Meistaramót GR 2026 - skráning hefst á miðvikudaginn kl.10:00 í Golfbox

Sigríður GR Golf • 22. júní 2026

Share this article

The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 22. júní 2026
Íslandsmótið í holukeppni karla og kvenna fóru fram um helgina. Karlarnir léku á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Á föstudaginn var leikinn 36 holu höggleikur þar sem 16 efstu komust áfram í holukeppnina, hjá körlum og konum. Í karlaflokki voru það Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Hákon Örn Magnússon og Sigurður Bjarki Blumenstein sem tryggðu sér allir sæti í 16 manna úrslitum holukeppninnar. Hákon Örn tapaði sínum leik á móti Kristjáni Karli Guðjónssyni og Sigurður Bjarki tapaði sínum leik á móti Birgi Birni Magnússyni. Guðmundur Ágúst mætti Arnari Daða Svavarssyni í sínum leik og vann hann eina holu upp og hélt því áfram í 8 manna úrstli. Guðmundur Ágúst og Björn Viktor Viktorsson mættust í 8 manna úrslitum þar sem Guðmundur Ágúst hafði betur á 19 holu og vann leikinn. Í undanúrslitum mættust Guðmundur Ágúst og Aron Emil Gunnarsson þar sem Guðmundur Ágúst vann leikinn með tveggja holu sigri. Guðmundur Ágúst lék því til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í holukeppni. Í úrslitaleiknum mættust þeir Guðmundur Ágúst og Birgir Björn Magnússon, sá leikur var heldur betur spennandi þar sem Birgir Björn var með yfirhöndina fyrri níu holurnar og Guðmundur Ágúst var með yfirhöndina á seinni níu holunum. Þá var allt jafnt eftir 18 holu leik og því þurfti bráðabana til að knýja fram úrslit, Guðmundur Ágúst tapaði leiknum á 19 holu og varð því í 2. sæti í Íslandsmótinu í holukeppni 2026. Í kvennaflokki voru það Þóra Sigríður Sveinsdóttir, Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir sem tryggðu sér allar sæti 16 manna úrslit holukeppninnar. Þóra Sigríður tapaði sínum leik á móti Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur og Ásdís Rafnar tapaði sínum leik á móti Elsu Maren Steinarsdóttur. Perla Sól Sigurbrandsdóttir mætti Elvu Maríu Jónsdóttur þar sem Perla Sól vann leikinn á 19 holu. Perla Sól mætti svo Elsu Maren Steinarsdóttur í 8 manna úrslitum og fór sá leikur í bráðabana sem Perla Sól vann á 21 holu. Í undanúrslitum mættust Perla Sól og Guðrún Brá Björgvinsdóttir þar hafði Guðrún Brá betur og vann leikinn með einnar holu sigri. Perla Sól lék því til úrslita um 3.-4. sæti. Í þeim leik mætti Perla Sól henni Fjólu Margréti Viðarsdóttur og spilaði Perla Sól þann leik vel, var með leikinn nokkuð í höndum sér og vann leikinn tvær holur upp, með sigrinum því tryggði hún sér 3. sætið í Íslandsmótinu í holukeppni 2026. Við óskum Guðmundi Ágústi og Perlu Sól innilega til hamingju með sinn árangurinn!
Eftir Sigríður GR Golf 19. júní 2026
Kæru félagsmenn, Við viljum minna á að Spori eru nú aðgengilegir á nýjum stöðum í klúbbhúsum okkar, eins og áður hefur verið auglýst. Við biðjum ykkur að kynna ykkur staðsetningarnar vel. Grafarholt: Spori er í hillu strax til hægri þegar þú kemur inn í golfverslunina , ásamt QR kóða til að skanna og staðfesta rástíma. Korpa: Spori í hillu á veggnum í anddyrinu og þar til vinstri er upplýsingaskjár með m.a. QR kóða til að skanna og staðfesta rástíma. Á Korpunni eru tvær Spora hillur, efri hillan er fyrir 9 holur og sú neðri fyrir 18 holur. Jafnframt viljum við biðja kylfinga um að skila Spora í þar til gert skilabox (ekkert nýtt þar), sem staðsett eru inni í klúbbhúsunum, að leik loknum. ATH! Ekki á að skila Spora aftur í hillurnar Með góðri samvinnu getum við tryggt að Spori séu ávallt tiltækir og aðgengilegir þeim sem eru á leið út á völl að spila golf. Við þökkum fyrir góða samvinnu og skilning. Bestu kveðjur, Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf 19. júní 2026
Íslandsmótið í holukeppni 2026 fer fram dagana 19.-21. júní. Keppt verður í karla- og kvennaflokki, en mótið fer fram á tveimur stöðum í ár. Karlamótið verður leikið á Hólmsvelli hjá Golfklúbbi Suðurnesja og konurnar leika á Urriðavelli hjá Golfklúbbnum Oddi. Fyrsti keppnisdagur er 36 holu höggleikur Karlaflokkur: Rástímar og staðan í höggleik Kvennaflokkur: Rástímar og staðan í höggleik Að loknum höggleiknum komast 16 efstu kylfingarnir í hvorum flokki áfram í holukeppnina. Á laugardeginum eru leikin 16 manna úrslit og 8 manna úrslit. Á sunnudeginum fara síðan fram undanúrslit og úrslitaleikir, þar sem Íslandsmeistarar ársins í holukeppni verða krýndir. Holukeppnin Karlaflokkur: Rástímar og staðan Kvennaflokkur: Rástímar og staðan Á síðasta ári fögnuðu Böðvar Bragi Pálsson, GR, og Heiðrún Anna Hlynsdóttir, GOS, sigri.
Eftir Sigríður GR Golf 17. júní 2026
Hjóna- og parakeppni GR fór fram í dag, þriðjudaginn 17.júní á Grafarholtsvelli. Mótið var fullsetið og fylltist mótið á stuttri stundu og var langur biðlisti. Það mættu 66 hjón/pör til leiks og léku í fínasta veðri, nánast logn. Leikið var með Greensome fyrirkomulagi, stoppað í pylsu á leiðinni og var þjóðhátíðarstemmning yfir vellinum. Veitt voru glæsileg verðlaun fyrir fyrstu fjögur sætin ásamt nándarverðlaunum á öllum par 3 hollum vallarins. Keppnin var jöfn en sigurvegarar dagsins voru hjónin Eggert Þór og Ágústa Dröfn, spiluðu á 61 höggum nettó.  Úrslit mótsins voru eftirfarandi: 1. Eggert Þór Kristófersson og Ágústa Dröfn Kristleifsdóttir 61 nettó 2. Guðný María Guðmundsdóttir og Kristján Ágústsson 63 nettó 3. Sandra Kristín Ólafsdóttir og Gísli Hjálmtýsson 65 nettó (betri seinni 9) 4. Lára Eymundsdóttir og Hörður Theódórsson 65 nettó Nándarverðlaun: 2.braut: Guðmundur B Harðarson 2,9 m 6.braut: Sveinbjörn Jóhannesson 1,33 m 11.braut: Lórenz Þorgeirsson 1,53 m 17.braut: Sigríður Jóhanna Sigurðardóttir 0,84 m Golfklúbbur Reykjavíkur óskar vinningshöfum til hamingju með flottan árangur og þakkar fyrir vel heppnað 17.júní þjóðhátíðarmót.
Eftir Sigríður GR Golf 15. júní 2026
Þrír íslenskir kylfingar hefja leik á Opna breska áhugamannamótinu (The Amateur Championship) í dag. Á meðal keppenda er Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur. Mótið fer fram dagana 15.-20. júní á tveimur völlum í Englandi: Royal Liverpool og West Lancashire. Þar mætast 288 áhugakylfingar í einu sterkasta áhugamannamóti ársins. Hægt er að fylgjast með skori mótsins hér Tómas hóf leik klukkan 09:24 á West Lancashire.  Á fyrstu tveimur hringjum mótsins er leikinn höggleikur. Allir kylfingar leika 18 holur á hvorum vellinum, annan hringinn í dag og hinn á morgun. Eftir þessa fyrstu tvo hringi komast 64 efstu kylfingarnir áfram í útsláttarhluta mótsins. Þar er leikin holukeppni sem hefst strax að öðrum hring loknum. Í henni mætast kylfingar einn á móti einum þar til einungis tveir standa eftir. Úrslitaviðureignin er sýnd um allan heim og verður þar leikin holukeppni yfir 36 holur. Fyrrum sigurvegarar mótsins eru meðal annars Bobby Jones, José María Olazábal, Sergio Garcia og Matteo Manassero. Sigurvegari mótsins vinnur sér inn þátttökurétt á Opna breska meistaramótinu, Opna bandaríska meistaramótinu sem og á Masters mótinu. Það er því til mikils að vinna. Andri Þór Björnsson verður á svæðinu næstu daga og mun sýna frá okkar mönnum á Instagram og Facebook reikningum GSÍ. Hann segist spenntur fyrir mótinu: Þetta er spennandi mót á tveimur virkilega flottum golfvöllum. Vellirnir eru links vellir og eru þar að leiðandi með fullt af pottbönkerum, upphækkuðum grínum og endalaust af landslagi í kringum flatirnar þá sérstaklega á Royal Liverpool. Strákarnir eru búnir að undirbúa sig vel fyrir mótið og gat ég ekki betur séð en að þeir værum meira en tilbúnir í slaginn næstu daga. Við óskum okkar kylfingum góðs gengis næstu dagana.
Eftir Sigríður GR Golf 12. júní 2026
Annað mót Golf14 mótaraðarinnar fór fram dagana 5. - 6. júní sl. og var haldið hjá Golfklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Mótið var bæði leikið á Leirdalsvelli og Mýrinni. Metskráning var einnig í Golf14 mótið og voru 18 kylfingar frá Golfklúbbi Reykjavíkur skráðir til leiks. Golf14 - Mýrin Bjartmar Atlason lauk leik í 1. sæti í flokki 13-14 ára drengir eftir flotta spilamennsku. Ísak Hrafn Jónasson lauk leik í 1. sæti í flokki 11-12 ára dengir eftir góða spilamennsku og Alexander Aron Ívarsson lauk leik í 3. sæti í saman flokki. Anna Lind Valdimarsdóttir lauk leik í 3. sæti í flokki 10 ára og yngri stúlkur og stóð sig svo vel. Golf14 - Leirdalur Pétur Franklín Atlason lauk leik jafn í 3. sæti í flokki 14 ára og yngri drengir. Við óskum öllum þeim sem unnu til verðlauna innilega til hamingju með sinn árangur og öðrum kylfingum sem þátt einnig. Áfram GR!
12. júní 2026
Dagana 4. - 6. júní fór þriðja mót Unglingamótaraðarinnar fram og var það leikið á Leirdalsvelli hjá Golklúbbi Kópavogs- og Garðabæjar. Met skráning var í mótið og voru 101 kylfingur skráður til keppni, þar af voru 8 kylfingar frá GR. Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir lauk leik í 2. sæti í flokki 15-18 ára stúlkur, á +15 höggum yfir pari (77-77-74). Ásdís byrjar sumarið af krafti. Margrét Jóna Eysteinsdóttir endaði í 11. sæti. Hjá stráknum í flokki 15-18 ára piltum luku þeir Birgir Steinn Ottósson og Sebastian Blær Ómarsson leik jafnir í 14. sæti á +19 höggum yfir pari. Við óskum Ásdísi Rafnar til hamingju með árangurinn - áfram GR!
Eftir Sigríður GR Golf 11. júní 2026
Mercedes-Benz bikarinn er styrktur af bílaumboðinu Öskju og leggur til frítt árgjald á næsta ári fyrir sigurvegarann. Annað sætið gefur hálft árgjald. Um er að ræða holukeppni með forgjöf þar sem leiknar eru 18 holur. Um bikarkeppni er að ræða þannig að keppendum fækkar um helming í hverri umferð. Tveir leikir eru leiknir saman í holli. Fyrsta umferðin verður leikinn sunnudaginn 21. júní. Það er gert ráð fyrir allt að 64 keppendum í þeirri umferð og það verða þá 32 sem mæta til leiks sunnudaginn 28. Júní. Fyrsti ráshópurinn byrjar kl. 16:04 og ræst verður út til 18:12. Í annari umferð er ræst út frá 16:04 – 17:04 en þá eru 8 holl, tveir holukeppnisleikir í holli og 32 keppendur. Sextán manna úrslit verða eftir meistaramót og mótinu lýkur í ágúst. Skráning í Mercedes Benz bikarinn 2026
Eftir Sigríður GR Golf 11. júní 2026
Opið er fyrir skráningu í mótaskrá GR á golfbox. Skráning í FootJoy bikarinn 2026 Þessi skemmtilega keppni er leikinn í 6 manna liðum þar sem tveir leikmenn úr hvoru liði leika betri bolta og fjórir leikmenn úr hvoru liði leika holukeppnisleiki. Allir leikirnir eru leiknar á Korpu 9 holur. Í hverjum leik keppa 6 leikmenn fyrir hvort lið, en í mótinu má nota 12 leikmenn. Leikið er á virkum dögum og hefjast leikir ýmist kl. 18:20 eða 18:52. Við skráningu eru liðin beðin að tiltaka hvaða vikudagar henta í þessa keppni, en margir hópar í GR leika á sínum föstu leikdögum. Fimmtudags riðillinn hefur keppni 18. júní. Síðan er leikið á virkum dögum næstu tvær vikur, einn leikur í viku hjá hverju liði. Riðla keppni líkur í vikunni eftir meistaramótið. Átta lið komast áfram í úrslitakeppni sem leikin er í ágúst. Mótsgjald fyrir hvert lið er 10.000 kr. Mótinu líkur með úrslitaleik þar sem liðin sem leika til úrslita fá veislumáltið að leik loknum. Allir leikmenn beggja liða fá FJ pólóboli og sigurliðið tekur við liðameistara bikarnum. ISAM og FootJoy eru styrktaraðilar FJ bikarsins.
Eftir Sigríður GR Golf 9. júní 2026
Arkea Montauban Ladies Open mótinu á LET Access mótaröðinni lauk í dag. Mótið var það þriðja á LET Access mótaröðinni í sumar, en þar keppti Ragnhildur Kristinsdóttir ásamt þeim Hulda Clöru Gestsdóttur og Andreu Bergsdóttur. Hér má sjá úrslit mótsins Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í ellefta sæti mótsins á einu höggi undir pari ásamt Andreu Bergsdóttur. Ragnhildur lék hringi mótsins á 73, 69 og 73 höggum. Hún hefur byrjað tímabilið af krafti og náð í gegnum niðurskurð í öllum þremur mótunum. Fyrir mótið var Ragnhildur fjórða á stigalista mótaraðarinnar og heldur hún því sæti sínu sem einn af efstu kylfingum listans. Hringi Ragnhildar má sjá í myndasafninu hér fyrir neðan.
Show More