Íslandsmót golfklúbba U18 - Leynir Akranes

Sigríður GR Golf • 24. júní 2026

Share this article

Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fer fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Keppt er í drengjaflokki 16 ára og yngri og í bæði stúlkna- og drengjaflokki 18 ára og yngri. Frábær skráning hefur verið í mótin, en tæplega þrjátíu sveitir munu leika um Íslandsmeistaratitlana þrjá á Akranesi næstu daga.


Golfklúbbur Reykjavíkur er með fjórar sveitir á svæðinu, allt skipað ungum og efnilegum kylfingum.


Í drengjaflokki erum við með sex drengja sveit í flokknum drengir yngri en 16 ára og fjögurra drengja sveit í flokknum drengir yngri en 18 ára.


Í stúlknaflokki erum við með tvær sveitir, annars vegar fimm stúlkna sveit og fjögurra stúlkna sveit, báðar sveitir keppa í flokknum stúlkur 18 ára og yngri.


Hér má fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum mótsins



Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.




Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 7. ágúst 2026
Kæru kylfingar Það veður lokað fyrir golfbílaumferð í Grafarholti í dag vegna bleytu og rigningar. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 6. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 hófst á Korpúlfsstaðavelli í morgun. Ragnhildur Sigurðardóttir, fjórfaldur Íslandsmeistari í höggleik, sló fyrsta högg mótsins við formlega setningu þess. Ragnhildur er ein af sigursælustu kylfingum íslenskrar golfsögu. Hún varð Íslandsmeistari í fyrsta sinn árið 1985 á Jaðarsvelli á Akureyri, aðeins 15 ára gömul. Hún er enn í dag yngsti kylfingurinn sem hefur orðið Íslandsmeistari í golfi. Ragnhildur bætti síðar við þremur Íslandsmeistaratitlum, árin 1998, 2003 og 2005, og hefur því fjórum sinnum fagnað sigri á Íslandsmótinu. Hún hefur einnig unnið fjölmarga aðra titla á löngum og farsælum ferli og starfað um árabil við golfkennslu. Það var því vel við hæfi að Ragnhildur skyldi slá upphafshöggið á heimavelli sínum, en hún hefur um áratugaskeið verið einn af öflugustu kylfingum Golfklúbbs Reykjavíkur. Með höggi Ragnhildar var Íslandsmótið formlega sett, en leikið verður á Korpúlfsstaðavelli næstu fjóra daga. Á meðal viðstaddra voru Gísli Guðni Hall, formaður GR, Hulda Bjarnadóttir, forseti GSÍ, Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkur, og Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ.
Eftir Sigríður GR Golf 6. ágúst 2026
Kæru kylfingar Það veður lokað fyrir golfbílaumferð í Grafarholti í dag vegna bleytu og rigningar. Kveðja, Vallarsvið.
Eftir Sigríður GR Golf 5. ágúst 2026
Kæru félagsmenn, Við vonum að nýja 3. grínið veki ánægju, við biðja ykkur hinsvegar um að SLÁ EKKI af gömlu flötinni. Taka boltann upp og láta hann falla utan gömlu flatarinnar, líkt og um blátt svæði sé að ræða. Þess má geta að slái kylfingur af rangri flöt þá eru það 2 högg í víti. Kveðja, Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 5. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi. Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins: Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana. Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna. Útsendingartímar: Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30 Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45 Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi. Fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998. Nánari upplýsingar um útsendinguna . Áhugasamir eru einnig hvattir til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis. Á yfirlitsmynd mótsins, sem hægt er að smella á til að stækka, má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.
Eftir Sigríður GR Golf 4. ágúst 2026
Það er alltaf mikill heiður að fá að halda Íslandsmótið í golfi og það er svo sannarlega engin undantekning á því hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Menn þar á bæ ætla svo sannarlega að halda veglegt Íslandsmót með Korpúlfsstaðavöll í toppstandi. Gísli Guðni Hall, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur, sat fyrir svörum í íslenska golftímaritinu Sveiflan, sem kom út á dögunum. Þar var meðal annars farið yfir Íslandsmótið í golfi 2026, umfangsmikla umgjörð mótsins og Korpúlfsstaðavöll. Hægt er að lesa blaðið í heild sinni á sveiflan.net , en tímaritið má einnig nálgast í golfskálum landsins. „Þetta er mikill heiður fyrir okkur sem og aðra klúbba. Við í GR höfum gert þetta reglulega í gegnum árin og viljum vera klúbbur sem gerir það reglulega. Það gerir mikið fyrir klúbbinn og setur á okkur pressu. Þetta er stærsti viðburður sumarsins og við viljum taka þátt í honum.“ segir Gísli Guðni Hall, formaður GR, spenntur í aðdraganda mótsins. Eins og formaðurinn segir setur það pressu á viðkomandi klúbb þegar Íslandsmótið er haldið þar. Jákvæða pressu sem gaman er að vinna undir. „Sérstaklega þegar nær dregur. Strax í fyrra er stjórn og starfsmenn farnir að huga að þessu. Allar ákvarðanir varðandi vellina okkar eru teknar með það í huga að við séum að fara að halda þetta mót og við verðum að hafa Korpúlfsstaðavöllinn í toppstandi. Höfum farið í smá framkvæmdir til að mæta meiri getu kylfinga. Þannig er þróunin í golfinu.“ segir Gísli, en það er svo sannarlega í mörg horn að líta. „Það sem tekur lengstan tíma er að passa upp á að völlurinn verði eins og við viljum hafa hann. Í vetur fórum við svo að græja bílastæði og almennt aðgengi áhorfenda að vellinum. Huga að viðbótarsalernum, stúku, tjöldum og þess háttar. Það var farið snemma í að finna út úr praktísku málunum. Við höfum fundað mikið með GSÍ, sem heldur mótið og hefur auðvitað margt að segja um hvernig þetta er gert og kynningarmál í gegnum þá. Þetta er allt í afar fínum farvegi.“ Íslandsmótssvæðið Sjálfboðaliðarnir mikilvægir sem fyrr Nú þegar farið er að styttast í mótið þarf að huga að mörgum aukamálum. Til að mynda að fá sjálfboðaliða til starfa, en svona mót er aldrei haldið án frábærrar aðstoðar sjálfboðaliða. „Það er að koma meiri stemning og við reynum að búa til úr þessu góða stemningu innan klúbbsins. Fá félagsmenn til þess að taka þátt sem sjálfboðaliðar í veislunni. Það þarf auðvitað fjölda sjálfboðaliða og ég er bjartsýnn á að okkar góða fólk vilji vera með,“ segir formaðurinn en segir auðvitað leitt að sama skapi að þurfa að loka vellinum í viku fyrir félagsmönnum. Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt. „Það er gríðarleg ásókn í vellina okkar og að þurfa að loka í viku er stórmál. Það er ekki neikvætt en samt stórmál sem við tökum alvarlega. Við höfum samið við aðra klúbba um að taka á móti okkar fólki á meðan. Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt. Það er ekki vandamálið. Við erum íþróttafélag. Stærstu mótin þurfa að fara fram á bestu völlunum og við viljum taka þátt í því.“ Viljum alltaf hækka rána Kröfurnar varðandi umgjörð aukast ár frá ári í golfinu eins og öðrum íþróttum. Það hefur gengið vel að mæta þeim kröfum að mati formannsins. „Það er alltaf gert meira á hverju ári. Síðast er við vorum með mótið í Grafarholtinu var umgjörðin frábær. Í fyrra hjá Keili var umgjörðin líka frábær, sem og á mótunum þar á undan. Það er alltaf verið að reyna að hækka rána og við erum að sjálfsögðu líka að reyna að gera það. Keilir gerði til að mynda marga frábæra hluti í fyrra og við tökum frá þeim í ár. Hvernig þeir til að mynda héldu utan um sjálfboðaliðastarfið var alveg frábært. Þetta var frábær umgjörð hjá þeim,“ segir Gísli Guðni, en hann segir allt benda til þess að GR geti haldið frábært Íslandsmót. „Íslandsmótið verður frábært. Óvissuþátturinn á vorin er auðvitað hvernig kemur völlurinn undan vetri. Korpan kom betur undan vetri í ár en síðustu þrjú ár. Miklu betur. Við drógum því ekki stutta stráið í ár og völlurinn er góður. Hann verður algjörlega frábær er Íslandsmótið byrjar. Línurnar í brautunum verða flottar og röffið áskorun. Við munum tjalda öllu til og sjá um að allir verði sáttir. Bæði kylfingar og áhorfendur.“
Eftir Sigríður GR Golf 3. ágúst 2026
Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 92 kylfingar skráðir til leiks í karlaflokki og keppendahópurinn er gífurlega sterkur. Meðalforgjöf keppenda er +1,4 og eru 70 kylfingar með 0 eða lægra í forgjöf. Dagbjartur Sigurbrandsson er forgjafarlægstur með +5,6, Logi Sigurðsson er með +5,5 og Daníel Ísak Steinarsson með +4,9. Keppendur koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem fá tækifæri til að leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á 17 keppendur, Keilir tólf og Golfklúbbur Akureyrar tíu. Dagbjartur stefnir á titilvörn Ríkjandi Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR mætir í titilvörn á heimavelli. Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir mikla spennu á lokahringnum. Hann lék hringina fjóra á fimm höggum undir pari og varð einu höggi á undan Axel Bóassyni. Dagbjartur hefur að mestu leikið á Nordic Golf League-mótaröðinni á árinu og náð þar góðum árangri. Hann hefur þrívegis endað jafn í áttunda sæti á mótaröðinni, einu sinni fjórði og tryggði sér jafnframt sæti í lokaúrtökumóti U.S. Open annað árið í röð. Hann þekkir Korpúlfsstaðavöll vel og verður einn þeirra sem fylgst verður hvað mest með þegar mótið hefst. Aron Snær átt frábært sumar Aron Snær Júlíusson úr GKG hefur verið sigursælasti kylfingurinn á GSÍ mótaröðinni í sumar. Aron vann þrjú fyrstu mót sín á tímabilinu og er með góða forystu á stigalista mótaraðarinnar. Hann sigraði fyrst á Reykjanesmótinu, vann síðan á Korpúlfsstaðavelli í Korpubikarnum og fullkomnaði þrennuna í Þorlákshöfn. Aron hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2021 og 2024. Í síðari sigrinum setti hann nýtt mótsmet þegar hann lék Hólmsvöll á 14 höggum undir pari. Hann varð einnig jafn í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fyrra. Axel vann á Hvaleyrarvelli Axel Bóasson úr Keili er fjórði forgjafarlægsti kylfingurinn með +4,8. Axel hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2011, 2017 og 2018. Axel varð annar á Íslandsmótinu í fyrra og kemur inn í mótið eftir sigur í Hvaleyrarbikarnum. Þar hafði Aron Snær forystu fyrir lokahringinn en Axel vann Sigurð Bjarka Blumenstein í bráðabana. Hann varð einnig landsmeistari í golfhermum í vor, en úrslitakeppnin var einmitt leikin á Korpúlfsstaðavelli. Axel hefur því leikið vel á vellinum, bæði í golfhermum og úti á velli. Margir fyrrverandi meistarar Sex kylfingar á keppendalistanum hafa áður orðið Íslandsmeistarar í golfi: Axel Bóasson – 2011, 2017 og 2018 Kristján Þór Einarsson – 2008 og 2022 Aron Snær Júlíusson – 2021 og 2024 Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 2019 Logi Sigurðsson – 2023 Dagbjartur Sigurbrandsson – 2025 Breiður hópur getur blandað sér í baráttuna Mikill fjöldi annarra kylfinga getur gert atlögu að efstu sætunum. Birgir Björn Magnússon varð Íslandsmeistari í holukeppni fyrr í sumar á meðan Hákon Örn Magnússon og Böðvar Bragi Pálsson urðu jafnir í öðru sæti í Þorlákshöfn á fjórtán höggum undir pari. Böðvar var jafnframt aðeins einu höggi frá bráðabana í Hvaleyrarbikarnum. Aron Emil Gunnarsson varð annar á Íslandsmótinu 2024 og lék þá á tólf höggum undir pari. Þá eru meðal annarra sterkra heimamanna þeir Guðmundur Ágúst, Hákon Örn, Böðvar Bragi, Sigurður Bjarki Blumenstein, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Andri Þór Björnsson. Tíu tryggðu sér sæti í undankeppni Mikil ásókn var í karlaflokk mótsins og þurfti því að halda undankeppni á Korpúlfsstaðavelli 30. júlí. Alls léku 33 kylfingar um tíu laus sæti. Kylfingarnir sem tryggðu sér sæti í Íslandsmótinu voru: Gunnar Smári Þorsteinsson, GR Jónas Guðmarsson, GR Fannar Ingi Steingrímsson, GHG Maron Björgvinsson, GA Gunnar Þórður Jónasson, GR Birkir Þór Baldursson, GL Óli Björn Bjarkason, GKG Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, GOS Arnar Freyr Viðarsson, GA Guðmundur Freyr Sigurðsson, GS Guðmundur Freyr tryggði sér tíunda og síðasta sætið eftir bráðabana milli þeirra kylfinga sem léku á 77 höggum. Sjö kylfingar á biðlista Sjö kylfingar eru á biðlista og komast inn í mótið ef sæti losnar. Röð þeirra er eftirfarandi: Sebastian Blær Ómarsson Snorri Rafn William Davíðsson Kári Kristvinsson Ingi Rúnar Birgisson Arnór Daði Rafnsson Birgir Steinn Ottósson Kjartan Tómas Guðjónsson  Allt stefnir í stórt og spennandi Íslandsmót. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á völlinn eða fylgjast með beinni útsendingu á RÚV!
Eftir Sigríður GR Golf 31. júlí 2026
Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu , verður haldið þann 3. ágúst næstkomandi, á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. Venju samkvæmt munu nokkrir bestu kylfinga landsins etja kappi hver við annan. Að þessu sinni leika þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki gjaldfrjálsan stuðning vegna andlegrar líðunar og áskorana í daglegu lífi. Markmið Bergsins er að veita svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem áhersla er lögð á aðgengilegan stuðning, ráðgjöf og fræðslu á forsendum unga fólksins. Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hina hefðbundnu útsláttarkeppni, eða „shoot-out“, þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik. Við hvetjum öll til að koma og fylgjast með stórskotaliði okkar fremstu kylfinga leika í þágu mikilvægis málefnis. Sem fyrr sagði er Arion banki styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Í mótslok afhenda fulltrúar bankans forsvarsaðila Bergsins ávísun upp á eina milljón króna. Keppendur í Einvíginu á Nesinu 2026: Aron Snær Júlíusson, GKG Dagbjartur Sigurbrandsson, GR Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG Hlynur Bergsson, GKG Logi Sigurðsson, GS Ragnhildur Kristinsdóttir, GR Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR Skarphéðinn Egill Þórisson, NK Tómas Eiríksson Hjaltested, GR Sigurvegarar frá upphafi: 2025 Tómas Eiríksson Hjaltested 2024 Dagbjartur Sigurbrandsson 2023 Birgir Björn Magnússon 2022 Bjarni Þór Lúðvíksson 2021 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2020 Haraldur Franklín Magnús 2019 Guðmundur Ágúst Kristjánsson 2018 Ragnhildur Sigurðardóttir 2017 Kristján Þór Einarsson 2016 Oddur Óli Jónasson 2015 Aron Snær Júlíusson 2014 Kristján Þór Einarsson 2013 Birgir Leifur Hafþórsson 2012 Þórður Rafn Gissurarson 2011 Nökkvi Gunnarsson 2010 Birgir Leifur Hafþórsson 2009 Björgvin Sigurbergsson 2008 Heiðar Davíð Bragason 2007 Sigurpáll Geir Sveinsson 2006 Magnús Lárusson 2005 Magnús Lárusson 2004 Magnús Lárusson 2003 Ragnhildur Sigurðardóttir 2002 Ólafur Már Sigurðsson 2001 Björgvin Sigurbergsson 2000 Kristinn Árnason 1999 Vilhjálmur Ingibergsson 1998 Ólöf María Jónsdóttir 1997 Björgvin Þorsteinsson
Eftir Sigríður GR Golf 30. júlí 2026
Undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, fimmtudaginn 30. júlí.  Keppt verður um tíu síðustu sætin í karlaflokki vegna mikillar skráningar í mótið. Verði kylfingar jafnir í tíunda sæti að loknum hring verður leikinn bráðabani um síðasta lausa sætið. Allir þeir sem skráðir voru í Íslandsmótið í golfi en komust ekki beint inn í mótið fengu boð í undankeppnina. Þrjátíu og þrír kylfingar eru skráðir til leiks í undankeppnina og verður hart barist um lausu sætin. Þetta er í fjórða skiptið sem undankeppnin fer fram. Hér má nálgast rástíma og stöðu mótsins. Ekki verður haldin undankeppni í kvennaflokki þar sem ekki náðist sá lágmarksfjöldi (tíu) sem þarf til þess að undankeppni fari fram. Þess í stað hefur verið útbúinn biðlisti, sem er raðað eftir forgjöf. Komi til forfalla fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á listanum og þeim boðin þátttaka. Biðlistinn í kvennaflokki er eftirfarandi: Ninna Þórey Björnsdóttir María Björk Pálsdóttir Sara María Guðmundsdóttir María Kristín Elísdóttir María Högnadóttir Kristín María Valsdóttir Katla María Sigurbjörnsdóttir Elísabet Þóra Ólafsdóttir
Eftir Sigríður GR Golf 28. júlí 2026
Kæru félagsmenn, nú styttist óðum í Íslandsmótið í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli dagana 5.–9. ágúst . Keppt verður á lykkjunni Sjórinn/Áin og munu bestu kylfingar landsins í karla- og kvennaflokki etja þar kappi um Íslandsmeistaratitlinn. Með jafn stóru móti fylgja óhjákvæmilega tímabundnar breytingar á aðgengi að vellinum. Korpúlfsstaðavöllur verður því lokaður frá mánudeginum 3. ágúst til og með mánudeginum 10. ágúst. Lokunin nær til allra lykkja vallarins sem og Thorsvallar . Á meðan lokun stendur yfir er Grafarholtsvöllur opinn og minnum við jafnframt á að þar verða teknir í notkun, frá og með mánudeginum 3. ágúst, nýir teigar á brautum 3. og 4. ásamt nýrri 3. flöt , sem við hvetjum félagsmenn til að upplifa. Við viljum einnig minna á að þegar GSÍ heldur mót á golfvelli félags, eiga félagsmenn þess félags rétt á 50% afslætti af vallargjaldi hjá öðrum golfklúbbum innan vébanda GSÍ, samkvæmt gjaldskrá hvers vallar. Afsláttur þessi gildir frá og með þriðjudeginum 4. ágúst til og með sunnudeginum 9. ágúst. Við hvetjum félagsmenn því til að nýta sér þetta góða tækifæri og heimsækja aðra golfvelli á meðan mótið stendur yfir. Jafnframt bendum við á Vinavelli Golfklúbbs Reykjavíkur , sem eru tólf talsins , og bjóða félagsmönnum hagstæð leikréttindi víða um land. Við hlökkum til að taka á móti bestu kylfingum landsins og vonum að félagsmenn sýni mótinu skilning og stuðning á meðan á því stendur. Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og hvetjum ykkur til að koma og fylgjast með þeim fremstu etja kappi og sýna listir sínar. Ef þið hafið áhuga á að leggja okkur lið og gerast sjáfboðaliðar þá mælum við með því að þið skráið ykkur hér og takið þátt í mótahladinu með okkur!
Show More