Golf14 - mót 2 - Ísak Hrafn og Bjartmar unni sína flokka
Annað mót Golf14 mótaraðarinnar fór fram dagana 5. - 6. júní sl. og var haldið hjá Golfklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Mótið var bæði leikið á Leirdalsvelli og Mýrinni. Metskráning var einnig í Golf14 mótið og voru 18 kylfingar frá Golfklúbbi Reykjavíkur skráðir til leiks.
Golf14 - Mýrin
Bjartmar Atlason lauk leik í 1. sæti í flokki 13-14 ára drengir eftir flotta spilamennsku.
Ísak Hrafn Jónasson lauk leik í 1. sæti í flokki 11-12 ára dengir eftir góða spilamennsku og Alexander Aron Ívarsson lauk leik í 3. sæti í saman flokki.
Anna Lind Valdimarsdóttir lauk leik í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri stúlkur og stóð sig svo vel.
Golf14 - Leirdalur
Pétur Franklín Atlason lauk leik jafn í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri drengir.
Við óskum öllum þeim sem unnu til verðlauna innilega til hamingju með sinn árangur og öðrum kylfingum sem þátt einnig.
Áfram GR!
Recent Posts











