Opna FootJoy 2026 - skráning í fullum gangi

Sigríður GR Golf • 14. júlí 2026

Share this article

Opna FootJoy 2026 verður haldið á Grafarholtsvelli sunnudaginn 19. júlí. Ræst verður út frá kl. 8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna ásamt besta skori í höggleik karla og kvenna. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut karla og kvenna.


Skráning í mótið fer fram í mótaskrá á Golfbox - skráningin er í fullum gangi og lokar laugardaginn 18. júlí kl. 19:50 - mótsgjald er kr. 7.250 og greiðist við skráningu.


Glæsileg verðlaun verða veitt, að vanda, fyrir þrjá efstu í punktakeppni karla og kvenna auk verðlauna fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki.


Punktakeppni karla: 

  1. sæti: FJ fatapakki (2x peysur, 2x bolir og jakki) og FJ bakpoki
  2. sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar
  3. sæti: FJ Chill-out golfpeysa og FJ skópoki


Punktakeppni kvenna: 

  1. sæti: FJ fatapakki (2x peysur, 2x bolir og jakki) og FJ bakpoki
  2. sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar
  3. sæti: FJ Chill golfpeysa og FJ skópoki


Besta skor karla: FJ Pro SL golfskór og dúsín af Titleist Pro V1.


Besta skor kvenna: FJ Pro SL golfskór og dúsín af Titleist Pro V1x.


Nándarverðlaun:
2.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa
6.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa
11.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa
17.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa


Lengsta teighögg á 3. braut karla: 
Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása


Lengsta teighögg á 3. braut kvenna: 

Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása


Teiggjöf 
Allir keppendur fá afhenta teiggjöf áður en leikur hefst.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 28. ágúst 2026
Vellirnir okkar skarta sínu fegursta þessa dagana og mikil vinna hefur verið lögð í að hafa þá í eins góðu ástandi og raun ber vitni. Því miður eru þeir þó farnir að láta verulega á sjá þar sem of margir kylfingar ganga í burtu án þess að laga eftir sig bolta- og kylfuför. Vallarstarfsmönnum hefur fækkað verulega þar sem sumarstarfsskólafólkið okkar er farið í vetrarvinnuna sína. Nú þurfum við öll að leggjast á eitt! Við biðjum alla kylfinga um að gera það að sjálfsögðum hluta leiksins að laga boltaför á flötum og ganga frá torfusneplum í kylfuför. Það tekur aðeins örfáar sekúndur en skiptir gríðarlega miklu máli fyrir ástand vallanna – og upplifun þeirra sem á eftir koma. Púttgrínið við Korpu er eingöngu fyrir pútt! Sérstaklega viljum við vekja athygli á umgengni um nýja og glæsilega púttgrínið okkar við Korpu. Þar hefur því miður orðið vart við skemmdir sem eiga alls ekki að sjást á púttflöt. Á púttgríninu við Korpu má eingöngu pútta – það er ekki vippflöt! Þar hafa fundist stór og ljót kylfuför sem virðast annaðhvort vera eftir vipp eða högg inn á flötina, eða eftir að pútter hefur verið slegið niður í grasið. Slík umgengni getur valdið verulegum skemmdum á viðkvæmu yfirborðinu. Vallarstarfsfólkið okkar leggur mikla vinnu í að skapa okkur þær frábæru aðstæður sem við njótum. Við kylfingarnir berum síðan ábyrgð á að ganga vel um og skila völlunum í góðu ástandi til þeirra sem á eftir okkur koma. Lögum boltaförin. Göngum frá kylfuförunum. Berum virðingu fyrir æfingasvæðunum. Völlurinn er okkar allra – göngum um hann eins og við viljum koma að honum ❤️
Eftir Sigríður GR Golf 27. ágúst 2026
Við hlökkum til að sjá ykkur á glæsilegu haustmóti GR kvenna í Grafarholtinu! Skráning hefst föstudaginn 4. september kl. 12 í Golfbox. Þegar skráning hefur verið gerð þarf að ganga frá greiðslu mótsgjalds 9.000 kr með millifærslu 0370-22-045208 kt. 230781-3899. Mæting kl. 09:30 Þátttakendur byrja á að skrá sig inn í forstofu klúbbhússins Morgunverðarhlaðborð í Klúbbhúsinu frá kl. 09:30–10:00. Gengið á teiga kl. 10:00 Ræsing kl. 10:30 Á sumum teigum slær seinna holl kl. 10:40. Verið stundvís og passið vel upp á leikhraða. Keppni og verðlaun • Keppt verður í punktakeppni og höggleik • Sigurvegari í höggleik verður krýnd Sumarmeistari GR kvenna 2026 • Verðlaun fyrir 1.–3. sæti í punktakeppni • Nándarverðlaun á öllum par 3 holum • Dregið verður úr skorkortum og allir þátttakendur fá teiggjöf Skor í GolfBox gilda Skorinu verður læst 30 mínútum eftir að síðasta kona kemur í hús og ekki verður hægt að breyta skorinu eftir það. Mikilvægt er því að fara vel yfir skorkortið strax eftir hring. Að loknum hring Smáréttahlaðborð í Klúbbhúsinu, verðlaunaafhending og skemmtikraftur kemur svo og slær botninn í dagskránna
Eftir Sigríður GR Golf 27. ágúst 2026
Lokamót Unglingamótaraðarinnar og Golf 14 fara fram helgina 5.-6. september. Keppt verður á Korpúlfsstaðavelli hjá Golfklúbbi Reykjavíkur og á Urriðavelli og Ljúflingi hjá Golfklúbbnum Oddi. N1 Unglingamót á Korpúlfsstaðavelli N1 Unglingamót 15-18 ára er sjöunda og síðasta mót ársins á Unglingamótaröð GSÍ. Mótið fer fram á Korpúlfsstaðavelli og verða leiknar 54 holur á tveimur dögum. Keppt verður í höggleik án forgjafar á lykkjunum Sjórinn og Áin. Leiknar verða 36 holur á laugardeginum og verða allir keppendur ræstir samtímis af öllum teigum klukkan 8:00 og aftur klukkan 14:00. Sömu ráshópar halda sér í báðum umferðunum. Að 36 holum loknum verður keppendum fækkað um 30 prósent. Þau 70 prósent kylfinga sem eru á besta skorinu í hvorum flokki komast áfram í lokaumferðina á sunnudeginum. Þá verður ræst út frá klukkan 8:00 og leikið eftir skori. Skráningu í mótið lýkur miðvikudaginn 2. september klukkan 23:59. Upplýsingar og skráning í N1 Unglingamótið Golf 14 á Urriðavelli Lokamót Golf 14 er 66°Norður mótið hjá Golfklúbbnum Oddi. Mótinu er skipt á milli Urriðavallar og Ljúflings eftir aldri og forgjöf kylfinga. Á Urriðavelli verður leikinn höggleikur án forgjafar. Leiknar verða 36 holur, 18 holur hvorn keppnisdag, og verður ræst út af fyrsta teig frá klukkan 8:00 til 14:00. Keppt verður í stúlkna- og drengjaflokkum 12 ára og yngri og 14 ára og yngri. Hámarksforgjöf til þátttöku er 36,0 og hámarksfjöldi keppenda er 96. Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum flokkum og fer verðlaunaafhending fram að loknum leik hvers aldursflokks á sunnudeginum. Upplýsingar og skráning í mótið á Urriðavelli Golf 14 á Ljúflingi Á Ljúflingi verður keppt í stúlkna- og drengjaflokkum 10 ára og yngri, 12 ára og yngri og 14 ára og yngri. Mótið er ætlað kylfingum með forgjöf 36,1 eða hærri. Allir flokkar leika níu holur hvorn keppnisdag, samtals 18 holur. Leikið verður höggleiksafbrigði án forgjafar þar sem hámarksskor á hverri holu er tíu högg. Mótið gildir ekki til forgjafar. Hámarksfjöldi keppenda er 108. Markmiðið er fyrst og fremst að hafa gaman, læra leikinn og öðlast reynslu af þátttöku í golfmótum.  Upplýsingar og skráning í mótið á Ljúflingi
Eftir Sigríður GR Golf 26. ágúst 2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endann og við breytum opnunartíma golfverslana. Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar. Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september virka daga frá kl. 09:00-18:00 og um helgar 08:00-18:00. Korpa verður 3x 9 holur frá og með 7. september Skráningum á Korpunni veðrur breytt í 3x 9 holu lykkur frá og með mánudeginum 7. september. Þeir félagsmenn sem hafa áhuga á að leika 18 holur þurfa þá að skrá sig aftur í rástíma á seinni níu. Við höfum gert ráðstafanir varðandi "token" á hvern kylfing þegar breytingin tekur gildi. Skrifstofa klúbbsins er opin alla virka daga frá kl. 09:00-16:00 og geta félagsmenn alltaf leitað þangað ef eitthvað er. Klúbbhús veitingahús lokar frá og með deginum í dag kl. 22:30 og eldhúsinu lokar klukkutíma fyrr eða kl. 21:30. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf 24. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í 1. deild kvenna 50 ára og eldri fór fram á Hólmsvelli í Leiru dagana 20.-22. ágúst. Átta lið tóku þátt í mótinu. Golfklúbbur Reykjavíkur varð Íslandsmeistari eftir 3-2 sigur gegn Nesklúbbnum í spennandi úrslitaleik. Sveit GR vann tvo af þremur leikjum sínum í B-riðli og tryggði sér sæti í undanúrslitum. Þar hafði sveitin betur gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keilis, 3.5-1.5. Í úrslitaleiknum mætti GR sveit NK, sem sigraði GKG í undanúrslitum. Nesklúbburinn vann fjórmenningsleik úrslitanna þegar Ágúst Dúa Jónsdóttir og Þyrí Valdimarsdóttir lögðu Signýju Mörtu Böðvarsdóttur og Ástu Óskarsdóttur. Írunn Ketilsdóttir svaraði fyrir GR með 6/4 sigri gegn Huldu Bjarnadóttur. Júlíana Guðmundsdóttir tryggði GR annað stig gegn Sigrúnu Eddu Jónsdóttur en sú viðureign fór í bráðabana þar sem Júlína tryggði GR skvísum stigið mikilvæga. Elsa Nielsen vann Steinunni Sæmundsdóttur, 7/6, og jafnaði þar með viðureignina fyrir Nesklúbbinn. Sigríður Kristinsdóttir tryggði GR Íslandsmeistaratitilinn með 5/3 sigri gegn Guðrúnu Valdimarsdóttur. Æsispennandi úrslitaleikur í vægast sagt haustveðri á Leirunni. Lokastaðan í 1. deild kvenna 50+ Golfklúbbur Reykjavíkur Nesklúbburinn Golfklúbburinn Keilir Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar Golfklúbburinn Oddur Golfklúbbur Mosfellsbæjar Golfklúbburinn Leynir Golfklúbbur Vestmannaeyja *Golfklúbbur Vestmannaeyja fellur í 2. deild. Smelltu hér fyrir stöðu, leiki og öll úrslit úr 1. deild kvenna 50+.
Eftir Sigríður GR Golf 23. ágúst 2026
Opna Aukakrónur var leikið í frábæru veðri á Korpúlfsstaðavelli í dag, smá skúrir voru fyrst í morgun en annars blíða það sem eftir var dag og sú gula skein líka skært. Ræst var út frá kl. 8:00 og voru tæplega tvöhundruð kylfingar skráðir til leiks. Keppendur fengu afhentar teiggjafir – handklæði, flatarmerki, típoka, Titleist bolta og keppendur fengu einnig upphitunarbolta í Básum fyrir leik ásamt því að fá hamborgara og gos hjá Klúbbhús að leik loknum. Keppt var í punktakeppni karla og kvenna auk þess sem veitt eru verðlaun fyrir besta skor í báðum flokkum. Ragnhildur Kristinsdóttir kom inn á besta skori í kvennaflokki en hún lauk leik á 67 höggum eða 5 höggum undir pari vallarins og sigrar höggleik í kvennaflokki. Þrír kylfingar í karlaflokki luku leik á besta skori dagsins í þeim flokki en hann Einar Bjarni Helgason var á betri síðustu 6 holurnar, lauk leik á 69 höggum eða 3 höggum undir pari vallarins og sigraði höggleik í karlaflokki. Landsbankinn mun draga út þau útdráttarverðlaun sem eru til vinnings og verður póstur sendur keppendum með tilkynningu um þá sem hljóta vinninga. Verðlaun eru veitt fyrir 14 efstu í punktakeppni karla og kvenna og má sjá úrslitin hér fyrir neðan. Karlar – punktakeppni: Gunnar Blöndahl Guðmundsson, 41 punktar (betri seinni 9) Alexander Baldvin Sigurðsson, 41 punktar Viggó Pétur Pétursson, 39 punktar (betri seinni 9) Bjarni Anton Theódórsson, 39 punktar Einar Karl Jónsson, 38 punktar (betri seinni 9) Victor Ingvi Jacobsen, 38 punktar (betri seinni 9) Sverrir Mar Smárason, 38 punktar (betri seinni 9) Arnar Bentsson, 38 punktar Methúsalem HIlmarsson, 37 punktar (betri síðustu 6) Hlynur Ingólfsson, 37 punktar (betri síðasta hola) Páll Daði Ásgeirsson, 37 punktar (betri seinni 9) Sigurþór Skúli Sigurþórsson, 37 punktar (betri seinni 9) Patrekur Nordquist Ragnarsson, 37 punktar (betri síðustu 3) Ólafur Már Óskarsson, 37 punktar Konur – punktakeppni Sigríður Kristjánsdóttir, 43 punktar Kolbrún Klara Gísladóttir, 39 punktar Ólöf Hildur Jónsdóttir, 37 puntkar (betri seinni 9) Hrefna Hlín Karlsdóttir, 37 punktar (betri síðustu 6) Eva Stefánsdóttir, 37 punktar Guðný Ólöf Gunnarsdóttir, 36 punktar Guðný Sif Gunnarsdóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Elín María Sigurðardóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Harpa Reynisdóttir, 33 punktar (betri seinni 9) Helena Stefánsdóttir, 33 punktar Elín Helena Bjarnadóttir, 32 punktar Magdalena Díana Adamsdóttir, 31 punktar (betri seinni 9) Steinunn Óskarsdóttir, 31 punktar (betri síðustu 6) Þórunn Elfa Bjarkadóttir, 31 punktar (betri seinni 9) Nándarverðlaun: 3. braut – Magnús Böðvarsson, 131 cm. 6. braut – Ólafur Már Óskarsson, 83 cm. 9. braut – Guðni Grétar Einarsson, 49 cm. 13. braut - Harpa Reynisdóttir, 61 cm. 17. braut – Arnór Tjörvi Þórsson, 18 cm. Útdráttarverðlaun: Magnús Viðar Jónsson - 100.000 kr. gjafabréf frá Úrval Útsýn upp í golfferð til Alicante Dagbjört Erla Kjartansdóttir - Gisting í deluxe fyrir 2 með morgunverði á Hótel Rangá Birkir Örn Björnsson - 10.000 kr. gjafabréf frá Orkunni Helga Þorvaldsdóttir - 10.000 kr. gjafabréf frá Fjallkonunni Sveinn Ragnar Sigurðsson - 10.000 kt. gjafabréf frá Kaupféalgi Vestur-Húnvetninga Víðir Blöndal - 8.000 kr. gjafabréf frá Neó Pizza Örn Árnason - Gaeta Gelato gjafabréf fyrir 2 Auður Reynisdóttir - Gaeta Gelato gjafabréf fyrir 2 Við þökkum keppendum öllum fyrir þátttökuna og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur. Landsbankinn mun hafa samband við vinningshafa Aukakróna og sjá um að millifæra þær. Aðra vinninga er hægt að vitja á skrifstofu GR, 2. hæð á Korpúlfsstöðum. Ath! vinninga þarf að sækja fyrir 30. september næstkomandi. Golfklúbbur Reykjavíkur í samstarfi við Aukakrónur Landsbankans
Eftir Sigríður GR Golf 20. ágúst 2026
September nálgast óðfluga, daginn farið að stytta og haustrútínan að hefjast hjá skólafólkinu okkar. Það þýðir líka eitt, golftímbilið er farið að styttast í annan endan og við breytum opnunartíma golfverslana. Opnunartími golfverslana er núna sem hér segir frá kl. 08:00-19:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar. Opnunartími golfverslana verður frá og með 1. september frá kl. 09:00-18:00 virka daga og frá kl. 08:00-18:00 um helgar.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót unglinga í höggleik fara fram dagana 20.-22. ágúst. Keppt verður á tveimur völlum, en kylfingar á aldrinum 15-18 ára leika á Hvaleyrarvelli hjá Golfklúbbnum Keili og kylfingar 14 ára og yngri á Þorláksvelli hjá Golfklúbbi Þorlákshafnar. Keppt verður í átta aldursflokkum og leikinn höggleikur án forgjafar. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum beggja móta í gegnum hlekki hér að neðan. Íslandsmót unglinga 15-18 ára Mót kylfinga á aldrinum 15-18 ára fer fram á Hvaleyrarvelli. Leiknar verða 54 holur, 18 holur á hverjum keppnisdegi. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 15-16 ára Stúlknaflokki 17-18 ára Piltaflokki 15-16 ára Piltaflokki 17-18 ára Að loknum 36 holum verður keppendum fækkað þannig að 70% þeirra kylfinga sem eru með besta skorið í hverjum flokki halda áfram keppni á lokahringnum. Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 15-18 ára Íslandsmót unglinga 14 ára og yngri Golf 14 kylfingarnir leika á Þorláksvelli. Í flokki 12 ára og yngri verða leiknar 27 holur, níu holur á hverjum keppnisdegi. Í flokki 13-14 ára verða leiknar 54 holur, 18 holur á dag. Keppt verður í fjórum flokkum: Stúlknaflokki 12 ára og yngri Piltaflokki 12 ára og yngri Stúlknaflokki 13-14 ára Piltaflokki 13-14 ára Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit í flokki 14 ára og yngri Veitt verða verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í öllum átta flokkunum. Verði tveir eða fleiri keppendur jafnir í efsta sæti verður leikinn bráðabani um Íslandsmeistaratitilinn.
Eftir Sigríður GR Golf 19. ágúst 2026
Íslandsmót golfklúbba 2026 í flokki kylfinga 50 ára og eldri fara fram dagana 20.-22. ágúst á sex stöðum víðs vegar um landið. Keppt verður í fjórum deildum karla og tveimur deildum kvenna. Mótin eru hluti af Íslandsmótum golfklúbba þar sem kylfingar keppa fyrir hönd síns golfklúbbs í liðakeppni. Keilir er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild kvenna 50 ára og eldri eftir 3-2 sigur gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitaleik mótsins í Vestmannaeyjum árið 2025. Golfklúbbur Reykjavíkur er ríkjandi Íslandsmeistari í 1. deild karla 50 ára og eldri. GR hafði betur gegn Golfklúbbnum Setbergi, 3-2, í úrslitaleik á Hólmsvelli í Leiru í fyrra. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum úr öllum sex deildunum hér fyrir neðan. 1. deild kvenna – 50+, Gs - GOLFKLÚBBUR sUÐURNESJA Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 1. deild karla – 50+, GÖ - GOLFKLÚBBUR ÖNDVERÐANESS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild kvenna – 50+, GVG - GOLFKLÚBBUR VESTARR Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 2. deild karla – 50+, GSG - GOLFKLÚBBUR SANDGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 3. deild karla – 50+, GHG - GOLFKLÚBBUR HVERAGERÐIS Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit 4. deild karla – 50+, GHD - GOLFKLÚBBURINN HAMAR DALVÍK Smelltu hér fyrir rástíma, stöðu og úrslit
Eftir Sigríður GR Golf 18. ágúst 2026
Mikið áhorf mældist á útsendingar RÚV frá Íslandsmótinu í golfi 2026, sem fram fór á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Uppsafnað áhorf yfir þrjá útsendingardaga mældist 18,3% og náðu útsendingarnar til tæplega 50 þúsund áhorfenda á aldrinum 12-80 ára. Áhorfið jókst um 26% frá Íslandsmótinu 2025, þegar uppsafnað áhorf mældist 14,5%. Fjöldi áhorfenda jókst jafnframt úr rúmlega 38 þúsund í um 49 þúsund. Áhorf á Íslandsmótið hefur nú rúmlega tvöfaldast frá árinu 2021, þegar 23.850 manns fylgdust með mótinu. Áhorfið jókst jafnt og þétt eftir því sem leið á mótið. Um 17 þúsund manns horfðu á útsendinguna á föstudeginum, 26 þúsund á laugardeginum og 36 þúsund á sunnudeginum. Karlar horfðu aðeins meira en konur. Uppsafnað áhorf meðal karla mældist 19,4%, eða um 26 þúsund áhorfendur, samanborið við 17,3% og um 23 þúsund áhorfendur meðal kvenna. Á höfuðborgarsvæðinu mældist uppsafnað áhorf 19%, en 17,1% á landsbyggðinni. Mikill áhugi á heimasíðu mótsins Nýr skor- og upplýsingavefur Íslandsmótsins fékk einnig frábærar viðtökur. Alls heimsóttu 22.370 notendur skorvefinn á keppnisdögunum fjórum og um 10 þúsund virkir notendur fylgdust þar með mótinu daglega. Samanlagt voru síðuflettingarnar 553.163 og meðalheimsóknin var rúmar tólf mínútur. Mikill áhugi var á mótinu, bæði í beinni útsendingu RÚV og meðal þeirra sem fylgdust með stöðunni í rauntíma á netinu. Hér má nálgast heimasíðu mótsins og alla tölfræði. Dagbjartur Sigurbrandsson og Guðrún Brá Björgvinsdóttir stóðu uppi sem Íslandsmeistarar í golfi annað árið í röð. Metnaðarfull umgjörð mótsins, umfangsmikil útsending RÚV og frammistaða keppenda skiluðu sér í mesta áhorfi sem mælst hefur á Íslandsmótinu undanfarin ár. 
Show More