Tómas Hjaltested hefur leik á Opna breska áhugamannamótinu

Sigríður GR Golf • 15. júní 2026

Share this article

Þrír íslenskir kylfingar hefja leik á Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship) í dag. Á meðal keppenda er Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið fer fram dagana 15.-20. júní á tveimur völlum í Englandi: Royal Liverpool og West Lancashire. Þar mætast 288 áhugakylfingar í einu sterkasta áhugamannamóti ársins.


Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér


Tómas hóf leik klukkan 09:24 á West Lancashire.



Á fyrstu tveimur hringjum mótsins er leikinn höggleikur. Allir kylfingar leika 18 holur á hvorum vellinum, annan hringinn í dag og hinn á morgun. Eftir þessa fyrstu tvo hringi komast 64 efstu kylfingarnir áfram í útsláttarhluta mótsins. Þar er leikin holukeppni sem hefst strax að öðrum hring loknum. Í henni mætast kylfingar einn á móti einum þar til einungis tveir standa eftir.


Úrslitaviðureignin er sýnd um allan heim og verður þar leikin holukeppni yfir 36 holur. Fyrrum sigurvegarar mótsins eru meðal annars Bobby Jones, José María Olazábal, Sergio Garcia og Matteo Manassero.


Sigurvegari mótsins vinnur sér inn þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu sem og á Masters mótinu. Það er því til mikils að vinna.


Andri Þór Björnsson verður á svæðinu næstu daga og mun sýna frá okkar mönnum á Instagram og Facebook reikningum GSÍ. Hann segist spenntur fyrir mótinu:

Þetta er spennandi mót á tveimur virkilega flottum golfvöllum. Vellirnir eru links vellir og eru þar að leiðandi með fullt af pottbönkerum, upphækkuðum grínum og endalaust af landslagi í kringum flatirnar þá sérstaklega á Royal Liverpool. Strákarnir eru búnir að undirbúa sig vel fyrir mótið og gat ég ekki betur séð en að þeir værum meira en tilbúnir í slaginn næstu daga. 

Við óskum okkar kylfingum góðs gengis næstu dagana.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 12. júní 2026
Annað mót Golf14 mótaraðarinnar fór fram dagana 5. - 6. júní sl. og var haldið hjá Golfklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Mótið var bæði leikið á Leirdalsvelli og Mýrinni. Metskráning var einnig í Golf14 mótið og voru 18 kylfingar frá Golfklúbbi Reykjavíkur skráðir til leiks. Golf14 - Mýrin Bjartmar Atlason lauk leik í 1. sæti í flokki 13-14 ára drengir eftir flotta spilamennsku. Ísak Hrafn Jónasson lauk leik í 1. sæti í flokki 11-12 ára dengir eftir góða spilamennsku og Alexander Aron Ívarsson lauk leik í 3. sæti í saman flokki. Anna Lind Valdimarsdóttir lauk leik í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri stúlkur og stóð sig svo vel. Golf14 - Leirdalur Pétur Franklín Atlason lauk leik jafn í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri drengir. Við óskum öllum þeim sem unnu til verðlauna innilega til hamingju með sinn árangur og öðrum kylfingum sem þátt einnig. Áfram GR!
12. júní 2026
Dagana 4. - 6. júní fór þriðja mót Unglingamótaraðarinnar fram og var það leikið á Leirdalsvelli hjá Golklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Met skráning var í mótið og voru 101 kylfingur skráður til keppni, þar af voru 8 kylfingar frá GR. Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir lauk leik í 2. sæti í flokki 15-18 ára stúlkur, á +15 höggum yfir pari (77-77-74). Ásdís byrjar sumarið af krafti. Margrét Jóna Eysteinsdóttir endaði í 11. sæti. Hjá stráknum í flokki 15-18 ára piltum luku þeir Birgir Steinn Ottósson og Sebastian Blær Ómarsson leik jafnir í 14. sæti á +19 höggum yfir pari. Við óskum Ásdísi Rafnar til hamingju með árangurinn - áfram GR!
Eftir Sigríður GR Golf 11. júní 2026
Mercedes-Benz bikarinn er styrktur af bílaumboðinu Öskju og leggur til frítt árgjald á næsta ári fyrir sigurvegarann. Annað sætið gefur hálft árgjald. Um er að ræða holukeppni með forgjöf þar sem leiknar eru 18 holur. Um bikarkeppni er að ræða þannig að keppendum fækkar um helming í hverri umferð. Tveir leikir eru leiknir saman í holli. Fyrsta umferðin verður leikinn sunnudaginn 21. júní. Það er gert ráð fyrir allt að 64 keppendum í þeirri umferð og það verða þá 32 sem mæta til leiks sunnudaginn 28. Júní. Fyrsti ráshópurinn byrjar kl. 16:04 og ræst verður út til 18:12. Í annari umferð er ræst út frá 16:04 – 17:04 en þá eru 8 holl, tveir holukeppnisleikir í holli og 32 keppendur. Sextán manna úrslit verða eftir meistaramót og mótinu lýkur í ágúst. Skráning í Mercedes Benz bikarinn 2026
Eftir Sigríður GR Golf 11. júní 2026
Opið er fyrir skráningu í mótaskrá GR á golfbox. Skráning í FootJoy bikarinn 2026 Þessi skemmtilega keppni er leikinn í 6 manna liðum þar sem tveir leikmenn úr hvoru liði leika betri bolta og fjórir leikmenn úr hvoru liði leika holukeppnisleiki. Allir leikirnir eru leiknar á Korpu 9 holur. Í hverjum leik keppa 6 leikmenn fyrir hvort lið, en í mótinu má nota 12 leikmenn. Leikið er á virkum dögum og hefjast leikir ýmist kl. 18:20 eða 18:52. Við skráningu eru liðin beðin að tiltaka hvaða vikudagar henta í þessa keppni, en margir hópar í GR leika á sínum föstu leikdögum. Fimmtudags riðillinn hefur keppni 18. júní. Síðan er leikið á virkum dögum næstu tvær vikur, einn leikur í viku hjá hverju liði. Riðla keppni líkur í vikunni eftir meistaramótið. Átta lið komast áfram í úrslitakeppni sem leikin er í ágúst. Mótsgjald fyrir hvert lið er 10.000 kr. Mótinu líkur með úrslitaleik þar sem liðin sem leika til úrslita fá veislumáltið að leik loknum. Allir leikmenn beggja liða fá FJ pólóboli og sigurliðið tekur við liðameistara bikarnum. ISAM og FootJoy eru styrktaraðilar FJ bikarsins.
Eftir Sigríður GR Golf 9. júní 2026
Arkea Montauban Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni lauk í dag. Mótið var það þriðja á LET Access mótaröðinni í sumar, en þar keppti Ragnhildur Kristinsdóttir ásamt þeim Hulda Clöru Gestsdóttur og Andreu Bergsdóttur. Hér má sjá úrslit mótsins Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í ellefta sæti mótsins á einu höggi undir pari ásamt Andreu Bergsdóttur. Ragnhildur lék hringi mótsins á 73, 69 og 73 höggum. Hún hefur byrjað tímabilið af krafti og náð í gegnum niðurskurð í öllum þremur mótunum. Fyrir mótið var Ragnhildur fjórða á stigalista mótaraðarinnar og heldur hún því sæti sínu sem einn af efstu kylfingum listans. Hringi Ragnhildar má sjá í myndasafninu hér fyrir neðan.
Eftir Sigríður GR Golf 8. júní 2026
Hjóna- og parakeppni Golfklúbbs Reykjavíkur verður haldin í Grafarholti miðvikudaginn 17. júní. Mótið er innanfélagsmót. Keppnisfyrirkomulag Leikið verður samkvæmt Greensome -fyrirkomulagi þar sem tveir kylfingar mynda lið. Við útreikning liðsforgjafar fær liðið: 60% af leikforgjöf kylfings með lægri forgjöf 40% af leikforgjöf kylfings með hærri forgjöf Hámarksforgjöf: Karlar: 24 Konur: 28 Ræsing Ræst verður út samtímis af öllum teigum kl. 09:00 . Kylfingar eru vinsamlegast beðnir um að mæta tímanlega svo allir komist á sinn rásteig fyrir ræsingu. Verðlaun Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir þrjú efstu sætin auk nándarverðlauna á öllum par 3 holum vallarins. Skráning Skráning hefst í mótaskrá Golfbox þriðjudaginn 9. júní kl. 13:00 . Mótsgjald Mótsgjald er 9.500 kr. á mann og greiðist inn á reikning hjá veitingasala. Athugið að skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist. Upplýsingar um reikning: Reikningsnúmer: 0133-15-380680 Kennitala: 650913-0270 Reikningshafi: Vagninn 1935 ehf. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar að móti loknu. Matseðill Forréttur Þrjár tegundir af tapas-snittum: Hráskinka Reyktur lax Skampi-rækjur Aðalréttur Heilsteikt nautalund með: Béarnaisesósu Bátakartöflum Grænmetisvendi Sellerírótarmauki Eftirréttur Konfekt og kaffi Pylsupartý! Byrjað verður að afgreiða pylsur um það bil 1½ klukkustund eftir að golfið hefst . Hæ hó, jibbí jei – það styttist í Hjóna- og parakeppnina! Golfklúbbur Reykjavíkur ⛳🏌️‍♀️🏌️‍♂️
Eftir Sigríður GR Golf 8. júní 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR, og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, hefja í dag leik í lokaúrtökumóti fyrir U.S. Open á The Lakes Golf & Country Club vellinum í Westerville, Ohio. Lokaúrtökumót U.S. Open er síðasta stigið í átt að þátttöku í einu af fjórum risamótum golfsins. Þar leika kylfingar 36 holur á einum degi, og aðeins þeir efstu tryggja sér sæti á sjálfu U.S. Open mótinu. Tíu úrtökumót fara fram í Bandaríkjunum og Kanada í dag og má þar finna marga kylfinga frá PGA mótaröðinni, aðra atvinnukylfinga sem og fremstu áhugakylfinga heims. Dagbjartur tryggði sér sæti í lokaúrtökumótinu eftir frábæra spilamennsku í undankeppni í Pittsfield . Þar léku 85 kylfingar um fjögur laus sæti í lokaúrtökumótinu. Dagbjartur endaði jafn í öðru sæti undankeppninnar, en þetta er annað árið í röð sem Íslandsmeistarinn spilar sig inn í lokaúrtökumótið. Gunnlaugur Árni þurfti ekki að spila í undankeppni, heldur komst hann beint inn í lokaúrtökumótið vegna stöðu sinnar á heimslista áhugakylfinga. Gunnlaugur er í dag sautjándi á heimslistanum, en hann var að ljúka sínu öðru tímabili í bandaríska háskólagolfinu. Í Westerville, þar sem okkar menn spila, mæta 53 kylfingar til leiks. Þar á meðal eru J.B. Holmes, Aaron Baddeley og Lucas Glover, sem vann U.S. Open árið 2009. Gunnlaugur hefur leik kl. 08:12 að staðartíma og Dagbjartur kl. 08:36 (12:12 og 12:36 að íslenskum tíma). Það verður spennandi að fylgjast með þeim félögum í dag, við óskum þeim góðs gengis.  Hér má fylgjast með skori mótsins
8. júní 2026
Böðvar Bragi Pálsson og Hákon Örn Magnússon luku leik jafnir í öðru sæti GSÍ mótaraðarinnar. Powerade-mót Golfklúbbs Þorlákshafnar lauk í gær en það var jafnframt þriðja mót mótaraðarinnar. Leiknar voru 36 holur á laugardaginn með niðurskurði eftir seinni hringinn, á sunnudaginn voru svo leiknar 18 holur. Böðvar Bragi leiddi mótið í karlaflokki eftir 36 holur á tólf höggum undir pari (-12) eftir tvo frábæra hringi (67-65). Frábær spilamennska hjá Böðvari Braga. Böðvar Bragi endaði mótið jafn í öðru sæti ásamt Hákoni Erni, eftir að Aron Snær (GKG) sótti fjögur högg á Böðvar Braga á síðustu tveimur holunum. Hákon Örn fékk nítján fulga í mótinu sem var mest allra kylfinga en bæði Böðvar Bragi og Aron Snær fengu þrjá erni, sem engin annar kylfingu lék eftir. Perla Sól var efst GR-inga í kvennaflokki og lauk leik í 5. sæti á 7 höggum yfir pari (+7). Við óskum Böðvari Braga og Hákoni Erni innilega til hamingju með sinn árangur!
Eftir Sigríður GR Golf 6. júní 2026
Kæru félagar Við óskum ykkur innilega til hamingju með opnun á nýrri 1. braut í Grafarholti. Við biðjum ykkur að kynna ykkur nýjar staðarreglur áður en leikur hefst, þær má nálgast hér og tímabundnar staðarreglur má finna hér .  Góða skemmtun og njótið golfsins!
Eftir Sigríður GR Golf 5. júní 2026
Arkea Montauban Ladies Open mótið á LET Access mótaröðinni hefst í dag. Mótið er það þriðja á LET Access tímabilinu, en leikið er á Golf de Montauban vellinum í Frakklandi. Ragnhildur Kristinsdóttir er meðal keppenda ásamt þeim Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Hér má fylgjast með stöðu mótsins Ragnhildur hefur hafið tímabilið af krafti og er í fjórða sæti stigalistans eftir tvö mót. Hún varð önnur í síðasta móti LET Access, og stóð uppi sem sigurvegari Korpubikarsins á GSÍ mótaröðinni um síðastliðna helgi.
Show More