🌼 Vormót GR kvenna 🌼

Sigríður GR Golf • 23. maí 2026

Share this article

Kæru konur 


Takið 30. maí frá –  Vormót GR kvenna verður haldið á Borganesi.

  •  Ræst út af öllum teigum kl. 10:00
  • Skráning fer fram í Golfbox 20. maí kl. 12:00


Setjið dagsetninguna í dagatalið – í fyrra seldist mótið upp mjög hratt!


Hótelgisting
Konur sem gista eru vinsamlegast beðnar um að
senda okkur tölvupóst á
grkvennanefnd@gmail.com



Í tölvupóstinum þarf að koma fram:

  • Golfbox-númer
  • Bókunarnúmer á hóteli

 Bókun á hóteli fer fram hér:
https://online.bookvisit.com/accommodation?channelId=089de0f8-df8c-4622-a6c2-c49f08a3d04c

 Afsláttarkóði: MAIGKRKONUR


Við munum auglýsa aftur mótið þegar nær dregur!


Hlökkum til að sjá ykkur sem flestar! 

Kær kveðja,
GR kvennanefnd


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fer fram í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí. Fullt er í mótið, en alls tekur 81 keppandi þátt, 25 í stúlknaflokki og 56 í piltaflokki. Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur í mótinu eða 20 talsins. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar kemur þar á eftir með 18 keppendur og Golfklúbbur Reykjavíkur með 13. Pamela Ósk Hjaltadóttir er með lægstu forgjöfina í stúlknaflokki, +1.8. Hún varð önnur á stigalista mótaraðarinnar í fyrra. Þá lék Pamela í 6 mótum á tímabilinu og var í verðlaunasæti í þeim öllum. Hún sigraði á einu móti, varð þrívegis í öðru sæti og tvisvar í þriðja sæti. Óliver Elí Björnsson er með lægstu forgjöf piltaflokksins, +2.1. Óliver varð annar á stigalista 15-16 ára pilta síðasta sumar, vann tvö mót og varð Íslandsmeistari í holukeppni. Hér má sjá rástíma og stöðu mótsins Leikinn er höggleikur án forgjafar. Leiknar eru 54 holur í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ. Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Séu tveir eða fleiri leikmenn á jafnir með hæsta skor þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir leika áfram. 
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Kæru félagar, gleðilegt golfsumar! Dagurinn er runninn upp, dagurinn sem Grafarholtsvöllur og Korpúlfsstaðavöllur opna, á Korpúlfsstöðum með opnunarmóti eins og hefð er fyrir. Opnað var fyrir skráningu í síðustu viku. Þessi opnunartími er í seinna lagi hjá okkur, sérstaklega á Korpúlfsstöðum. Ástæða þessa er að vorið var óvenju seint á ferðinni og vellirnir seinir til eftir því. Síðustu þrjú ár hefur Korpúlfsstaðavöllur komið illa undan vetri. Meðal annars þess vegna vildum við ekki taka áhættu og fylgjum ráðum vallarsviðsins okkar. Þó svo að vorið hafi komið seint, þá koma báðir vellirnir ágætlega undan vetri og vonandi verður ástand þeirra beggja með allra besta móti i sumar, við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til þess að svo verði. Það hefur verið mikið að gera í klúbbnum undanfarið. Á Korpúlfsstöðum höfum við undirbúið völlinn fyrir Íslandsmótið, sem verður haldið vikuna 6.-9. ágúst. Gerðir hafa verið nokkrir nýir bakteigar, sem lengja völlinn af öftustu teigum um hátt í 500 metra. Þessir nýju bakteigar eru á 2., 4., 9., 11. og 14. braut. Stígagerð er nú endanlega lokið, sem hefur verið risastórt verkefni. Framan við klúbbhúsið hefur verið útbúið nýtt svæði fyrir kerrur, golfbíla og nýja þrifaðstöðu. Frágangur á þessu er á lokametrunum. Í Grafarholti er frágangur á nýrri 1. holu á lokastigi, tyrfingu lýkur vonandi í dag, sem er lokahnykkurinn. Brautin er glæsileg með tilkomumiklum nýjum sandglompum. Það mun þurfa að hugsa vandlega á teig og áhætta tengd 2. teig hefur verið lágmörkuð. Tyrfingin hefur gengið vel og við vonumst til að geta opnað brautina, þ.m.t. nýja flöt, eftir u.þ.b. tvær vikur. Gerðir hafa verið nýir teigar á 3. braut, með tilheyrandi nýjum stígum. Ný flöt var frágengin í fyrra. Áætlanir okkar miðast við að taka nýju brautina, þ.m.t. teiga og flöt, í notkun öðru hvoru megin við Meistaramót GR. Samtímis verða þá teknir í notkun nýir teigar á 4. braut, sem breyta ásýnd og erfiðleikastigi þeirrar holu. Framkvæmdir standa yfir við nýja 10. flöt, sem við áætlum að geta tekið í gagnið einhvern tíma næsta sumar. Núna í haust verða gerðir nýir teigar fyrir 11. braut og verður ný 11. braut með nýrri flöt tekin í notkun næsta vor. Nú í sumar verður höfuðáhersla lögð á að hafa vellina okkar í sem allra bestu standi. Að frátalinni lokun á fyrstu tveimur brautunum í Grafarholti næstu tvær vikur eða svo verður engin truflun á leik á völlunum okkar í sumar vegna framkvæmda. Til þess að hafa vellina okkar í sem bestu standi þurfa allir að gera sitt. Vallarsviðið, veðurguðirnir, og síðast en ekki síst við félagar sem spilum vellina. Það er mjög margt sem við félagar getum gert og þar með auðveldað vallarstarfsmönnum sína vinnu. Setjum torfusnepla í för, lögum boltaför á flötum, rökum glompur vandlega og skiljum ekki eftir neitt rusl, ekki einu sinni munntuggur eða tíbrot, förum ekki með golfkerrur alveg í grínkanta, þaðan af síður golfbíla – allt eru þetta afar einföld atriði sem skipta mjög miklu máli, þegar kylfingarnir eru jafn margir og raun ber vitni. Umgengni um vellina okkar hefur stórbatnað á síðustu árum og við skorum á ykkur að gera enn betur í ár. Höldum áfram að bæta golfmenninguna í klúbbnum! Við höfum gert átak í nýliðafræðslu, allir nýir félagar hafa fengið send fjölda nýrra myndbanda um hvernig eigi að bera sig að á golfvöllum. Þar eru tekin fyrir atriði eins og umgengni, ráð um hvernig flýta megi leik og golfreglur. Þetta eru stutt og skemmtileg myndbönd sem ungir afrekskylfingar hjá okkur tóku þátt í að gera. Eins og áður sagði hafa allir nýliðar fengið þessi myndbönd send, en þau má einnig nálgast á nýrri heimasíðu GR og hvetjum við alla félaga til að kynna sér þau. Allt er þetta gert í þeim tilgangi að bæta umgengni og að allir sem spila velli GR séu meðvitaðir um helstu umgengnisreglur og siðareglur, þ.m.t. áherslu á leikhraða. Eins og komið hefur fram er mikil ásókn í vellina okkar alla daga, þeir eru þétt bókaðir. Við hvetjum félaga til að rifja upp skáningarreglur okkar og tileinka sér, þær eru óbreyttar frá því í fyrra og eru aðgengilegar í hlekk í fyrstu athugasemd. Við óskum ykkur góðs gengis og skemmtunar á golfvöllum GR í sumar og hlökkum til að sjá ykkur.  Bestu kveðjur, stjórn og starfsfólk GR.
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Ragnhildur Kristinsdóttir, atvinnukylfur úr Golfklúbbi Reykjavíkur, endaði í öðru sæti Allegria Ladies Open mótsins á LET Access mótaröðinni sem lauk í dag. Mótið fór fram á hinum krefjandi Sudburgenland velli á Allegria Golf Resort svæðinu í Austurríki. Einungis tveir kylfingar léku undir pari í mótinu. Þetta var annað mót tímabilsins, og voru þrír íslenskir kylfingar á meðal þátttakenda. Ásamt Ragnhildi kepptu þær Hulda Clara Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir. Allar náðu þær í gegnum niðurskurð og voru m.a. jafnar í þriðja sæti eftir fyrsta hringinn. Ragnhildur lék frábært golf í mótinu. Hún lék hringi sína á 68-71-70 höggum og var á meðal efstu kylfinga frá upphafi móts. Eftir litríkan fyrsta hring fékk Ragnhildur sextán pör á öðrum hringnum. Hún var jöfn í öðru sæti fyrir lokahringinn, höggi á eftir hinni þýsku Hanna Tauber.  Ragnhildur lék fyrri níu holur lokahringsins á tveimur höggum yfir pari, en hóf sókn sína að efstu kylfingum strax á tíundu holu. Eftir tvo fugla og örn á fimmtándu holunni var Ragnhildur höggi á eftir Tauber, sem lék gott golf í dag. Tveir skollar komu hjá okkar konu á síðustu þremur holum dagsins, og annað sætið því raunin. Frábær árangur hjá Ragnhildi, sem stefnir hátt í sumar.
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR og Aron Snær Júlíusson, GKG, stóðu uppi sem sigurvegarar í Reykjanesmóti GS og GSG. Mótið var það fyrsta á GSÍ mótaröðinni í sumar og var mikil spenna í báðum flokkum. Fyrsti hringur Aðstæður voru krefjandi á Hólmsvelli á föstudaginn, en mikill vindur einkenndi daginn. Hákon Örn Magnússon lék best allra á fyrsta hring og leiddi karlaflokkinn á fjórum höggum undir pari. Fjórir kylfingar voru jafnir í öðru sæti á einu höggi undir pari. Þar á meðal voru Axel Bóasson og Tómas Eiríksson Hjaltested, ríkjandi stigameistari karla. Perla Sól Sigurbrandsdóttir og Fjóla Margrét Viðarsdóttir voru jafnar á toppi kvennaflokksins, báðar á fjórum höggum yfir pari. Pamela Ósk Hjaltadóttir var höggi á eftir þeim í þriðja sæti, á fimm höggum yfir pari. Annar hringur Annar hringur mótsins átti að vera leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis. Ákvörðun var tekin að aflýsa hringnum vegna veðurs, og mótið því stytt í 36 holur. Lokahringur og úrslit Á lokahringnum mættu kylfingar aftur á Hólmsvöll, nú við töluvert betri aðstæður en á fyrsta keppnisdegi. Skor kylfinga sagði sína sögu, en meðalhringurinn lækkaði um þrjú högg á milli daga. Aron Snær vann karlaflokkinn í bráðabana, en hann og Axel Bóasson enduðu jafnir á þremur höggum undir pari. Sextánda holan var leikin í bráðabananum, og vann Aron með öruggu pari. Sigurinn verður að teljast merkilegur, þar sem Aron Snær lék níundu holu fyrri hringsins á fimm höggum yfir pari. Þrátt fyrir það skilaði hann sér inn á 74 höggum á föstudaginn, en var jafn í fimmtánda sæti. Seinni hringur Arons var sá besti í öllu mótinu, en Íslandsmeistarinn fyrrverandi kom í hús á 65 höggum, sex undir pari. Hann fékk þar sex fugla og tapaði ekki höggi. Enginn kylfingur fékk jafn marga fugla og Aron í mótinu, en hann sótti 11 slíka á holunum 36. Tómas Eiríksson Hjaltested varð þriðji á tveimur undir pari. Hann heldur því áfram góðu gengi sínu á mótaröðinni, en Tómas er ríkjandi stigameistari. Perla Sól stóð uppi sem sigurvegari kvennaflokksins eftir góða spilamennsku á seinni hringnum. Perla og Fjóla voru jafnar fyrir lokahringinn og ekkert skildi þær að þegar níu holur voru eftir. Perla lék síðustu níu holurnar einn undir pari, en Fjóla lék þær á fjórum yfir pari og annað sætið því hennar. Eva Kristinsdóttir kom sér upp í þriðja sætið eftir öflugan hring í dag, en hún kom í hús á 73 höggum sem reyndist næstbesti hringur dagsins. Frábær byrjun á tímabilinu hjá Perlu, sem stefnir á fimm mót á GSÍ mótaröðinni í sumar . 
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Kæru félagar, laugardaginn 23. maí munu vellirnir okkar, Korpúlfsstaðavöllur og Grafarholtsvöllur, opna formlega með Opnunarmótum, sem haldin verða á hvorum velli fyrir sig. Opnunarmót Korpu verður leikið á lykkjunum Sjórinn/Áin og Opnunarmót Grafarholts á Grafarholtsvelli. ATH! Opnunarmótin eru eingöngu ætluð félagsmönnum GR. Skráning í Opnunarmót Grafarholts og Opununarmót Korpu Skráning í Opnunarmót Grafarholts og Opnunarmót Korpu hefst þriðjudaginn 19. maí kl. 10:00 og fer fram í gegnum mótaskrá Golfbox í gegnum Mitt Golf appið. Fríir upphitunarboltar verða í boði fyrir keppendur í Básum á opnunardegi. Við bendum félagsmönnum á að sækja Mitt Golf appið og skrá sig þar inn. Fyrir innskráningu er notað saman notendanafn og lykilorð sem félagsmaður var með í Golfbox. Við hvetjum kylfinga til að ná sér í Mitt Golf appið sem allra fyrst til að fyrirbyggja að þeir lendi í tæknilegum örðugleikum er þeir hyggjast skrá sig. Starfsfólk skrifstofu er til aðstoðar komi upp vandamál. Verðlaun í Opnunarmótum hvors vallar: Forgjöf 0 – 14 sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur sæti: GR merkt Footjoy peysa sæti: GR merktur Footjoy bolur Forgjöf 14,1 – og hærra sæti: GR merkt Footjoy peysa og bolur sæti: GR merkt Footjoy peysa sæti: GR merktur Footjoy bolur Besta skor: Opnunarmóti Grafarholts: GR merkt Footjoy peysa og bolur. Opnunarmóti Korpu: GR merkt Footjoy peysa og bolur. Nándarverðlaun á öllum par 3 holum hvors vallar fyrir sig: Gullkort á æfingasvæði Bása. Reglubók Golfklúbbs Reykjavíkur – Skráning og mætingar í mót. 9.1 Mótshaldara er heimilt að krefjast greiðslu þátttökugjalda við skráningu. Keppandi á ekki rétt á endurgreiðslu þátttökugjalds boði hann forföll til mótsstjórnar/nefndarinnar, síðar en kl. 18.00 daginn fyrir fyrsta keppnisdag. Almenn rástímaskráning hefst miðvikudaginn 20. maí Opnað veður fyrir almenna rástímaskráningu miðvikudaginn 20. maí kl. 10.00 á báðum völlum félagsins og geta félagsmenn skráð sig til leiks á Landið samhliða mótahaldi á Korpu. Grafarkotsvöllur, æfingasvæði og púttflöt fyrir framan Bása ásamt æfingasvæði og púttflöt fyrir framan Korpu mun opna á morgun, laugardaginn 16. maí. Golfverslanir félagsins opna samhliða opnun valla, laugardaginn 23. maí. Stefnt er að hafa opið fyrir golfbílaumferð á báðum völlum félagsins frá og með opnun valla. Leyfi aðstæður það ekki verður það tilkynnt. Klúbbhús opnar kvöldopnun á Korpu frá og með deginum í dag, föstudaginn 15. maí. Sumaropnun tekur gildi frá og með laugardeginum 23. maí þegar vellir félagsins opna, í báðum klúbbhúsum. Framkvæmdir sem hafa áhrif á leik Í Grafarholti verða fyrst um sinn leiknar 16. holur, vegna framkvæmda á 1. braut. Leikur hefst á 3. teig og biðjum við kylfinga að gera ráð fyrir göngu að upphafsteig fyrir leik. Opnun 1. og 2. brautar fyrir komandi tímabil er áætluð um miðjan júní og vonandi fyrr. Við biðjum ykkur að sína biðlund á meðan og verða nánari upplýsingar verða veittar er þar að kemur. Þó svo að völlurinn verði tímabundið spilaður sem 16 holur, þá hefur verið séð til þess í golfbox kerfinu að hringir telja til forgjafar. Við erum full tilhlökkunar að hefja golfsumarið 2026 með félagsmönnum GR!  Gleðilegt golfsumar – hlökkum til að sjá ykkur og sjá vellina okkar iða af lífi! Stjórn og starfsfólk Golfklúbbs Reykjavíkur.
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Reykjanesmót GS og GSG hefst í dag, föstudaginn 15. maí á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja. Mótið er fyrsta mót tímabilsins á GSÍ mótaröðinni og verða leiknar 54 holur eða þrír keppnishringir á þremur dögum. Fyrsti og þriðji hringurinn er leikinn á Hólmsvelli Golfklúbbs Suðurnesja, en annar hringurinn er leikinn á Kirkjubólsvelli Golfklúbbs Sandgerðis. Smelltu hér fyrir stöðuna Smelltu hér fyrir rástíma Í karlaflokki eru 73 keppendur. Þar er meðalforgjöf keppenda +0.36, lægsta forgjöfin er +5.2 og hæsta forgjöfin er 5.4. Í karlaflokki eru 44 keppendur með 0 eða lægra í forgjöf. Tómas Eiríksson Hjaltested, Axel Bóasson og Kristófer Orri Þórðarson eru þrír forgjafarlægstu kylfingar karlaflokksins. Tómas er ríkjandi stigameistari mótaraðarinnar og stefnir að því að sækja annan titil í sumar. Í gær var gefið út viðtal við Tómas á Vísi, þar sem farið er yfir sumarið og háskólagolfið, helkk á viðtalið má finna hér . Í kvennaflokki eru 18 keppendur. Meðalforgjöfin er 2.2, lægsta forgjöfin er +3.3 en sú hæsta er 8.1. Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Pamela Ósk Hjaltadóttir og Eva Kristinsdóttir eru forgjafarlægstu kylfingar flokksins. Perla Sól varð Íslandsmeistari í golfi árið 2022 og vann Guðfinnubikarinn fyrir lægsta skor áhugakylfings á Íslandsmótinu í fyrra. Eva Kristinsdóttir kemur af krafti inn í tímabilið, en hún varð Landsmeistari í golfhermum í byrjun maí. Keppendur eru alls 91, og koma þeir frá 14 klúbbum víðsvegar af landinu. GR er með flesta keppendur eða 21 alls, og GKG sendir 19 í mótið. Sex klúbbar eru með keppendur í kvenna- og karlaflokki. Við hvetjum alla til að gera sér ferð á Reykjanesið í dag og um helgina, bæði til að sjá okkar bestu kylfinga spila og til að hvetja þau áfram! 
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Nú er unnið hörðum höndum við mótun nýrra glompa á nýju 1. brautinni okkar og standa vonir til þess að hægt verði að tyrfa hana í næstu viku. Að hanna fallegar og sanngjarnar glompur er hvorki einfalt né auðvelt og því fengum við Chris frá Omnikai til liðs við okkur. Hann hefur mikla reynslu á þessu sviði og kemur upphaflega frá Royal Aberdeen, með viðkomu hjá bæði Brautarholti og Keili.  Það er gaman að fylgjast með fagmanni að störfum og mun Chris einnig vinna fleiri glompur fyrir okkur þegar hann hefur lokið við glompurnar fjórar á fyrstu holunni. Það verða sannkölluð forréttindi að lenda í þessum!
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Ríkjandi Íslandsmeistari karla í golfi, Dagbjartur Sigurbrandsson, tryggði sér sæti í lokaúrtökumóti U.S. Open eftir öflugan hring í undankeppni sem fram fór í gær. Leikið var á Berkshire Hills vellinum í Pittsfield. Dagbjartur lék hringinn á 70 höggum, tveimur höggum undir pari, og endaði jafn í öðru sæti. Efstu fjórir kylfingarnir tryggðu sér áframhaldandi þátttökurétt. Hér má sjá úrslit mótsins Dagbjartur hóf hringinn á seinni níu holunum og byrjaði af krafti. Hann fékk fugla á tvær fyrstu holur sínar og var kominn fjóra undir par eftir örn á elleftu holunni (önnur hola vallarins). Tvö töpuð högg á síðustu sjö holunum skiptu litlu máli, og Dagbjartur skrefi nær U.S. Open risamótinu sem hefst 18. júní. Lokaúrtökumót U.S. Open fara fram dagana 18. maí, 25. maí og 8. júní þar sem kylfingar leika 36 holur á einum degi um sæti í sjálfu U.S. Open risamótinu. Þar mætast margir af sterkustu kylfingum heims sem ekki hafa þegar tryggt sér þátttökurétt.  Þetta er annað árið í röð sem Dagbjartur leikur í lokaúrtökumótinu. Íslandsmeistarinn náði þangað á síðasta ári og lék þar meðal annars með risamótsmeistaranum Padraig Harrington og Svíanum Alex Noren. Þá var hann í góðri stöðu eftir fyrri hringinn en endaði að lokum jafn í 38. sæti.
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Klúbbhús mun opna á Korpu föstudaginn 15. maí og verður með kvöldopnun fram að opnun valla, opið verður frá kl. 17:00-22:00. Laugardaginn 23. maí eða frá og með opnun valla mun Klúbbhús svo opna formlega á báðum stöðum, á Korpu og í Grafarholti.  Hlökkum til að taka á móti ykkur! Karen, Mjöll & Gummi
Eftir Sigríður GR Golf 23. maí 2026
Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 41. sæti Italian Challenge Open mótsins, sem fór fram dagana 7.-10. maí á Ítalíu. Mótið var hans fimmta á HotelPlanner Tour tímabilinu, en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu. Haraldur skilaði inn gífurlega stöðugum hringjum, en hann lék á 70-70-69-70 og lauk leik á níu höggum undir pari í heildina. Samkvæmt Haraldi sjálfum var völlurinn erfiður og leikskipulagið íhaldssamt, en gott að komast út á völl. Þetta var fimmta mót atvinnukylfingsins á tímabilinu, en það fyrsta eftir langa pásu. Skipulag mótaraðarinnar breyttist með stuttum fyrirvara í vor og hafði Haraldur því ekki leikið síðan í febrúar. Nú fer hins vegar allt á fullt og verður dagskráin þétt næstu mánuði. Sjöunda holan reyndist gjöful, eins og sjá má á skorkorti Haralds Franklín  Hér má sjá úrslit mótsins
Show More