Golfhermamót 70 ára og eldri
Hjá okkur í Golfklúbbi Reykjavíkur er flott og öflugt eldri borgara starfs.
Í fararbroddi fara nokkrir vaskri menn sem nýta hin ýmsu tækifæri til að hafa gaman saman og skipuleggja hina ýmsu viðburði fyrir heldri kylfinga klúbbsins.
Í vetur var farið af stað með Golfhermamót 70 ára og eldri kylfinga GR. Mótaröðin stóð saman af fjórum mótum og leikið Nítjándu, golfhermaaðstaða á Bíldshöfða.
Hver umferð stóð yfir í einn mánuð og höfðu keppendur 2 tilraunir til að leika völl hvers mánaðar og betra skorið gilti. Í mótaröðinni voru eingöngu spilaðir íslenskir vellir. Í fyrsta umferð var Grafarholtið spilað, í annari umferð var það Leirdalurinn hjá GKGK, í þriðju umferð var "ferðast" á Jaðarsvöll á Akureyri og síðasta umferðin var leikin "á" Hvaleyrinni.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karlaflokki með forgjöf og efsta sætið í kvennaflokki. Einnig voru veitt verðlaun fyrir efsta sæti án forgjafara.
Úrslitin úr fyrstu Golfhermamótaröð 70 ára og eldkri kylfinga GR voru þessi:
Karlaflokkur með forgjöf
- Hákon Hákonarson - 36 - 37 - 41 - 34 - samtals 114 punktar
- Ásmundur R Richardsson - 31 - 38 - 35 - 36 - samtals 109 punktar
- Valur Jónatansson - 35 - 38 - 34 - 33 - samtals 107 punktar
Kvennaflokkur með forgjöf
- Anna Sigurjónsdóttir - 20 - 36 - 30 - 40 - samtals 106 punktar
Úrslit í flokki án forgjafar
- Hans Isebarn - 30 - 34 - 38 - 36 - samtals 108 punktar.
Recent Posts
















