Ecco púttmótaröðin 2026 – lokastaða og úrslit
Sigríður Guðmundsdóttir • 16. mars 2026
Umsjónarmaður púttmótaraðar hefur legið veikur síðustu daga og hefur ekki treyst sér til að skrifa pistil eins og venjulega. Þakkar þó öllum þátttökuna og stuðninginn.
Ekki eins kátur og oft áður.
En meðfylgjandi er lokastaða og úrslit í Ecco púttmótaröð karla árið 2026.
Ecco púttmótaröð karla 2026
Kveðja HBK
Frosti ljósmyndari kom við á föstudaginn og festi gleðina á filmu, hægt er að skoða myndirnar með því að smella hér.
The post Ecco púttmótaröðin 2026 – lokastaða og úrslit appeared first on GR Golf.
Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf
•
7. júlí 2026
Kæru keppendur og foreldrar/forráðamenn Lokahóf og verðlaunaafhending barna og unglinga í Meistaramóti GR 2026 fer fram í dag, þriðjudaginn 7. júlí, á 2. hæð í Korpu. Dagskrá: Borðhald hefst stundvíslega kl. 18:00. Keppendur þurfa að framvísa matarmiða við afhendingu veitinga. Matarmiðarnir verða afhentir keppendum í dag við útræsingu. Matur og drykkur fyrir keppendur er innifalinn í mótsgjaldinu. Boðið verður upp á glæsilegar veitingar og eftirrétt að verðlaunaafhendingu lokinni. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir á lokahófið. Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur skemmtilega kvöldstund þar sem við fögnum frábærum árangri keppenda. Golfklúbbur Reykjavíkur

Eftir Sigríður GR Golf
•
6. júlí 2026
Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni héldu áfram góðri spilamennsku sinni í Svíþjóð í vikunni. Swedish Strokeplay mótið á LET Access mótaröðinni fór fram dagana 1.-3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Hér má sjá úrslit mótsins Ragnhildur Kristinsdóttir náði besta árangri íslensku kylfinganna og endaði jöfn í fimmta sæti á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur lék hringina þrjá á 74, 72 og 71 höggi, en par vallarins er 73. Hún endaði mótið af miklum krafti og fékk tvo fugla á síðustu þremur holunum. Eftir mótið er Ragnhildur í 10. sætii á stigalista LET Access mótaraðarinnar. Efstu sjö kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.

Eftir Sigríður GR Golf
•
1. júlí 2026
Kæru kylfingar Eins og áður hefur verið auglýst verða 1. og 2. brautin í Grafarholti lokaðar á morgun, fimmtudaginn 2. júlí til kl. 18:00 þar sem verið er að setja sand í nýja glompur 1. brautar. Til þess að hægt sé að ferja sandinn á svæðið þurfa vinnuvélar og tæki að komast um svæðið. Til að gæta sem fyllsta öryggis verður aðkoma og bílastæði við Bása lokuð á meðan á vinnunni stendur. Við bendum þeim sem ætla að fara og æfa sveifluna í Básum að þar er opið samkvæmt opnunartíma og hægt að leggja á bílastæðinu við skálann í Grafarholti og neðra bílastæðinu, sem er vinstra megin þegar keyrt er upp að skálanum.

Eftir Sigríður GR Golf
•
1. júlí 2026
Landslið karla 65+ á vegum LEK taka þátt í ESGA móti eldri kylfinga sem fram fer 1.-3. júlí 2026 á tveimum af bestu völlum Finnlands, Kytäjä Golf Club. Karlar án forgjafar taka þátt í Super Senior Championship og karlar með forgjöf taka þátt í Super Senior Cup ESGA XXV Super Seniors Team. Spilaður er betri bolti í 2 daga og höggleikur lokadaginn. Rástímar, staða og úrslit Lið 65+ án forgjafar: Brynjar Harðarson, GR Eggert Eggertsson, NK Gauti Grétarsson, NK Jónas Kristjánsson, GR Kristján V Kristjánsson, GK Óskar Sæmundsson, GR Lið 65+ með forgjöf: Erlingur Arthursson, GHG Gunnar Árnason, GKG Hörður Sigurðsson, GR Ingi Þór Hermannsson, GO Kolbeinn Kristinsson, GÖ Þór Geirsson, GO Liðsstjóri fyrir bæði liðin er Gunnar Árnason. Við hjá Golklúbbi Reykjavíkur eigum fjóra fulltrúa í liðinum tveimur og erum ákaflega stolt af því. Við óskum þeim góðs gengis - áfram Ísland!

Eftir Sigríður GR Golf
•
30. júní 2026
Haraldur Franklín Magnús, GR og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verða báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið í dag, þar sem leikið verður um sæti á hinu sögufræga risamóti. Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí. Íslensku kylfingarnir leika ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín verður á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni leikur á West Lancashire á Englandi. Báðir vellirnir eru krefjandi og útlit er fyrir erfiðar aðstæður, þar sem væta og vindur gætu sett mark sitt á daginn. Haraldur hefur leik klukkan 07:30 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 13:15. Hann leikur með Skotanum Calum Fyfe og Bandaríkjamanninum John Vogelpohl. Hér má fylgjast með stöðu mótanna Haraldur þekkir vel til risamótanna. Hann varð árið 2018 fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á risamóti þegar hann tók þátt í Opna mótinu á Carnoustie. Hann komst þá inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót og freistar þess nú að endurtaka leikinn, eftir að hafa tryggt sér sæti í lokaúrtökumótinu í gegnum undankeppni. Haraldur sagði fyrir mótið að Dundonald væri „þrusuerfiður“ völlur og að þolinmæði yrði lykilatriði. Í aðstæðum sem þessum snýst verkefnið ekki endilega um að sækja á allar holur, heldur að halda boltanum í leik, taka skynsamlegar ákvarðanir og safna nógu mörgum pörum. Á Dundonald vellinum verða þekkt nöfn í hópnum, þar á meðal Robert Rock, Angel Hidalgo og margir sterkir ungir kylfingar. Framundan er langur og krefjandi dagur hjá þeim Haraldi Franklín og Gunnlaugi Árna. Til að komast alla leið þurfa þeir að vera í hópi fimm efstu kylfinga á sínum velli eftir 36 holur og mun því hvert högg skipta miklu máli.

Eftir Sigríður GR Golf
•
29. júní 2026
Kæru félagsmenn og aðrir kylfingar, að gefnu tilefni, því miður, viljum við minna alla félagsmenn og gesti á að sýna fyllstu aðgát ef og/eða þegar slegið er í nágrenni við vallarstarfsmenn. Vallarstarfsmenn leggja sig fram á hverjum degi við að halda vellinum okkar í sem besta ástandi fyrir kylfinga. Því biðjum við alla kylfinga að: að bíða með högg ef starfsmaður er innan höggfæris að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi tekið eftir kylfingnum og gefið merki þess að halda leik áfram að kalla FORE ef að höggið sefnir í átt að örðum, hvort sem það er vallarstarfsmaður eða annar kylfingur Hjálpumst að við að tryggja öryggi allra við leik í okkar frábæru íþrótt og útiveru. Það er á allra ábyrgð.

Eftir Sigríður GR Golf
•
28. júní 2026
Yfir 190 manns tóku þátt í Opna Stjörnugrís 2026, sem leikið var á Grafarholtsvelli í gær, laugardaginn 27. júní. Veðrið var kannski ekki upp á sitt besta, rigning var um morgunin og frekar kalt, þegar það hætti að rigna þá hitnaði aðeins í veðri en kylfingar létu það ekki stoppa sig - frábært skor hjá mörgum hverjum. Ræst var út frá kl.8:15 til 15:30. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, bolta, tí, handklæði ásamt öskju með flatargafli og tveimur boltamerkjum. Jón Eysteinsson kom inn á besta skori mótsins, 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarsins. Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi: Punktakeppni: Sindri Þór Kristjánsson, 45 punktar Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 punktar Rakel Reynisdóttir, 39 punktar (betri seinni 9) Kjartan Guðjónsson, 39 punktar Hlynur Már Heimisson, 38 punktar Besta skor mótsins: Jón Eysteinsson, 70 högg Nándarverðlaun: 2.braut – Líney Sveinsdóttir 189 cm. 6.braut – Erna Steina Eysteinsdóttir 70 cm. 11.braut – Kristjana S. Þorsteinsdóttir 1 cm. 17.braut – Kristín Markúsdóttir 78 cm. Lengsta drive 3.braut kk. – Tómas Frostason Lengsta drive 3.braut kvk. – Margrét Jóna Eysteinsdóttir Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt er að nálgast vinninga til Stjörnugrís hf., Saltvík, 162 Kjalarnes. Opnunartími er mánud. - fimmtud. frá kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 - 15:15. Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Stjörnugrís hf.
Eftir Sigríður GR Golf
•
25. júní 2026
Kæru kylfingar við viljum upplýsa ykkur um að 1. og 2. brautin í Grafarholti verða lokaðar fimmtudaginn 2. júlí næstkomandi þar sem vinnuvélar og vallarstarfsmenn verða í óðaönn að setja sand í glompur og gera þær fulltilbúnar til leiks . Golfkveðja frá Vallarsviði


