Unglingamótaröðin í Þorlákshöfn - rástímar og staða
Fyrsta mót Unglingamótaraðarinnar fer fram í Þorlákshöfn dagana 23.-25. maí. Fullt er í mótið, en alls tekur 81 keppandi þátt, 25 í stúlknaflokki og 56 í piltaflokki.
Golfklúbburinn Keilir á flesta keppendur í mótinu eða 20 talsins. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar kemur þar á eftir með 18 keppendur og Golfklúbbur Reykjavíkur með 13.
Pamela Ósk Hjaltadóttir er með lægstu forgjöfina í stúlknaflokki, +1.8. Hún varð önnur á stigalista mótaraðarinnar í fyrra. Þá lék Pamela í 6 mótum á tímabilinu og var í verðlaunasæti í þeim öllum. Hún sigraði á einu móti, varð þrívegis í öðru sæti og tvisvar í þriðja sæti.
Óliver Elí Björnsson er með lægstu forgjöf piltaflokksins, +2.1. Óliver varð annar á stigalista 15-16 ára pilta síðasta sumar, vann tvö mót og varð Íslandsmeistari í holukeppni.
Hér má sjá rástíma og stöðu mótsins
Leikinn er höggleikur án forgjafar. Leiknar eru 54 holur í flokki 15-18 ára pilta og stúlkna. Keppt skal samkvæmt gildandi reglugerð um stigamót unglinga og móta- og keppendareglum GSÍ.
Að loknum 36 holum skal leikmönnum fækkað þannig að 70% leikmanna sem eru með besta skor í hvorum flokki halda áfram keppni. Séu tveir eða fleiri leikmenn á jafnir með hæsta skor þeirra sem halda áfram skulu þeir báðir/allir leika áfram.
Recent Posts









