Landslið 65+ karla keppir í Finnlandi

Sigríður GR Golf • 1. júlí 2026

Share this article

Landslið karla 65+ á vegum LEK taka þátt í ESGA móti eldri kylfinga sem fram fer 1.-3. júlí 2026 á tveimum af bestu völlum Finnlands, Kytäjä Golf Club. Karlar án forgjafar taka þátt í Super Senior Championship og karlar með forgjöf taka þátt í Super Senior Cup ESGA XXV Super Seniors Team. Spilaður er betri bolti í 2 daga og höggleikur lokadaginn.


Rástímar, staða og úrslit


Lið 65+ án forgjafar:
Brynjar Harðarson, GR
Eggert Eggertsson, NK
Gauti Grétarsson, NK
Jónas Kristjánsson, GR
Kristján V Kristjánsson, GK
Óskar Sæmundsson, GR


Lið 65+ með forgjöf:
Erlingur Arthursson, GHG
Gunnar Árnason, GKG
Hörður Sigurðsson, GR
Ingi Þór Hermannsson, GO
Kolbeinn Kristinsson, GÖ
Þór Geirsson, GO


Liðsstjóri fyrir bæði liðin er Gunnar Árnason.


Við hjá Golklúbbi Reykjavíkur eigum fjóra fulltrúa í liðinum tveimur og erum ákaflega stolt af því. Við óskum þeim góðs gengis - áfram Ísland!


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 1. júlí 2026
Kæru kylfingar Eins og áður hefur verið auglýst verða 1. og 2. brautin í Grafarholti lokaðar á morgun, fimmtudaginn 2. júlí til kl. 18:00 þar sem verið er að setja sand í nýja glompur 1. brautar. Til þess að hægt sé að ferja sandinn á svæðið þurfa vinnuvélar og tæki að komast um svæðið. Til að gæta sem fyllsta öryggis verður aðkoma og bílastæði við Bása lokuð á meðan á vinnunni stendur. Við bendum þeim sem ætla að fara og æfa sveifluna í Básum að þar er opið samkvæmt opnunartíma og hægt að leggja á bílastæðinu við skálann í Grafarholti og neðra bílastæðinu, sem er vinstra megin þegar keyrt er upp að skálanum.
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Kæru félagar, við neyðumst til að taka útaf nýju 1.flötinni okkar til að hvíla hana fyrir meistaramótið. Álagið á nýtt grasið er farið að láta á sjá, svo við ætlum að hvíla svæðið fram að móti og vonum við að félagsmenn sýni því skilning. Kv. Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Haraldur Franklín Magnús, GR og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verða báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið í dag, þar sem leikið verður um sæti á hinu sögufræga risamóti. Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí. Íslensku kylfingarnir leika ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín verður á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni leikur á West Lancashire á Englandi. Báðir vellirnir eru krefjandi og útlit er fyrir erfiðar aðstæður, þar sem væta og vindur gætu sett mark sitt á daginn. Haraldur hefur leik klukkan 07:30 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 13:15. Hann leikur með Skotanum Calum Fyfe og Bandaríkjamanninum John Vogelpohl. Hér má fylgjast með stöðu mótanna Haraldur þekkir vel til risamótanna. Hann varð árið 2018 fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á risamóti þegar hann tók þátt í Opna mótinu á Carnoustie. Hann komst þá inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót og freistar þess nú að endurtaka leikinn, eftir að hafa tryggt sér sæti í lokaúrtökumótinu í gegnum undankeppni. Haraldur sagði fyrir mótið að Dundonald væri „þrusuerfiður“ völlur og að þolinmæði yrði lykilatriði. Í aðstæðum sem þessum snýst verkefnið ekki endilega um að sækja á allar holur, heldur að halda boltanum í leik, taka skynsamlegar ákvarðanir og safna nógu mörgum pörum. Á Dundonald vellinum verða þekkt nöfn í hópnum, þar á meðal Robert Rock, Angel Hidalgo og margir sterkir ungir kylfingar. Framundan er langur og krefjandi dagur hjá þeim Haraldi Franklín og Gunnlaugi Árna. Til að komast alla leið þurfa þeir að vera í hópi fimm efstu kylfinga á sínum velli eftir 36 holur og mun því hvert högg skipta miklu máli.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
Kæru félagsmenn og aðrir kylfingar, að gefnu tilefni, því miður, viljum við minna alla félagsmenn og gesti á að sýna fyllstu aðgát ef og/eða þegar slegið er í nágrenni við vallarstarfsmenn. Vallarstarfsmenn leggja sig fram á hverjum degi við að halda vellinum okkar í sem besta ástandi fyrir kylfinga. Því biðjum við alla kylfinga að: að bíða með högg ef starfsmaður er innan höggfæris að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi tekið eftir kylfingnum og gefið merki þess að halda leik áfram að kalla FORE ef að höggið sefnir í átt að örðum, hvort sem það er vallarstarfsmaður eða annar kylfingur  Hjálpumst að við að tryggja öryggi allra við leik í okkar frábæru íþrótt og útiveru. Það er á allra ábyrgð.
Eftir Sigríður GR Golf 28. júní 2026
Yfir 190 manns tóku þátt í Opna Stjörnugrís 2026, sem leikið var á Grafarholtsvelli í gær, laugardaginn 27. júní. Veðrið var kannski ekki upp á sitt besta, rigning var um morgunin og frekar kalt, þegar það hætti að rigna þá hitnaði aðeins í veðri en kylfingar létu það ekki stoppa sig - frábært skor hjá mörgum hverjum. Ræst var út frá kl.8:15 til 15:30. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, bolta, tí, handklæði ásamt öskju með flatargafli og tveimur boltamerkjum. Jón Eysteinsson kom inn á besta skori mótsins, 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarsins. Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi: Punktakeppni: Sindri Þór Kristjánsson, 45 punktar Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 punktar Rakel Reynisdóttir, 39 punktar (betri seinni 9) Kjartan Guðjónsson, 39 punktar Hlynur Már Heimisson, 38 punktar Besta skor mótsins: Jón Eysteinsson, 70 högg Nándarverðlaun: 2.braut – Líney Sveinsdóttir 189 cm. 6.braut – Erna Steina Eysteinsdóttir 70 cm. 11.braut – Kristjana S. Þorsteinsdóttir 1 cm. 17.braut – Kristín Markúsdóttir 78 cm. Lengsta drive 3.braut kk. – Tómas Frostason Lengsta drive 3.braut kvk. – Margrét Jóna Eysteinsdóttir Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt er að nálgast vinninga til Stjörnugrís hf., Saltvík, 162 Kjalarnes. Opnunartími er mánud. - fimmtud. frá kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 - 15:15. Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Stjörnugrís hf.
Eftir Sigríður GR Golf 25. júní 2026
Kæru kylfingar við viljum upplýsa ykkur um að 1. og 2. brautin í Grafarholti verða lokaðar fimmtudaginn 2. júlí næstkomandi þar sem vinnuvélar og vallarstarfsmenn verða í óðaönn að setja sand í glompur og gera þær fulltilbúnar til leiks . Golfkveðja frá Vallarsviði
Eftir Sigríður GR Golf 24. júní 2026
Íslandsmót golfklúbba í aldursflokknum 14 ára og yngri fer fram á Selsvelli á Flúðum dagana 24.-26. júní. Keppt er í stúlkna- og drengjaflokki. Golfklúbbur Reykjavíkur er með tvær sveitir á svæðinu, skipaðar ungum og efnilegum kylfingum. Í flokki drengja 14 ára og yngri erum við með tvær fimm drengja sveitir. Hér má fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum mótsins Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.
Eftir Sigríður GR Golf 24. júní 2026
Íslandsmót golfklúbba í aldursflokkum 16- og 18 ára og yngri fer fram á Garðavelli á Akranesi dagana 24.-26. júní. Keppt er í drengjaflokki 16 ára og yngri og í bæði stúlkna- og drengjaflokki 18 ára og yngri. Frábær skráning hefur verið í mótin, en tæplega þrjátíu sveitir munu leika um Íslandsmeistaratitlana þrjá á Akranesi næstu daga. Golfklúbbur Reykjavíkur er með fjórar sveitir á svæðinu, allt skipað ungum og efnilegum kylfingum. Í drengjaflokki erum við með sex drengja sveit í flokknum drengir yngri en 16 ára og fjögurra drengja sveit í flokknum drengir yngri en 18 ára. Í stúlknaflokki erum við með tvær sveitir, annars vegar fimm stúlkna sveit og fjögurra stúlkna sveit, báðar sveitir keppa í flokknum stúlkur 18 ára og yngri. Hér má fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum mótsins  Vegna mikillar þátttöku verður golf leikið frá morgni til kvölds alla mótsdagana. Fjöldi keppenda, liðsstjóra og foreldra mun skapa líf og fjör á vellinum þar sem framtíðarstjörnur fá tækifæri til að etja kappi.
Eftir Sigríður GR Golf 22. júní 2026
Meistaramót Golfklúbbs Reykjavíkur 2026 fer fram dagana 5. – 11. júlí næstkomandi. Keppni fer fram á Grafarholtsvelli og á Korpúlfsstaðarvelli, Sjórinn/Áin, líkt og undanfarin ár. Sunnudaginn 5. júlí til þriðjudagsins 7. júlí leika allir barna- og unglingaflokkar, 50 ára og eldri karlar í forgjafarflokkum 10,5 og hærra, 50 ára og eldri konur í forgjafarflokkum 16,5 og hærra. Þá leika einnig 3. og 4. flokkur karla og kvenna og 5. flokkur karla. Þessir flokkar leika þriggja daga mót eða 54 holur og leika allir höggleiksafbrigði (hámark 10 högg á holu). Börn 12 ára og yngri með forgjöf 30,1 og hærra spila 3 x 9 holur á Landinu frá sunnudegi til þriðjudags. Miðvikudaginn 8. júlí til laugardagsins 11. júlí leika karlar 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-10,4 og konur 50 -64 ára í forgjafarflokk 0-16,4, 2. flokkur karla og kvenna, 1. flokkur karla og kvenna og Meistaraflokkur karla og kvenna. Þessir flokkar leika fjögurra daga mót eða 72 holur. Nánari skiptingu flokka og áætlaðir rástímar verða birtir undir mótinu á næstu dögum. Keppendur 18 ára og yngri leika í sínum aldursflokki nema að þeir hafi meistaraflokksforgjöf þá er þeim heimilt að leika í Meistaraflokki. Skráning í mótið hefst miðvikudaginn 24. júní kl. 10:00 og fer fram í mótaskrá á Golfbox . Skráningu lýkur fimmtudaginn 2. júlí kl.12:00 – greiða þarf mótsgjald við skráningu. Innifalið í mótsgjaldi eru veitingar og skemmtun í lokahófi á laugardagskvöldi og á þriðjudagskvöldið 7. júlí fyrir börn- og unglinga. Athugið! Hámarksfjöldi í hvern flokk er 90 manns, ef full skráning verður ekki í alla flokka er hægt að fjölga í öðrum flokkum. Raðað er inn í flokka eftir skráningartíma. Sú forgjöf sem kylfingar eru með á lokaskráningardegi, gildir í mótinu. Mótsgjöld: 4ra daga mót, 72 holur = 14.000 kr. 3ja daga mót, 54 holur = 13.000 kr. Börn og unglingar B&U 3ja daga mót, 54 holur = 9.700 B&U 3ja daga mót, 27 holur = 5.100 Allar upplýsingar um Meistaramót, áætlaða rástíma og skiptingu flokka, má finna hér á vefnum . Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót. 9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag.
Show More