Nýjar reglur um golfbíla taka gildi í lok sumars 2026
Nýjar reglur um golfbíla taka gildi í lok sumars 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hefur ákveðið að frá og með opnun golfvalla GR vorið 2027
verði notkun golfbíla í eigu einstaklinga ekki lengur heimiluð á völlum klúbbsins. Klúbburinn bíður nú þegar upp á golfbíla til leigu gegn hóflegu gjaldi og verður leitast við að uppfylla þarfir kylfinga með þeim hætti.
Fyrir þessu eru ýmsar ástæður, m.a. spurningar um pláss, bílastæði, umhverfisleg rök og síðast en ekki síst stjórnun og aðgangsstýring, m.a. til verndar svæðum nærri teigum, flötum og svæðum sem á hverjum tíma þarfnast sérstakrar verndunar.
Við vonumst til að félagsmenn sýni þessari breytingu skilning. Hún er liður í því að verja völlinn okkar til framtíðar og bæta upplifun allra kylfinga – bæði í dag og á komandi árum.
Stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur
The post Nýjar reglur um golfbíla taka gildi í lok sumars 2026 appeared first on GR Golf.
Recent Posts







