Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba 2026 í flokki kvenna 50+

Sigríður GR Golf • 24. ágúst 2026

Share this article

Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 20.-22. ágúst. Átta lið tóku þátt í mótinu.


Golfklúbbur Reykjavíkur varð Íslandsmeistari eftir 3-2 sigur gegn Nesklúbbnum í spennandi úrslitaleik.

Sveit GR vann tvo af þremur leikjum sínum í B-riðli og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar hafði sveitin betur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keilis, 3.5-1.5.


Í úrslitaleiknum mætti GR sveit NK, sem sigraði GKG í undanúrslitum.


Nesklúbburinn vann fjórmenningsleik úrslitanna þegar Ágúst Dúa Jónsdóttir og Þyrí Valdimarsdóttir lögðu Signýju Mörtu Böðvarsdóttur og Ástu Óskarsdóttur. Írunn Ketilsdóttir svaraði fyrir GR með 6/4 sigri gegn Huldu Bjarnadóttur. Júlíana Guðmundsdóttir tryggði GR annað stig gegn Sigrúnu Eddu Jónsdóttur en sú viðureign  fór í bráðabana þar sem Júlína tryggði GR skvísum stigið mikilvæga. Elsa Nielsen vann Steinunni Sæmundsdóttur, 7/6, og jafnaði þar með viðureignina fyrir Nesklúbbinn. Sigríður Kristinsdóttir tryggði GR Íslandsmeistaratitilinn með 5/3 sigri gegn Guðrúnu Valdimarsdóttur. Æsispennandi úrslitaleikur í vægast sagt haustveðri á Leirunni.


Lokastaðan í 1. deild kvenna 50+

  1. Golfklúbbur Reykjavíkur
  2. Nesklúbburinn
  3. Golfklúbburinn Keilir
  4. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar
  5. Golfklúbburinn Oddur
  6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar
  7. Golfklúbburinn Leynir
  8. Golfklúbbur Vestmannaeyja


*Golfklúbbur Vestmannaeyja fellur í 2. deild.


Smelltu hér fyrir stöðu, leiki og öll úrslit úr 1. deild kvenna 50+.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 23. ágúst 2026
Opna Aukakrónur var leikið í frábæru veðri á Korpúlfsstaðavelli í dag, smá skúrir voru fyrst í morgun en annars blíða það sem eftir var dag og sú gula skein líka skært. Ræst var út frá kl. 8:00 og voru tæplega tvöhundruð kylfingar skráðir til leiks. Keppendur fengu afhentar teiggjafir – handklæði, flatarmerki, típoka, Titleist bolta og keppendur fengu einnig upphitunarbolta í Básum fyrir leik ásamt því að fá hamborgara og gos hjá Klúbbhús að leik loknum. Keppt var í punktakeppni karla og kvenna auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir besta skor í báðum flokkum. Ragnhildur Kristinsdóttir kom inn á besta skori í kvennaflokki en hún lauk leik á 67 höggum eða 5 höggum undir pari vallarins og sigrar höggleik í kvennaflokki. Þrír kylfingar í karlaflokki luku leik á besta skori dagsins í þeim flokki en hann Einar Bjarni Helgason var á betri síðustu 6 holurnar, lauk leik á 69 höggum eða 3 höggum undir pari vallarins og sigraði höggleik í karlaflokki. Landsbankinn mun draga út þau útdráttarverðlaun sem eru til vinnings og verður póstur sendur keppendum með tilkynningu um þá sem hljóta vinninga. Verðlaun eru veitt fyrir 14 efstu í punktakeppni karla og kvenna og má sjá úrslitin hér fyrir neðan. Karlar – punktakeppni: Gunnar Blöndahl Guðmundsson, 41 punktar (betri seinni 9) Alexander Baldvin Sigurðsson, 41 punktar Viggó Pétur Pétursson, 39 punktar (betri seinni 9) Bjarni Anton Theódórsson, 39 punktar Einar Karl Jónsson, 38 punktar (betri seinni 9) Victor Ingvi Jacobsen, 38 punktar (betri seinni 9) Sverrir Mar Smárason, 38 punktar (betri seinni 9) Arnar Bentsson, 38 punktar Methúsalem HIlmarsson, 37 punktar (betri síðustu 6) Hlynur Ingólfsson, 37 punktar (betri síðasta hola) Páll Daði Ásgeirsson, 37 punktar (betri seinni 9) Sigurþór Skúli Sigurþórsson, 37 punktar (betri seinni 9) Patrekur Nordquist Ragnarsson, 37 punktar (betri síðustu 3) Ólafur Már Óskarsson, 37 punktar Konur – punktakeppni Sigríður Kristjánsdóttir, 43 punktar Kolbrún Klara Gísladóttir, 39 punktar Ólöf Hildur Jónsdóttir, 37 puntkar (betri seinni 9) Hrefna Hlín Karlsdóttir, 37 punktar (betri síðustu 6) Eva Stefánsdóttir, 37 punktar Guðný Ólöf Gunnarsdóttir, 36 punktar Guðný Sif Gunnarsdóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Elín María Sigurðardóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Harpa Reynisdóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Helena Stefánsdóttir, 33 punktar Elín Helena Bjarnadóttir, 32 punktar Magdalena Díana Adamsdóttir, 31 punktar (betri seinni 9) Steinunn Óskarsdóttir, 31 punktar (betri síðustu 6) Þórunn Elfa Bjarkadóttir, 31 punktar (betri seinni 9) Nándarverðlaun: 3. braut – Magnús Böðvarsson, 131 cm. 6. braut – Ólafur Már Óskarsson, 83 cm. 9. braut – Guðni Grétar Einarsson, 49 cm. 13. braut - Harpa Reynisdóttir, 61 cm. 17. braut – Arnór Tjörvi Þórsson, 18 cm. Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur. Landsbankinn mun hafa samband við vinningshafa Aukakróna og sjá um að millifæra þær. Aðra vinninga er hægt að vitja á skrifstofu GR, 2. hæð á Korpúlfsstöðum. Ath! vinninga þarf að sækja fyrir 30. september næstkomandi. Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eftir Sigríður GR Golf 20. ágúst 2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana. Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar. Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september frá kl. 09:00-18:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan. Íslandsmót unglinga 15-18 ára Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 15-16 ára Stúlknaflokki 17-18 ára Piltaflokki 15-16 ára Piltaflokki 17-18 ára Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum. Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 12 ára og yngri Piltaflokki 12 ára og yngri Stúlknaflokki 13-14 ára Piltaflokki 13-14 ára Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á sex stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna. Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni. Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr öllum sex deildunum hér fyrir neðan. 1. deild kvenna – 50+, Gs - GOLFKLÚBBUR sUÐURNESJA Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 1. deild karla – 50+, GÖ - GOLFKLÚBBUR ÖNDVERÐANESS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild kvenna – 50+, GVG - GOLFKLÚBBUR VESTARR Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild karla – 50+, GSG - GOLFKLÚBBUR SANDGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 3. deild karla – 50+, GHG - GOLFKLÚBBUR HVERAGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 4. deild karla – 50+, GHD - GOLFKLÚBBURINN HAMAR DALVÍK Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit
Eftir Sigríður GR Golf 18. ágúst 2026
Mikið áhorf mældist á útsendingar RÚV frá Íslandsmótinu í golfi 2026, sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Uppsafnað áhorf yfir þrjá útsendingardaga mældist 18,3% og náðu útsendingarnar til tæplega 50 þúsund áhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Áhorfið jókst um 26% frá Íslandsmótinu 2025, þegar uppsafnað áhorf mældist 14,5%. Fjöldi áhorfenda jókst jafnframt úr rúmlega 38 þúsund í um 49 þúsund. Áhorf á Íslandsmótið hefur nú rúmlega tvöfaldast frá árinu 2021, þegar 23.850 manns fylgdust með mótinu. Áhorfið jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Um 17 þúsund manns horfðu á útsendinguna á föstudeginum, 26 þúsund á laugardeginum og 36 þúsund á sunnudeginum. Karlar horfðu aðeins meira en konur. Uppsafnað áhorf meðal karla mældist 19,4%, eða um 26 þúsund áhorfendur, samanborið við 17,3% og um 23 þúsund áhorfendur meðal kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu mældist uppsafnað áhorf 19%, en 17,1% á landsbyggðinni. Mikill áhugi á heimasíðu mótsins Nýr skor- og upplýsingavefur Íslandsmótsins fékk einnig frábærar viðtökur. Alls heimsóttu 22.370 notendur skorvefinn á keppnisdögunum fjórum og um 10 þúsund virkir notendur fylgdust þar með mótinu daglega. Samanlagt voru síðuflettingarnar 553.163 og meðalheimsóknin var rúmar tólf mínútur. Mikill áhugi var á mótinu, bæði í beinni útsendingu RÚV og meðal þeirra sem fylgdust með stöðunni í rauntíma á netinu. Hér má nálgast heimasíðu mótsins og alla tölfræði. Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í golfi annað árið í röð. Metnaðarfull umgjörð mótsins, umfangsmikil útsending RÚV og frammistaða keppenda skiluðu sér í mesta áhorfi sem mælst hefur á Íslandsmótinu undanfarin ár. 
Eftir Sigríður GR Golf 17. ágúst 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur er Íslandsmeistari golfklúbba í 1. deild karla árið 2026 eftir 5-0 sigur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar í úrslitaleik mótsins á Hellu í dag. Þetta er annað árið í röð sem GR vinnur titilinn, og sá 27. frá upphafi. GR vann A-riðil með 2,5 stig eftir tvo sigra og eitt jafntefli. Sveit GM endaði í öðru sæti riðilsins og fylgdi GR í undanúrslitin. Riðill GR Í undanúrslitum mætti GR liði Golfklúbbsins Keilis og vann þar 4–1 sigur. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson unnu fyrri fjórmenninginn 5&3 og Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu þann síðari 2&1. Í tvímenningunum unnu Hákon Örn Magnússon og Guðmundur Ágúst Kristjánsson sína leiki, en Markús Marelsson sótti eina stig GK. GKG vann B-riðil með fullt hús stiga, og vann Golfklúbb Mosfellsbæjar 3–2 í undanúrslitum. GR og GKG mættust því annað árið í röð í úrslitaleiknum. GR tók öll fimm stigin í úrslitaleiknum GR byrjaði úrslitaleikinn af krafti og vann báða fjórmenningana. Böðvar Bragi Pálsson og Elvar Már Kristinsson sigruðu Guðjón Frans Halldórsson og Kristófer Orra Þórðarson 5&4. Jóhannes Guðmundsson og Jóhann Frank Halldórsson unnu gegn Ragnari Má Garðarssyni og Skúla Gunnari Ágústssyni. Leikurinn var jafn eftir sautján holur en GR vann átjándu holuna og þar með leikinn. Sigurður Bjarki Blumenstein vann Hjalta Kristján Hjaltason 2&1 og Guðmundur Ágúst Kristjánsson vann Aron Snæ Júlíusson, 1&0. Hákon Örn Magnússon lék gegn Sigurði Arnari Garðarssyni í síðasta leiknum, en úrslit mótsins voru þá þegar ráðin og sigur GR staðfestur. Lokatölur urðu 5–0. Lið GR á Íslandsmótinu skipuðu: Jóhann Frank Halldórsson, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson, Arnór Tjörvi Þórsson, Hákon Örn Magnússon, Böðvar Bragi Pálsson, Elvar Már Kristinsson, Sigurður Bjarki Blumenstein og Guðmundur Ágúst Kristjánsson. Úrslit mótsins voru eftirfarandi: Golfklúbbur Reykjavíkur (GR) Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) Golfklúbburinn Keilir (GK) Golfklúbbur Mosfellsbæjar (GM) Golfklúbbur Suðurnesja (GS) Golfklúbbur Selfoss (GOS) Golfklúbbur Akureyrar (GA) Golfklúbbur Bolungarvíkur (GBO) – leika í 2. deild á næsta ári  Hér má sjá öll úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba í 1. deild karla fer fram á Strandarvelli Golfklúbbs Hellu dagana 13.-15. ágúst 2026. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi meistari karla, en klúbburinn sigraði mótið í 26. skiptið á Leirdaldsvelli í fyrra. Átta sveitir eru í efstu deild: 1. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbbur Suðurnesja, GS 8. Golfklúbbur Bolungarvíkur, GBO Karlasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Arnór Tjörvi Þórsson Böðvar Bragi Pálsson Elvar Már Kristinsson Guðmundur Ágúst Kristjánsson Hákon Örn Magnússon Jóhann Frank Halldórsson Jóhannes Guðmundsson Sigurður Bjarki Blumenstein Tómas Eiríksson Hjaltested Liðsstjóri er Guðmundur Ágúst Kristjánsson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í karlaflokki árið 1961. Frá þeim tíma hafa 6 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur sigrað oftast eða 26 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 15 titla, Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar er með 9, Golfklúbbur Akureyrar er með 8 titla, Golfklúbbur Suðurnesja 3, og Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 4 titla, þar af 2 þegar klúbburinn var Golfklúbburinn Kjölur.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna fer fram á Hlíðavelli Golfklúbbs Mosfellsbæjar dagana 13.-15. ágúst. Smelltu hér til að nálgast stöðu leikja og allar umferðir í einu skjali. Golfklúbburinn Keilir sigraði árið 2025 eftir frábæran úrslitaleik gegn GR, þar sem tvær viðureignir fóru í bráðabana. Sveit GM hafði unnið mótið þrjú ár í röð þar á undan, og mæta nú á heimavöll. Átta lið taka þátt í efstu deild í ár: 1. Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar, GKG 2. Golfklúbburinn Keilir, GK 3. Golfklúbbur Reykjavíkur, GR 4. Golfklúbbur Akureyrar, GA 5. Golfklúbbur Selfoss, GOS 6. Golfklúbbur Mosfellsbæjar, GM 7. Golfklúbburinn Setberg, GSE 8. Golfklúbbur Skagafjarðar, GSS Kvennasveit GR er skipuð eftirfarandi kylfingum: Ásdís Rafnar Ásdís Valtýsdóttir Berglind Björnsdóttir Erna Steina Eysteinsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Margrét Jóna Eysteinsdóttir Ragnhildur Kristinsdóttir Svandís Eva Brynjarsdóttir Liðsstjóri er Páll Birkir Reynisson Fyrst var leikið á Íslandsmóti golfklúbba í kvennaflokki árið 1982. Frá árinu 1982 hafa 4 klúbbar fagnað þessum titli. Golfklúbbur Reykjavíkur hefur oftast sigrað eða 22 sinnum, þar á eftir kemur Golfklúbburinn Keilir með 14 titla, Golfklúbbur Mosfellsbæjar er með 6 titla þar af eru þrír titlar þegar Golfklúbburinn Kjölur í Mosfellsbæ var til. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar hefur tvívegis fagnað sigri í efstu deild kvenna á Íslandsmóti golfklúbba.
Eftir Sigríður GR Golf 12. ágúst 2026
LEK mót golfklúbba fór fram á vel völdum golfvöllum landsins 10. - 11. ágúst. Golfklúbbur Reykjavíkur átti þar frábæra fulltrúa, líkt og undanfarin ár. LEK mót golfklúbba kvenna 65+ léku á Hústóftavelli í Grindavík. Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbb Keilis sem fór þannig að GR vann leikinn 2,5 stig á móti 0,5 stigum - sigurvegarar og 1. sætið tryggt 🏆 Sveitina skipuðu: Guðrún Garðars Líney Rut Halldórsdóttir Oddný Sigsteinsdóttir Stefanía Margrét Jónsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Margrét Geirsdóttir Liðsstjóri: Margrét Geirsdóttir LEK mót golfklúbba karlar 75+ léku á Þorláksvelli í Þorlákshöfn. fram Í úrslitaleiknum mættust sveit Golfklúbbs Reykjavíkur og Golfklúbbs Suðurnesja hafði sveit GR betur og tryggði þar með 1. sætið. 🏆 Sveitina skipuðu: Gunnsteinn Skúlason Hans Isebarn Kjartan B. Guðmundsson Ragnar Ólafsson Þórhallur Sigurðsson Walter Hjartarson  Liðsstjóri: Gunnsteinn Skúlason LEK mót golfklúbba karlar 65+ léku á Öndverðanesvelli í Öndverðanesi. Í leiknum um 3. sætið mættust sveitir Golfklúbbs Reykajvíkur og Golfklúbbs Öndverðarness. Sveit GR hafði betur og vann þann leik 4,5 stig á móti 0,5 stigi. 🥉 Sveitina skipuðu: Brynjar Harðarson Einar Long Hannes Eyvindsson Jónas Kristjánsson Karl Vídalín Óskar Sæmundsson Ragnar Ólafsson Sigurður Hafsteinsson Sigurjón Árni Ólafsson Liðsstjóri var Sigurjón Árni Ólafsson Golfklúbbur Reykjavíkur óskar öllum sínum sveitum og keppendum innilega til hamingju með árangurinn! Vel gert - áfram GR! 💙
Eftir Sigríður GR Golf 11. ágúst 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir eru Íslandsmeistarar í golfi 2026. Íslandsmótinu lauk á Korpúlfsstaðavelli í dag, en bæði náðu þau að verja titil sinn frá síðasta ári. Þetta er í fyrsta skiptið frá árinu 1992 sem báðir titlarnir eru varðir. Dagbjartur Íslandsmeistari eftir örugga frammistöðu Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur hóf lokahringinn með sex högga forystu og lét hana aldrei af hendi. Hann lék lokahringinn á 71 höggi, pari vallarins, og lauk mótinu á 274 höggum, tíu undir pari. Dagbjartur fékk fjóra fugla og fjóra skolla á lokahringnum. Hann var einu höggi undir pari eftir fyrri níu holurnar og bætti við fugli á elleftu holu áður en hann tapaði tveimur höggum á 16. og 17. holu. Par á lokaholunni tryggði honum Íslandsmeistaratitilinn með fimm högga mun. Dagbjartur lék hringina fjóra á 66, 68, 69 og 71 höggi. Aron Emil Gunnarsson úr Golfklúbbi Selfoss varð annar á fimm höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 70 höggum, einu undir pari, eftir að hafa fengið þrjá fugla á fyrstu sjö holunum. Kristján Karl Guðjónsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar átti næstbesta hring lokadagsins. Hann lék á 67 höggum, fjórum undir pari, og færðist upp í þriðja sætið á þremur höggum undir pari samtals. Tómas Eiríksson Hjaltested varð fjórði á tveimur höggum undir pari. Kristófer Orri Þórðarson og Hjalti Kristján Hjaltason deildu fimmta sætinu á einu höggi yfir pari. Guðrún Brá Íslandsmeistari í fimmta skiptið Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili hóf lokahringinn með þriggja högga forystu og lék á 71 höggi, pari vallarins. Hún lauk mótinu á 283 höggum, einu höggi undir pari, og varði þar með Íslandsmeistaratitil sinn. Þetta er hennar fimmti Íslandsmeistaratitill, en Guðrún hafði áður unnið árin 2018, 2019, 2020 og 2025. Með sigrinum hefur hún nú oftar unnið mótið en pabbi hennar, Björgvin Sigurbergsson, sem vann mótið fjórum sinnum. Guðrún er nú einnig næst sigursælasta konan í sögu mótsins, en Karen Sævarsdóttir er sú eina sem unnið hefur oftar. Karen varð átta sinnum Íslandsmeistari í golfi. Guðrún Brá fékk skolla á fyrstu holu en svaraði með erni á sjöundu holu. Hún fékk annan skolla á níundu holu áður en fugl á þeirri tíundu kom henni aftur undir par á hringnum. Skolli á elleftu holu varð síðasta tapaða högg hennar í mótinu og hún lék síðustu sjö holurnar á pari. Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni varð önnur á fjórum höggum yfir pari, fimm höggum á eftir Guðrúnu Brá. Elsa lék lokahringinn á 73 höggum og fékk tvo fugla á fyrstu sex holunum, en tapaði fjórum höggum á seinni níu. Ragnhildur Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð þriðja á sex höggum yfir pari. Hún var komin þrjá undir par eftir átta holur á lokahringnum en erfiður kafli á seinni níu varð til þess að hún lauk leik á 74 höggum. Perla Sól Sigurbrandsdóttir varð fjórða á 14 höggum yfir pari. Heiða Rakel Rafnsdóttir og Pamela Ósk Hjaltadóttir deildu fimmta sætinu á 15 höggum yfir pari. Frábæru móti á Korpúlfsstaðavelli lokið. Mikill fjöldi fólks gerði sér ferð á völlinn á sá okkar bestu kylfinga leika á þessum flotta keppnisvelli. Hér má sjá heildarúrslit og tölfræði mótsins Hér má sjá myndapakka frá mótinu
Show More