Lokahóf Ecco púttmótaraðar GR kvenna fór fram á þriðjudaginn síðasta 3. mars – úrslit og upplýsingar!
Frábær mæting var á lokahófi Ecco púttmótaraðarinnar og heppnaðist kvöldið afar vel. Samkvæmt þeim sem mættu ríkti mikil ánægja með kvöldið og stemningin var góð.
Í ár voru 215 konur skráðar í púttmótaröðina og eins og í fyrra var einnig keppt í liðakeppni , sem hefur nú fest sig vel í sessi sem hluti af mótinu.
Tíu efstu konurnar
kepptu síðan til úrslita. Þar stóð Kristín Hassing
uppi sem sigurvegari með frábæran lokahring á 26 höggum
.
Í 2. sæti
varð Ólöf Inga
og í 3. sæti Ásta Óskarsdóttir
. Þær fóru báðar á 29 höggum
, og þurfti því að skoða síðustu sex holurnar til að skera úr um röðunina.
Eins og áður hafði verið tilkynnt sigruðu Stubbarnir liðakeppnina annað árið í röð – innilega til hamingju með það.
Svona mót og lokahóf væri ekki mögulegt án góðrar aðstoðar margra. Við viljum þakka Ecco á Íslandi fyrir stuðninginn, ásamt Nóa Síríus .
Sérstakar þakkir fá einnig:
- Dóri , fyrir að setja upp völlinn fyrir okkur í hverri viku
- Frosti , fyrir að taka allar þessar skemmtilegu myndir – allar myndirnar má sjá á www.golfmyndir.is
- Guðbjörg Hólm , sem sá um kaffið í vetur fyrir þær sem púttuðu snemma
- Starfsfólk á skrifstofu GR fyrir alla aðstoðina
Við þökkum öllum kærlega fyrir komuna.
Við hlökkum til sumarsins sem nálgast óðfluga
Næst á dagskrá er v ormót GR kvenna verður haldið 30. maí í Borgarnesi, og sumarmótaröð 66°Norður og GR kvenna hefst svo mánudaginn 1. júní. Nánar um það síðar, munið að við setjum allar upplýsingar inná Facebook síðu GR kvenna og einnig eru GR konur komnar með Instagram
The post Lokahóf Ecco púttmótaraðar GR kvenna fór fram á þriðjudaginn síðasta 3. mars – úrslit og upplýsingar! appeared first on GR Golf.
Recent Posts







