Opnun valla – opnunarmót – rástímaskráning!

Sigríður GR Golf • 23. maí 2026

Share this article

Kæru félagar,


laugardaginn 23. maí munu vellirnir okkar, Korpúlfsstaðavöllur og Grafarholtsvöllur, opna formlega með Opnunarmótum, sem haldin verða á hvorum velli fyrir sig. Opnunarmót Korpu verður leikið á lykkjunum Sjórinn/Áin og Opnunarmót Grafarholts á Grafarholtsvelli.


ATH! Opnunarmótin eru eingöngu ætluð félagsmönnum GR.


Skráning í Opnunarmót Grafarholts og Opununarmót Korpu

Skráning í Opnunarmót Grafarholts og Opnunarmót Korpu hefst þriðjudaginn 19. maí kl. 10:00 og fer fram í gegnum mótaskrá Golfbox í gegnum Mitt Golf appið.


Fríir upphitunarboltar verða í boði fyrir keppendur í Básum á opnunardegi.


Við bendum félagsmönnum á að sækja Mitt Golf appið og skrá sig þar inn. Fyrir innskráningu er notað saman notendanafn og lykilorð sem félagsmaður var með í Golfbox. Við hvetjum kylfinga til að ná sér í Mitt Golf appið sem allra fyrst til að fyrirbyggja að þeir lendi í tæknilegum örðugleikum er þeir hyggjast skrá sig. Starfsfólk skrifstofu er til aðstoðar komi upp vandamál.


Verðlaun í Opnunarmótum hvors vallar:


Forgjöf 0 – 14

  1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
  2. sæti: GR merkt Footjoy peysa
  3. sæti: GR merktur Footjoy bolur


Forgjöf 14,1 – og hærra

  1. sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur
  2. sæti: GR merkt Footjoy peysa
  3. sæti: GR merktur Footjoy bolur


Besta skor:

Opnunarmóti Grafarholts: GR merkt Footjoy peysa og bolur.

Opnunarmóti Korpu: GR merkt Footjoy peysa og bolur.

Nándarverðlaun á öllum par 3 holum hvors vallar fyrir sig: Gullkort á æfingasvæði Bása.

 

Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót.
9.1
Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. 

 

Almenn rástímaskráning hefst miðvikudaginn 20. maí

Opnað veður fyrir almenna rástímaskráningu miðvikudaginn 20. maí kl. 10.00 á báðum völlum félagsins og geta félagsmenn skráð sig til leiks á Landið samhliða mótahaldi á Korpu.


Grafarkotsvöllur, æfingasvæði og púttflöt fyrir framan Bása ásamt æfingasvæði og púttflöt fyrir framan Korpu mun opna á morgun, laugardaginn 16. maí.


Golfverslanir félagsins opna samhliða opnun valla, laugardaginn 23. maí.


Stefnt er að hafa opið fyrir golfbílaumferð á báðum völlum félagsins frá og með opnun valla. Leyfi aðstæður það ekki verður það tilkynnt.


Klúbbhús opnar kvöldopnun á Korpu frá og með deginum í dag, föstudaginn 15. maí. Sumaropnun tekur gildi frá og með laugardeginum 23. maí þegar vellir félagsins opna, í báðum klúbbhúsum.

 

Framkvæmdir sem hafa áhrif á leik

Í Grafarholti verða fyrst um sinn leiknar 16. holur, vegna framkvæmda á 1. braut. Leikur hefst á 3. teig og biðjum við kylfinga að gera ráð fyrir göngu að upphafsteig fyrir leik. Opnun 1. og 2. brautar fyrir komandi tímabil er áætluð um miðjan júní og vonandi fyrr. Við biðjum ykkur að sína biðlund á meðan og verða nánari upplýsingar verða veittar er þar að kemur.


Þó svo að völlurinn verði tímabundið spilaður sem 16 holur, þá hefur verið séð til þess í golfbox kerfinu að hringir telja til forgjafar.

 

Við erum full tilhlökkunar að hefja golfsumarið 2026 með félagsmönnum GR!



Gleðilegt golfsumar – hlökkum til að sjá ykkur og sjá vellina okkar iða af lífi!

Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Reykjavíkur.


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 7. júlí 2026
Lokahóf og verðlaunaafhending barna- og unglingaflokkum Meistaramóts GR 2026 fór fram á Korpúlfsstöðum í kvöld. Eftir þriggja daga keppni við mismunandi veðuraðstæður luku yngstu kylfingar klúbbsins sínu Meistaramóti í dag. Fyrstu tveir dagarnir voru fínir veðurlega séð - sól, hiti og töluverður vindur á sunnudaginn, skýjað, hiti og gjóla í gær, dagurinn í dag var hinsvegar ansi krefjandi með úrhellisrigningu og miklum vindi. Keppendur mættu svo á lokahóf á Korpúlfsstöðum í kvöld til að gleðjast og fagna saman ásamt foreldrum og aðstandendum. Helstu úrslit barna- og unglingaflokka urðu þessi: 12 ára og yngri hnokkar fgj. 30,1-54 Ásdór Þór Gunnarsson, 140 högg Daði Hrafn Ásgeirsson, 144 högg Rúrik Ívarsson, 161 högg 12 ára og yngri hnátur. fgj. 30,1-54 Anna Lind Valdimarsdóttir, 207 högg Vala Arnarsdóttir, 217 högg Bryndís Vaka Halldórsdóttir, 228 högg 12 ára og yngri hnokkar fgj. 0-30 Ísak Hrafn Jónasson, 223 högg Styrmir Ragnarsson, 241 högg Sigurður Markús Sigurðarson, 252 högg 13-14 ára drengir fgj. 0-30 Pétur Franklín Atlason, 244 högg Gunnar Ágúst Snæland, 260 högg Kári Hrafn Viðarsson, 263 högg 15-18 ára piltar fgj. 0-30 Birgir Steinn Ottósson, 214 högg Sigurður Guðni Snæland, 234 högg Ingimar Jónasson, 236 högg 15-18 ára stúlkur fgj. 0-30 Svandís Eva Brynjarsdóttir, 257 högg Katla María Sigurbjörnsdóttir, 269 högg Hjördís Jónasdóttir, 274 högg Myndir frá þriggja daga mótinu má finna inn á www.golfmyndir.is eða með því að smella á hlekkina hér fyrir neðan:  Golfmyndir.is - dagur 1 Golfmyndir.is - dagur 2 Golfmyndir.is - dagur 3 Önnur úrslit úr þriggja daga mótinu má finna á hlekknum hér fyrir neðan: Korpa - Korpa - Holtið Holtið - Holtið - Korpa Við þökkum öllum þeim börnum og unglingum sem tóku þátt í Meistaramóti kærlega fyrir frábæra keppni við fjölbreyttar aðstæður og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf 7. júlí 2026
Kæru keppendur og foreldrar/forráðamenn Lokahóf og verðlaunaafhending barna og unglinga í Meistaramóti GR 2026 fer fram í dag, þriðjudaginn 7. júlí, á 2. hæð í Korpu. Dagskrá: Borðhald hefst stundvíslega kl. 18:00. Keppendur þurfa að framvísa matarmiða við afhendingu veitinga. Matarmiðarnir verða afhentir keppendum í dag við útræsingu. Matur og drykkur fyrir keppendur er innifalinn í mótsgjaldinu. Boðið verður upp á glæsilegar veitingar og eftirrétt að verðlaunaafhendingu lokinni. Foreldrar og forráðamenn eru hjartanlega velkomnir á lokahófið. Við hlökkum til að sjá ykkur og eiga með ykkur skemmtilega kvöldstund þar sem við fögnum frábærum árangri keppenda. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf 6. júlí 2026
Íslensku kylfingarnir á LET Access mótaröðinni héldu áfram góðri spilamennsku sinni í Svíþjóð í vikunni. Swedish Strokeplay mótið á LET Access mótaröðinni fór fram dagana 1.-3. júlí á Golf Uppsala Söderby í Svíþjóð. Þrír íslenskir kylfingar voru á meðal keppenda: Ragnhildur Kristinsdóttir, Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Hér má sjá úrslit mótsins Ragnhildur Kristinsdóttir náði besta árangri íslensku kylfinganna og endaði jöfn í fimmta sæti á tveimur höggum undir pari. Ragnhildur lék hringina þrjá á 74, 72 og 71 höggi, en par vallarins er 73. Hún endaði mótið af miklum krafti og fékk tvo fugla á síðustu þremur holunum. Eftir mótið er Ragnhildur í 10. sætii á stigalista LET Access mótaraðarinnar. Efstu sjö kylfingarnir á stigalistanum í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á LET mótaröðinni.
Eftir Sigríður GR Golf 1. júlí 2026
Kæru kylfingar Eins og áður hefur verið auglýst verða 1. og 2. brautin í Grafarholti lokaðar á morgun, fimmtudaginn 2. júlí til kl. 18:00 þar sem verið er að setja sand í nýja glompur 1. brautar. Til þess að hægt sé að ferja sandinn á svæðið þurfa vinnuvélar og tæki að komast um svæðið. Til að gæta sem fyllsta öryggis verður aðkoma og bílastæði við Bása lokuð á meðan á vinnunni stendur. Við bendum þeim sem ætla að fara og æfa sveifluna í Básum að þar er opið samkvæmt opnunartíma og hægt að leggja á bílastæðinu við skálann í Grafarholti og neðra bílastæðinu, sem er vinstra megin þegar keyrt er upp að skálanum.
Eftir Sigríður GR Golf 1. júlí 2026
Landslið karla 65+ á vegum LEK taka þátt í ESGA móti eldri kylfinga sem fram fer 1.-3. júlí 2026 á tveimum af bestu völlum Finnlands, Kytäjä Golf Club. Karlar án forgjafar taka þátt í Super Senior Championship og karlar með forgjöf taka þátt í Super Senior Cup ESGA XXV Super Seniors Team. Spilaður er betri bolti í 2 daga og höggleikur lokadaginn. Rástímar, staða og úrslit Lið 65+ án forgjafar: Brynjar Harðarson, GR Eggert Eggertsson, NK Gauti Grétarsson, NK Jónas Kristjánsson, GR Kristján V Kristjánsson, GK Óskar Sæmundsson, GR Lið 65+ með forgjöf: Erlingur Arthursson, GHG Gunnar Árnason, GKG Hörður Sigurðsson, GR Ingi Þór Hermannsson, GO Kolbeinn Kristinsson, GÖ Þór Geirsson, GO Liðsstjóri fyrir bæði liðin er Gunnar Árnason. Við hjá Golklúbbi Reykjavíkur eigum fjóra fulltrúa í liðinum tveimur og erum ákaflega stolt af því. Við óskum þeim góðs gengis - áfram Ísland!
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Kæru félagar, við neyðumst til að taka útaf nýju 1.flötinni okkar til að hvíla hana fyrir meistaramótið. Álagið á nýtt grasið er farið að láta á sjá, svo við ætlum að hvíla svæðið fram að móti og vonum við að félagsmenn sýni því skilning. Kv. Vallarsvið
Eftir Sigríður GR Golf 30. júní 2026
Haraldur Franklín Magnús, GR og Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG, verða báðir á meðal keppenda í lokaúrtökumóti fyrir Opna mótið í dag, þar sem leikið verður um sæti á hinu sögufræga risamóti. Lokaúrtökumótið fer fram á fjórum völlum í Bretlandi: Burnham & Berrow, Dundonald Links, Royal Cinque Ports og West Lancashire. Á hverjum velli leika 72 kylfingar um fimm laus sæti í mótinu, sem fram fer á Royal Birkdale vellinum í júlí. Íslensku kylfingarnir leika ekki á sama vellinum. Haraldur Franklín verður á Dundonald Links í Skotlandi en Gunnlaugur Árni leikur á West Lancashire á Englandi. Báðir vellirnir eru krefjandi og útlit er fyrir erfiðar aðstæður, þar sem væta og vindur gætu sett mark sitt á daginn. Haraldur hefur leik klukkan 07:30 að staðartíma og fer út á seinni hringinn klukkan 13:15. Hann leikur með Skotanum Calum Fyfe og Bandaríkjamanninum John Vogelpohl. Hér má fylgjast með stöðu mótanna Haraldur þekkir vel til risamótanna. Hann varð árið 2018 fyrsti íslenski karlkylfingurinn til að leika á risamóti þegar hann tók þátt í Opna mótinu á Carnoustie. Hann komst þá inn í mótið í gegnum lokaúrtökumót og freistar þess nú að endurtaka leikinn, eftir að hafa tryggt sér sæti í lokaúrtökumótinu í gegnum undankeppni. Haraldur sagði fyrir mótið að Dundonald væri „þrusuerfiður“ völlur og að þolinmæði yrði lykilatriði. Í aðstæðum sem þessum snýst verkefnið ekki endilega um að sækja á allar holur, heldur að halda boltanum í leik, taka skynsamlegar ákvarðanir og safna nógu mörgum pörum. Á Dundonald vellinum verða þekkt nöfn í hópnum, þar á meðal Robert Rock, Angel Hidalgo og margir sterkir ungir kylfingar. Framundan er langur og krefjandi dagur hjá þeim Haraldi Franklín og Gunnlaugi Árna. Til að komast alla leið þurfa þeir að vera í hópi fimm efstu kylfinga á sínum velli eftir 36 holur og mun því hvert högg skipta miklu máli.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
The body content of your post goes here. To edit this text, click on it and delete this default text and start typing your own or paste your own from a different source.
Eftir Sigríður GR Golf 29. júní 2026
Kæru félagsmenn og aðrir kylfingar, að gefnu tilefni, því miður, viljum við minna alla félagsmenn og gesti á að sýna fyllstu aðgát ef og/eða þegar slegið er í nágrenni við vallarstarfsmenn. Vallarstarfsmenn leggja sig fram á hverjum degi við að halda vellinum okkar í sem besta ástandi fyrir kylfinga. Því biðjum við alla kylfinga að: að bíða með högg ef starfsmaður er innan höggfæris að ganga úr skugga um að starfsmaður hafi tekið eftir kylfingnum og gefið merki þess að halda leik áfram að kalla FORE ef að höggið sefnir í átt að örðum, hvort sem það er vallarstarfsmaður eða annar kylfingur  Hjálpumst að við að tryggja öryggi allra við leik í okkar frábæru íþrótt og útiveru. Það er á allra ábyrgð.
Eftir Sigríður GR Golf 28. júní 2026
Yfir 190 manns tóku þátt í Opna Stjörnugrís 2026, sem leikið var á Grafarholtsvelli í gær, laugardaginn 27. júní. Veðrið var kannski ekki upp á sitt besta, rigning var um morgunin og frekar kalt, þegar það hætti að rigna þá hitnaði aðeins í veðri en kylfingar létu það ekki stoppa sig - frábært skor hjá mörgum hverjum. Ræst var út frá kl.8:15 til 15:30. Allir keppendur fengu glæsilega teiggjöf, bolta, tí, handklæði ásamt öskju með flatargafli og tveimur boltamerkjum. Jón Eysteinsson kom inn á besta skori mótsins, 70 höggum eða einu höggi undir pari vallarsins. Öll úrslit úr mótinu má sjá í mótskrá á Golfbox en helstu úrslit urðu þessi: Punktakeppni: Sindri Þór Kristjánsson, 45 punktar Erna Steina Eysteinsdóttir, 41 punktar Rakel Reynisdóttir, 39 punktar (betri seinni 9) Kjartan Guðjónsson, 39 punktar Hlynur Már Heimisson, 38 punktar Besta skor mótsins: Jón Eysteinsson, 70 högg Nándarverðlaun: 2.braut – Líney Sveinsdóttir 189 cm. 6.braut – Erna Steina Eysteinsdóttir 70 cm. 11.braut – Kristjana S. Þorsteinsdóttir 1 cm. 17.braut – Kristín Markúsdóttir 78 cm. Lengsta drive 3.braut kk. – Tómas Frostason Lengsta drive 3.braut kvk. – Margrét Jóna Eysteinsdóttir Við þökkum keppendum kærlega fyrir daginn og óskum vinningshöfum til hamingju með sinn árangur í mótinu. Hægt er að nálgast vinninga til Stjörnugrís hf., Saltvík, 162 Kjalarnes. Opnunartími er mánud. - fimmtud. frá kl. 08:00 - 16:00 og föstudaga frá kl. 08:00 - 15:15. Golfklúbbur Reykjavíkur í samvinnu við Stjörnugrís hf.
Show More