Páskapútt – fjölskyldustund laugardaginn 4.apríl

harpa • 30. mars 2026

Share this article

Laugardagurinn 4. apríl á Korpu

Við bjóðum upp á  skemmtilegan viðburð á Korpunni fyrir GR-félaga og skyldu um páskana.

Upplýsingar um mótið

2 í liði – barn og fullorðinn
Mótsgjald: 3.000 kr. á lið  —  kaffi & vaffla innifalið eftir púttið
Leiknir verða  2 hringir  –  betri hringur hvors leikmanns gildir í liðs skorið

Skráning fer fram hér  Skráning
POSI á staðnum – hægt að mæta og skrá sig á staðnum en hvetjum til skráningar fyrirfram

12:00–14:00 – Fjölskyldustund

Börn hjartanlega velkomin í fylgd með fullorðnum GR meðlimum !
Tilvalið fyrir  ömmur, afa, foreldra, frænkur og frændur  að koma með litlu kylfingana.

Börn 12 ára og yngri geta snúið lukkuhjóli  og unnið skemmtilega vinninga!

 

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 19. nóvember 2026
Aðalfundur GR verður haldinn á 2. hæð Korpu fimmtudaginn 3. desember og hefst stundvíslega kl. 18:00. Á fundinum fara fram hefðbundin aðalfundarstörf samkvæmt 18. grein laga félagsins. Dagskrá: 1. Skýrsla formanns. 2. Kynning á endurskoðuðum ársreikningi félagsins. 3. Umræður um skýrslu formanns og ársreikning sem síðan skal borinn upp til samþykktar. 4. Umræður og atkvæðagreiðsla framkominna tillagna skv. 19. gr. ef einhverjar eru. 5. Afgreiðsla tillagna til lagabreytinga. 6. Kynning á fjárhagsáætlun komandi starfsárs, umræður og atkvæðagreiðsla. 7. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn. 8. Kosning tveggja endurskoðenda og eins til vara. 9. Önnur málefni ef einhver eru. Samkvæmt 10. grein laga félagsins fer fram stjórnarkjör á aðalfundi þar sem formaður skal kosinn til eins árs, þrír aðalmenn í stjórn til tveggja ára og þrír varamenn í stjórn til eins árs. Þeir félagsmenn sem vilja gefa kost á sér til stjórnarsetu skulu senda framboð sín til kjörnefndar á netfangið kjornefnd@grgolf.is í síðasta lagi viku fyrir aðalfund eða ekki seinna en þann 26. nóvember næstkomandi. Taka skal fram hvort framboðið sé til formanns, aðalstjórnar eða varastjórnar. Ef framboð til stjórnarsetu eru fleiri en þau sæti sem kjósa á um skal kjörnefnd hafa umsjón með kosningu milli frambjóðenda á aðalfundi og sjá til þess að framboð séu kynnt félagsmönnum fyrir aðalfund. Samkvæmt lögum félagsins skal gætt að því að í stjórn sitji að lágmarki þriðjungur einstaklinga af hvoru kyni. Lagabreytingartillögur, lagðar fyrir aðalfund 2026: Textabreytingar eru auðkenndar með undirstrikun. 1. grein orðist svo: Félagið heitir Golfklúbbur Reykjavíkur (GR). Heimili þess og varnarþing er í Reykjavík. GR er aðili að Íþróttabandalagi Reykjavíkur (ÍBR) og Golfsambandi Íslands (GSÍ). GR er starfrækt sem félag til almannaheilla samkvæmt lögum nr. 110/2021 um félög til almannaheilla. Þar sem ákvæði laga þessara segja ekki til um hvernig með skuli farið skal hlíta ákvæðum laga nr. 110/2021, svo og öðrum lagaákvæðum sem við geta átt. Athugasemd: Undirstrikaði textinn er viðbót við núverandi ákvæði. Tilgangur með breytingunni er að GR verði almannaheillafélag og uppfylli til þess skilyrði skv. lögum nr. 110/2021. 3. grein orðist svo: Félagar geta allir orðið sem hafa áhuga á að styðja tilgang félagsins og óska aðildar með skriflegri umsókn, enda samþykki stjórn umsókn á fundi sínum. Þar sem aðstaða til golfleiks er takmörkuð skal stjórn ákveða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni, sem nýtur heimildar til golfleiks og æfinga á völlum og æfingasvæðum félagsins. Æski fleiri félagsaðildar en nemur hinum ákveðna hámarksfjölda skal setja umsækjendur á biðskrá. Umsækjendur á biðskrá eiga val um hvort þeir verði félagar í GR þá þegar og greiði þá fullt árgjald og inntökugjald, sbr. 5. gr., eða hvort þeir standi utan félagsins þar til röð kemur að þeim samkvæmt biðskránni. Stjórn skal setja og birta reglur um biðskrá. Aukaaðild að klúbbnum geta fengið ungmenni 17 ára og yngri. Aukaaðild fylgir takmarkaður réttur til leiks á golfvöllum félagsins samkvæmt reglum sem stjórnin setur. Stjórn getur ákveðið hámarksfjölda aukafélaga miðað við þá aðstöðu sem félagið getur boðið hverju sinni. Athugasemd: Undirstrikaði textinn felur í sér breytingu á núgildandi 1. málslið 2. mgr. 3. gr. sem er svohljóðandi: Stjórn skal ákveða hámarksfjölda félagsmanna hverju sinni miðað við þá aðstöðu til golfleiks sem félagið getur boðið hverju sinni. Æski fleiri félagsaðildar en unnt er að verða við skal setja umsækjendur á biðskrá. Með breytingunni er komið til móts við tilmæli Íþróttasambands Íslands frá því fyrr á árinu, þar sem bent var á að samkvæmt lögum ÍSÍ skuli félagsaðild ávallt vera öllum frjáls sem gangast undir lög og reglur viðkomandi félags. Ekki sé heimilt að gera aðrar takmarkanir á þátttöku í félagsstarfi en þær sem ytri aðstæður, s.s. þjálfunaraðstæður, leyfa og þurfi lög og reglur einstakra félaga að vera í samræmi við það. Í samræmi við þetta er lögð til sú breyting að félagsaðild verði öllum frjáls, en eftir sem áður sé heimilt að setja takmörkun á hámarksfjölda þeirra sem njóta heimildar til golfleiks á völlum og æfingasvæðum félagsins. Umsækjendur umfram þann hámarksfjölda skuli setja á biðskrá. 21. grein orðist svo: Komi fram tillaga um að félaginu skuli slitið skal hún tekin fyrir á sérstökum fundi sem stjórnin boðar til með sama hætti og aðalfund. Fundurinn er ályktunarhæfur ef minnst helmingur félagsmanna sækir fundinn og tillagan fær gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana. Mæti ekki nægilega margir skal boða til fundar á ný og halda hann innan þriggja vikna. Sá fundur er ályktunarhæfur án tillits til fundarsóknar og fær tillagan gildi ef 2/3 fundarmanna samþykkja hana. Hrein eign við slit félagsins skal renna til ÍBR til eflingar á golf- og íþróttastarfi í Reykjavík í samráði við Reykjavíkurborg. Með öllu er óheimilt að úthluta eignum eða fjármunum félagsins til félagsmanna eða annarra einstaklinga við félagsslit. Athugasemd: Undirstrikaði textinn er viðbót við núverandi ákvæði og er vegna krafna laganna um félög til almannaheilla. Samkvæmt þeim ber að tilgreina í lögum eða samþykktum félags hvað verði um hreina eign við slit félags. Stjórn
Eftir Sigríður GR Golf • 18. nóvember 2026
Lokamót LET Access mótaraðarinnar, Islantilla Open, hefst á morgun, miðvikudaginn 18. nóvember, á Spáni. Mikil spenna er fyrir lokamót tímabilsins þar sem sjö efstu kylfingar stigalistans tryggja sér keppnisrétt á Ladies European Tour (LET) á næsta ári. Hulda Clara Gestsdóttir, Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir eru á meðal keppenda mótsins. Mótið fer fram dagana 18.-20. nóvember á Islantilla Golf Resort á Spáni. Alls taka 84 kylfingar þátt og verður leikinn 54 holu höggleikur með niðurskurði eftir tvo hringi, þar sem 45 efstu kylfingarnir komast áfram. Heildarverðlaunafé mótsins er 100.000 evrur, það hæsta á LET Access á þessu tímabili. Hulda Clara hefur átt frábært fyrsta tímabil sem atvinnukylfingur og er í níunda sæti stigalistans með 1.163,33 stig. Aðeins 82,67 stig skilja hana frá Tékkneska kylfingnum Terezu Zapletal Kozeluhovu, sem situr í sjöunda sæti og því síðasta sem veitir beinan keppnisrétt á LET. Hulda Clara kemur til leiks eftir frábæran árangur á Santander Golf Tour mótinu um síðustu helgi, þar sem hún hafnaði í fjórða sæti á átta höggum undir pari. Þetta var í fimmta sinn á tímabilinu sem Hulda Clara endaði á meðal tíu efstu. Ragnhildur Kristinsdóttir og Andrea Bergsdóttir hafa sömuleiðis leikið vel á LET Access á árinu og eru báðar í góðri stöðu á stigalistanum. Ragnhildur situr í 21. sæti með 815,15 stig. Hún hefur nokkrum sinnum blandað sér í baráttuna um efstu sætin og var meðal annars í öðru sæti á Allegria Ladies Open fyrr á tímabilinu. Um síðustu helgi hafnaði hún í níunda sæti á Santander Golf Tour mótsins eftir að hafa verið í forystu að loknum fyrsta hring. Andrea er í 24. sæti stigalistans með 747,61 stig. Hún hefur sömuleiðis átt gott tímabil og náði sínum besta árangri þegar hún varð jöfn í þriðja sæti á Lavaux Ladies Open í Sviss í september. Þá hafnaði hún einnig í fjórða sæti á Ladies Slovak Golf Open í ágúst. Kylfingar sem enda í sætum 8-32 á stigalistanum tryggja sér þátttökurétt á lokaúrtökumóti LET í desember. Alls hafa fjórir kylfingar þegar tryggt sér keppnisrétt á LET fyrir næsta tímabil, og eru þrjú sæti því enn í boði fyrir lokamótið. Hulda, Ragnhildur og Andrea eiga allar möguleika á að enda á meðal sjö efstu, en 500 stig eru veitt sigurvegara mótsins. Stigalisti LET 
Eftir Sigríður GR Golf • 17. nóvember 2026
Við minnum á fyrsta Bingó vetrarins hjá 65+ félögum GR. En það verður á næstkomandi fimmtudag þann 19. nóvember í veitingasal Korpu. Bingó-ið hefst stundvíslega kl. 10:00. ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr. Greiða má með seðlum eða korti fyrir spjaldið/spjöldin. Í hléi er boðið er uppá kaffi og kleinur. Bingó verður haldið þessa daga fram að áramótum: 19. nóvember 2026 17. desember 2026 Almennt er vel mætt á bingó eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur. Svona viðburðir gerast þó ekki á sjálfum sér og margar hendur vinna létt verk - en til þess að verkið verði létt(ara) verða hendurnar að vera til staðar. Bingónefnd eldri kylfinga óskar því eftir áhugasömum eldri kylfingum sem eru til í að leggja hönd á plóg að senda tölvupóst á hann Dóra bingóstjóra á leturval@litrof.is
Eftir Sigríður GR Golf • 12. nóvember 2026
Kæru félagsmenn, Þótt völlum GR hafi nú verið lokað fyrir veturinn er síður en svo setið auðum höndum, eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Þvert á móti er tíminn nýttur vel til að ljúka ýmsum framkvæmdum og undirbúa vellina fyrir næsta golftímabil. Um þessar mundir er unnið að því að ganga frá svæðinu í kringum nýju flötina á 10. holu í Grafarholti, auk þess sem tekið er til hendinni á svæðinu vinstra megin við 16. holu, sem hefur lengi verið til ama. Þegar vorar verður sáð í þessi svæði og með hækkandi sól og hlýnandi veðri munu þau smám saman taka á sig fallegri mynd. Vonir standa til að næsta sumar verði árangurinn orðinn vel sýnilegur. Nýja flötin á 10. holu verður glæsileg og flatarsvæðið allt mun setja fallegan svip á völlinn okkar. Samhliða þessum framkvæmdum er unnið að lagningu nýrrar vatnslagnar upp í dalinn við 6. og 7. holu. Eldri lögnin, sem var orðin um 50 ára gömul, hafði að öllum líkindum fallið saman og þjónaði því ekki lengur tilgangi sínum. Með nýju lögninni verður vatnsöflun á svæðinu tryggari og möguleikar til vökvunar batna til muna. Það skiptir miklu máli, ekki síst á þurrkatímabilum þegar nauðsynlegt er að geta brugðist hratt við og tryggt næga vökvun áður en gróður verður fyrir skaða. Á næstunni hefjast einnig framkvæmdir við gerð fleiri glompna samkvæmt hönnun Mackenzie. Þeir verða tilbúnir til notkunar þegar vellirnir opna 2027. Á Korpu er verið að undirbúa lagningu nýrra göngustíga við 11.holu og 16.holu. Ásamt því að drenlagnir verða lagðar í nokkrar brautir til að fyrirbyggja pollamyndun og auðvelda vatninu að fara sína réttu leið. Við hlökkum til að sjá þessar framkvæmdir skila sér í enn betri og fallegri golfvöllum á komandi árum. Bestu kveðjur, Vallarsvið GR
Eftir Sigríður GR Golf • 10. nóvember 2026
Ólafur Björn Loftsson afrekssjóri GSÍ og Andri Þór Björnsson aðstoðarafreksstjóri GSÍ völdu á dögunum 23 kylfinga í nýjan landsliðshóp. Fyrstu æfingar vetrarins fóru fram í lok október á Nesvöllum, innaæfingasvæði Nesklúbbsins en það verður þétt dagskrá í landsliðsstarfinu í vetur. Við hjá Golfklúbbi Reykjavíkur eigum tvo fulltrúa í nýja landslíðshópnum en það eru þær Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir. “Það eru spennandi tímar fram undan fyrir okkar landsliðskylfinga. Við hefjum tímabilið töluvert fyrr en undanfarna vetra og munum standa fyrir fleiri æfingum og bættum stuðningi. Hópurinn mun koma saman einu sinni í viku fyrir áramót og eftir áramót verður áhersla á æfinga- og keppnisferðir erlendis ásamt landsliðsæfingabúðum hér á landi. Í fyrsta sinn verður svo haldin æfingaferð í Bandaríkjunum fyrir þá landsliðskylfinga sem stunda nám við bandaríska háskóla. Æfingaferðin fer fram í Flórída í lok nóvember sem mun án efa nýtast kylfingunum vel.” – segir Ólafur Björn Loftsson Í byrjun janúar heldur landsliðshópurinn, líkt og undanfarin ár, í æfingaferð á La Finca golfsvæðið á Spáni. “Það er ekki að ástæðulausu sem við förum til La Finca þriðja árið í röð. Aðstaðan þar er til fyrirmyndar og það er ótrúlega mikilvægt að kylfingarnir okkar fái tækifæri til að æfa við þessar frábæru aðstæður á glæsilegum golfvelli. Þessi ferð er virkilega mikilvægur þáttur á árinu fyrir okkar afrekskylfinga og þjálfara. Keppnisferðirnar skipta hópinn einnig miklu máli en hópurinn fer í spennandi ferð til Ítalíu um páskana í tvö alþjóðleg mót. Það er mjög ánægjulegt að geta boðið kylfingunum upp á þessi tækifæri og hlökkum við mikið til komandi verkefna. Það er meðbyr í íslensku afreksgolfi og við viljum fylgja vel á eftir frábæru ári þar sem margir afrekskylfingar náðu eftirtektarverðum árangri sem skipa sér á meðal þeirra merkustu í íslenskri golfsögu. – segir Ólafur Björn Loftsson Landsliðshópurinn er þannig skipaður: Elsa Maren Steinarsdóttir, GL Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR Veigar Heiðarsson, GA Eva Kristinsdóttir, GM Markús Marelsson, GK Gunnar Þór Heimisson, GKG Kristján Karl Guðjónsson, GM Pamela Ósk Hjaltadóttir, GKG Arnar Daði Svavarsson, GKG Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, GR Bryndís Eva Ágústsdóttir, GA Embla Hrönn Hallsdóttir, GKG Lilja Maren Jónsdóttir, GA Óliver Elí Björnsson, GK Björn Breki Halldórsson, GKG Elva María Jónsdóttir, GK Hjalti Kristján Hjaltason, GKG Máni Freyr Vigfússon, GK Skarphéðinn Egill Þórisson, NK Barri Björgvinsson, GA Halldór Jóhannsson, GK Elísabet Þóra Ólafsdóttir, NK
Eftir Sigríður GR Golf • 9. nóvember 2026
Fyrsta Bingó ársins hjá 65 ára og eldri kylfingum klúbbsins verður haldið í veitingasal Korpu fimmtudaginn 19. nóvember kl. 10:00. ATH! Fyrsta bingóspjaldið kostar 1000 kr. hvert spjald umfram það kostar 500 kr. Greiða má með seðlum eða korti fyrir spjaldið/spjöldin. Í hléi er boðið er uppá kaffi og kleinur. Bingó verður haldið þessa daga fram að áramótum: 19. nóvember 2026 17. desember 2026 Almennt er vel mætt á bingó eldri kylfinga og eru flottir vinningar í boði. Við hvetjum þá félagsmenn, sem hafa náð 65 ára aldri, til að mæta og taka þátt í bingóviðburðum í vetur. Svona viðburðir gerast þó ekki á sjálfum sér og margar hendur vinna létt verk - en til þess að verkið verði létt(ara) verða hendurnar að vera til staðar. Bingónefnd eldri kylfinga óskar því eftir áhugasömum eldri kylfingum sem eru til í að leggja hönd á plóg að senda tölvupóst á hann Dóra bingóstjóra á leturval@litrof.is
Eftir Sigríður GR Golf • 9. nóvember 2026
Kæru kylfingar, nú hefur Landið á Korpúlfsstaðavelli lokað fyrir veturinn og þar með er golftímabilinu á Korpunni formlega lokið þetta árið. Við minnum þó félagsmenn á að Thorsvöllur er opinn allt árið fyrir þá sem vilja halda áfram að njóta útiverunnar og taka nokkrar holur þegar veður leyfir. Svo eru Básar að sjálfsögðu opnir í allan vetur , þar sem hægt er að halda sveiflunni við eða jafnvel nýta vetrarmánuðina í að gera breytingar á golfsveiflunni og mæta enn sterkari til leiks næsta vor! ⛳ Inniæfingaaðstaðan á 2. hæðinni á Korpunni er einnig opin félagsmönnum alla daga, þar er hægt að æfa púttin fyrir næsta golftímabil. Hér má sjá tímatöfluna fyrir inniæfingaaðstöðuna. Við þökkum félagsmönnum kærlega fyrir sumarið á völlunum félagsins en erum strax farin að hlakka til þess næsta!
Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Þótt golftímabilinu utandyra fari senn að ljúka er engin ástæða fyrir því að sveiflan fari í vetrarfrí! Í Básum er hægt að halda sveiflunni við og njóta golfæfinga allan veturinn. Vetraraðild í Básum – sala hefst 1. nóvember Frá og með 1. nóvember hefjum við sölu á vetraraðild í Básum. Í boði verða þrjár mismunandi vetraraðildir sem fara í sölu í nóvember, desember og janúar. Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur njóta sérstaks afsláttar af vetraraðild og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að halda golfæfingunum gangandi yfir vetrarmánuðina. Lengri opnunartími um helgar Frá og með 1. nóvember lengjum við opnunartíma Bása um helgar. Þá verður opnað kl. 08:00 í stað kl. 10:00 bæði á laugardögum og sunnudögum. Þetta eru góðar fréttir fyrir morgunhanana sem vilja byrja helgina á nokkrum góðum sveiflum! Kaffibolli á milli högga Við minnum einnig á kaffiaðstöðuna í Básum þar sem hægt er að fá sér góðan kaffibolla úr sjálfsalanum. Tilvalið til að hlýja sér á milli æfinga eða njóta smá kaffipásu í góðum félagsskap. Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér aðstöðuna í Básum í vetur, halda sér í golfstuði og mæta vel undirbúin til leiks þegar vorið kemur. Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Sjórinn á Korpúlfsstaðavelli lokar frá og með deginum í dag og hefur þar með lokið sínu golftímabili þetta árið. Rástímar færðir yfir á Landið Þeir kylfingar sem áttu bókaðan rástíma á Sjónum hafa verið færðir yfir á Landið. Í flestum tilfellum hefur tekist að halda rástímanum nánast óbreyttum, en í einstaka tilfellum hefur þurft að færa hann fram eða aftur um 2–3 rástíma. Við biðjum kylfinga því vinsamlegast um að yfirfara bókaða rástíma sína í GolfBox áður en haldið er af stað á völlinn. Við þökkum öllum kylfingum fyrir frábært golfsumar á Sjónum og minnum á að enn er hægt að njóta golfleiks á Landinu, svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Einnig minnum við á Thorsvöllinn sem er opinn allan ársins hring fyrir félagsmenn. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 26. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í áttunda sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki (European Men’s Club Trophy) sem lauk á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi í dag. Lið GR lék hringina þrjá á samtals 440 höggum, 14 höggum yfir pari, en alls tóku 23 lið þátt í mótinu. Lið GR skipuðu Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Í mótinu voru leiknar 54 holur á þremur dögum og töldu tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. GR lék fyrsta hringinn á 147 höggum, fimm yfir pari. Á öðrum degi lék liðið á 144 höggum, tveimur yfir pari, og deildi fimmta sætinu fyrir lokahringinn. Á lokahringnum lék GR á 149 höggum, sjö yfir pari, og féll niður í áttunda sæti. Jóhann Frank Halldórsson lék best GR-inga á lokahringnum, en hann kom í hús á 74 höggum, þremur yfir pari. Hann lék fyrri níu holurnar á 41 höggi en seinni níu holurnar á 33 höggum, tveimur undir pari. Böðvar Bragi Pálsson lék lokahringinn á 75 höggum, fjórum yfir pari, en Arnór Tjörvi Þórsson kom í hús á 79 höggum, átta yfir pari. Böðvar Bragi átti besta hring GR í mótinu á öðrum keppnisdegi. Þá lék hann á 70 höggum, einu höggi undir pari. Arnór Tjörvi lék sömuleiðis vel á fyrsta keppnisdegi þegar hann kom í hús á 72 höggum. Heildarskor kylfinganna þriggja voru eftirfarandi: Böðvar Bragi Pálsson: 77-70-75, +9 Jóhann Frank Halldórsson: 75-75-74, +11 Arnór Tjörvi Þórsson: 72-74-79, +12 GR tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar sigraði GR lið GKG í úrslitaleik, 5–0, og varð Íslandsmeistari annað árið í röð og í 27. skipti í sögu félagsins. GR hafnaði í sjötta sæti á Evrópumótinu í fyrra en liðið hefur nú lokið keppni á meðal átta efstu liða mótsins annað árið í röð.  Hér má sjá úrslit mótsins
Show More