Þrjátíu og þrír kylfingar leika um tíu laus sæti í Íslandsmótinu
Undankeppni fyrir Íslandsmótið í golfi 2026 fer fram á Korpúlfsstaðavelli í dag, fimmtudaginn 30. júlí.
Keppt verður um tíu síðustu sætin í karlaflokki vegna mikillar skráningar í mótið. Verði kylfingar jafnir í tíunda sæti að loknum hring verður leikinn bráðabani um síðasta lausa sætið. Allir þeir sem skráðir voru í Íslandsmótið í golfi en komust ekki beint inn í mótið fengu boð í undankeppnina.
Þrjátíu og þrír kylfingar eru skráðir til leiks í undankeppnina og verður hart barist um lausu sætin. Þetta er í fjórða skiptið sem undankeppnin fer fram.
Hér má nálgast rástíma og stöðu mótsins.
Ekki verður haldin undankeppni í kvennaflokki þar sem ekki náðist sá lágmarksfjöldi (tíu) sem þarf til þess að undankeppni fari fram. Þess í stað hefur verið útbúinn biðlisti, sem er raðað eftir forgjöf. Komi til forfalla fyrir fyrsta keppnisdag verður haft samband við kylfinga á listanum og þeim boðin þátttaka.
Biðlistinn í kvennaflokki er eftirfarandi:
- Ninna Þórey Björnsdóttir
- María Björk Pálsdóttir
- Sara María Guðmundsdóttir
- María Kristín Elísdóttir
- María Högnadóttir
- Kristín María Valsdóttir
- Katla María Sigurbjörnsdóttir
- Elísabet Þóra Ólafsdóttir
Recent Posts










