Íslandsmótið í golfi fram undan – mikilvægar upplýsingar til félagsmanna
Kæru félagsmenn,
nú styttist óðum í Íslandsmótið í golfi sem fram fer á Korpúlfsstaðavelli dagana 5.–9. ágúst. Keppt verður á lykkjunni Sjórinn/Áin og munu bestu kylfingar landsins í karla- og kvennaflokki etja þar kappi um Íslandsmeistaratitlinn.
Með jafn stóru móti fylgja óhjákvæmilega tímabundnar breytingar á aðgengi að vellinum. Korpúlfsstaðavöllur verður því lokaður frá mánudeginum 3. ágúst til og með mánudeginum 10. ágúst. Lokunin nær til allra lykkja vallarins sem og Thorsvallar.
Á meðan lokun stendur yfir er Grafarholtsvöllur opinn og minnum við jafnframt á að þar verða teknir í notkun, frá og með þriðjudeginum 4. ágúst, nýir teigar á brautum 3. og 4. ásamt nýrri 3. flöt, sem við hvetjum félagsmenn til að upplifa.
Við viljum einnig minna á að þegar GSÍ heldur mót á golfvelli félags, eiga félagsmenn þess félags rétt á 50% afslætti af vallargjaldi hjá öðrum golfklúbbum innan vébanda GSÍ, samkvæmt gjaldskrá hvers vallar. Afsláttur þessi gildir frá og með þriðjudeginum 4. ágúst til og með sunnudeginum 9. ágúst. Við hvetjum félagsmenn því til að nýta sér þetta góða tækifæri og heimsækja aðra golfvelli á meðan mótið stendur yfir.
Jafnframt bendum við á Vinavelli Golfklúbbs Reykjavíkur, sem eru tólf talsins, og bjóða félagsmönnum hagstæð leikréttindi víða um land.
Við hlökkum til að taka á móti bestu kylfingum landsins og vonum að félagsmenn sýni mótinu skilning og stuðning á meðan á því stendur. Við þökkum ykkur fyrir þolinmæðina og hvetjum ykkur til að koma og fylgjast með þeim fremstu etja kappi og sýna listir sínar.
Ef þið hafið áhuga á að leggja okkur lið og gerast sjáfboðaliðar þá mælum við með því að þið skráið ykkur hér og takið þátt í mótahladinu með okkur!
Recent Posts










