Öllu tjaldað til á Íslandsmótinu í golfi

Sigríður GR Golf • 4. ágúst 2026

Share this article

Það er alltaf mikill heiður að fá að halda Íslandsmótið í golfi og það er svo sannarlega engin undantekning á því hjá Golfklúbbi Reykjavíkur. Menn þar á bæ ætla svo sannarlega að halda veglegt Íslandsmót með Korpúlfsstaðavöll í toppstandi. Gísli Guðni Hall, formaður Golfklúbbs Reykjavíkur, sat fyrir svörum í íslenska golftímaritinu Sveiflan, sem kom út á dögunum. Þar var meðal annars farið yfir Íslandsmótið í golfi 2026, umfangsmikla umgjörð mótsins og Korpúlfsstaðavöll. Hægt er að lesa blaðið í heild sinni á sveiflan.net, en tímaritið má einnig nálgast í golfskálum landsins.


„Þetta er mikill heiður fyrir okkur sem og aðra klúbba. Við í GR höfum gert þetta reglulega í gegnum árin og viljum vera klúbbur sem gerir það reglulega. Það gerir mikið fyrir klúbbinn og setur á okkur pressu. Þetta er stærsti viðburður sumarsins og við viljum taka þátt í honum.“ segir Gísli Guðni Hall, formaður GR, spenntur í aðdraganda mótsins.


Eins og formaðurinn segir setur það pressu á viðkomandi klúbb þegar Íslandsmótið er haldið þar. Jákvæða pressu sem gaman er að vinna undir.


„Sérstaklega þegar nær dregur. Strax í fyrra er stjórn og starfsmenn farnir að huga að þessu. Allar ákvarðanir varðandi vellina okkar eru teknar með það í huga að við séum að fara að halda þetta mót og við verðum að hafa Korpúlfsstaðavöllinn í toppstandi. Höfum farið í smá framkvæmdir til að mæta meiri getu kylfinga. Þannig er þróunin í golfinu.“ segir Gísli, en það er svo sannarlega í mörg horn að líta.


„Það sem tekur lengstan tíma er að passa upp á að völlurinn verði eins og við viljum hafa hann. Í vetur fórum við svo að græja bílastæði og almennt aðgengi áhorfenda að vellinum. Huga að viðbótarsalernum, stúku, tjöldum og þess háttar. Það var farið snemma í að finna út úr praktísku málunum. Við höfum fundað mikið með GSÍ, sem heldur mótið og hefur auðvitað margt að segja um hvernig þetta er gert og kynningarmál í gegnum þá. Þetta er allt í afar fínum farvegi.“

Íslandsmótssvæðið


Sjálfboðaliðarnir mikilvægir sem fyrr

Nú þegar farið er að styttast í mótið þarf að huga að mörgum aukamálum. Til að mynda að fá sjálfboðaliða til starfa, en svona mót er aldrei haldið án frábærrar aðstoðar sjálfboðaliða.


„Það er að koma meiri stemning og við reynum að búa til úr þessu góða stemningu innan klúbbsins. Fá félagsmenn til þess að taka þátt sem sjálfboðaliðar í veislunni. Það þarf auðvitað fjölda sjálfboðaliða og ég er bjartsýnn á að okkar góða fólk vilji vera með,“ segir formaðurinn en segir auðvitað leitt að sama skapi að þurfa að loka vellinum í viku fyrir félagsmönnum.

Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt.

„Það er gríðarleg ásókn í vellina okkar og að þurfa að loka í viku er stórmál. Það er ekki neikvætt en samt stórmál sem við tökum alvarlega. Við höfum samið við aðra klúbba um að taka á móti okkar fólki á meðan. Það er afar jákvætt hvernig okkar góða fólk tekur í þetta og er til í að leysa allt. Það er ekki vandamálið. Við erum íþróttafélag. Stærstu mótin þurfa að fara fram á bestu völlunum og við viljum taka þátt í því.“


Viljum alltaf hækka rána

Kröfurnar varðandi umgjörð aukast ár frá ári í golfinu eins og öðrum íþróttum. Það hefur gengið vel að mæta þeim kröfum að mati formannsins.


„Það er alltaf gert meira á hverju ári. Síðast er við vorum með mótið í Grafarholtinu var umgjörðin frábær. Í fyrra hjá Keili var umgjörðin líka frábær, sem og á mótunum þar á undan. Það er alltaf verið að reyna að hækka rána og við erum að sjálfsögðu líka að reyna að gera það. Keilir gerði til að mynda marga frábæra hluti í fyrra og við tökum frá þeim í ár. Hvernig þeir til að mynda héldu utan um sjálfboðaliðastarfið var alveg frábært. Þetta var frábær umgjörð hjá þeim,“ segir Gísli Guðni, en hann segir allt benda til þess að GR geti haldið frábært Íslandsmót.


„Íslandsmótið verður frábært. Óvissuþátturinn á vorin er auðvitað hvernig kemur völlurinn undan vetri. Korpan kom betur undan vetri í ár en síðustu þrjú ár. Miklu betur. Við drógum því ekki stutta stráið í ár og völlurinn er góður. Hann verður algjörlega frábær er Íslandsmótið byrjar. Línurnar í brautunum verða flottar og röffið áskorun. Við munum tjalda öllu til og sjá um að allir verði sáttir. Bæði kylfingar og áhorfendur.“


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Þótt golftímabilinu utandyra fari senn að ljúka er engin ástæða fyrir því að sveiflan fari í vetrarfrí! Í Básum er hægt að halda sveiflunni við og njóta golfæfinga allan veturinn. Vetraraðild í Básum – sala hefst 1. nóvember Frá og með 1. nóvember hefjum við sölu á vetraraðild í Básum. Í boði verða þrjár mismunandi vetraraðildir sem fara í sölu í nóvember, desember og janúar. Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur njóta sérstaks afsláttar af vetraraðild og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að halda golfæfingunum gangandi yfir vetrarmánuðina. Lengri opnunartími um helgar Frá og með 1. nóvember lengjum við opnunartíma Bása um helgar. Þá verður opnað kl. 08:00 í stað kl. 10:00 bæði á laugardögum og sunnudögum. Þetta eru góðar fréttir fyrir morgunhanana sem vilja byrja helgina á nokkrum góðum sveiflum! Kaffibolli á milli högga Við minnum einnig á kaffiaðstöðuna í Básum þar sem hægt er að fá sér góðan kaffibolla úr sjálfsalanum. Tilvalið til að hlýja sér á milli æfinga eða njóta smá kaffipásu í góðum félagsskap. Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér aðstöðuna í Básum í vetur, halda sér í golfstuði og mæta vel undirbúin til leiks þegar vorið kemur. Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Sjórinn á Korpúlfsstaðavelli lokar frá og með deginum í dag og hefur þar með lokið sínu golftímabili þetta árið. Rástímar færðir yfir á Landið Þeir kylfingar sem áttu bókaðan rástíma á Sjónum hafa verið færðir yfir á Landið. Í flestum tilfellum hefur tekist að halda rástímanum nánast óbreyttum, en í einstaka tilfellum hefur þurft að færa hann fram eða aftur um 2–3 rástíma. Við biðjum kylfinga því vinsamlegast um að yfirfara bókaða rástíma sína í GolfBox áður en haldið er af stað á völlinn. Við þökkum öllum kylfingum fyrir frábært golfsumar á Sjónum og minnum á að enn er hægt að njóta golfleiks á Landinu, svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Einnig minnum við á Thorsvöllinn sem er opinn allan ársins hring fyrir félagsmenn. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 26. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í áttunda sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki (European Men’s Club Trophy) sem lauk á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi í dag. Lið GR lék hringina þrjá á samtals 440 höggum, 14 höggum yfir pari, en alls tóku 23 lið þátt í mótinu. Lið GR skipuðu Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Í mótinu voru leiknar 54 holur á þremur dögum og töldu tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. GR lék fyrsta hringinn á 147 höggum, fimm yfir pari. Á öðrum degi lék liðið á 144 höggum, tveimur yfir pari, og deildi fimmta sætinu fyrir lokahringinn. Á lokahringnum lék GR á 149 höggum, sjö yfir pari, og féll niður í áttunda sæti. Jóhann Frank Halldórsson lék best GR-inga á lokahringnum, en hann kom í hús á 74 höggum, þremur yfir pari. Hann lék fyrri níu holurnar á 41 höggi en seinni níu holurnar á 33 höggum, tveimur undir pari. Böðvar Bragi Pálsson lék lokahringinn á 75 höggum, fjórum yfir pari, en Arnór Tjörvi Þórsson kom í hús á 79 höggum, átta yfir pari. Böðvar Bragi átti besta hring GR í mótinu á öðrum keppnisdegi. Þá lék hann á 70 höggum, einu höggi undir pari. Arnór Tjörvi lék sömuleiðis vel á fyrsta keppnisdegi þegar hann kom í hús á 72 höggum. Heildarskor kylfinganna þriggja voru eftirfarandi: Böðvar Bragi Pálsson: 77-70-75, +9 Jóhann Frank Halldórsson: 75-75-74, +11 Arnór Tjörvi Þórsson: 72-74-79, +12 GR tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar sigraði GR lið GKG í úrslitaleik, 5–0, og varð Íslandsmeistari annað árið í röð og í 27. skipti í sögu félagsins. GR hafnaði í sjötta sæti á Evrópumótinu í fyrra en liðið hefur nú lokið keppni á meðal átta efstu liða mótsins annað árið í röð.  Hér má sjá úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 23. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur keppir á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki sem fram fer á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi dagana 22.-24. október. Alls eru 23 golfklúbbar frá jafnmörgum löndum skráðir til leiks í mótinu. GR tryggði sér þátttökurétt á mótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar hafði GR betur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) í úrslitaleik með 5-0 sigri. Þetta var annað árið í röð sem GR fagnaði Íslandsmeistaratitlinum og í 27. skiptið í sögu klúbbsins. Evrópumót golfklúbba er árlegt mót á vegum Golfsambands Evrópu (EGA) þar sem Íslandsmeistarar og aðrir landsmeistarar golfklúbba víðs vegar að úr Evrópu etja kappi. Mótið er 54 holu höggleikur sem leikinn er á þremur dögum. Hvert lið er skipað þremur kylfingum og telja tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. Einungis áhugakylfingar hafa keppnisrétt í mótinu. Lið GR á Evrópumótinu skipa: Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Leikið er á Châteaux vellinum á Cabot Bordeaux svæðinu, skammt frá Bordeaux í Frakklandi. GR átti einnig þátttökurétt á mótinu í fyrra eftir Íslandsmeistaratitilinn 2025. Þá skipuðu Dagbjartur Sigurbrandsson, Jóhannes Guðmundsson og Sigurður Bjarki Blumenstein lið félagsins sem hafnaði í sjötta sæti mótsins.  Smelltu hér til að skoða mótið á heimasíðu EGA.
Eftir Sigríður GR Golf • 21. október 2026
Kæru kylfingar, vetur konungur er farinn að minna á sig með kulda og næturfrosti og því óhjákvæmilegt að huga að lokun valla og æfingasvæða fyrir veturinn. Frá og með deginum í dag og fram að lokun verða vellir félagsins eingöngu opnir fyrir félagsmenn GR. Grafarholtsvöllur mun loka fyrir veturinn frá og með laugardeginum 24. október. Á Korpúlfsstaðavelli verða lykkjurnar Sjórinn og Landið opnar eitthvað áfram , svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Áin hefur eins og áður hefur verið tilkynnt lokað og þakkað fyrir sumarið. Vipp- og púttæfingasvæði í skeifunni við Korpúlfsstaði verður einnig opið eitthvað áfram ⛳ Við minnum einnig á að öll salerni við báða velli hafa nú þegar lokað. Grafarkotsvöllur hefur nú þegar lokað fyrir veturinn, ásamt vipp- og púttæfingasvæðinu fyrir utan Bása. Þá hefur púttæfingasvæðinu (nýja púttgrínið) við Korpúlfsstaði einnig lokað. Básar eru opnir samkvæmt vetraropnun og hvetjum við félagsmenn að nýta sér þá frábæru aðstöðu sem Básar hafa upp á að bjóða með upphituðum básum og Trackman hermum. Thorsvöllur verður áfram opinn eins og áður, enda er hann opinn allt árið ⛳ Frostlokanir – fylgist vel með GolfBox Með lækkandi hitastigi og næturfrosti má búast við að loka þurfi völlunum með stuttum fyrirvara. Við minnum því félagsmenn á að fylgjast vel með tilkynningum í GolfBox , þar sem lokanir vegna frosts geta orðið með skömmum fyrirvara og því gæti þurft að fella niður bókaða rástíma. Við biðjum alla kylfinga um að sýna þessu skilning og virða lokanir vegna frosts. Mikilvægt er að hlífa völlunum þegar frost er í jörðu til að koma í veg fyrir skemmdir og tryggja að þeir komi sem best undan vetri. Við þökkum félagsmönnum fyrir góða umgengni og skilning 💙 Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 20. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur sendir árlega út viðhorfskönnun til félagsmanna. Undanfarin ár hefur þessi könnun verið okkur, sem stjórnum klúbbnum, uppspretta hugmynda og ákvarðana sem snúa að öllum þáttum í starfsemi félagsins. Það hefur verið ómetanlegt að fá viðhorfin beint í æð og komið að miklu gagni við alla ákvarðanatöku. Eins og fram hefur komið í fréttum úr starfseminni síðasta árið er mikil uppbygging fyrirhuguð á næstu árum, töluverðar fjárfestingar og aukin þjónusta. Okkur sem störfum fyrir klúbbinn er mikill greiði gerður, ef meðlimirnir hjálpa okkur að fylgjast með viðhorfi þeirra til almennrar þjónustu og uppbyggingar næstu árin. Meðfylgjandi er hlekkur á könnunina og biðjum við þig um að svara henni við fyrsta tækifæri, könnunin verður opin til kl. 12:00 föstudaginn 30. október. Viðhorfskönnun GR 2026 Kveðja Stjórn og starfsfólk GR
Eftir Sigríður GR Golf • 19. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði jafn í 12. sæti og Hlynur Bergsson jafn í 20. sæti á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti Nordic Golf League, sem lauk hjá Aalborg Golfklub í Danmörku í gær. Dagbjartur lauk leik á einu höggi undir pari en Hlynur á tveimur höggum yfir pari. Hér má sjá úrslit mótsins Dagbjartur lék hringina þrjá á 74, 66 og 72 höggum. Annar hringur hans var einn sá besti í öllu mótinu, en þar lék hann á fimm höggum undir pari. Hlynur lék hringina á 70, 73 og 72 höggum. Hann var jafn í sjötta sæti eftir fyrsta keppnisdag og í 18. sæti fyrir lokahringinn. Með mótinu lauk tímabilinu á Nordic Golf League. Dagbjartur endaði í 24. sæti Road to Europe stigalistans og Hlynur í 29. sæti. Fimm efstu kylfingar listans unnu sér keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni árið 2027. Dagbjartur tók þátt í 20 mótum á Nordic Golf League á tímabilinu og endaði sex sinnum á meðal tíu efstu. Besti árangur hans var fjórða sætið á Royal Unibrew Championship í Danmörku í maí, en hann var einnig jafn í fjórða sæti á Folksam Championship í Svíþjóð í september. Hlynur lék í 22 mótum og náði þrívegis að enda á meðal tíu efstu. Hans besti árangur var fjórða sætið á Indoor Golf Group Göteborg Open í júní, auk þess sem hann varð sjöundi á ECCO Tour Sand Valley Masters í Póllandi og jafn í tíunda sæti á Folksam Championship. Dagbjartur á enn möguleika á að vinna sér keppnisrétt í gegnum úrtökumót DP World Tour. Hann leikur á öðru stigi úrtökumótanna á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða þar einnig á meðal keppenda.
Eftir Sigríður GR Golf • 14. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson eru á meðal keppenda á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf League. Mótið fer fram hjá Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku dagana 14.-16. október. Fimmtíu efstu kylfingarnir á Road to Europe stigalistanum vinna sér þátttökurétt á lokamótinu. Leikinn er 54 holu höggleikur á þremur keppnisdögum. Dagbjartur mætir til leiks eftir góðan árangur á Destination Gotland Open í Svíþjóð í síðustu viku. Þar lauk hann keppni jafn í sjötta sæti á fjórum höggum undir pari eftir hringi upp á 71, 69 og 72 högg. Þetta var í sjötta skiptið á tímabilinu sem hann endaði á meðal tíu efstu á mótaröðinni. Fimm efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári. Fyrir lokamótið er Dagbjartur í 23. sæti stigalistans með 16.771 stig og Hlynur í 29. sæti með 13.701 stig. Stigamunurinn upp í fimmta sætið er hins vegar meiri en þau 10.000 stig sem sigurvegarinn fær og geta þeir því ekki unnið sér keppnisrétt á HotelPlanner Tour í mótinu. Dagbjartur á enn möguleika á sæti á mótaröðinni, en hann spilaði sig inn á annað stig úrtökumóta DP World Tour með því að enda jafn í sjötta sæti í úrtökumóti í Þýskalandi í september. Annað stig úrtökumóta fer fram á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember, þar sem Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða einnig á meðal keppenda.  Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 12. október 2026
Afsláttakvöld fyrirfélagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur! 66°Norður býður félagsmönnum GR upp á sérstök afsláttarkjör miðvikudagskvöldið næstkomandi þann 14. október í verslun þeirra í Miðhrauni 11, 210 Garðabær. Opið verður á milli kl. 16:00-20:00. Frábært tækifæri til að gera góð kaup á vönduðum útivistarfatnaði á einstaklega hagstæðu verði. 25% afsláttur af fullorðinsvörum 20% afsláttur af barnavörum Sértilboð á golffatnaði Við hlökkum til að taka á móti ykkur!
Eftir Sigríður GR Golf • 8. október 2026
Kæru félagsmenn, frá og með mánudeginum 12. október verður Ánni á Korpúlfsstaðavelli lokað fyrir veturinn. Áfram verður hægt að leika Sjóinn, Landið og Grafarholtsvöll á meðan veður leyfir. Breytingar verða einnig á salernisaðstöðu vallanna: Korpúlfsstaðir: Öll salernisaðstaða lokar frá og með morgundeginum, föstudaginn 9. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 6. teig lokar frá og með deginum í dag, fimmtudaginn 8. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 10. teig og milli 13. og 15. teigs verður opin eitthvað áfram. Lokanirnar eru liður í vetrarundirbúningi vallanna þar sem tæma þarf vatn úr kerfum til að koma í veg fyrir frostskemmdir. Við minnum félagsmenn á að ganga vel um vellina og virða þær lokanir sem kunna að verða vegna frosts. Við minnum einnig félagsmenn á að Thorsvöllur er alltaf opinn og svo eru Trackman hermarnir í Básum opnir sem hér segir – aldeilis hægt að æfa sveifluna þar undir hitara! Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Show More