LEK-mótaröðin - úrslit úr mótum eitt og tvö

Sigríður GR Golf • 4. júní 2026

Share this article

Tvö fyrstu mótin í LEK-mótaröð eldri kylfinga eru nú að baki, en mótaröðin samanstendur af sjö spennandi mótum víðs vegar um landið.


Byrjun sumars hefur sannarlega reynt á keppendur. Í Þorlákshöfn tók grenjandi rigning á móti kylfingum og í Grindavík voru það hvassir vindar sem settu svip sinn á keppnina. Þrátt fyrir krefjandi aðstæður hafa þátttakendur sýnt mikla seiglu, keppnisskap og einstakan dugnað.


Mótaröðin hefur mikið vægi, enda telja sex af sjö mótum til vals á landsliðum LEK. Hvert stig getur því skipt sköpum fyrir þá kylfinga sem stefna á landsliðssæti. Þá hlýtur stigahæsti áhugamaðurinn í flokki 50+ sæti í landsliði Golfsambands Íslands 50+, sem gerir keppnina enn áhugaverðari.


Keppt er í fjölmörgum flokkum karla og kvenna, bæði með og án forgjafar, og hafa kylfingar úr GR farið afar vel af stað. Félagið stendur sterkt í A-flokkum karla 50+, 55+ og 65+ án forgjafar. Jón Karlsson úr GR leiðir keppnina í flokki 50+, á meðan Einar Long, einnig úr GR, situr á toppnum í bæði 55+ og 65+ flokki án forgjafar. Þá vann Steinunn Sæmundsdóttir glæsilegan sigur í 65+ flokki kvenna á mótinu í Grindavík. Þetta er glæsileg byrjun hjá GR-ingum og verður spennandi að fylgjast með framhaldinu hjá okkar kylfingum. Næsta mót LEK-mótaraðarinnar fer fram á Strandarvelli á Hellu sunnudaginn 14. júní.


Stigalista fyrir alla flokka má finna hér


Hér má finna nánari úrstli úr móti 1


Hér má finna nánari úrslit úr móti 2

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 4. júní 2026
Fyrsta mót í Golf14 mótaröð GSÍ fór fram um liðna helgi á Nesvelli Nesklúbbsins. Metskráning var í mótið og voru alls 167 ungir kylfingar skráðir til leiks. Mótið var haldið á Nesvellinum hjá Nesklúbbnum. Ísak Hrafn Jónasson keppti í flokki 11-12 ára drengja og endaði í 2 sæti í mótinu á átta höggum undir pari (-8). Hann spilaði fyrri 9 holurnar á 30 höggum og seinni 9 holurnar á 32 höggum. Ísak Hrafn tapaði ekki höggi á mótinu, hann fékk 5 fugla á fyrri hringnum og 3 á þeim seinni. Golfklúbbur Reykjavíkur var með 16 unga og efnilega kylfinga á mótinu og má sjá árangur þeirra hér að neðan. Önnur úrslit má finna hér Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Ísaki Hrafni innilega til hamingju með árangurinn sem og öðrum kylfingum klúbbsins með sinn árangur. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir kylfingar skráðu sig til leiks og tóku þátt í fyrsta móti sumarins. Næsta mót hefst á morgun, Golf14-Icewear bikarinn sem er spilaður hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.
Eftir Sigríður GR Golf 2. júní 2026
Annað mót Unglingamótaraðar GSÍ fór fram dagana 30.–31. maí á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Leiknar voru 54 holur, 36 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Alls voru 102 keppendur skráðir til leiks og var Golfklúbbur Reykjavíkur með 16 efnilega keppendur á mótinu Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, klúbbmeistari GR 2025, sigraði í stúlknaflokki eftir frábæra spilamennsku. Ásdís lék hringina þrjá á samtals 217 höggum (74-69-74) eða 4 höggum yfir pari og tryggði sér sigur eftir gífurlega spennandi lokakafla. Ásdís vann með einu höggi og varð á undan þremur kylfingum sem urðu jafnar í 2. sæti. Þess má geta að Ásdís lék annan hringinn sinn á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari, glæsilegur hringur. Ásdís varð Íslandsmeistari unglinga í holukeppni árið 2024 og er þetta því hennar annar sigur á mótaröðinni. Glæsileg byrjun á keppnissumrinu hjá Ásdísi, einum af okkar efnilegustu kylfingum. Hjá piltunum var það Birgir Steinn Ottósson sem endaði í 14. sæti í flokki 15-18 ára piltar, á +4 höggum (73-72-72). Nánari úrslit má finna hér Við óskum Ásdísi innilega til hamingju með sigurinn og öðrum kylfingum með sinn árangur. Næsta mót fer fram hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar 4.-6. júní.  ÁFRAM GR! 💙
Eftir Sigríður GR Golf 1. júní 2026
Korpubikarinn 2026 í samvinnu við First Water fór fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 29.-31. maí. Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, og Aron Snær Júlíusson, GKG, stóðu uppi sem sigurvegarar eftir frábæra spilamennsku um helgina. Hér má sjá lokastöðu mótsins. Ragnhildur var jöfn í þriðja sæti fyrir lokahringinn en lék frábært golf á lokadeginum. Hún kom í hús á 65 höggum, sex höggum undir pari, og vann mótið með fimm högga mun. Eftir erfiða byrjun á mótinu lék Ragnhildur síðustu 26 holurnar á ellefu höggum undir pari. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR, varð önnur á einu höggi undir pari. Perla fékk flesta fugla allra í kvennaflokknum, alls fjórtán. Hún vann fyrsta mót tímabilsins og styrkti stöðu sína á toppi stigalistans með árangrinum. Eva Kristinsdóttir, GM, og Fjóla Margrét Viðarsdóttir, GS, urðu jafnar í þriðja sæti á tveimur höggum yfir pari. Eva Fjóla Ragnhildur og Perla Í karlaflokki vann Aron Snær mótið eftir harða baráttu við Aron Emil Gunnarsson, GOS, sem varð annar. Aron Emil hafði leitt mótið frá fyrsta hring, en góð spilamennska Arons Snæs á öðrum og þriðja hring gerði gæfumuninn. Aron Snær hefur nú unnið bæði mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og er með örugga forystu á toppi stigalistans. Veigar Heiðarsson, GA, varð þriðji á þremur höggum undir pari. Korpubikarinn var hans fyrsta mót á tímabilinu hér heima, en Veigar var nýverið að ljúka sínu fyrsta tímabili í bandaríska háskólagolfinu. Við þökkum keppendum öllum kærlega fyrir þátttöku í Korpubikarnum.  Golfklúbbur Reykavíkur í samvinnu við First Water
Eftir Sigríður GR Golf 1. júní 2026
Lengri opnunartími í Básum ☀️⛳ Frá og með deginum í dag lengjum við opnunartímann í Básum á kvöldin. Sumaropnun frá 1. júní - 31. júlí er sem hér segir: Mánudaga - fimmtudaga kl. 06:00-23:00 síðustu boltar seldir kl. 22:30 Föstudaga - laugardaga kl. 06:00-20:00 síðustu boltar seldir kl. 19:30 Sunnudaga kl. 06:00-22:00 síðustu boltar seldir kl. 21:30
Eftir Sigríður GR Golf 29. maí 2026
Hj á okkur í Golfklúbbi Reykjavíkur er flott og öflugt eldri borgara starfs. Í fararbroddi fara nokkrir vaskri menn sem nýta hin ýmsu tækifæri til að hafa gaman saman og skipuleggja hina ýmsu viðburði fyrir heldri kylfinga klúbbsins. Í vetur var farið af stað með Golfhermamót 70 ára og eldri kylfinga GR. Mótaröðin stóð saman af fjórum mótum og leikið Nítjándu, golfhermaaðstaða á Bíldshöfða. Hver umferð stóð yfir í einn mánuð og höfðu keppendur 2 tilraunir til að leika völl hvers mánaðar og betra skorið gilti. Í mótaröðinni voru eingöngu spilaðir íslenskir vellir. Í fyrsta umferð var Grafarholtið spilað, í annari umferð var það Leirdalurinn hjá GKGK, í þriðju umferð var "ferðast" á Jaðarsvöll á Akureyri og síðasta umferðin var leikin "á" Hvaleyrinni. Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin í karlaflokki með forgjöf og efsta sætið í kvennaflokki. Einnig voru veitt verðlaun fyrir efsta sæti án forgjafara. Úrslitin úr fyrstu Golfhermamótaröð 70 ára og eldkri kylfinga GR voru þessi: Karlaflokkur með forgjöf Hákon Hákonarson - 36 - 37 - 41 - 34 - samtals 114 punktar Ásmundur R Richardsson - 31 - 38 - 35 - 36 - samtals 109 punktar Valur Jónatansson - 35 - 38 - 34 - 33 - samtals 107 punktar Kvennaflokkur með forgjöf Anna Sigurjónsdóttir - 20 - 36 - 30 - 40 - samtals 106 punktar Úrslit í flokki án forgjafar Hans Isebarn - 30 - 34 - 38 - 36 - samtals 108 punktar.
Eftir Sigríður GR Golf 29. maí 2026
Korpubikarinn í samvinnu við First Water hófst í dag, föstudaginn 29. maí á Korpúlfsstaðavelli. Mótið er annað mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur á þremur keppnisdögum. Smelltu hér til að sjá stöðuna Keppendahópurinn er sterkur líkt og önnur ár í þessu flotta móti. Íslandsmótið í golfi verður einnig leikið á Korpúlfsstöðum seinna í sumar. Í karlaflokki eru 72 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.7, lægsta forgjöfin er +5.4 og hæsta forgjöfin er 5.1. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf. Fjórir af fimm efstu kylfingum Reykjanesmótsins eru á meðal keppenda. Þar á meðal eru Aron Snær Júlíusson og Tómas Eiríksson Hjaltested, sem báðir unnu til verðlauna í því móti. Akureyringurinn Veigar Heiðarsson mætir einnig í sitt fyrsta mót á tímabilinu, en hann kemur inn af krafti eftir að hafa leikið í bandaríska háskólagolfinu í vetur. Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 1, lægsta forgjöfin er +4 en sú hæsta er 6.1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir stefnir á sinn annan sigur í röð eftir flotta frammistöðu fyrr í maí. Atvinnukylfingurinn Ragnhildur Kristinsdóttir er einnig á meðal keppenda, en hún endaði önnur í LET Access móti í síðustu viku. Keppendur eru alls 90, og koma þeir frá 15 klúbbum víðsvegar af landinu. GR á þar flesta kylfinga eða tuttugu og sjö alls. GKG kemur þar á eftir með sextán keppendur, og GM sendir fjórtán. Sjö klúbbar eru með keppendur í bæði kvenna- og karlaflokki.
Eftir Sigríður GR Golf 27. maí 2026
Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar 2026 fór fram í Þorlákshöfn 23.–25. maí. Fullt var í mótið, alls 81 keppandi, þar af 13 frá GR — þriðji fjölmennasti klúbburinn á mótinu. Helstu úrslit voru þessi, Sebastian Blær Ómarsson endaði í 7. sæti í flokki 15-18 ára piltar, á tveimur höggum undir pari (72-70-72). Sebastian Blær var í hópi þeirra átta efstu sem luku mótinu á undir pari. Birgir Steinn Ottósson fylgdi fast á eftir í 11. sæti á +4 samtals. Hjá stúlkunum var það Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir sem endaði í 9. sæti í flokki 15-18 ára stúlkur, á +13 höggum (80-77-72). Ásdís átti frábæran lokahring sem hún lék á pari vallarins. Erna Steina Eysteinsdóttir endaði í 11. sæti og bætti skor sitt á hverjum hring. Nánari úrslit má finna hér Til hamingju krakkar með flott fyrsta mót.! Næsta mót fer fram hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar 30.–31. maí. ÁFRAM GR
Eftir Sigríður GR Golf 27. maí 2026
Skýrsla Vallarsviðs GR Maí 2026 Nú 4 dögum eftir opnun er gaman að sjá hvað öll svæði okkar hafa glæðst miklu lífi. Vellirnir eru vel bókaðir, æfingasvæðin vel nýtt og klúbbhúsin iðandi af lífi. Síðasta vika var nokkuð erilsöm. Sérstaklega vegna þess að utan hefðbundins undirbúnings fyrir opnun valla, þá var einnig verið að ljúka ýmsum stærri verkefnum, einsog t.d. tyrfa 1.braut í Grafarholti, klára frágang þrifaðstöðu við Korpu og ljúka malbikun stíga. Bæði Grafarholt og Korpan eru að koma ágætlega undan vetri og í raun betur en við áttum von á. Starfsmenn valla hafa unnið vel í nokkrum vandræðasvæðum með áburðargjöf, ábreiðum, vökvun og yfirsáningu sem á eftir að skila sér á komandi vikum. Hækkandi hitastig væri draumi líkast og vonandi fer sólardögunum fjölgandi. Við teljum að vellirnir verði mjög flottir í sumar og skarti sínu fegursta þegar félag okkar heldur Landsmót í byrjun Ágúst. Nú þegar allt hefur opnað færist starf okkar meira í átt að umhirðu og mikið hægist á framkvæmdum og stærri verkefnum, en þar hefur mikið áunnist í vetur og mætti þar t.d. nefna: · mótun 1.brautar Grafarholts auk gerð glompa · ný þrifaðstaða fyrir kylfinga á Korpu · ný salerni á báðum völlum · 5 nýjir hvítir teigar (63) á Korpu · Ljúka malbikun stíga Korpu og framhald í Grafarholti · Jarðvegsmótun á Thorsvelli Það er svo þéttur verkefnalisti sem tekur við í lok sumars því við ætlum að halda áfram að bæta öll svæði okkar og vinnan í Grafarholti er auðvitað hvergi nærri búin. Uppmæling Korpa (ásamt nýjum 63 teigum) Samhliða nýjum teigum var ákveðið að mæla allar holur á Korpunni og til að gera langa sögu stutta eru hér lengdirnar fyrir hinar ýmsu lykkjur. 
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Opnunarmót Korpu fór fram í dag við góðar aðstæður samhliða opnun Korpúlfsstaðavallar fyrir sumarið. Tæplega 190 kylfingar tóku þátt í mótinu og var stemningin frábær frá fyrsta teig. Völlurinn kemur vel undan vetri þrátt fyrir erfiða tíð síðustu missera og voru kylfingar ánægðir með ástand hans á opnunardegi. Það er því ljóst að bjartar golfstundir eru framundan á völlum Golfklúbbs Reykjavíkur í sumar. Keppt var í tveimur forgjafarflokkum þar sem glæsileg verðlaun frá FootJoy voru í boði fyrir efstu sætin, auk verðlauna fyrir besta skor mótsins. Þá voru nándarverðlaun á öllum par 3 holum þar sem vinningshafar fá Gullkort í Básum. Úrslit urðu eftirfarandi: Punktakeppni forgjöf 14 og lægri Joao Carlos Dias – 43 punktar Hafsteinn Þór Jóhannsson – 41 punktur (betri seinni 9) Ísak Hrafn Jónasson – 41 punktur Punktakeppni forgjöf 14,1 og hærri Árni Kvaran – 41 punktur Finnlaugur Pétur Helgason – 40 punktar Ágústa Dröfn Kristeifsdóttir – 39 punktar (betri seinni 9) Besta skor Böðvar Bragi Pálsson – 67 högg Nándarverðlaun 3. braut – Ísak Jónasson – 0,84 m 6. braut – Arnar Arinbjarnar – 1,3 m 9. braut – Gestur Jónsson og Monika Hjálmstýsdóttir – 2,47 m 13. braut – Heimir Líndal Sveinsson – 0,65 m 17. braut – Alexander Aron Ívarsson – 2,31 m Golfklúbbur Reykjavíkur óskar vinningshöfum innilega til hamingju með árangurinn. Haft verður samband við verðlaunahafa eftir helgi.
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði í 8. sæti á Cutter & Buck Fjällbacka Open mótinu á Nordic Golf League mótaröðinni, sem leikið var í Svíþjóð 21. - 23. maí. Dagbjartur lék frábært golf í mótinu og lauk leik á sjö höggum undir pari í heildina og endaði jafn í áttunda sæti mótsins. Með þessu jafnar hann sinn næstbesta árangur á tímabilinu, en þetta er í þriðja skiptið sem Íslandsmeistarinn endar jafn í áttunda sæti í sumar. Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 71 höggi eða pari vallarins, annan hringinn lék hann á 67 höggum og þann þriðja á 68 höggum, með glæsilegum erni á síðustu. Það má telja líklegt að hann verði meðal 20 efstu kylfinga stigalistans eftir þetta frábæra mót. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni. Hér má sjá úrslit mótsins
Show More