameistaratitlinum. Hann hóf sumarið í fjórða sæti í Reykjanesmótinu og varð annar í Korpubikarnum. Aron Emil varð sjöundi í Powerade-mótinu og þriðji á Íslandsmótinu í holukeppni. Hann deildi fimmta sætinu í Hvaleyrarbikarnum og öðru sætinu í Lexus-bikarnum. Aron Emil lauk svo tímabilinu annar á Íslandsmótinu í golfi, þar sem hann fékk 1.050 stig og tryggði sér stigameistaratitilinn. Fyrst var keppt um stigameistaratitla kvenna og karla á Íslandi árið 1989. Perla Sól bætir nú öðrum titli sínum við þann sem hún vann árið 2023, en Aron Emil kemst í fyrsta sinn á lista stigameistara GSÍ mótaraðarinnar. Til hamingju með árangurinn Perla Sól og Aron Emil!
Show More