Dagbjartur ver titilinn gegn sterkum keppendahópi

Sigríður GR Golf • 3. ágúst 2026

Share this article

Íslandsmótið í golfi fer fram á Korpúlfsstaðavelli dagana 6.-9. ágúst. Alls eru 92 kylfingar skráðir til leiks í karlaflokki og keppendahópurinn er gífurlega sterkur.


Meðalforgjöf keppenda er +1,4 og eru 70 kylfingar með 0 eða lægra í forgjöf. Dagbjartur Sigurbrandsson er forgjafarlægstur með +5,6, Logi Sigurðsson er með +5,5 og Daníel Ísak Steinarsson með +4,9.


Keppendur koma frá tólf golfklúbbum. Golfklúbbur Reykjavíkur á flesta keppendur, eða 23, sem fá tækifæri til að leika um Íslandsmeistaratitilinn á heimavelli. Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar á 17 keppendur, Keilir tólf og Golfklúbbur Akureyrar tíu.


Dagbjartur stefnir á titilvörn

Ríkjandi Íslandsmeistarinn Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR mætir í titilvörn á heimavelli. Dagbjartur vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil á Hvaleyrarvelli í fyrra eftir mikla spennu á lokahringnum. Hann lék hringina fjóra á fimm höggum undir pari og varð einu höggi á undan Axel Bóassyni.


Dagbjartur hefur að mestu leikið á Nordic Golf League-mótaröðinni á árinu og náð þar góðum árangri. Hann hefur þrívegis endað jafn í áttunda sæti á mótaröðinni, einu sinni fjórði og tryggði sér jafnframt sæti í lokaúrtökumóti U.S. Open annað árið í röð.


Hann þekkir Korpúlfsstaðavöll vel og verður einn þeirra sem fylgst verður hvað mest með þegar mótið hefst.


Aron Snær átt frábært sumar

Aron Snær Júlíusson úr GKG hefur verið sigursælasti kylfingurinn á GSÍ mótaröðinni í sumar. Aron vann þrjú fyrstu mót sín á tímabilinu og er með góða forystu á stigalista mótaraðarinnar.


Hann sigraði fyrst á Reykjanesmótinu, vann síðan á Korpúlfsstaðavelli í Korpubikarnum og fullkomnaði þrennuna í Þorlákshöfn.


Aron hefur tvívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2021 og 2024. Í síðari sigrinum setti hann nýtt mótsmet þegar hann lék Hólmsvöll á 14 höggum undir pari. Hann varð einnig jafn í þriðja sæti á Íslandsmótinu í fyrra.


Axel vann á Hvaleyrarvelli

Axel Bóasson úr Keili er fjórði forgjafarlægsti kylfingurinn með +4,8. Axel hefur þrívegis orðið Íslandsmeistari, árin 2011, 2017 og 2018.


Axel varð annar á Íslandsmótinu í fyrra og kemur inn í mótið eftir sigur í Hvaleyrarbikarnum. Þar hafði Aron Snær forystu fyrir lokahringinn en Axel vann Sigurð Bjarka Blumenstein í bráðabana.


Hann varð einnig landsmeistari í golfhermum í vor, en úrslitakeppnin var einmitt leikin á Korpúlfsstaðavelli. Axel hefur því leikið vel á vellinum, bæði í golfhermum og úti á velli.


Margir fyrrverandi meistarar

Sex kylfingar á keppendalistanum hafa áður orðið Íslandsmeistarar í golfi:

  • Axel Bóasson – 2011, 2017 og 2018
  • Kristján Þór Einarsson – 2008 og 2022
  • Aron Snær Júlíusson – 2021 og 2024
  • Guðmundur Ágúst Kristjánsson – 2019
  • Logi Sigurðsson – 2023
  • Dagbjartur Sigurbrandsson – 2025


Breiður hópur getur blandað sér í baráttuna

Mikill fjöldi annarra kylfinga getur gert atlögu að efstu sætunum.


Birgir Björn Magnússon varð Íslandsmeistari í holukeppni fyrr í sumar á meðan Hákon Örn Magnússon og Böðvar Bragi Pálsson urðu jafnir í öðru sæti í Þorlákshöfn á fjórtán höggum undir pari. Böðvar var jafnframt aðeins einu höggi frá bráðabana í Hvaleyrarbikarnum.


Aron Emil Gunnarsson varð annar á Íslandsmótinu 2024 og lék þá á tólf höggum undir pari. Þá eru meðal annarra sterkra heimamanna þeir Guðmundur Ágúst, Hákon Örn, Böðvar Bragi, Sigurður Bjarki Blumenstein, Jóhannes Guðmundsson, Tómas Eiríksson Hjaltested og Andri Þór Björnsson.


Tíu tryggðu sér sæti í undankeppni

Mikil ásókn var í karlaflokk mótsins og þurfti því að halda undankeppni á Korpúlfsstaðavelli 30. júlí. Alls léku 33 kylfingar um tíu laus sæti.


Kylfingarnir sem tryggðu sér sæti í Íslandsmótinu voru:

  • Gunnar Smári Þorsteinsson, GR
  • Jónas Guðmarsson, GR
  • Fannar Ingi Steingrímsson, GHG
  • Maron Björgvinsson, GA
  • Gunnar Þórður Jónasson, GR
  • Birkir Þór Baldursson, GL
  • Óli Björn Bjarkason, GKG
  • Kristinn Sölvi Sigurgeirsson, GOS
  • Arnar Freyr Viðarsson, GA
  • Guðmundur Freyr Sigurðsson, GS


Guðmundur Freyr tryggði sér tíunda og síðasta sætið eftir bráðabana milli þeirra kylfinga sem léku á 77 höggum.


Sjö kylfingar á biðlista

Sjö kylfingar eru á biðlista og komast inn í mótið ef sæti losnar. Röð þeirra er eftirfarandi:

  1. Sebastian Blær Ómarsson
  2. Snorri Rafn William Davíðsson
  3. Kári Kristvinsson
  4. Ingi Rúnar Birgisson
  5. Arnór Daði Rafnsson
  6. Birgir Steinn Ottósson
  7. Kjartan Tómas Guðjónsson



Allt stefnir í stórt og spennandi Íslandsmót. Við hvetjum alla sem geta til að mæta á völlinn eða fylgjast með beinni útsendingu á RÚV!


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Þótt golftímabilinu utandyra fari senn að ljúka er engin ástæða fyrir því að sveiflan fari í vetrarfrí! Í Básum er hægt að halda sveiflunni við og njóta golfæfinga allan veturinn. Vetraraðild í Básum – sala hefst 1. nóvember Frá og með 1. nóvember hefjum við sölu á vetraraðild í Básum. Í boði verða þrjár mismunandi vetraraðildir sem fara í sölu í nóvember, desember og janúar. Félagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur njóta sérstaks afsláttar af vetraraðild og hvetjum við félagsmenn til að nýta sér þetta frábæra tækifæri til að halda golfæfingunum gangandi yfir vetrarmánuðina. Lengri opnunartími um helgar Frá og með 1. nóvember lengjum við opnunartíma Bása um helgar. Þá verður opnað kl. 08:00 í stað kl. 10:00 bæði á laugardögum og sunnudögum. Þetta eru góðar fréttir fyrir morgunhanana sem vilja byrja helgina á nokkrum góðum sveiflum! Kaffibolli á milli högga Við minnum einnig á kaffiaðstöðuna í Básum þar sem hægt er að fá sér góðan kaffibolla úr sjálfsalanum. Tilvalið til að hlýja sér á milli æfinga eða njóta smá kaffipásu í góðum félagsskap. Við hvetjum félagsmenn til að nýta sér aðstöðuna í Básum í vetur, halda sér í golfstuði og mæta vel undirbúin til leiks þegar vorið kemur. Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 27. október 2026
Kæru kylfingar, Sjórinn á Korpúlfsstaðavelli lokar frá og með deginum í dag og hefur þar með lokið sínu golftímabili þetta árið. Rástímar færðir yfir á Landið Þeir kylfingar sem áttu bókaðan rástíma á Sjónum hafa verið færðir yfir á Landið. Í flestum tilfellum hefur tekist að halda rástímanum nánast óbreyttum, en í einstaka tilfellum hefur þurft að færa hann fram eða aftur um 2–3 rástíma. Við biðjum kylfinga því vinsamlegast um að yfirfara bókaða rástíma sína í GolfBox áður en haldið er af stað á völlinn. Við þökkum öllum kylfingum fyrir frábært golfsumar á Sjónum og minnum á að enn er hægt að njóta golfleiks á Landinu, svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Einnig minnum við á Thorsvöllinn sem er opinn allan ársins hring fyrir félagsmenn. Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 26. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur hafnaði í áttunda sæti á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki (European Men’s Club Trophy) sem lauk á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi í dag. Lið GR lék hringina þrjá á samtals 440 höggum, 14 höggum yfir pari, en alls tóku 23 lið þátt í mótinu. Lið GR skipuðu Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Í mótinu voru leiknar 54 holur á þremur dögum og töldu tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. GR lék fyrsta hringinn á 147 höggum, fimm yfir pari. Á öðrum degi lék liðið á 144 höggum, tveimur yfir pari, og deildi fimmta sætinu fyrir lokahringinn. Á lokahringnum lék GR á 149 höggum, sjö yfir pari, og féll niður í áttunda sæti. Jóhann Frank Halldórsson lék best GR-inga á lokahringnum, en hann kom í hús á 74 höggum, þremur yfir pari. Hann lék fyrri níu holurnar á 41 höggi en seinni níu holurnar á 33 höggum, tveimur undir pari. Böðvar Bragi Pálsson lék lokahringinn á 75 höggum, fjórum yfir pari, en Arnór Tjörvi Þórsson kom í hús á 79 höggum, átta yfir pari. Böðvar Bragi átti besta hring GR í mótinu á öðrum keppnisdegi. Þá lék hann á 70 höggum, einu höggi undir pari. Arnór Tjörvi lék sömuleiðis vel á fyrsta keppnisdegi þegar hann kom í hús á 72 höggum. Heildarskor kylfinganna þriggja voru eftirfarandi: Böðvar Bragi Pálsson: 77-70-75, +9 Jóhann Frank Halldórsson: 75-75-74, +11 Arnór Tjörvi Þórsson: 72-74-79, +12 GR tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar sigraði GR lið GKG í úrslitaleik, 5–0, og varð Íslandsmeistari annað árið í röð og í 27. skipti í sögu félagsins. GR hafnaði í sjötta sæti á Evrópumótinu í fyrra en liðið hefur nú lokið keppni á meðal átta efstu liða mótsins annað árið í röð.  Hér má sjá úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 23. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur keppir á Evrópumóti golfklúbba í karlaflokki sem fram fer á Cabot Bordeaux golfsvæðinu í Frakklandi dagana 22.-24. október. Alls eru 23 golfklúbbar frá jafnmörgum löndum skráðir til leiks í mótinu. GR tryggði sér þátttökurétt á mótinu með sigri á Íslandsmóti golfklúbba í 1. deild karla sem fram fór á Strandarvelli á Hellu í ágúst. Þar hafði GR betur gegn Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar (GKG) í úrslitaleik með 5-0 sigri. Þetta var annað árið í röð sem GR fagnaði Íslandsmeistaratitlinum og í 27. skiptið í sögu klúbbsins. Evrópumót golfklúbba er árlegt mót á vegum Golfsambands Evrópu (EGA) þar sem Íslandsmeistarar og aðrir landsmeistarar golfklúbba víðs vegar að úr Evrópu etja kappi. Mótið er 54 holu höggleikur sem leikinn er á þremur dögum. Hvert lið er skipað þremur kylfingum og telja tvö bestu skor liðsins á hverjum keppnisdegi. Einungis áhugakylfingar hafa keppnisrétt í mótinu. Lið GR á Evrópumótinu skipa: Jóhann Frank Halldórsson, Böðvar Bragi Pálsson og Arnór Tjörvi Þórsson. Leikið er á Châteaux vellinum á Cabot Bordeaux svæðinu, skammt frá Bordeaux í Frakklandi. GR átti einnig þátttökurétt á mótinu í fyrra eftir Íslandsmeistaratitilinn 2025. Þá skipuðu Dagbjartur Sigurbrandsson, Jóhannes Guðmundsson og Sigurður Bjarki Blumenstein lið félagsins sem hafnaði í sjötta sæti mótsins.  Smelltu hér til að skoða mótið á heimasíðu EGA.
Eftir Sigríður GR Golf • 21. október 2026
Kæru kylfingar, vetur konungur er farinn að minna á sig með kulda og næturfrosti og því óhjákvæmilegt að huga að lokun valla og æfingasvæða fyrir veturinn. Frá og með deginum í dag og fram að lokun verða vellir félagsins eingöngu opnir fyrir félagsmenn GR. Grafarholtsvöllur mun loka fyrir veturinn frá og með laugardeginum 24. október. Á Korpúlfsstaðavelli verða lykkjurnar Sjórinn og Landið opnar eitthvað áfram , svo lengi sem veður og vallaraðstæður leyfa. Áin hefur eins og áður hefur verið tilkynnt lokað og þakkað fyrir sumarið. Vipp- og púttæfingasvæði í skeifunni við Korpúlfsstaði verður einnig opið eitthvað áfram ⛳ Við minnum einnig á að öll salerni við báða velli hafa nú þegar lokað. Grafarkotsvöllur hefur nú þegar lokað fyrir veturinn, ásamt vipp- og púttæfingasvæðinu fyrir utan Bása. Þá hefur púttæfingasvæðinu (nýja púttgrínið) við Korpúlfsstaði einnig lokað. Básar eru opnir samkvæmt vetraropnun og hvetjum við félagsmenn að nýta sér þá frábæru aðstöðu sem Básar hafa upp á að bjóða með upphituðum básum og Trackman hermum. Thorsvöllur verður áfram opinn eins og áður, enda er hann opinn allt árið ⛳ Frostlokanir – fylgist vel með GolfBox Með lækkandi hitastigi og næturfrosti má búast við að loka þurfi völlunum með stuttum fyrirvara. Við minnum því félagsmenn á að fylgjast vel með tilkynningum í GolfBox , þar sem lokanir vegna frosts geta orðið með skömmum fyrirvara og því gæti þurft að fella niður bókaða rástíma. Við biðjum alla kylfinga um að sýna þessu skilning og virða lokanir vegna frosts. Mikilvægt er að hlífa völlunum þegar frost er í jörðu til að koma í veg fyrir skemmdir og tryggja að þeir komi sem best undan vetri. Við þökkum félagsmönnum fyrir góða umgengni og skilning 💙 Golfklúbbur Reykjavíkur
Eftir Sigríður GR Golf • 20. október 2026
Golfklúbbur Reykjavíkur sendir árlega út viðhorfskönnun til félagsmanna. Undanfarin ár hefur þessi könnun verið okkur, sem stjórnum klúbbnum, uppspretta hugmynda og ákvarðana sem snúa að öllum þáttum í starfsemi félagsins. Það hefur verið ómetanlegt að fá viðhorfin beint í æð og komið að miklu gagni við alla ákvarðanatöku. Eins og fram hefur komið í fréttum úr starfseminni síðasta árið er mikil uppbygging fyrirhuguð á næstu árum, töluverðar fjárfestingar og aukin þjónusta. Okkur sem störfum fyrir klúbbinn er mikill greiði gerður, ef meðlimirnir hjálpa okkur að fylgjast með viðhorfi þeirra til almennrar þjónustu og uppbyggingar næstu árin. Meðfylgjandi er hlekkur á könnunina og biðjum við þig um að svara henni við fyrsta tækifæri, könnunin verður opin til kl. 12:00 föstudaginn 30. október. Viðhorfskönnun GR 2026 Kveðja Stjórn og starfsfólk GR
Eftir Sigríður GR Golf • 19. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði jafn í 12. sæti og Hlynur Bergsson jafn í 20. sæti á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti Nordic Golf League, sem lauk hjá Aalborg Golfklub í Danmörku í gær. Dagbjartur lauk leik á einu höggi undir pari en Hlynur á tveimur höggum yfir pari. Hér má sjá úrslit mótsins Dagbjartur lék hringina þrjá á 74, 66 og 72 höggum. Annar hringur hans var einn sá besti í öllu mótinu, en þar lék hann á fimm höggum undir pari. Hlynur lék hringina á 70, 73 og 72 höggum. Hann var jafn í sjötta sæti eftir fyrsta keppnisdag og í 18. sæti fyrir lokahringinn. Með mótinu lauk tímabilinu á Nordic Golf League. Dagbjartur endaði í 24. sæti Road to Europe stigalistans og Hlynur í 29. sæti. Fimm efstu kylfingar listans unnu sér keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni árið 2027. Dagbjartur tók þátt í 20 mótum á Nordic Golf League á tímabilinu og endaði sex sinnum á meðal tíu efstu. Besti árangur hans var fjórða sætið á Royal Unibrew Championship í Danmörku í maí, en hann var einnig jafn í fjórða sæti á Folksam Championship í Svíþjóð í september. Hlynur lék í 22 mótum og náði þrívegis að enda á meðal tíu efstu. Hans besti árangur var fjórða sætið á Indoor Golf Group Göteborg Open í júní, auk þess sem hann varð sjöundi á ECCO Tour Sand Valley Masters í Póllandi og jafn í tíunda sæti á Folksam Championship. Dagbjartur á enn möguleika á að vinna sér keppnisrétt í gegnum úrtökumót DP World Tour. Hann leikur á öðru stigi úrtökumótanna á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða þar einnig á meðal keppenda.
Eftir Sigríður GR Golf • 14. október 2026
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson eru á meðal keppenda á Road to Europe Final by Sparekassen Danmark, lokamóti tímabilsins á Nordic Golf League. Mótið fer fram hjá Aalborg Golfklub í Álaborg í Danmörku dagana 14.-16. október. Fimmtíu efstu kylfingarnir á Road to Europe stigalistanum vinna sér þátttökurétt á lokamótinu. Leikinn er 54 holu höggleikur á þremur keppnisdögum. Dagbjartur mætir til leiks eftir góðan árangur á Destination Gotland Open í Svíþjóð í síðustu viku. Þar lauk hann keppni jafn í sjötta sæti á fjórum höggum undir pari eftir hringi upp á 71, 69 og 72 högg. Þetta var í sjötta skiptið á tímabilinu sem hann endaði á meðal tíu efstu á mótaröðinni. Fimm efstu kylfingar stigalistans í lok tímabilsins öðlast keppnisrétt á HotelPlanner mótaröðinni á næsta ári. Fyrir lokamótið er Dagbjartur í 23. sæti stigalistans með 16.771 stig og Hlynur í 29. sæti með 13.701 stig. Stigamunurinn upp í fimmta sætið er hins vegar meiri en þau 10.000 stig sem sigurvegarinn fær og geta þeir því ekki unnið sér keppnisrétt á HotelPlanner Tour í mótinu. Dagbjartur á enn möguleika á sæti á mótaröðinni, en hann spilaði sig inn á annað stig úrtökumóta DP World Tour með því að enda jafn í sjötta sæti í úrtökumóti í Þýskalandi í september. Annað stig úrtökumóta fer fram á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember, þar sem Sigurður Arnar Garðarsson og Ragnar Már Garðarsson verða einnig á meðal keppenda.  Hér má fylgjast með stöðu mótsins
Eftir Sigríður GR Golf • 12. október 2026
Afsláttakvöld fyrirfélagsmenn Golfklúbbs Reykjavíkur! 66°Norður býður félagsmönnum GR upp á sérstök afsláttarkjör miðvikudagskvöldið næstkomandi þann 14. október í verslun þeirra í Miðhrauni 11, 210 Garðabær. Opið verður á milli kl. 16:00-20:00. Frábært tækifæri til að gera góð kaup á vönduðum útivistarfatnaði á einstaklega hagstæðu verði. 25% afsláttur af fullorðinsvörum 20% afsláttur af barnavörum Sértilboð á golffatnaði Við hlökkum til að taka á móti ykkur!
Eftir Sigríður GR Golf • 8. október 2026
Kæru félagsmenn, frá og með mánudeginum 12. október verður Ánni á Korpúlfsstaðavelli lokað fyrir veturinn. Áfram verður hægt að leika Sjóinn, Landið og Grafarholtsvöll á meðan veður leyfir. Breytingar verða einnig á salernisaðstöðu vallanna: Korpúlfsstaðir: Öll salernisaðstaða lokar frá og með morgundeginum, föstudaginn 9. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 6. teig lokar frá og með deginum í dag, fimmtudaginn 8. október. Grafarholt: Salernisaðstaða við 10. teig og milli 13. og 15. teigs verður opin eitthvað áfram. Lokanirnar eru liður í vetrarundirbúningi vallanna þar sem tæma þarf vatn úr kerfum til að koma í veg fyrir frostskemmdir. Við minnum félagsmenn á að ganga vel um vellina og virða þær lokanir sem kunna að verða vegna frosts. Við minnum einnig félagsmenn á að Thorsvöllur er alltaf opinn og svo eru Trackman hermarnir í Básum opnir sem hér segir – aldeilis hægt að æfa sveifluna þar undir hitara! Golfkveðja, Golfklúbbur Reykjavíkur
Show More