Tilkynning frá stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur

Sigríður Guðmundsdóttir • 21. nóvember 2025

Share this article

Kæru félagar,               

Fyrr í vikunni tilkynnti stjórn GR að frá og með opnun golfvalla GR vorið 2027 verði notkun golfbíla í eigu einstaklinga ekki heimiluð á völlum klúbbsins.

Í tilkynningunni kom fram að fyrir ákvörðuninni séu ýmsar ástæður, m.a. spurningar um pláss, bílastæði, umhverfisleg rök og síðast en ekki síst stjórnun og aðgangsstýring á völlunum.  Allt eru þetta að mati stjórnar góð og gild rök og óumflýjanlegt að bregðast við.  Því lengur sem það er dregið, því erfiðari verði ákvörðunin. 

Tilkynningin hefur vakið viðbrögð og þá sérstaklega meðal félagsmanna sem eiga golfbíla nú þegar.  Klúbburinn vill að sjálfsögðu vinna með félagsmönnum.  Að þessu öllu athuguðu hefur GR ákveðið að lengja fyrirvarann til vorsins 2028 í stað 2027.

Því til viðbótar vill klúbburinn taka upp samtal við núverandi bílaeigendur um að koma til móts við þá, með tilliti til hagsmuna beggja.  Meðal þess sem klúbburinn vill athuga er möguleiki á að koma upp stjórnbúnaði í einkabílunum, bílar standist skoðun og eigendur beri kostnað er því fylgir.  Eigendur eru beðnir um að gefa sig nú þegar fram við skrifstofu klúbbsins með tölvupósti ( gr@grgolf.is ), þannig að náð verði utan um allan hópinn og frekara samtal geti farið fram.

Í ljósi þessarar ákvörðunar ráðum við meðlimum GR eindregið frá því að fjárfesta hér eftir í einkabílum á forsendu um að nota þá á völlum GR.

 

               Kær kveðja,

               stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur

 

Nánari skýringar:

  1. Aðlögunartímabil er lengt samkvæmt framansögðu. Verði knýjandi rök til enn frekari aðlögunr, t.d. ef tafir verða á undirbúningi, aðstöðu, bílakosti eða þjónustu, verður sjálfsagt að lengja tímabilið enn frekar þar til klúbburinn getur staðið við það sem lagt er upp með.

 

  1. Markmiðið er að vernda völlinn og bæta upplifun allra meðlima. Ákvörðunin er fyrst og fremst tekin út frá þörfum vallarins og þar með meðlima til lengri tíma.  Einkabílar eru mjög mismunandi að þyngd, dekkjum, fjöðrun og búnaði. Þetta veldur ójöfnu álagi á brautir og önnur svæði sem rýrir gæði leiksins og eykur viðhaldskostnað sem bitnar á okkur félagsmönnum.  Við gerum miklar kröfur til góðrar umgengni og snyrtimennsku.  Ákvörðun um golfbíla er mikilvægur liður í að verða við þessum kröfum.  Með samræmdum bílakosti getum við:

    stýrt umferð með GPS
    •    varið viðkvæm svæði
    •    tryggt öryggi
    •    haldið viðhaldskostnaði í hófi

 

Það eru of margir dagar þar sem við höfum þurft að loka völlunum fyrir bílaumferð vegna bleytu.  Við gerum ráð fyrir að geta fækkað þessum dögum með samræmdum bílakosti.

 

  1. Ætlunin er að mæta enn betur þörfum þeirra sem þurfa bíl til að geta spilað. Það er grundvallaratriði að þeir sem treysta á bíl vegna heilsu, hreyfingar eða líkamlegra aðstæðna geti áfram spilað golf við góðar og öruggar aðstæður.  Klúbbnum er umhugað að veita þessa þjónustu.  Næstu tvö ár verða nýtt til að:

  •    halda áfram að uppfæra bílakostinn og geymsluaðstöðu
  •    ræða við félaga sem hafa sérstakar þarfir svo unnt sé að mæta þeim

 

  1. Geta ber þess að klúbburinn hefur boðið félagsmönnum, sem þurfa golfbíl reglulega, upp á golfbíla án fjöldatakmarkana gegn greiðslu árlegs gjalds, sem hefur verið mjög hóflegt. Stefna klúbbsins er að gjald fyrir golfbíl sé í hófi, standi undir raunkostnaði en ekkert umfram það.

 

  1. Ákvörðunin nú er ekki til að útiloka neinn.  Flestir stórir golfklúbbar erlendis hafa þegar tekið svona ákvörðun með góðum árangri. Án svona ákvörðunar er fyrirsjáanlegt að einkabílum fjölgi mikið á næstu árum, sem myndi gera ákvörðunina sem nú er tekin enn erfiðari.

 

Kær kveðja,

stjórn Golfklúbbs Reykjavíkur

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 6. júlí 2026
Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni héldu áfram góðri spilamennsku sinni í Svíþjóð í vikunni. Swedish Strokeplay mótið á LET Access mótaröðinni fór fram dagana 1.-3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Hér má sjá úrslit mótsins Ragnhildur Kristinsdóttir náði besta árangri íslensku kylfinganna og endaði jöfn í fimmta sæti á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur lék hringina þrjá á 74, 72 og 71 höggi, en par vallarins er 73. Hún endaði mótið af miklum krafti og fékk tvo fugla á síðustu þremur holunum. Eftir mótið er Ragnhildur í 10. sætii á stigalista LET Access mótaraðarinnar. Efstu sjö kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.
Eftir Sigríður GR Golf 1. júlí 2026
Kæru kylfingar Eins og áður hefur verið auglýst verða 1. og 2. brautin í Grafarholti lokaðar á morgun, fimmtudaginn 2. júlí til kl. 18:00 þar sem verið er að setja sand í nýja glompur 1. brautar. Til þess að hægt sé að ferja sandinn á svæðið þurfa vinnuvélar og tæki að komast um svæðið. Til að gæta sem fyllsta öryggis verður aðkoma og bílastæði við Bása lokuð á meðan á vinnunni stendur. Við bendum þeim sem ætla að fara og æfa sveifluna í Básum að þar er opið samkvæmt opnunartíma og hægt að leggja á bílastæðinu við skálann í Grafarholti og neðra bílastæðinu, sem er vinstra megin þegar keyrt er upp að skálanum.
Eftir Sigríður GR Golf 1. júlí 2026
Landslið karla 65+ á vegum LEK taka þátt í ESGA móti eldri kylfinga sem fram fer 1.-3. júlí 2026 á tveimum af bestu völlum Finnlands, Kytäjä Golf Club. Karlar án forgjafar taka þátt í Super Senior Championship og karlar með forgjöf taka þátt í Super Senior Cup ESGA XXV Super Seniors Team. Spilaður er betri bolti í 2 daga og höggleikur lokadaginn. Rástímar, staða og úrslit Lið 65+ án forgjafar: Brynjar Harðarson, GR Eggert Eggertsson, NK Gauti Grétarsson, NK Jónas Kristjánsson, GR Kristján V Kristjánsson, GK Óskar Sæmundsson, GR Lið 65+ með forgjöf: Erlingur Arthursson, GHG Gunnar Árnason, GKG Hörður Sigurðsson, GR Ingi Þór Hermannsson, GO Kolbeinn Kristinsson, GÖ Þór Geirsson, GO Liðsstjóri fyrir bæði liðin er Gunnar Árnason. Við hjá Golklúbbi Reykjavíkur eigum fjóra fulltrúa í liðinum tveimur og erum ákaflega stolt af því. Við óskum þeim góðs gengis - áfram Ísland!
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Kæru félagar, við neyðumst til að taka útaf nýju 1.flötinni okkar til að hvíla hana fyrir meistaramótið. Álagið á nýtt grasið er farið að láta á sjá, svo við ætlum að hvíla svæðið fram að móti og vonum við að félagsmenn sýni því skilning. Kv. Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Haraldur Franklín Magnús, GR og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verða báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið í dag, þar sem leikið verður um sæti á hinu sögufræga risamóti. Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí. Íslensku kylfingarnir leika ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín verður á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni leikur á West Lancashire á Englandi. Báðir vellirnir eru krefjandi og útlit er fyrir erfiðar aðstæður, þar sem væta og vindur gætu sett mark sitt á daginn. Haraldur hefur leik klukkan 07:30 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 13:15. Hann leikur með Skotanum Calum Fyfe og Bandaríkjamanninum John Vogelpohl. Hér má fylgjast með stöðu mótanna Haraldur þekkir vel til risamótanna. Hann varð árið 2018 fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á risamóti þegar hann tók þátt í Opna mótinu á Carnoustie. Hann komst þá inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót og freistar þess nú að endurtaka leikinn, eftir að hafa tryggt sér sæti í lokaúrtökumótinu í gegnum undankeppni. Haraldur sagði fyrir mótið að Dundonald væri „þrusuerfiður“ völlur og að þolinmæði yrði lykilatriði. Í aðstæðum sem þessum snýst verkefnið ekki endilega um að sækja á allar holur, heldur að halda boltanum í leik, taka skynsamlegar ákvarðanir og safna nógu mörgum pörum. Á Dundonald vellinum verða þekkt nöfn í hópnum, þar á meðal Robert Rock, Angel Hidalgo og margir sterkir ungir kylfingar. Framundan er langur og krefjandi dagur hjá þeim Haraldi Franklín og Gunnlaugi Árna. Til að komast alla leið þurfa þeir að vera í hópi fimm efstu kylfinga á sínum velli eftir 36 holur og mun því hvert högg skipta miklu máli.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
Kæru félagsmenn og aðrir kylfingar, að gefnu tilefni, því miður, viljum við minna alla félagsmenn og gesti á að sýna fyllstu aðgát ef og/eða þegar slegið er í nágrenni við vallarstarfsmenn. Vallarstarfsmenn leggja sig fram á hverjum degi við að halda vellinum okkar í sem besta ástandi fyrir kylfinga. Því biðjum við alla kylfinga að: að bíða með högg ef starfsmaður er innan höggfæris að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi tekið eftir kylfingnum og gefið merki þess að halda leik áfram að kalla FORE ef að höggið sefnir í átt að örðum, hvort sem það er vallarstarfsmaður eða annar kylfingur  Hjálpumst að við að tryggja öryggi allra við leik í okkar frábæru íþrótt og útiveru. Það er á allra ábyrgð.
Eftir Sigríður GR Golf 28. júní 2026
Yfir 190 manns tóku þátt í Opna Stjörnugrís 2026, sem leikið var á Grafarholtsvelli í gær, laugardaginn 27. júní. Veðrið var kannski ekki upp á sitt besta, rigning var um morgunin og frekar kalt, þegar það hætti að rigna þá hitnaði aðeins í veðri en kylfingar létu það ekki stoppa sig - frábært skor hjá mörgum hverjum. Ræst var út frá kl.8:15 til 15:30. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, bolta, tí, handklæði ásamt öskju með flatargafli og tveimur boltamerkjum. Jón Eysteinsson kom inn á besta skori mótsins, 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarsins. Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi: Punktakeppni: Sindri Þór Kristjánsson, 45 punktar Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 punktar Rakel Reynisdóttir, 39 punktar (betri seinni 9) Kjartan Guðjónsson, 39 punktar Hlynur Már Heimisson, 38 punktar Besta skor mótsins: Jón Eysteinsson, 70 högg Nándarverðlaun: 2.braut – Líney Sveinsdóttir 189 cm. 6.braut – Erna Steina Eysteinsdóttir 70 cm. 11.braut – Kristjana S. Þorsteinsdóttir 1 cm. 17.braut – Kristín Markúsdóttir 78 cm. Lengsta drive 3.braut kk. – Tómas Frostason Lengsta drive 3.braut kvk. – Margrét Jóna Eysteinsdóttir Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt er að nálgast vinninga til Stjörnugrís hf., Saltvík, 162 Kjalarnes. Opnunartími er mánud. - fimmtud. frá kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 - 15:15. Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Stjörnugrís hf.
Eftir Sigríður GR Golf 25. júní 2026
Kæru kylfingar við viljum upplýsa ykkur um að 1. og 2. brautin í Grafarholti verða lokaðar fimmtudaginn 2. júlí næstkomandi þar sem vinnuvélar og vallarstarfsmenn verða í óðaönn að setja sand í glompur og gera þær fulltilbúnar til leiks . Golfkveðja frá Vallarsviði
Eftir Sigríður GR Golf 24. júní 2026
Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fer fram á Selsvelli á Flúðum dagana 24.-26. júní. Keppt er í stúlkna- og drengjaflokki. Golfklúbbur Reykjavíkur er með tvær sveitir á svæðinu, skipaðar ungum og efnilegum kylfingum. Í flokki drengja 14 ára og yngri erum við með tvær fimm drengja sveitir. Hér má fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum mótsins Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.
Show More