Lokhóf íþróttastarfs GR fór fram á þriðjudaginn var
Þriðjudaginn 29. september síðastliðinn var lokahóf barna-, unglinga- og afreksstarfs Golfklúbbs Reykjavíkur haldið á Korpu. Dagskráin samanstóð af púttkeppni, verðlaunaafhendingu og pizzaveislu.
Lokahófið markaði formleg lok sumartímabilsins eftir viðburðaríkt og skemmtilegt ár. Þátttakendum í starfi klúbbsins fjölgaði á árinu og var sérstaklega ánægjulegt að sjá mörg ný andlit bætast í hópinn samhliða þeim kylfingum sem hafa tekið þátt undanfarin ár.
Á lokahófinu var farið yfir tímabilið og veitt verðlaun fyrir Hagar mótaröð íþróttastarfsins.
Allir sem mættu fengu jafnframt bíómiða í boði Smárabíó.
Þjálfarar starfsins fá kærkomið hlé frá hefðbundinni þjálfun í október, en ýmis dagskrá verður engu að síður í boði fyrir kylfingana okkar áður en æfingar hefjast aftur af fullum krafti 2. nóvember. Meðal þess sem fram undan er í október eru bíóferð, bingó og opnar golfæfingar seinni hluta mánaðarins.
Það verður því áfram nóg um að vera hjá kylfingum GR á komandi vikum og mánuðum.
Hagar mótaröðin
Hagar mótaröðin er innanfélagsmótaröð fyrir iðkendur í íþróttastarfi GR. Keppt er í flokkum eftir aldri eða forgjöf og mótin fara fram á þriðjudögum yfir sumartímann.
Góð þátttaka var í mótaröðinni í ár. Hún er mikilvægur vettvangur fyrir unga kylfinga klúbbsins til að stíga sín fyrstu skref í keppnisgolfi og öðlast dýrmæta reynslu. Margir af fremstu kylfingum GR hófu sinn keppnisferil einmitt á þessari mótaröð og hefur hún því í gegnum árin sannað mikilvægi sitt í starfi klúbbsins 🥇🥈🥉
Keppt var í punktakeppni og alls voru leikin sjö mót. Fjögur bestu mót hvers kylfings töldu til stiga. Veitt voru verðlaun í hverjum flokki auk þess sem heildarstigameistari mótaraðarinnar var krýndur 🏆
Stigameistari Hagar mótaraðarinnar árið 2026 er Daði Hrafn Ásgeirsson 🏆
Helstu úrslit úr flokkum eru þessi:
Stúlkur forgjöf 40 og hærri
- Iðunn Jóhanna Frostadóttir
- Vala Arnarsdóttir
- Karen Helga Birkisdóttir
Piltar forgjöf 40 og hærri
- Rúrik Ívarsson og Sölvi Birgisson
- Sævar Hrafn Garðarsson
- Gunnar Bjarki Valdimarsson
Piltar forgjöf 30-40
- Hreiðar Birkir Baldvinsson
- Dagur Snær Júlíusson
- Róbert Leó Gylfason og Ásdór Þór Gunnarsson
Piltar 11-12 ára
- Daði Hrafn Ásgeirsson
- Alexander Aron Ívarsson
- Magnús Torfi Sigurðsson
Piltar 13-14 ára
- Jóhannes Rafnar Steingrímsson
- Gunnar Ágúst Snæland
- Tómas Númi Sigurbjörnsson
Stúlkur 15-18 ára
- Hjördís Jónasdóttir
- Katla María Sigurbjörnsdóttir
- Viktoría Helga Tryggvadóttir
Piltar 15-18 ára
- Haukur Óli Magnússon
- Ingimar Jónasson
- Gunnar Freyr Þorsteinsson
Stúlkur 19-22 ára
- Sara Ágústa Sigurbjörnsdóttir
Piltar 19-22 ára
- Gunnar Þórður Jónasson
- Sigurður Helgi Hlöðversson
- Andri Guðmann Agnarsson
Við óskum Daða Hrafni og öllum öðrum verðlaunahöfum innilega til hamingju með árangurinn. Jafnframt þökkum við öllum keppendum kærlega fyrir þátttökuna í sumar.
Við hlökkum til næsta tímabils og stefnum að því að efla mótaröðina enn frekar og hvetja fleiri kylfinga í starfi GR til þátttöku.
Recent Posts




















