Golf14 mótaröðin mót 1 - úrslit

Sigríður GR Golf • 4. júní 2026

Share this article

Fyrsta mót í Golf14 mótaröð GSÍ fór fram um liðna helgi á Nesvelli Nesklúbbsins. Metskráning var í mótið og voru alls 167 ungir kylfingar skráðir til leiks. Mótið var haldið á Nesvellinum hjá Nesklúbbnum.


Ísak Hrafn Jónasson keppti í flokki 11-12 ára drengja og endaði í 2 sæti í mótinu á átta höggum undir pari (-8). Hann spilaði fyrri 9 holurnar á 30 höggum og seinni 9 holurnar á 32 höggum. Ísak Hrafn tapaði ekki höggi á mótinu, hann fékk 5 fugla á fyrri hringnum og 3 á þeim seinni.


Golfklúbbur Reykjavíkur var með 16 unga og efnilega kylfinga á mótinu og má sjá árangur þeirra hér að neðan.

Önnur úrslit má finna hér


Golfklúbbur Reykjavíkur óskar Ísaki Hrafni innilega til hamingju með árangurinn sem og öðrum kylfingum klúbbsins með sinn árangur. Það er ánægjulegt að sjá hversu margir kylfingar skráðu sig til leiks og tóku þátt í fyrsta móti sumarins. Næsta mót hefst á morgun, Golf14-Icewear bikarinn sem er spilaður hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar.

Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 19. júlí 2026
Það er aldeilis búin að vera barátta á toppnum í Hvaleyrarbikarnum! Aron Snær lék annan hringinn á 70 höggum, tveimur undir pari, og er samtals á fjórum höggum undir pari. Hann hefur leikið báða hringi mótsins á 70 höggum og leiðir með einu höggi. Böðvar Bragi Pálsson er einn í öðru sæti á þremur höggum undir pari eftir hringi upp á 71 og 70 högg. Böðvar hefur sýnt mikinn stöðugleika og aðeins fengið tvo skolla á hringjunum tveimur. Hann hefur fengið 29 pör og fimm fugla. Jóhannes Guðmundsson, ríkjandi meistari Hvaleyrarbikarsins, er í þriðja sæti á einu höggi undir pari. Hann lék annan hringinn á pari. Guðrún Brá Björgvinsdóttir leiðir kvennaflokkinn á einu höggi yfir pari. Elsa Maren Steinarsdóttir lék annan hringinn á 74 höggum og færðist upp um tvö sæti. Hún er ein í öðru sæti á sex höggum yfir pari. Þóra Sigríður Sveinsdóttir er í þriðja sæti á átta höggum yfir pari og Perla Sól Sigurbrandsdóttir í því fjórða á níu höggum yfir pari. Ný og skemmtileg upplýsingasíða mótsins hefur reynst áhorfendum vel. Þar má finna öll helstu skor, tölfræði og upplýsingar frá mótinu. Keppendur hafa samtals fengið 325 fugla og sjö erni eftir fyrstu tvo hringina. Sjöunda hola Hvaleyrarvallar hefur reynst gjöfulust og verið leikin að meðaltali á 0,34 höggum undir pari. Tólfta holan hefur verið erfiðust og verið leikin á 0,86 höggum yfir pari að meðaltali. Hægt er að fylgjast með stöðunni og ítarlegri tölfræði í beinni á mótasíðu Hvaleyrarbikarsins .
Eftir Sigríður GR Golf 17. júlí 2026
Golf 14 og Unglingamótaröð GSÍ heimsækja Jaðarsvöll á Akureyri næstu dagana, þar sem ungir og efnilegir kylfingar leika við frábærar aðstæður. Um 140 kylfingar mæta til leiks í mótin tvö, og verður því mikið líf á svæðinu. Veðrið ætti að leika við kylfinga á Akureyri, en spáð er um 20 gráðum alla þrjá keppnisdagana. Unglingamótaröðin Unglingamótaröðin fer fram dagana 17.-19. júlí. Leikinn er 54 holu höggleikur án forgjafar í flokkum 15-18 ára pilta og stúlkna. Einnig verða veitt verðlaun fyrir besta árangur í flokki 17-18 ára og 15-16 ára. 82 kylfingar keppa í mótinu, 25 stúlkur og 57 drengir. Hér má sjá rástíma og stöðu í Unglingamótaröðinni Golf 14 Golf 14 mótið fer fram dagana 18.-19. júlí. Keppt verður í flokki 14 ára og yngri drengja og stúlkna og leikinn höggleikur án forgjafar. Til leiks mæta 57 kylfingar, 47 drengir og 10 stúlkur. Hér má sjá rástíma og stöðu Golf 14
Eftir Sigríður GR Golf 17. júlí 2026
Golfklúbburinn Keilir heldur Hvaleyrarbikarinn 2026 dagana 17.-19. júlí. Mótið er fimmta mótið á GSÍ mótaröðinni á þessu tímabili. Smelltu hér fyrir stöðu, rástíma og úrslit. Í karlaflokki eru 76 kylfingar skráðir til leiks. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta kylfinga, alls 23, eða rúmlega 30% keppenda. Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Logi Sigurðsson, Golfklúbbi Suðurnesja +5,5 Guðmundur Ágúst Kristjánsson, Golfklúbbi Reykjavíkur +5,2 Hákon Örn Magnússon, Golfklúbbi Reykjavíkur +4,7 Daníel Ísak Steinarsson, Golfklúbbnum Keili +4,6 Axel Bóasson, Golfklúbbnum Keili +4,5 Aron Emil Gunnarsson, Golfklúbbi Selfoss +4,5 Aron Snær Júlíusson, Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar +4,5 Meðalforgjöf karlaflokksins er +0,7. Í kvennaflokki mæta 17 kylfingar til leiks frá níu golfklúbbum. Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur, alls fjóra. Sjö forgjafarlægstu kylfingarnir eru allir með +4.5 eða lægra. Hér má sjá lista yfir þá. Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Golfklúbbnum Keili +3,7 Perla Sól Sigurbrandsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur +2,9 Fjóla Margrét Viðarsdóttir, Golfklúbbi Suðurnesja +1,6 Elsa Maren Steinarsdóttir, Golfklúbbnum Leyni +1,5 Guðrún Birna Snæþórsdóttir, Golfklúbbnum Keili 0,3 Ásdís Valtýsdóttir, Golfklúbbi Reykjavíkur 0,3 Heiða Rakel Rafnsdóttir, Golfklúbbi Mosfellsbæjar 0,6 Meðalforgjöf kvennaflokksins er 1.5. Bikarinn hannaður í Japan Keppt er um Hval­eyr­ar­bik­ar­ana eins og nafn mótsins gefur til kynna. Verðlauna­grip­ur­inn á sér nokkra sögu og óvenjulega. Er hann einn af elstu bik­ur­un­um í safn­inu hjá golf­klúbbn­um Keili. Var bik­ar­inn gef­inn af Toyota umboðinu árið 1979 eða tólf árum eft­ir að klúbbur­inn var stofnaður. Var keppt um bik­ar­inn á opnu móti hjá Keili sem haldið var í nokk­ur ár. Bik­ar­inn er veg­leg­ur og frem­ur óvenju­leg­ur í út­liti. Var hann hannaður og sér­smíðaður í listagalle­rí í Jap­an á sín­um tíma. Þegar stiga­mót­inu Hval­eyr­ar­bik­arn­um var komið á fót árið 2016 þurfti að búa til annað ein­tak enda keppt í tveim­ur flokk­um í Hval­eyr­ar­bik­arn­um. Var bik­ar­inn send­ur til Kína með það fyr­ir aug­um að búa til eft­ir­lík­ingu en Kín­verj­arn­ir sem ætluðu að taka verkið að sér treystu sér ekki til þess þegar á hólm­inn var komið. Höfðu Keil­is­menn þá upp á listagalle­rí­inu í Jap­an og var þar smíðaður ann­ar bik­ar sem gef­inn var af Icewe­ar. Þá þurfti raun­ar einnig að gera lít­il­lega við bik­ar­inn sem hafði skemmst á heim­leiðinni frá Jap­an. Bik­ar­inn hef­ur því farið nokkr­ar ferðir á milli Íslands og Asíu. Mikilvæg stig á stigalista GSÍ Hvaleyrarbikarinn er fimmta mót ársins á GSÍ mótaröðinni. Hér má sjá stöðu á stigalistum karla og kvenna .
Eftir Sigríður GR Golf 16. júlí 2026
Íslandsmót eldri kylfinga fer fram á Kiðjabergsvelli dagana 16.-18. júlí. Keppt er í tveimur aldursflokkum hjá körlum og konum, 50 ára og eldri, og 65 ára og eldri. Smelltu hér fyrir rástíma og stöðu mótsins: Alls er 61 keppandi skráður, frá 14 golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, alls 20. Næstflestir koma frá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, eða 12. Lægstu forgjafir mótsins eiga Jón Snorri Halldórsson og Jón Karlsson í karlaflokki með +0.1, og Þórdís Geirsdóttir í kvennaflokki með 1,0. Þórdís Geirsdóttir, Sigurbjörn Þorgeirsson, María Málfríður Guðnadóttir og Hannes Eyvindsson eru ríkjandi meistarar mótsins, en Hannes er sá eini sem verður ekki á meðal keppenda í ár. Aðrir ríkjandi meistarar mæta á Kiðjaberg til að verja titilinn. 
Eftir Sigríður GR Golf 15. júlí 2026
Kæru kylfingar Vallarsvið hefur ákveðið að leyfa golfbílaumferð á báðum völlum félagsins í dag með takmörkunum. Við biðjum kylfinga á golfbílum að keyra á göngustígum þar sem því er við komið og fylgja skiltum og reipum sem vallarstjórar hafa sett upp. Verði þessum takmörkunum ekki fylgt eftir þarf að endurskoða hvort hægt sé að leyfa golfbílaumferð. Við erum í þessu saman - förum vel með fallegu golfvellina okkar!
Eftir Sigríður GR Golf 14. júlí 2026
Opna FootJoy 2026 verður haldið á Grafarholtsvelli sunnudaginn 19. júlí. Ræst verður út frá kl. 8:00. Leikfyrirkomulag mótsins er punktakeppni og höggleikur. Hámarksforgjöf er gefin 24 hjá körlum og 28 hjá konum. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir 3 efstu sætin í punktakeppni karla og kvenna ásamt besta skori í höggleik karla og kvenna. Nándarverðlaun eru veitt þeim sem er næstur holu í upphafshöggi á öllum par 3 brautum vallarins. Einnig verða veitt verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 3. braut karla og kvenna. Skráning í mótið fer fram í mótaskrá á Golfbox - skráningin er í fullum gangi og lokar laugardaginn 18. júlí kl. 19:50 - mótsgjald er kr. 7.250 og greiðist við skráningu. Glæsileg verðlaun verða veitt, að vanda, fyrir þrjá efstu í punktakeppni karla og kvenna auk verðlauna fyrir besta skor í karla- og kvennaflokki. Punktakeppni karla: sæti: FJ fatapakki (2x peysur, 2x bolir og jakki) og FJ bakpoki sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar sæti: FJ Chill-out golfpeysa og FJ skópoki Punktakeppni kvenna: sæti: FJ fatapakki (2x peysur, 2x bolir og jakki) og FJ bakpoki sæti: FJ Pro SL golfskór og golfsokkar sæti: FJ Chill golfpeysa og FJ skópoki Besta skor karla: FJ Pro SL golfskór og dúsín af Titleist Pro V1. Besta skor kvenna: FJ Pro SL golfskór og dúsín af Titleist Pro V1x. Nándarverðlaun: 2.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa 6.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa 11.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa 17.braut: FJ skópoki, sokkar og derhúfa Lengsta teighögg á 3. braut karla: Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása Lengsta teighögg á 3. braut kvenna: Gjafabréf fyrir fjóra á velli Golfklúbbs Reykjavíkur og Platínukort í Bása Teiggjöf Allir keppendur fá afhenta teiggjöf áður en leikur hefst.
Eftir Sigríður GR Golf 13. júlí 2026
Nýliða og háforgjafamót verður haldið laugardaginn 18. júlí, rástímar milli 10:00-11:30 - 40 pláss í boði. Skráning er hafin í gegnum Golfbox . Um leið og leikmaður hefur tryggt sér pláss þarf að ganga frá greiðslu mótsgjalds með millifærslu.
Eftir Sigríður GR Golf 13. júlí 2026
Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 25. sæti á German Challenge powered by VcG mótinu á HotelPlanner Tour mótaröðinni. Mótið fór fram dagana 9.-12. júlí á Wittelsbacher Golfclub vellinum í Þýskalandi. Hér má sjá úrslit mótsins Haraldur lék hringina fjóra á 70, 71, 70 og 68 höggum og lauk leik á samtals níu höggum undir pari. Haraldur lék fyrstu tvo hringina á tveimur höggum undir pari og komst örugglega í gegnum niðurskurðinn. Á þriðja hringnum lék Haraldur aftur á 70 höggum. Hann fékk fjóra fugla og tvo skolla og var fimm höggum undir pari fyrir lokahringinn. Haraldur átti sinn besta hring í mótinu á lokadeginum þegar hann lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Hann fékk fugla á 4., 8., 12. og 15. holu og var skollalaus á hringnum. Haraldur fór upp um 14 sæti á lokadeginum og lauk keppni jafn í 25. sæti á níu höggum undir pari. Flott spilamennska hjá Haraldi sem náði með þessu sínum besta árangri á tímabilinu.
Eftir Sigríður GR Golf 13. júlí 2026
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, endaði jöfn í þriðja sæti á Women’s English Open mótinu á LET Access mótaröðinni, sem lauk í dag. Mótið fór fram á The Manchester Golf Club í Englandi dagana 8.-10. júlí og var eitt af stærri mótum tímabilsins. Ragnhildur endaði jöfn í þriðja sæti á níu höggum undir pari eftir hringi upp á 69, 65 og 73 högg. Hún var jöfn í efsta sæti fyrir lokahringinn eftir frábæran annan hring sem hún lék á 65 höggum, þar sem hún fékk níu fugla og blandaði sér í toppbaráttuna. Ragnhildur lék lokahringinn á 73 höggum eða einu höggi yfir pari. Hún fékk þrjá fugla á hringnum en einnig tvo skolla og einn tvöfaldan skolla. Enn eitt gott mót hjá Ragnhildi á LET Access, en hún fer upp í áttunda sæti stigalistans með árangrinum.  Stigalistinn er kylfingum mjög mikilvægur, en efstu sjö kylfingarnir í lok tímabilsins fá keppnisrétt á LET mótaröðinni á næsta tímabili.
Eftir Sigríður GR Golf 13. júlí 2026
Kæru félagsmenn Við vonum að allir keppendur í nýliðnu meistaramóti hafi notið vallanna okkar. Eins og fyrr hefur komið fram þurfum við að gefa 1. flötinni og nærumhverfi okkar í Grafarholti smá hvíld svo við tökum útaf flötinni í dag í einhvern tíma. Að sjálfsögðu hleypum við aftur inn á flötina um leið og við sjáum að aðstæður batna. Eins viljum við láta vita að fyrirhugað er að gata og sanda flatir í Grafarholti, en nákvæm tímasetning mun velta á veðurfari. Við reiknum samt með að þetta gerist í næstu viku, vikunni 20.-24. júlí. Bestu kveðjur, Vallarsvið
Show More