Opnun 1. brautar Grafarholts laugardaginn 6. júní
Kæru félagar!
Eins og þið hafið séð, þá hafa staðið yfir framkvæmdir við endurbætta 1. braut í Grafarholti. Framkvæmdir hófust í októbermánuði 2024 við mótun nýrrar flatar. Síðastliðið vor var sáð í flötina og forflöt og hefur það svæði fengið að dafna síðan þá. Síðastliðið haust hófust framkvæmdir við brautina sjálfa, allt frá veg að nýju forflötinni, með mikilli jarðvegsmótun, ísetningu vökvunarkerfis o.s.frv. Frá því í vor hefur vinnan haldið áfram, með gerð glompa og nú síðast tyrfingu á brautinni. Tyrfingin tókst með eindæmum vel.
Brautin er að okkar mati glæsileg, þar sem mikil vinna og metnaður hafa verið lögð í öll smáatriði. Brautin var hönnuð af Tom McKenzie. Lykilmenn í framkvæmdinni hafa verið vallarteymið okkar í Grafarholti, þeir Darren Lee Farley og Bjarni Grétar Sigurðsson ásamt Ellerti Þórarinssyni, yfirmanni framkvæmda og Styrmi Guðmundssyni, forstöðumanni vallarsviðs. Ekki má gleyma verktökunum, en þar ber sérstaklega að nefna Steindór Eiðsson á jarðýtunni, Sveinn Steindórsson gröfumann og Chris Elrick frá Skotlandi, sem tók að sér lokafrágang á glompunum, sem eru glæsilegar á að líta. Við færum þessum hópi, sem og öðrum starfsmönnum sem að hafa komið, sérstakar þakkir.
Fyrstu vikurnar verða brautarglompurnar ekki í leik, þær eru enn sandlausar og merktar grund í aðgerð. Við biðjum kylfinga sérstaklega um að að gæta sérstaklega að því, þegar boltar eru sóttir, að ganga varlega um kanta glompanna, þar sem þeir eru einkar viðkvæmir og þurfa lengri tíma til að styrkjast og gróa. Eins og þið sjáið á myndum, var við gerð glompanna notað sérstakt einangrunarlag í jarðveginn sem á að koma í veg fyrir að steinar komi upp í glompurnar vegna frostlyftinga.
Lengd brautarinnar
- Teigur 63 – 335 metrar
- Teigur 57 – 319 metrar
- Teigur 52 – 295 metrar
- Teigur 46 – 287 metrar
Við opnun 1. brautar í Grafarholti verður jafnframt 2. braut opnuð og verður Grafarholtsvöllur því leikinn sem 18 holu völlur frá og með næstkomandi laugardegi.
Stjórn og starfsmenn GR þakka félagsmönnum fyrir þá þolinmæði og stuðning sem sýndur hefur verið meðan á framkvæmdunum hefur staðið. Við hlökkum til að opna þessa glæsilegu nýju 1. braut og taka á móti kylfingum á laugardaginn kemur.
Stjórn og starfsmenn GR
Recent Posts
















