Framtíðarsýn og uppbygging barna-, unglinga- og afreksstarfs GR

Sigríður Guðmundsdóttir • 28. janúar 2026

Share this article

Kæru GR-ingar,

Að undanförnu hefur verið unnið að breytingum á barna-, unglinga- og afreksstarfi klúbbsins. Rétt er því að staldra aðeins við, horfa yfir farinn veg og um leið upplýsa ykkur um þá framvindu sem átt hefur sér stað í starfinu.

Síðastliðið haust var Páll Birkir Reynisson ráðinn í nýtt starf rekstrarstjóra íþróttasviðs klúbbsins. Staðan á barna-, unglinga- og afreksstarfinu var metin og ákveðið að ráðast í umbætur á nokkrum sviðum.

Markmiðið er einfalt: að byggja upp barna-, unglinga- og afreksstarf í hæsta gæðaflokki og skapa heilbrigðan samastað fyrir öll börn og ungmenni í starfinu, óháð aldri og getu.
Ný hópaskipting
Út frá þessari sýn var ákveðið að endurskipuleggja hópaskiptingu starfsins og skilgreina hvern hóp upp á nýtt. Áður var starfið skipt í almennt starf, keppnishópa og meistaraflokk. Nú er skiptingin eftirfarandi:

Korpu-hópar (áður almenna starfið)
Allir kylfingar hefja sinn feril í Korpu-hópum. Þar læra börn og unglingar grunnatriði og grunngildi golfsins, ásamt þeim færniþáttum sem þarf til að stíga sín fyrstu skref í íþróttinni og komast út á golfvöll.

Grafarholts-hópar (nýr hópur)
Grafarholts-hópur er millistigshópur sem brúar bilið á milli Korpu-hópa og keppnishópa. Ef þjálfarateymið sér mikinn áhuga, vilja og keppnisanda hjá iðkanda getur hann fengið boð í Grafarholts-hóp. Sá hópur er ætlaður kylfingum sem sýna metnað og eru að stíga sín fyrstu skref í keppnisgolfi.

Keppnishópar
Keppnishópar eru ætlaðir þeim iðkendum sem eru komnir lengst í barna- og unglingastarfinu og hafa sýnt mikinn metnað. Þar er æfingaálag meira og gert er ráð fyrir virkri þátttöku í keppnisgolfi, bæði hérlendis og erlendis.

Meistaraflokkur
Meistaraflokkur GR samanstendur af bestu kylfingum klúbbins. Þar eru kylfingar sem eru á meðal bestu kylfinga landsins, þar með talið atvinnumenn GR.

*Taka skal skýrt fram að það er alltaf þjálfarateymi GR sem metur í hvaða hópi iðkandi skuli æfa, þar með talið tilfærslur milli flokka.

Með þessari hópaskiptingu er tryggt að hver iðkandi æfi með réttum hópi út frá getu, aldri og áhuga. Korpu-hópar taka við kylfingum á aldrinum 6–18 ára, en Grafarholts- og Keppnishópar geta tekið við kylfingum allt frá 11–12 ára aldri.

Eins og gengur tekur tíma fyrir slíkar breytingar að festast í sessi og fyrir hópaskiptinguna að endurspegla að fullu hlutverk hvers hóps. Engu að síður skapar þessi uppsetning betri forsendur fyrir þjálfara til að gefa hverjum og einum iðkanda meiri tíma, sem mun skila sér í aukinni ánægju og betri árangri með tímanum.

 

Ráðgjöf og þróun starfsins

Í lok síðasta árs var Jussi Pitkänen fenginn til liðs við klúbbinn sem ráðgjafi í þeirri uppbyggingu sem nú er í gangi í barna-, unglinga- og afreksstarfinu til næstu tveggja ára. Jussi er menntaður PGA-golfkennari og býr yfir áratuga reynslu af þjálfun og stjórnun afreksstarfs í golfi, bæði hérlendis og á alþjóðavettvangi.

Jussi er mörgum Íslendingum að góðu kunnur eftir störf sín sem afreksstjóri Golfsambands Íslands á árunum 2016–2018 og síðar sem landsliðsþjálfari hjá finnska golfsambandinu. Þá hefur hann einnig starfað fyrir bresku PGA-samtökin og Dave Pelz Golf Academy á Írlandi. Við teljum að sú víðtæka reynsla og sérþekking sem hann býr yfir muni nýtast GR afar vel og eru skipulagsbreytingar sem hér hefur verið gerð grein fyrir unnar í samráði við hann.

Jussi er búsettur á Spáni og verður það áfram. Hér er um ráðgjöf að ræða en ekki ráðningu í starf. Hlutverk hans hjá GR felur meðal annars í sér að koma að skipulagningu starfsins, móta íþrótta- og afreksstefnu, styðja við þjálfara og leikmenn, auk heimsókna til landsins. Markmiðið er að lyfta íþrótta- og afreksstarfi klúbbsins á næsta stig og þannig að það standist samanburð við það sem best gerist erlendis.

 

Þjálfarateymi og nýjungar

Samstarfið við Jussi hefur gengið vel. Meðal þess sem hann hefur komið með inn í starfið eru námskeið og fræðsla fyrir þjálfarateymi klúbbsins. Nú þegar hefur allt teymið tekið þátt í fyrirlestrum í gegnum fjarfundabúnað með David Silva og Kevin Kirk .

David Silva er tækniþjálfari finnska landsliðsins og hefur komið að þjálfun fjölda kylfinga frá Finnlandi og Eistlandi sem síðar hafa náð inn á DP World Tour. Kevin Kirk var valinn PGA of America Coach of the Year árið 2019 og er sérfræðingur í Long Term Athlete Development. Hann hefur einnig verið þjálfari Patrick Reed um árabil. Fleiri fyrirlestrar  eru fyrirhugaðir á næstunni undir handleiðslu Jussi.

Varðandi þjálfaramál hafa einnig orðið breytingar.  Í barna- og unglingastarfinu starfa nú David Barnwell, Hákon Örn, Páll Birkir, Þóra Sigríður,  Elvar Már og Sara Ágústa .  Berglind Björnsdóttir er einnig í teyminu en hún er í fæðingarorlofi sem stendur.

Í byrjun árs bættist Snorri Páll einnig í þjálfarateymi keppnishópanna. Það er mikill styrkur fyrir unglingana, enda er Snorri einn færasti þjálfari landsins og mun hjálpa verulega til við tæknilega þætti í golfleik okkar bestu unglinga.

Einnig var í byrjun árs ráðinn nýr þjálfari fyrir meistaraflokka klúbbsins. Atvinnukylfingurinn Guðmundur Ágúst Kristjánsson hefur tekið sér hlé frá keppnisgolfi og snúið sér að þjálfun. Með ráðningu Gumma fáum við inn þjálfara með ferska sýn og mikla reynslu. Hann hefur meðal annars keppt á Evrópumótaröðinni (DP World Tour) og þekkir því vel hvaða þætti þarf að hafa til að ná langt í golfi. Gummi kemur með nýjan vinkil inn í meistaraflokkinn, t.d. hvað varðar skipulag æfinga, leikskipulag úti á velli og áfram má telja.  Hann veit af reynslu hvað þarf til að ná hámarks árangri.  Spennandi tímar fram undan þar.

 

Fleiri breytingar og næstu skref

Vert er einnig að nefna að allir keppnishópar hafa í vetur verið í  styrktarþjálfun einu sinni í viku í CrossFit Reykjavík. Þjálfari er Alexander Pétur , menntaður sjúkraþjálfari, keppnismaður í lyftingum og fyrrverandi kylfingur. Æfingarnar hafa farið vel af stað og almenn ánægja ríkir meðal kylfinga.

Keppnishópum hefur jafnframt verið skipt upp í nýja aldursflokka. Þar sem áður var skipting í U14 og 15–18 ára, er nú skipt í U14, U16 og U18 , í samræmi við það sem tíðkast í mótum hérlendis og erlendis.

Keppnishópar U16 og U18 hafa einnig hafið einkatíma hjá Snorra Páli. Þetta mun hjálpa kylfingunum að ná betri tökum á sinni tækni og gera æfingar utan skipulagðra æfinga markvissari.

Eins og sjá má hefur mikil vinna verið lögð í starfið síðustu mánuði og eiga þjálfarateymi, skrifstofa, Jussi og aðrir sem að starfinu koma mikið hrós skilið. Við erum þó hvergi nærri hætt, enda stefnan sett hátt og um að ræða vinnu til langs tíma.

Á komandi mánuðum verður aukin notkun tölfræði tekin upp hjá okkar bestu unglingum og í meistaraflokki. Tölfræði er mikilvæg til að greina golfleikinn betur og kafa dýpra í frammistöðu. Unnið er að afreksstefnu sem kynnt verður á næstu mánuðum, þar sem starfið verður útskýrt á faglegan hátt og framtíðarsýn klúbbsins í barna-, unglinga- og afreksstarfi sett skýrt fram. Þar verður meðal annars fjallað um stefnu varðandi háskólagolf og hvernig við undirbúum leikmenn sem best fyrir það skref.

Mikil uppbygging er í gangi og mikilvægt er að hafa í huga að slíkt ferli tekur tíma. Þjálfarar, starfsmenn og stjórn klúbbsins eru öll á sama báti með það markmið að byggja upp besta barna- og unglingastarf sem hægt er. Við erum að fara inn í nokkurra ára uppbyggingu sem verður spennandi að fylgjast með.

Við hugsum sérstaklega að grasrótinni og að búa til umhverfi fyrir krakka og unglinga til að kynnast íþróttinni og taka ástfóstri við hana. Góð tómstund gefur lífinu gildi, ekki eingöngu fyrir afrekskylfinga, heldur einnig hinn almenna kylfing á öllum aldri.  Við viljum hlúa að þessu umhverfi þannig að hver og einni geti iðkað íþróttina við sitt hæfi, á sínum forsendum.

Boðað verður til kynningarfundar á næstunni þar sem farið verður nánar yfir starfið, mótaskrá sumarsins, innanfélagsmótaröðina, æfingar sumarsins og fleira.

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 2. október 2026
Þriðjudaginn 29. september síðastliðinn var lokahóf barna-, unglinga- og afreksstarfs Golfklúbbs Reykjavíkur haldið á Korpu. Dagskráin samanstóð af púttkeppni, verðlaunaafhendingu og pizzaveislu. Lokahófið markaði formleg lok sumartímabilsins eftir viðburðaríkt og skemmtilegt ár. Þátttakendum í starfi klúbbsins fjölgaði á árinu og var sérstaklega ánægjulegt að sjá mörg ný andlit bætast í hópinn samhliða þeim kylfingum sem hafa tekið þátt undanfarin ár. Á lokahófinu var farið yfir tímabilið og veitt verðlaun fyrir Hagar mótaröð íþróttastarfsins. Allir sem mættu fengu jafnframt bíómiða í boði Smárabíó. Þjálfarar starfsins fá kærkomið hlé frá hefðbundinni þjálfun í október, en ýmis dagskrá verður engu að síður í boði fyrir kylfingana okkar áður en æfingar hefjast aftur af fullum krafti 2. nóvember. Meðal þess sem fram undan er í október eru bíóferð, bingó og opnar golfæfingar seinni hluta mánaðarins. Það verður því áfram nóg um að vera hjá kylfingum GR á komandi vikum og mánuðum. Hagar mótaröðin Hagar mótaröðin er innanfélagsmótaröð fyrir iðkendur í íþróttastarfi GR. Keppt er í flokkum eftir aldri eða forgjöf og mótin fara fram á þriðjudögum yfir sumartímann. Góð þátttaka var í mótaröðinni í ár. Hún er mikilvægur vettvangur fyrir unga kylfinga klúbbsins til að stíga sín fyrstu skref í keppnisgolfi og öðlast dýrmæta reynslu. Margir af fremstu kylfingum GR hófu sinn keppnisferil einmitt á þessari mótaröð og hefur hún því í gegnum árin sannað mikilvægi sitt í starfi klúbbsins 🥇🥈🥉 Keppt var í punktakeppni og alls voru leikin sjö mót. Fjögur bestu mót hvers kylfings töldu til stiga. Veitt voru verðlaun í hverjum flokki auk þess sem heildarstigameistari mótaraðarinnar var krýndur 🏆 Stigameistari Hagar mótaraðarinnar árið 2026 er Daði Hrafn Ásgeirsson 🏆 Helstu úrslit úr flokkum eru þessi: Stúlkur forgjöf 40 og hærri Iðunn Jóhanna Frostadóttir Vala Arnarsdóttir Karen Helga Birkisdóttir Piltar forgjöf 40 og hærri Rúrik Ívarsson og Sölvi Birgisson Sævar Hrafn Garðarsson Gunnar Bjarki Valdimarsson Piltar forgjöf 30-40 Hreiðar Birkir Baldvinsson Dagur Snær Júlíusson Róbert Leó Gylfason og Ásdór Þór Gunnarsson Piltar 11-12 ára Daði Hrafn Ásgeirsson Alexander Aron Ívarsson Magnús Torfi Sigurðsson Piltar 13-14 ára Jóhannes Rafnar Steingrímsson Gunnar Ágúst Snæland Tómas Númi Sigurbjörnsson Stúlkur 15-18 ára Hjördís Jónasdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Viktoría Helga Tryggvadóttir Piltar 15-18 ára Haukur Óli Magnússon Ingimar Jónasson Gunnar Freyr Þorsteinsson Stúlkur 19-22 ára Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir Piltar 19-22 ára Gunnar Þórður Jónasson Sigurður Helgi Hlöðversson Andri Guðmann Agnarsson Við óskum Daða Hrafni og öllum öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn. Jafnframt þökkum við öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna í sumar. Við hlökkum til næsta tímabils og stefnum að því að efla mótaröðina enn frekar og hvetja fleiri kylfinga í starfi GR til þátttöku.
Eftir Sigríður GR Golf • 30. september 2026
Haraldur Franklín Magnús hóf leik í Abu Dhabi Challenge á HotelPlanner Tour á morgun eða öllu heldur í nótt á íslenskum tíma Leikið verður á Al Ain Equestrian, Shooting & Golf Club í Sameinuðu arabísku furstadæmunum dagana 30. september til 3. október. Mótið er síðasta tækifæri kylfinga til þess að tryggja sér sæti í lokaspretti HotelPlanner Tour. Að mótinu loknu halda 68 efstu menn stigalistans áfram í tvö mót í Kína áður en lokamót tímabilsins fer fram á Mallorca. Haraldur er í 148. sæti stigalistans fyrir mótið með 77,6 stig. Haraldur átti rástíma kl. 08:00 að staðartíma, sem var kl. 04:00 að íslenskum tíma, á fyrsta keppnisdegi. Hann hóf leik á 10. teig ásamt Ryan Lumsden frá Skotlandi og Anders Emil Ejlersen frá Danmörku. Haraldur lauk leik á fyrsta hring mótisins á 71 höggi eða einu höggi yfir pari, með 5 skolla og 4 fugla. Aðstæður verða töluvert frábrugðnar því sem Haraldur og flestir evrópsku kylfingarnir eiga að venjast. Mikill hiti hefur verið á Al Ain-svæðinu undanfarna daga og verður hitinn áfram stór þáttur í mótinu. Hitinn hefur farið vel yfir 40 gráður yfir heitasta hluta dagsins. Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 29. september 2026
Kalla Jó mótaröðin, sem er innanfélagsmótaröð fyrir kylfinga sem eru 70tugir á árinu eða eldri, fór fram við góðar undirtektir í sumar. Leikin voru fimm mót á 9 holu lykkju þess dags sem mótin fóru fram. Fyrsta mót sumarsins var leikið 12. júní og lokamótið fór fram 28. ágúst. Mótaröðin fékk nafnið sitt til heiðurs Karli Jóhannssyni sem kom þessari mótaröð á laggirnir og sjórnaði árum saman. Þó að Kalli sé hættur að sjá um mótaröðina að þá mætir hann á mótsdögum og spjallar við keppendur. Að loknu hverju móti fór fram verðlaunaafhending í golfskálanum á Korpu. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sæti í punktakeppni karla og kvenna og auk þess besta skor án forgjafar. Auk þess að veitt voru verðlaun fyrir hvert mót þá var einnig keppt um stigameistara, en þar töldu 3 bestu skorin í mótum sumarsins hjá hverjum keppanda. Stigameistarakeppninni lauk með eftirfarandi úrslitum. Punktakeppni karla Sigurður Guðjónsson 56 punktar Guðmundur Stefán Jónsson 54 punktar (jafn í 2-4 sæti) Ingi Þórðarsson 54 punktar (jafn í 2-4 sæti) Haukur Magnússon 54 punktar (jafn í 2-4 sæti) Punktakeppni kvenna Anna Sigurjónsdóttir 56 punktar Inga Jóna Stefánsdóttir 55 punktar (jöfn í 2-3 sæti) Ingveldur B. Jóhannesdóttir 55 punktar (jöfn í 2-3 sæti) Bestu höggleiksskorin án forgjafar voru þessi: Hans Óskar Isebarn 119 högg
Eftir Sigríður GR Golf • 28. september 2026
Golftímabilinu 2026 fer senn að ljúka með formlegum hætti hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Vellir félagsins hafa verið vel nýttir í sumar og þótt veðrið hafi verið misjafnt hafa margir góðir golfdagar komið inn á milli. Nú þegar haustið er gengið í garð tekur vetrarstarfsemi smám saman við. Veitingasala í klúbbhúsum félagsins í Grafarholti og Korpu hefur lokað og golfbúðirnar loka einnig um miðja viku eða frá og með fimmtudeginum 1. október. Kaffi og kleinur í Korpu Veitingasalurinn verður opinn fyrir félagsmenn eitthvað áfram þótt veitingasalan í Korpu sé lokuð. Við munum bjóða upp á kaffi og kleinur framyfir helgi á Korpu þannig að félagsmenn geta sest niður og átt notalega stund að loknum hring. Rétt er að árétta að ekki verður um hefðbundna veitingasölu að ræða. Vellir opnir á meðan veður leyfir Þótt hefðbundnu golftímabili sé að ljúka geta félagsmenn áfram leikið golf á völlum félagsins á meðan veður og aðstæður leyfa. Haustveður getur breyst hratt og þegar kólnar geta komið upp aðstæður þar sem nauðsynlegt er að loka einstökum lykkjum eða völlum með skömmum fyrirvara. Félagsmenn eru því hvattir til að fylgjast vel með rástímabókun í GolfBox. Þar verða birtar upplýsingar um lokanir þegar aðstæður leyfa ekki spilamennsku. Þegar frost er í jörðu þarf jafnframt að sýna sérstaka varkárni. Við slíkar aðstæður getur reynst nauðsynlegt að loka einstökum lykkjum eða jafnvel heilum völlum til að verja gróður og undirlag. Félagsmenn eru beðnir um að virða slíkar lokanir og sýna þolinmæði enda eru þær nauðsynlegar til að vernda vellina og tryggja sem besta leikupplifun til lengri tíma. Salernisaðstaða á báðum völlum verður áfram eða á meðan vellir eru opnir. Ef breyting verður á því, munum við tilkynna það sérstaklega. Góð umgengni sérstaklega mikilvæg á haustin Með lækkandi hitastigi hægir á vexti gróðurs og því verður góð umgengni kylfinga um vellina enn mikilvægari. Allir kylfingar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að halda völlunum í sem besta ásigkomulagi og hjálpa þannig til að hafa vellina opna eins lengi og aðstæður leyfa. Sérstaklega er mikilvægt að ganga vel frá torfusneplum á brautum og nota flatargaffla til að laga boltaför á flötum. Með sameiginlegu átaki og góðri umgengni getum við aukið líkurnar á því að hægt verði að leika golf á völlum félagsins langt fram eftir hausti. Vetrarstarfsemi tekur við Æfingasvæði Bása verður áfram opið alla daga vikunnar og tekur vetraropnun við í október. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðu Bása eða með því að smella hér . Skrifstofa Golfklúbbs Reykjavíkur er opin alla virka daga frá kl. 9.00 til 16.00 og geta félagsmenn haft samband við starfsfólk klúbbsins á þeim tíma. Æfingaaðstaða félagsins á 2. hæð í Korpu opnar jafnframt fyrir vetrarstarf félagsmanna frá og með fimmtudeginum 1. október. Aðstaðan verður opin alla virka daga frá kl. 8.00 til 22.00. Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar félagsmönnum fyrir golftímabilið sem nú er að líða og vonast til þess að veður og aðstæður geri kylfingum kleift að njóta vallanna áfram fram eftir hausti.
Eftir Sigríður GR Golf • 28. september 2026
Kæru kylfingar við gáfum út frétt um miðjan september þar sem golfbílar væru ekki leyfðir á völlum félagsins vegna mikillar vætu og við myndum tilkynna ef golfbílar yrður leyfðir. Síðan þá hefur rignt töluvert og vellirnir því ennþá vel votir, staðan er því óbreytt og engir golfbílar leyfðir á völlum félagsins að Thorsvelli undanskildum. Golfkveðjur, Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 25. september 2026
Dagbjartur var í þriðja sæti eftir fyrsta hring upp á 68 högg. Í dag lék hann bæði fyrri og seinni níu holurnar á 36 höggum og kom inn á 72. Hann er samtals á sex höggum undir pari og deilir fjórða sætinu með Sebastian Eidsæther Syr frá Noregi og David Lundgren frá Svíþjóð. Hlynur Bergsson er jafn í efsta sæti Folksam Championship í Svíþjóð fyrir lokahring mótsins. Hann lék annan hringinn á 70 höggum, þremur undir pari, og er á sjö höggum undir pari í heildina. Dagbjartur Sigurbrandsson er jafn í fjórða sæti, aðeins einu höggi á eftir Hlyni. Folksam Championship er leikið á Barsebäck Golf & Resort. Völlurinn er par 73 og er mótið hluti af Nordic Golf League. Fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 24. september 2026
Atvinnukylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson fóru báðir vel af stað á Folksam Championship í Svíþjóð. Mótið fer fram dagana 23.-25. september á Barsebäck Golf & Resort og er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum, fimm undir pari , og er í þriðja sæti mótsins. Hlynur kom inn á 69 höggum, fjórum undir pari , og er jafn í fjórða sæti. Dagbjartur fékk sex fugla og einn skolla á hringnum. Hann lék fyrri níu holurnar á 33 höggum og þær seinni á 35. Hlynur fékk einnig sex fugla, auk tveggja skolla. Norðmaðurinn Sebastian Eidsæther Syr leiðir mótið á sjö höggum undir pari. Okkar menn eru skammt á eftir og í góðum málum fyrir næstu hringi. Íslendingarnir eru hlið við hlið á stigalista mótaraðarinnar: Dagbjartur í 30. sæti og Hlynur í því 31. Báðir hafa þeir best verið í fjórða sæti í sumar  Fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 23. september 2026
Hlutverk dómara í golfi er afar mikilvægt enda stuðlar góð dómgæsla að sanngjarnri keppni, réttri framkvæmd golfreglnanna og faglegri umgjörð móta. Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til dómara þurfa þeir að viðhalda þekkingu sinni og sækja reglulega námskeið og endurmenntun. Í ársbyrjun 2025 innleiddi The R&A ný viðmið fyrir menntun golfdómara. Með breytingunum voru kröfur auknar og meiri áhersla lögð á verklega reynslu samhliða góðri þekkingu á golfreglunum. Jafnframt var námsefni fyrir dómara uppfært og fjórða námsstigið, svokallað „Level 4“, tekið upp fyrir umsjónaraðila mótaraða atvinnukylfinga. GSÍ hefur þýtt stóran hluta námsefnisins og nýtir það meðal annars á námskeiðum fyrir héraðs- og landsdómara. Auknar kröfur eru einnig gerðar til þeirra sem stefna að alþjóðlegum dómararéttindum. Eftir að hafa lokið prófi og námskeiði The R&A í mótahaldi og dómgæslu, Tournament Administrators and Referees School (TARS), á þriðja námsstigi þurfa dómarar að sýna fram á reynslu af dómgæslu á hæsta stigi. Þar getur meðal annars verið um að ræða störf á Íslandsmótum eða GSÍ mótaröðinni. TARS er leiðandi námskeið The R&A á þessu sviði og fjallar bæði um dómgæslu og framkvæmd golfmóta. Dómarar þurfa að skrá þessa reynslu og fá hana staðfesta af dómaranefnd GSÍ. Að lágmarki þurfa þeir að hafa sinnt 120 klukkustundum við dómgæslu að loknu námskeiðinu áður en réttindin eru staðfest. Nicholas Anthony Cathcart-Jones, Nick "okkar" og Gunnar Gylfason eru fyrstu íslensku dómararnir sem ljúka þessu nýja ferli. Að loknu prófi og námskeiði fengu þeir réttindi sem alþjóðadómarar GSÍ. Þeir hafa nú skilað inn starfsskýrslum sínum, sem dómaranefnd GSÍ hefur staðfest, og The R&A hefur gefið út viðurkenningarskírteini þeirra. Báðir höfðu áður öðlast landsdómararéttindi og búa yfir áralangri reynslu af dómarastörfum, líkt og aðrir dómarar sem GSÍ sendir á námskeið The R&A í St Andrews í Skotlandi. Nick og Gunnar hafa þar með öðlast alþjóðlega viðurkennd réttindi til að sinna dómgæslu þar sem gerð er krafa um þriðja stigs dómararéttindi. Dómarar GSÍ sem hafa þessi réttindi eru núna 13 talsins og að auki er einn í ferlinu að safna reynslu. Golfklúbbur Reykjavíkur er ótrúlega stolt af því að hafa Nick hjá sér og við óskum Nick og Gunnari hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga.
Eftir Sigríður GR Golf • 22. september 2026
Haraldur Franklín Magnús lauk keppni jafn í 33. sæti á Open de Portugal mótinu, sem fram fór á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon í Portúgal dagana 17.-20. september. Mótið var hluti af HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Haraldur lék hringina fjóra samtals á þrettán höggum undir pari. Hann hóf mótið af krafti og lék fyrsta hringinn á 66 höggum, fimm höggum undir pari, þar sem hann fékk fimm fugla og tapaði engu höggi. Á öðrum hring lék Haraldur á 70 höggum, einu undir pari, og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn. Hann bætti síðan við hring upp á 67 högg á laugardeginum og fór inn í lokahringinn á tíu höggum undir pari. Haraldur lék lokahringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Hann fékk þrjá fugla og tvo skolla auk þess sem hann fékk örn á sautjándu holu. Fugl á lokaholunni skemmdi ekki fyrir og lokaniðurstaðan því þrettán högg undir par. Árangurinn í Portúgal skilaði Haraldi 14,4 stigum á stigalista HotelPlanner Tour og færði hann upp um tólf sæti. Hann er nú í 148. sæti listans með 77,6 stig. Haraldur hefur leikið sautján mót á HotelPlanner Tour á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn í átta þeirra. Besti árangur hans í sumar kom á German Challenge í júlí, þar sem hann endaði jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari. Frammistaðan í Portúgal var því næstbesti árangur Haralds á mótaröðinni í sumar og jafnframt hans lægsta heildarskor miðað við par á tímabilinu. Flottur árangur hjá Haraldi, sem er einnig skráður í Abu Dhabi Challenge mótið sem hefst þann 30. september. Hér má sjá úrslit Open de Portugal | Hér má sjá stigalista HotelPlanner Tour
Eftir Sigríður GR Golf • 18. september 2026
Kæru kylfingar vegna mikillar bleytu á vellinum og í jörðinni eftir rigningar síðustu daga hefur verið tekin ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla að minnsta kosti framyfir helgi. Við þökkum skilninginn! 💙 Vallarsvið
Show More