Dagbjartur endar áttundi í Svíþjóð
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði í 8. sæti á Cutter & Buck Fjällbacka Open mótinu á Nordic Golf League mótaröðinni, sem leikið var í Svíþjóð 21. - 23. maí.
Dagbjartur lék frábært golf í mótinu og lauk leik á sjö höggum undir pari í heildina og endaði jafn í áttunda sæti mótsins. Með þessu jafnar hann sinn næstbesta árangur á tímabilinu, en þetta er í þriðja skiptið sem Íslandsmeistarinn endar jafn í áttunda sæti í sumar.
Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 71 höggi eða pari vallarins, annan hringinn lék hann á 67 höggum og þann þriðja á 68 höggum, með glæsilegum erni á síðustu. Það má telja líklegt að hann verði meðal 20 efstu kylfinga stigalistans eftir þetta frábæra mót. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni.

Recent Posts









