Golftímabilið 2026 senn að ljúka - Klúbbhús hefur þegar lokað

Sigríður GR Golf • 28. september 2026

Share this article

Golftímabilinu 2026 fer senn að ljúka með formlegum hætti hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Vellir félagsins hafa verið vel nýttir í sumar og þótt veðrið hafi verið misjafnt hafa margir góðir golfdagar komið inn á milli.


Nú þegar haustið er gengið í garð tekur vetrarstarfsemi smám saman við. Veitingasala í klúbbhúsum félagsins í Grafarholti og Korpu hefur lokað og golfbúðirnar loka einnig um miðja viku eða frá og með fimmtudeginum 1. október.


Kaffi og kleinur í Korpu

Veitingasalurinn verður opinn fyrir félagsmenn eitthvað áfram þótt veitingasalan í Korpu sé lokuð.


Við munum bjóða upp á kaffi og kleinur framyfir helgi á Korpu þannig að félagsmenn geta sest niður og átt notalega stund að loknum hring. Rétt er að árétta að ekki verður um hefðbundna veitingasölu að ræða.


Vellir opnir á meðan veður leyfir

Þótt hefðbundnu golftímabili sé að ljúka geta félagsmenn áfram leikið golf á völlum félagsins á meðan veður og aðstæður leyfa.


Haustveður getur breyst hratt og þegar kólnar geta komið upp aðstæður þar sem nauðsynlegt er að loka einstökum lykkjum eða völlum með skömmum fyrirvara. Félagsmenn eru því hvattir til að fylgjast vel með rástímabókun í GolfBox. Þar verða birtar upplýsingar um lokanir þegar aðstæður leyfa ekki spilamennsku.


Þegar frost er í jörðu þarf jafnframt að sýna sérstaka varkárni. Við slíkar aðstæður getur reynst nauðsynlegt að loka einstökum lykkjum eða jafnvel heilum völlum til að verja gróður og undirlag. Félagsmenn eru beðnir um að virða slíkar lokanir og sýna þolinmæði enda eru þær nauðsynlegar til að vernda vellina og tryggja sem besta leikupplifun til lengri tíma.


Salernisaðstaða á báðum völlum verður áfram eða á meðan vellir eru opnir. Ef breyting verður á því, munum við tilkynna það sérstaklega.


Góð umgengni sérstaklega mikilvæg á haustin

Með lækkandi hitastigi hægir á vexti gróðurs og því verður góð umgengni kylfinga um vellina enn mikilvægari. Allir kylfingar eru hvattir til að leggja sitt af mörkum til að halda völlunum í sem besta ásigkomulagi og hjálpa þannig til að hafa vellina opna eins lengi og aðstæður leyfa.


Sérstaklega er mikilvægt að ganga vel frá torfusneplum á brautum og nota flatargaffla til að laga boltaför á flötum.


Með sameiginlegu átaki og góðri umgengni getum við aukið líkurnar á því að hægt verði að leika golf á völlum félagsins langt fram eftir hausti.


Vetrarstarfsemi tekur við

Æfingasvæði Bása verður áfram opið alla daga vikunnar og tekur vetraropnun við í október. Nánari upplýsingar um opnunartíma má finna á heimasíðu Bása eða með því að smella hér.


Skrifstofa Golfklúbbs Reykjavíkur er opin alla virka daga frá kl. 9.00 til 16.00 og geta félagsmenn haft samband við starfsfólk klúbbsins á þeim tíma.


Æfingaaðstaða félagsins á 2. hæð í Korpu opnar jafnframt fyrir vetrarstarf félagsmanna frá og með fimmtudeginum 1. október. Aðstaðan verður opin alla virka daga frá kl. 8.00 til 22.00.


Golfklúbbur Reykjavíkur þakkar félagsmönnum fyrir golftímabilið sem nú er að líða og vonast til þess að veður og aðstæður geri kylfingum kleift að njóta vallanna áfram fram eftir hausti.

 

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 28. september 2026
Kæru kylfingar við gáfum út frétt um miðjan september þar sem golfbílar væru ekki leyfðir á völlum félagsins vegna mikillar vætu og við myndum tilkynna ef golfbílar yrður leyfðir. Síðan þá hefur rignt töluvert og vellirnir því ennþá vel votir, staðan er því óbreytt og engir golfbílar leyfðir á völlum félagsins að Thorsvelli undanskildum. Golfkveðjur, Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 25. september 2026
Dagbjartur var í þriðja sæti eftir fyrsta hring upp á 68 högg. Í dag lék hann bæði fyrri og seinni níu holurnar á 36 höggum og kom inn á 72. Hann er samtals á sex höggum undir pari og deilir fjórða sætinu með Sebastian Eidsæther Syr frá Noregi og David Lundgren frá Svíþjóð. Hlynur Bergsson er jafn í efsta sæti Folksam Championship í Svíþjóð fyrir lokahring mótsins. Hann lék annan hringinn á 70 höggum, þremur undir pari, og er á sjö höggum undir pari í heildina. Dagbjartur Sigurbrandsson er jafn í fjórða sæti, aðeins einu höggi á eftir Hlyni. Folksam Championship er leikið á Barsebäck Golf & Resort. Völlurinn er par 73 og er mótið hluti af Nordic Golf League. Fylgjast með stöðu og úrslitum mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 24. september 2026
Atvinnukylfingarnir Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson fóru báðir vel af stað á Folksam Championship í Svíþjóð. Mótið fer fram dagana 23.-25. september á Barsebäck Golf & Resort og er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni. Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 68 höggum, fimm undir pari , og er í þriðja sæti mótsins. Hlynur kom inn á 69 höggum, fjórum undir pari , og er jafn í fjórða sæti. Dagbjartur fékk sex fugla og einn skolla á hringnum. Hann lék fyrri níu holurnar á 33 höggum og þær seinni á 35. Hlynur fékk einnig sex fugla, auk tveggja skolla. Norðmaðurinn Sebastian Eidsæther Syr leiðir mótið á sjö höggum undir pari. Okkar menn eru skammt á eftir og í góðum málum fyrir næstu hringi. Íslendingarnir eru hlið við hlið á stigalista mótaraðarinnar: Dagbjartur í 30. sæti og Hlynur í því 31. Báðir hafa þeir best verið í fjórða sæti í sumar  Fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 23. september 2026
Hlutverk dómara í golfi er afar mikilvægt enda stuðlar góð dómgæsla að sanngjarnri keppni, réttri framkvæmd golfreglnanna og faglegri umgjörð móta. Til að mæta þeim kröfum sem gerðar eru til dómara þurfa þeir að viðhalda þekkingu sinni og sækja reglulega námskeið og endurmenntun. Í ársbyrjun 2025 innleiddi The R&A ný viðmið fyrir menntun golfdómara. Með breytingunum voru kröfur auknar og meiri áhersla lögð á verklega reynslu samhliða góðri þekkingu á golfreglunum. Jafnframt var námsefni fyrir dómara uppfært og fjórða námsstigið, svokallað „Level 4“, tekið upp fyrir umsjónaraðila mótaraða atvinnukylfinga. GSÍ hefur þýtt stóran hluta námsefnisins og nýtir það meðal annars á námskeiðum fyrir héraðs- og landsdómara. Auknar kröfur eru einnig gerðar til þeirra sem stefna að alþjóðlegum dómararéttindum. Eftir að hafa lokið prófi og námskeiði The R&A í mótahaldi og dómgæslu, Tournament Administrators and Referees School (TARS), á þriðja námsstigi þurfa dómarar að sýna fram á reynslu af dómgæslu á hæsta stigi. Þar getur meðal annars verið um að ræða störf á Íslandsmótum eða GSÍ mótaröðinni. TARS er leiðandi námskeið The R&A á þessu sviði og fjallar bæði um dómgæslu og framkvæmd golfmóta. Dómarar þurfa að skrá þessa reynslu og fá hana staðfesta af dómaranefnd GSÍ. Að lágmarki þurfa þeir að hafa sinnt 120 klukkustundum við dómgæslu að loknu námskeiðinu áður en réttindin eru staðfest. Nicholas Anthony Cathcart-Jones, Nick "okkar" og Gunnar Gylfason eru fyrstu íslensku dómararnir sem ljúka þessu nýja ferli. Að loknu prófi og námskeiði fengu þeir réttindi sem alþjóðadómarar GSÍ. Þeir hafa nú skilað inn starfsskýrslum sínum, sem dómaranefnd GSÍ hefur staðfest, og The R&A hefur gefið út viðurkenningarskírteini þeirra. Báðir höfðu áður öðlast landsdómararéttindi og búa yfir áralangri reynslu af dómarastörfum, líkt og aðrir dómarar sem GSÍ sendir á námskeið The R&A í St Andrews í Skotlandi. Nick og Gunnar hafa þar með öðlast alþjóðlega viðurkennd réttindi til að sinna dómgæslu þar sem gerð er krafa um þriðja stigs dómararéttindi. Dómarar GSÍ sem hafa þessi réttindi eru núna 13 talsins og að auki er einn í ferlinu að safna reynslu. Golfklúbbur Reykjavíkur er ótrúlega stolt af því að hafa Nick hjá sér og við óskum Nick og Gunnari hjartanlega til hamingju með þennan merka áfanga.
Eftir Sigríður GR Golf • 22. september 2026
Haraldur Franklín Magnús lauk keppni jafn í 33. sæti á Open de Portugal mótinu, sem fram fór á PGA Aroeira 1 vellinum í Lissabon í Portúgal dagana 17.-20. september. Mótið var hluti af HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu. Haraldur lék hringina fjóra samtals á þrettán höggum undir pari. Hann hóf mótið af krafti og lék fyrsta hringinn á 66 höggum, fimm höggum undir pari, þar sem hann fékk fimm fugla og tapaði engu höggi. Á öðrum hring lék Haraldur á 70 höggum, einu undir pari, og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn. Hann bætti síðan við hring upp á 67 högg á laugardeginum og fór inn í lokahringinn á tíu höggum undir pari. Haraldur lék lokahringinn á 68 höggum, þremur undir pari. Hann fékk þrjá fugla og tvo skolla auk þess sem hann fékk örn á sautjándu holu. Fugl á lokaholunni skemmdi ekki fyrir og lokaniðurstaðan því þrettán högg undir par. Árangurinn í Portúgal skilaði Haraldi 14,4 stigum á stigalista HotelPlanner Tour og færði hann upp um tólf sæti. Hann er nú í 148. sæti listans með 77,6 stig. Haraldur hefur leikið sautján mót á HotelPlanner Tour á tímabilinu og komist í gegnum niðurskurðinn í átta þeirra. Besti árangur hans í sumar kom á German Challenge í júlí, þar sem hann endaði jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari. Frammistaðan í Portúgal var því næstbesti árangur Haralds á mótaröðinni í sumar og jafnframt hans lægsta heildarskor miðað við par á tímabilinu. Flottur árangur hjá Haraldi, sem er einnig skráður í Abu Dhabi Challenge mótið sem hefst þann 30. september. Hér má sjá úrslit Open de Portugal | Hér má sjá stigalista HotelPlanner Tour
Eftir Sigríður GR Golf • 18. september 2026
Kæru kylfingar vegna mikillar bleytu á vellinum og í jörðinni eftir rigningar síðustu daga hefur verið tekin ákvörðun um að leyfa ekki golfbíla að minnsta kosti framyfir helgi. Við þökkum skilninginn! 💙 Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 17. september 2026
Bændaglíma GR 2026 verður leikin laugardaginn 26. september á Grafarholtsvelli, mótið er innanfélagsmót. Athugið að skráning telst ekki gild fyrr en greiðsla hefur borist inn á kt. 650913-0270 og 0133-15-380680. Mótsgjald er kr. 10.950 Mæting í klúbbhús kl. 11:00 og ræst út af öllum teigum samtímis kl. 12:00 og verður þema dagsins Gulur september 💛. Hver leikmaður getur keypt sér 1-3 Mölligana fyrir 1.500 kr. hvern og mun ágóði af sölu Mölligana renna óskiptur til Píeta samtakanna sem sinna mikilvægu forvarnarstarfi. Við hvetjum því alla leikmenn að taka Gulan september alla leið 💛 Keyrt verður um völlinn með snapsa til þess að keppendur hafi orku fyrir allar þær þrautir sem lagðar verða fyrir. Pylsupartý verður inn í húsi á 1. teig og 10. teig ásamt bjór, gos og Prosecco. Skráning í Bændaglímu hefst á morgun, föstudaginn 18. september kl. 13:00 og fer fram í mótaskrá á Golfbox, athugið að lið geta valið teig og skráð sig saman. Að leik loknum verður blásið til borðhalds þar sem liðin bera saman bækur sínar í skálanum í Grafarholti og verðlaunaafhending fer fram í framhaldinu. Matseðill kvöldsins hjá Mjöll og Gumma verður þessi: Forréttur Koníaksbætt humarsúpa m/nýbökuðu brauði og smjöri Aðalréttur Grilluð nautasteik m/piparsósu, bátakartöflum, grilluðum maís og klettasalati. Eftirréttur Sætir bitar og kaffi Leikfyrirkomulag mótsins er Texas scramble höggleikur með forgjöf, fjórir leikmenn saman í liði. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í liðakeppni og nándarverðlaun þeim leikmanni sem næstur er holu eftir upphafshögg á öllum par 3 holum vallarins. Félagsmenn eiga von á skemmtilegu kvöldi í góðum félagsskap á þessu lokakvöldi tímabilsins. Við minnum á að aldurstakmark til þátttöku í Bændaglímu er 20 ár. Undanfarin ár hafa færri komist að en vilja og viljum við því biðja kylfinga að senda afskráningu á netfangið sigridur@grgolf.is eigi síður en kl. 14 föstudaginn 25. september, til þess að hægt sé að bjóða kylfingum af biðlista inn. Hlökkum til að sjá ykkur! Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 16. september 2026
Kæru kylfingar vegna mikillar bleytu og rigningar í dag og eitthvað næstu daga verða engir golfbílar leyfðir á völlum félagsins þar til annað verður gefið út. Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf • 15. september 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson, Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson tryggðu sér sæti á öðru stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour með frammistöðu sinni á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi.  Nítján efstu kylfingarnir komust áfram. Til að ná þeim árangri þurfti að minnsta kosti að leika á fjórum höggum undir pari, og voru íslensku kylfingarnir þrír á enn lægra skori. Dagbjartur náði bestum árangri Íslendinganna og endaði jafn í sjötta sæti á níu höggum undir pari. Hann lék hringina fjóra á 71, 69, 70 og 69 höggum og endaði sex höggum á eftir sigurvegara mótsins. Sigurður Arnar lék frábært golf á lokahringnum og kom inn á 68 höggum, fjórum undir pari. Hann lyfti sér upp í 11. sætið og lauk mótinu á sex höggum undir pari. Ragnar endaði jafn í 14. sæti á fimm höggum undir pari. Hann lék best á öðrum keppnisdegi þegar hann kom inn á 67 höggum og endaði mótið með. Úrslit íslensku kylfinganna: T6. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69-70-69 (-9) T11. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70-73-68 (-6) T14. Ragnar Garðarsson, 73-67-73-70 (-5) 29. Aron Snær Júlíusson, 69-71-75-72 (-1) T36. Logi Sigurðsson, 74-72-74-69 (+1) T40. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74-71-70 (+2) T54. Hlynur Bergsson, 76-72-73-73 (+6) T58. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74-76-74 (+8) Aron var næstur því að komast áfram en hann endaði í 29. sæti á einu höggi undir pari. Finninn Miikka Mäkinen sigraði mótið á 15 höggum undir pari. Hann lék lokahringinn á 66 höggum og vann með þriggja högga mun. Annað stig úrtökumótanna fer fram dagana 29. október til 1. nóvember á fjórum völlum á Spáni. Þar leika Dagbjartur, Sigurður Arnar og Ragnar um sæti á lokastiginu, sem fer fram á INFINITUM Golf í Tarragona dagana 6.-11. nóvember. Á lokastiginu verða leiknir sex hringir og fá 15 efstu kylfingarnir keppnisrétt á DP World Tour fyrir tímabilið 2027. Lokastaða mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 10. september 2026
Fjórir íslenskir kylfingar eru á meðal 20 efstu eftir tvo hringi á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Már Garðarsson eru jafnir í 11. sæti en Sigurður Arnar Garðarsson er jafn í 16. sæti. Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi og verða leiknir fjórir hringir. Alls eru átta íslenskir kylfingar meðal 82 keppenda, en einungis efstu nítján komast áfram á næsta stig. Ragnar átti besta hring Íslendinganna á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 67 höggum, fimm höggum undir pari. Hann er, ásamt Dagbjarti og Aroni á fjórum höggum undir pari í mótinu. Aron Snær náði þeim magnaða árangri að fá albatross á þrettándu holu vallarins á öðrum hring. Hann lék par fimm holuna því á tveimur höggum eða þremur undir pari. Sigurður Arnar er höggi á eftir þremeningunum og hefur leikið hringina tvo á 71 og 70 höggum. Á fyrsta hring mótsins fékk Sigurður holu í höggi á sautjándu braut vallarins. Magnað afrek. Staða íslensku kylfinganna eftir tvo hringi T11. Aron Snær Júlíusson, 69-71 (-4) T11. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69 (-4) T11. Ragnar Már Garðarsson, 73-67 (-4) T16. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70 (-3) T47. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74 (+2) T47. Logi Sigurðsson, 74-72 (+2) T57. Hlynur Bergsson, 76-72 (+4) T60. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74 (+5) Þjóðverjinn Martin Gründemann er í forystu á tíu höggum undir pari, einu höggi á undan Taylor Paul frá Englandi.  Staða mótsins
Show More