Ragnhildur endaði önnur í Austurríki - frábær byrjun hjá íslensku kylfingunum á LET Access.
Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, endaði í öðru sæti Allegria Ladies Open mótsins á LET Access mótaröðinni sem lauk í dag. Mótið fór fram á hinum krefjandi Sudburgenland velli á Allegria Golf Resort svæðinu í Austurríki. Einungis tveir kylfingar léku undir pari í mótinu.
Þetta var annað mót tímabilsins, og voru þrír íslenskir kylfingar á meðal þátttakenda. Ásamt Ragnhildi kepptu þær Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Allar náðu þær í gegnum niðurskurð og voru m.a. jafnar í þriðja sæti eftir fyrsta hringinn.
Ragnhildur lék frábært golf í mótinu. Hún lék hringi sína á 68-71-70 höggum og var á meðal efstu kylfinga frá upphafi móts. Eftir litríkan fyrsta hring fékk Ragnhildur sextán pör á öðrum hringnum. Hún var jöfn í öðru sæti fyrir lokahringinn, höggi á eftir hinni þýsku Hanna Tauber.
Ragnhildur lék fyrri níu holur lokahringsins á tveimur höggum yfir pari, en hóf sókn sína að efstu kylfingum strax á tíundu holu. Eftir tvo fugla og örn á fimmtándu holunni var Ragnhildur höggi á eftir Tauber, sem lék gott golf í dag. Tveir skollar komu hjá okkar konu á síðustu þremur holum dagsins, og annað sætið því raunin. Frábær árangur hjá Ragnhildi, sem stefnir hátt í sumar.

Recent Posts









