Ásdís Rafnar sigraði Unglingamótaröðina á Hlíðarvelli
Annað mót Unglingamótaraðar GSÍ fór fram dagana 30.–31. maí á Hlíðarvelli hjá Golfklúbbi Mosfellsbæjar. Leiknar voru 54 holur, 36 holur á laugardegi og 18 holur á sunnudegi. Alls voru 102 keppendur skráðir til leiks og var Golfklúbbur Reykjavíkur með 16 efnilega keppendur á mótinu
Ásdís Rafnar Steingrímsdóttir, klúbbmeistari GR 2025, sigraði í stúlknaflokki eftir frábæra spilamennsku. Ásdís lék hringina þrjá á samtals 217 höggum (74-69-74) eða 4 höggum yfir pari og tryggði sér sigur eftir gífurlega spennandi lokakafla. Ásdís vann með einu höggi og varð á undan þremur kylfingum sem urðu jafnar í 2. sæti. Þess má geta að Ásdís lék annan hringinn sinn á 69 höggum eða tveimur höggum undir pari, glæsilegur hringur.
Ásdís varð Íslandsmeistari unglinga í holukeppni árið 2024 og er þetta því hennar annar sigur á mótaröðinni. Glæsileg byrjun á keppnissumrinu hjá Ásdísi, einum af okkar efnilegustu kylfingum.
Hjá piltunum var það Birgir Steinn Ottósson sem endaði í 14. sæti í flokki 15-18 ára piltar, á +4 höggum (73-72-72).
Við óskum Ásdísi innilega til hamingju með sigurinn og öðrum kylfingum með sinn árangur. Næsta mót fer fram hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar 4.-6. júní.
ÁFRAM GR! 💙
Recent Posts











