Meistaramót GR 2026 - úrslit í barna- og unglingaflokkum
Lokahóf og verðlaunaafhending barna- og unglingaflokkum Meistaramóts GR 2026 fór fram á Korpúlfsstöðum í kvöld.
Eftir þriggja daga keppni við mismunandi veðuraðstæður luku yngstu kylfingar klúbbsins sínu Meistaramóti í dag. Fyrstu tveir dagarnir voru fínir veðurlega séð - sól, hiti og töluverður vindur á sunnudaginn, skýjað, hiti og gjóla í gær, dagurinn í dag var hinsvegar ansi krefjandi með úrhellisrigningu og miklum vindi.
Keppendur mættu svo á lokahóf á Korpúlfsstöðum í kvöld til að gleðjast og fagna saman ásamt foreldrum og aðstandendum.
Helstu úrslit barna- og unglingaflokka urðu þessi:
12 ára og yngri hnokkar fgj. 30,1-54
- Ásdór Þór Gunnarsson, 140 högg
- Daði Hrafn Ásgeirsson, 144 högg
- Rúrik Ívarsson, 161 högg
12 ára og yngri hnátur. fgj. 30,1-54
- Anna Lind Valdimarsdóttir, 207 högg
- Vala Arnarsdóttir, 217 högg
- Bryndís Vaka Halldórsdóttir, 228 högg
12 ára og yngri hnokkar fgj. 0-30
- Ísak Hrafn Jónasson, 223 högg
- Styrmir Ragnarsson, 241 högg
- Sigurður Markús Sigurðarson, 252 högg
13-14 ára drengir fgj. 0-30
- Pétur Franklín Atlason, 244 högg
- Gunnar Ágúst Snæland, 260 högg
- Kári Hrafn Viðarsson, 263 högg
15-18 ára piltar fgj. 0-30
- Birgir Steinn Ottósson, 214 högg
- Sigurður Guðni Snæland, 234 högg
- Ingimar Jónasson, 236 högg
15-18 ára stúlkur fgj. 0-30
- Svandís Eva Brynjarsdóttir, 257 högg
- Katla María Sigurbjörnsdóttir, 269 högg
- Hjördís Jónasdóttir, 274 högg
Myndir frá þriggja daga mótinu má finna inn á www.golfmyndir.is eða með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan:
Önnur úrslit úr þriggja daga mótinu má finna á hlekknum hér fyrir neðan:
Við þökkum öllum þeim börnum og unglingum sem tóku þátt í Meistaramóti kærlega fyrir frábæra keppni við fjölbreyttar aðstæður og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur.
Golfklúbbur Reykjavíkur
Recent Posts









