Bændaglíman 2026 og Píeta samtökin
Bændaglíman, lokamót ársins fór fram í Grafarholti laugardaginn 26. september. Tvímennt var á öllum teigum Holtsins og því 144 kylfingar sem mættu til leik og leikfyrirkomulagið var fjögurra manna Texas Scramble, líkt og undanfarin ár.
Þema dagsins var Gulur september og gátu kylfingar keypt sér Mölligan. Hver leikmaður gat keypt sér að hámarki þrjá Mölligana og allur ágóði af sölu þeirra rann óskiptur til Píeta samtakanna. Píeta samtökin sinna mikilvægu forvarnarstarfi gegn sjálfsvígum og sjálfsskaða.
Við söfnuðum 520.500 kr. sem Mjöll Daníelsdóttir fór og afhenti Píeta samtökunum fyrr hönd félagsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur 💛
Keppendahópnum var líkt og fyrri ár skipt í tvö lið, sem léku undir stjórn valinkunnra starfsmanna Golfklúbbs Reykjavíkur, en það voru þeir Svavar Guðjónsson, forstöðumaður Bása, sem fór fyrir liði Holtsins og Páll Birkir Reynisson, forstöðumaður íþróttasviðs, sem fór fyrir liði Korpunnar.
Leikar fóru svo þannig að Korpa hafði betur á 198 höggum undir pari en Holtið endaði á 192 höggum undir pari. Korpa ver því titilinn síðan í fyrra.
Tvö lið voru jöfn í þriðja sæti á 15 höggum undir pari. Að teknu tilliti til höggafjölda á seinni 9 holum vallarins, hjá liðum sem voru á sama skori urðu úrslit þannig að í þriðja sæti voru:
Guðjón Valgeir Ragnarsson
Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir
Sigurður Sigurgeirsson
Þóra Björg Róbertsdóttir
Í öðru sæti á 16 höggum undir pari voru:
Ellert Þór Magnason
Ingunn Erla Ingvadóttir
Kristján Daníelsson
Mjöll Daníelsdóttir
Sigurvegarar mótsins á 20 höggum undir pari voru:
Elísabet Katrín Benónýsdóttir
Iouri Zinoviev
Óttar Guðmundsson
Stefanía Guðjónsdóttir
Við þökkum keppendum í Bændaglímu fyrir frábæran dag á vellinum og sigurvegurum til hamingju með árangurinn! Píeta samtökunum þökkum við þeirra mikilvæga hlutverki í samfélaginu og erum stolt af því að félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur hafi lagt málefninu lið 💛
Recent Posts










