Skrýsla Vallarstjóra maí 2026
Skýrsla Vallarsviðs GR Maí 2026
Nú 4 dögum eftir opnun er gaman að sjá hvað öll svæði okkar hafa glæðst miklu lífi. Vellirnir eru vel bókaðir, æfingasvæðin vel nýtt og klúbbhúsin iðandi af lífi.
Síðasta vika var nokkuð erilsöm. Sérstaklega vegna þess að utan hefðbundins undirbúnings fyrir opnun valla, þá var einnig verið að ljúka ýmsum stærri verkefnum, einsog t.d. tyrfa 1.braut í Grafarholti, klára frágang þrifaðstöðu við Korpu og ljúka malbikun stíga.
Bæði Grafarholt og Korpan eru að koma ágætlega undan vetri og í raun betur en við áttum von á. Starfsmenn valla hafa unnið vel í nokkrum vandræðasvæðum með áburðargjöf, ábreiðum, vökvun og yfirsáningu sem á eftir að skila sér á komandi vikum. Hækkandi hitastig væri draumi líkast og vonandi fer sólardögunum fjölgandi.
Við teljum að vellirnir verði mjög flottir í sumar og skarti sínu fegursta þegar félag okkar heldur Landsmót í byrjun Ágúst.
Nú þegar allt hefur opnað færist starf okkar meira í átt að umhirðu og mikið hægist á framkvæmdum og stærri verkefnum, en þar hefur mikið áunnist í vetur og mætti þar t.d. nefna:
· mótun 1.brautar Grafarholts auk gerð glompa
· ný þrifaðstaða fyrir kylfinga á Korpu
· ný salerni á báðum völlum
· 5 nýjir hvítir teigar (63) á Korpu
· Ljúka malbikun stíga Korpu og framhald í Grafarholti
· Jarðvegsmótun á Thorsvelli
Það er svo þéttur verkefnalisti sem tekur við í lok sumars því við ætlum að halda áfram að bæta öll svæði okkar og vinnan í Grafarholti er auðvitað hvergi nærri búin.
Uppmæling Korpa (ásamt nýjum 63 teigum)
Samhliða nýjum teigum var ákveðið að mæla allar holur á Korpunni og til að gera langa sögu stutta eru hér lengdirnar fyrir hinar ýmsu lykkjur.
| Teigur | Sjórinn | Áin | Landið | Sjórinn / Áin | Sjórinn / Landið | Áin / Landið |
|---|---|---|---|---|---|---|
| 63 | 3.135 | 3.133 | 2.937 | 6.268 | 6.072 | 6.070 |
| 57 | 2.755 | 2.721 | 2.797 | 5.476 | 5.552 | 5.518 |
| 52 | 2.597 | 2.463 | 2.620 | 5.060 | 5.217 | 5.083 |
| 46 | 2.237 | 2.199 | 2.355 | 4.436 | 4.592 | 4.554 |
Helst ber að nefna að Sjórinn/Áin lengist um 167metra af 63 teigum og reiknum við fastlega með því að þessir teigar hækki meðalskor um 1-1,5högg að jafnaði. Þess ber þó að geta að nýtt vallarmat liggur ekki fyrir, en það mun koma síðar í sumar.
Það að nýjir 63 teigar séu komnir í notkun mun svo auka sveigjanleika á öðrum teigum og því má vel hugsa sér að lengja 57 og 52 teigana í framtíðinni, þá með því að nýta gamla 63 teiga og færa allt aftar.
Við vonum að félagsmenn eigi skemmtilegar vikur framundan á völlum okkar 😊
Vinsamlegast leggið okkur lið úti á velli með því að:
- Setja torfusnepla aftur í kylfuför
- Raka glompur (ekki bara eftir sjálfan sig)
- Nota sorptunnur og hirða upp laust rusl
Recent Posts









