Íslandsmótið í golfi 2026 - rástímar, staðan og helstu upplýsingar
Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli Golfklúbbs Reykjavíkur dagana 6.-9. ágúst.
Alls eru 132 kylfingar skráðir til leiks, 92 í karlaflokki og 40 í kvennaflokki. Á meðal keppenda eru fremstu kylfingar landsins, atvinnukylfingar og tíu fyrrverandi Íslandsmeistarar í golfi.
Smelltu hér til að skoða rástíma og stöðu mótsins:
Leikinn verður 72 holu höggleikur á fjórum keppnisdögum. Eftir fyrstu 36 holurnar verður keppendahópurinn skorinn niður fyrir tvo síðustu keppnisdagana.
Sýnt verður beint frá síðustu þremur keppnisdögum mótsins á RÚV. Aldrei hefur verið sýnt jafn lengi frá Íslandsmótinu og verður mikið lagt í útsendinguna.
Útsendingartímar:
- Föstudagur 7. ágúst kl. 15:30-18:30
- Laugardagur 8. ágúst kl. 15:00-17:45
- Sunnudagur 9. ágúst frá kl. 14:30 til mótsloka
Þetta verður í 29. sinn sem sýnt er beint frá Íslandsmótinu í golfi í sjónvarpi. Fyrsta beina útsendingin var frá Hólmsvelli í Leiru árið 1998. Nánari upplýsingar um útsendinguna.
Áhugasamir eru einnig hvattir til að mæta á Korpúlfsstaðavöll og fylgjast með fremstu kylfingum keppa um Íslandsmeistaratitlana. Aðgangur á mótið er ókeypis.
Á yfirlitsmynd mótsins, sem hægt er að smella á til að stækka, má sjá staðsetningu bílastæða, salerna og veitingatjalds auk allra hola Korpúlfsstaðavallar.
Recent Posts











