Einvígið á Nesinu fer fram 3. ágúst - stórskotalið kylfinga mætir til leiks

Sigríður GR Golf • 31. júlí 2026

Share this article

Árlegt góðgerðarmót Nesklúbbsins, Einvígið á Nesinu, verður haldið þann 3. ágúst næstkomandi, á frídegi verslunarmanna. Mótið er haldið í samstarfi við Arion banka og er þetta í þrítugasta skipti sem það fer fram. 


Venju samkvæmt munu nokkrir bestu kylfinga landsins etja kappi hver við annan. Að þessu sinni leika þeir í þágu Bergsins, sjálfstæðra, óhagnaðardrifinna samtaka sem veita ungu fólki gjaldfrjálsan stuðning vegna andlegrar líðunar og áskorana í daglegu lífi. Markmið Bergsins er að veita svokallaða lágþröskuldaþjónustu þar sem áhersla er lögð á aðgengilegan stuðning, ráðgjöf og fræðslu á forsendum unga fólksins. 


Einvígið hefst stundvíslega kl. 13.00. Fyrirkomulagið er með því sniði að sá fellur úr leik á fyrstu braut sem er fjærst holu eftir þrjú högg og tvö högg á annarri braut. Eftir það verður farið í hina hefðbundnu útsláttarkeppni, eða „shoot-out“, þar sem sá sem er með hæsta skor á viðkomandi braut fellur úr leik.


Við hvetjum öll til að koma og fylgjast með stórskotaliði okkar fremstu kylfinga leika í þágu mikilvægis málefnis.


Sem fyrr sagði er Arion banki styrktaraðili Einvígisins á Nesinu. Í mótslok afhenda fulltrúar bankans forsvarsaðila Bergsins ávísun upp á eina milljón króna.

Keppendur í Einvíginu á Nesinu 2026:

Aron Snær Júlíusson, GKG
Dagbjartur Sigurbrandsson, GR
Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK
Gunnlaugur Árni Sveinsson, GKG
Hlynur Bergsson, GKG
Logi Sigurðsson, GS
Ragnhildur Kristinsdóttir, GR
Perla Sól Sigurbrandsdóttir, GR
Skarphéðinn Egill Þórisson, NK
Tómas Eiríksson Hjaltested, GR


Sigurvegarar frá upphafi:

2025  Tómas Eiríksson Hjaltested
2024   Dagbjartur Sigurbrandsson
2023  Birgir Björn Magnússon
2022  Bjarni Þór Lúðvíksson
2021     Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2020      Haraldur Franklín Magnús
2019      Guðmundur Ágúst Kristjánsson
2018     Ragnhildur Sigurðardóttir
2017     Kristján Þór Einarsson
2016     Oddur Óli Jónasson
2015     Aron Snær Júlíusson
2014     Kristján Þór Einarsson
2013     Birgir Leifur Hafþórsson
2012     Þórður Rafn Gissurarson
2011     Nökkvi Gunnarsson
2010     Birgir Leifur Hafþórsson
2009     Björgvin Sigurbergsson
2008     Heiðar Davíð Bragason
2007     Sigurpáll Geir Sveinsson
2006     Magnús Lárusson
2005     Magnús Lárusson
2004     Magnús Lárusson
2003     Ragnhildur Sigurðardóttir
2002     Ólafur Már Sigurðsson
2001     Björgvin Sigurbergsson
2000     Kristinn Árnason
1999     Vilhjálmur Ingibergsson
1998     Ólöf María Jónsdóttir
1997     Björgvin Þorsteinsson


Recent Posts

Eftir Sigríður GR Golf 10. september 2026
Fjórir íslenskir kylfingar eru á meðal 20 efstu eftir tvo hringi á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Aron Snær Júlíusson, Dagbjartur Sigurbrandsson og Ragnar Már Garðarsson eru jafnir í 11. sæti en Sigurður Arnar Garðarsson er jafn í 16. sæti. Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Þýskalandi og verða leiknir fjórir hringir. Alls eru átta íslenskir kylfingar meðal 82 keppenda, en einungis efstu nítján komast áfram á næsta stig. Ragnar átti besta hring Íslendinganna á öðrum keppnisdegi þegar hann lék á 67 höggum, fimm höggum undir pari. Hann er, ásamt Dagbjarti og Aroni á fjórum höggum undir pari í mótinu. Aron Snær náði þeim magnaða árangri að fá albatross á þrettándu holu vallarins á öðrum hring. Hann lék par fimm holuna því á tveimur höggum eða þremur undir pari. Sigurður Arnar er höggi á eftir þremeningunum og hefur leikið hringina tvo á 71 og 70 höggum. Á fyrsta hring mótsins fékk Sigurður holu í höggi á sautjándu braut vallarins. Magnað afrek. Staða íslensku kylfinganna eftir tvo hringi T11. Aron Snær Júlíusson, 69-71 (-4) T11. Dagbjartur Sigurbrandsson, 71-69 (-4) T11. Ragnar Már Garðarsson, 73-67 (-4) T16. Sigurður Arnar Garðarsson, 71-70 (-3) T47. Jóhann Frank Halldórsson, 72-74 (+2) T47. Logi Sigurðsson, 74-72 (+2) T57. Hlynur Bergsson, 76-72 (+4) T60. Tómas Eiríksson Hjaltested, 75-74 (+5) Þjóðverjinn Martin Gründemann er í forystu á tíu höggum undir pari, einu höggi á undan Taylor Paul frá Englandi.  Staða mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 10. september 2026
Íslenska 75+ landsliðið stóð sig með mikilli prýði á móti sem fram fór í Burgauberg-Neudauberg í Austurríki. Það tóku 20 þjóðir þátt í mótinu. Íslanska liðið hafnaði í 4. sæti í betri bolta með forgjöf og í 12. sæti án forgjafar . Spennan var mikil allt fram á síðasta keppnisdag, en þá var íslenska liðið í baráttu um sjálft 1. sætið. Aðstæður reyndu verulega á keppendur, enda fór hitinn yfir 35 gráður á lokadeginum - ekki alveg hitastigið sem við Íslendingar venjumst hér heima. Liðið skipuðu þeir: Axel Alfreðsson Gunnsteinn Skúlason Hans Óskar Iseban Helgi Hólm Tryggvi Þór Tryggvason Þórhallur Sigurðsson Liðsstjóri íslenska liðsins var Sigurjón Árni Ólafsson . Helgi, sem er 85 ára, var jafnframt næstelsti keppandi mótsins! Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með frábæran árangur og glæsilega frammistöðu í Austurríki!
Eftir Sigríður GR Golf 8. september 2026
Átta íslenskir kylfingar hefja leik þriðjudaginn 8. september á fyrsta stigi úrtökumóta fyrir DP World Tour. Mótið fer fram á Golf-und Country Club Seddiner See í Michendorf í Þýskalandi og stendur yfir í fjóra daga. Íslensku kylfingarnir sem eru á meðal keppenda eru: Aron Snær Júlíusson Dagbjartur Sigurbrandsson Hlynur Bergsson Logi Sigurðsson Ragnar Garðarsson Sigurður Arnar Garðarsson Jóhann Frank Halldórsson Tómas Eiríksson Hjaltested Alls eru 84 kylfingar frá 27 þjóðum skráðir til leiks. Átta manna hópur Íslands er því einn sá fjölmennasti í mótinu, en aðeins Bandaríkin eiga fleiri keppendur. Á meðal þekktra kylfinga í mótinu eru Bandaríkjamaðurinn Michael La Sasso og Japaninn Yosuke Asaji, sem léku báðir á LIV-mótaröðinni á árinu. Fjögurra daga höggleikur Leiknar verða 72 holur í höggleik dagana 8.-11. september. Fjöldi þeirra sem kemst áfram á næsta stig er ákveðinn fyrir hvert mót út frá stærð þátttakendahópsins og komast kylfingar sem eru jafnir í síðasta örugga sætinu einnig áfram. Mótið í Þýskalandi er eitt af tíu mótum á fyrsta stigi úrtökukeppninnar. Þau fara fram víðs vegar um Evrópu þessa dagana. Leikið á Suðurvellinum Mótið fer fram á Suðurvelli Golf-und Country Club Seddiner See. Völlurinn var hannaður af hinum þekkta bandaríska golfvallahönnuði Robert Trent Jones Jr. og var opnaður árið 1997. Suðurvöllurinn er par 72 og er 6.486 metra langur. Hann hefur áður verið notaður í stór alþjóðleg mót, þar á meðal á Ladies European Tour, síðast árið 2024. Svona virka úrtökumót DP World Tour Úrtökukeppnin, sem oftast er kölluð Q-School, skiptist í þrjú stig. Kylfingur sem hefur leik á fyrsta stigi getur leikið allt að 252 holur á leið sinni að mótaröðinni. Fyrsta stigið samanstendur af tíu 72 holu mótum. Þeir kylfingar sem komast áfram leika á öðru stigi, sem fer fram á fjórum völlum á Spáni dagana 29. október til 1. nóvember. Þar verða einnig leiknar 72 holur og ákveðinn fjöldi efstu kylfinga á hverjum velli tryggir sér sæti á lokastiginu. Lokastigið fer fram á INFINITUM Golf í Tarragona á Spáni dagana 6.-11. nóvember. Þar mæta 156 kylfingar til leiks og leika sex hringi. Eftir fyrstu fjóra hringina verður keppendahópurinn skorinn niður áður en lokahringirnir tveir fara fram. Að loknu lokastiginu fá 15 efstu kylfingarnir og þeir sem eru jafnir í 15. sæti keppnisréttindi á DP World Tour fyrir tímabilið 2027 ásamt fullum keppnisrétti á HotelPlanner Tour. Rástímar okkar kylfinga má sjá hér að neðan – allir eru þeir að staðartíma í Þýskalandi: Ragnar Garðarsson – 08:40 af 1. teig Sigurður Arnar Garðarsson – 08:50 af 10. teig Aron Snær Júlíusson – 09:00 af 1. teig Jóhann Frank Halldórsson – 09:20 af 10. teig Logi Sigurðsson – 09:30 af 1. teig Dagbjartur Sigurbrandsson – 10:20 af 10. teig Hlynur Bergsson – 10:30 af 1. teig Tómas Eiríksson Hjaltested – 10:30 af 10. teig  Rástímar, staða og úrslit mótsins
Eftir Sigríður GR Golf 7. september 2026
66°Norður mótinu á Urriðavelli lauk í dag, sunnudaginn 6. september. Mótið var síðasta mót ársins á Golf 14 mótaröðinni. Keppt var í fjórum flokkum og leiknar 36 holur í höggleik án forgjafar, 18 holur hvorn keppnisdag. Alls voru 124 kylfingar skráðir til leiks. Ásgeir Páll sigraði með eins höggs mun Mikil spenna var í flokki 14 ára og yngri drengja. Ásgeir Páll Baldursson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Jón Ómar Sveinsson úr Golfklúbbnum Keili léku fyrsta hringinn báðir á 71 höggi. Ásgeir lék lokahringinn á 75 höggum og lauk leik á fjórum höggum yfir pari. Jón Ómar endaði einu höggi á eftir, en hann lék lokahringinn á 76 höggum. Emil Darri Birgisson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð þriðji á 149 höggum, sjö yfir pari. Elísabet Þóra best í flokki 14 ára og yngri Elísabet Þóra Ólafsdóttir úr Nesklúbbnum sigraði í flokki 14 ára og yngri stúlkna. Hún lék hringina tvo á 79 og 80 höggum og lauk leik á sautján höggum yfir pari. Emilía Sif Ingvarsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi varð önnur og Embla Sigrún Arnsteinsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar þriðja. Eiríkur Bogi og Styrmir jafnir eftir 36 holur Eiríkur Bogi Karlsson úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar stóð uppi sem sigurvegari í flokki 12 ára og yngri drengja. Eiríkur og Styrmir Ragnarsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur léku mótið báðir á tólf höggum yfir pari. Eiríkur lék hringina á 76 og 78 höggum en Styrmir á 82 og 72 höggum. Eiríkur tryggði sér sigurinn í bráðabana. Jón Agnar Magnússon úr Nesklúbbnum og Ísak Hrafn Jónasson úr Golfklúbbi Reykjavíkur deildu þriðja sætinu. Ásta Sigríður sigraði með þriggja högga mun Ásta Sigríður Egilsdóttir úr Golfklúbbnum Oddi sigraði í flokki 12 ára og yngri stúlkna. Hún lék hringina á 81 og 79 höggum og lauk leik á átján höggum yfir pari. Edda María Hjaltadóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar varð önnur og Arna Dís Hallsdóttir, einnig úr GKG, varð þriðja.  Öll úrslit 66°Norður mótsins má finna hé r
Eftir Sigríður GR Golf 6. september 2026
66°Norður mótinu á Ljúflingi lauk í dag, sunnudaginn 6. september. Mótið var síðasta mót ársins á frábæru Golf 14 tímabili. Alls tóku 55 kylfingar þátt og var keppt í sex flokkum. Leiknar voru níu holur hvorn keppnisdag, samtals 18 holur, í höggleiksafbrigði án forgjafar þar sem hámarksskor á hverri holu var tíu högg. Mótið var ætlað kylfingum með 36,1 eða hærri forgjöf og var áhersla lögð á að öðlast reynslu af mótahaldi, læra leikinn og hafa gaman. Gunnar Erlingur Hákonarson úr Golfklúbbi Þorlákshafnar sigraði í flokki 10 ára og yngri drengja. Hann lék hringina tvo á 70 höggum og bætti sig um sex högg á milli daga, úr 38 höggum í 32. Darri Þór Tómasson úr Golfklúbbi Suðurnesja varð annar á 74 höggum og Edvard Aron Magnússon úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar þriðji á 77 höggum. Í flokki 10 ára og yngri stúlkna vann Edda Elmarsdóttir úr Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar á 77 höggum. Hrafnhildur Rún Björnsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð önnur á 81 höggi og Anna Lind Valdimarsdóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur þriðja á 88 höggum. Aðalsteinn Kjaran Egilsson úr GKG sigraði í flokki 12 ára og yngri drengja á 76 höggum. Klúbbfélagar hans, Steindór Óli Ómarsson og Arnar Rósenkranz Þórðarson, deildu öðru sætinu á 79 höggum. Í flokki 12 ára og yngri stúlkna sigraði Elísa Bríet Róbertsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar á 76 höggum. Iðunn Jóhanna Frostadóttir úr Golfklúbbi Reykjavíkur varð önnur á 81 höggi og Þórunn Emma McGinley úr Golfklúbbnum Keili þriðja á 82 höggum. Aron Logi Baldursson úr Golfklúbbi Reykjavíkur sigraði í flokki 14 ára og yngri drengja á 76 höggum. Kristófer Jens K. Sandholt úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar varð annar á 78 höggum og Sævar Hrafn Garðarsson úr GR þriðji á 79 höggum. Anna Dís Strange úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar sigraði í flokki 14 ára og yngri stúlkna á 82 höggum. Eygló Rún Ingadóttir, einnig úr GM, varð önnur á 84 höggum og Alexandra Fenger úr Golfklúbbnum Oddi þriðja á 94 höggum. Smelltu hér til að skoða öll úrslit mótsins . * Fréttin verður uppfærð með myndum um leið og þær berast
Eftir Sigríður GR Golf 4. september 2026
Íslenska 50+ karlalandsliðið í golfi stóð uppi sem sigurvegari á Evrópumóti landsliða í 2. deild sem lauk í dag á Sedin Golf Resort í Slóvakíu. Ísland hafði mikla yfirburði í mótinu og tryggði sér um leið sæti í efstu deild Evrópumótsins á næsta ári. Ísland lék hringina þrjá á samtals 672 höggum, eða 15 höggum yfir pari. Liðið sigraði með 23 högga mun en heimamenn í Slóvakíu urðu í öðru sæti á +38. Íslenska liðið var í efsta sæti eftir fyrsta hringinn og jók forskot sitt verulega á öðrum keppnisdegi. Heildarskor Íslands á hringjunum þremur var 232, 218 og 222 högg. Þrjú bestu skor liðsins töldu á hverjum hring. Á lokahringnum léku Jón Snorri Halldórsson og Sigurbjörn Þorgeirsson báðir á 73 höggum, eða pari vallarins. Frans Páll Sigurðsson lék á 76 höggum og töldu þessi þrjú skor fyrir Ísland. Siggeir Vilhjálmsson lék lokahringinn á 80 höggum. Sigurbjörn Þorgeirsson vann jafnframt einstaklingskeppni mótsins. Hann lék hringina þrjá á 77, 70 og 73 höggum og lauk keppni á 220 höggum, einu höggi yfir pari. Sigurbjörn sigraði með fjögurra högga mun. Jón Snorri Halldórsson varð einnig á meðal efstu manna og lauk keppni í þriðja sæti á sex höggum yfir pari. Frans Páll Sigurðsson varð sjötti á átta yfir pari og Siggeir Vilhjálmsson endaði jafn í 13. sæti á sautján yfir pari. Mótið var haldið dagana 1.-3. september og var þetta fyrsta Evrópumót 50+ karlalandsliða í 2. deild. Ísland skrifaði því nafn sitt í sögubækurnar sem fyrsti sigurvegari mótsins.  Heildarúrslit mótsins má nálgast hér
Eftir Sigríður GR Golf 1. september 2026
50+ kvennalandslið Íslands hefur leik á Evrópumóti landsliða í golfi í dag, þriðjudaginn 1. september. Mótið fer fram á BlackSeaRama Golf Resort í Búlgaríu dagana 1.-5. september. Íslenska liðið keppir í efstu deild mótsins ásamt 15 öðrum þjóðum. Fyrir Íslands hönd leika: Ragnheiður Sigurðardóttir Þórdís Geirsdóttir Steinunn Sæmundsdóttir Lilja Karlsdóttir Helga Þorvaldsdóttir Sigríður Kristinsdóttir Auk Íslands taka Austurríki, Belgía, England, Finnland, Frakkland, Þýskaland, Írland, Ítalía, Holland, Noregur, Portúgal, Skotland, Spánn, Svíþjóð og Sviss þátt. Sex kylfingar skipa hvert lið. Fyrstu tvo keppnisdagana er leikinn höggleikur þar sem fimm bestu skor hvers liðs telja á hvorum hring. Samanlögð úrslit höggleiksins ráða því í hvaða riðli liðin leika þegar holukeppnin hefst á þriðja keppnisdegi. Átta efstu liðin eftir höggleikinn komast í A-riðil og leika um Evrópumeistaratitilinn. Liðin í sætum 9-16 fara í B-riðil og leika um neðri sæti mótsins. Í hverri viðureign holukeppninnar er leikinn einn fjórmenningsleikur og fjórir tvímenningsleikir.  Holukeppnin stendur yfir í þrjá daga og lýkur mótinu laugardaginn 5. september. Tvö neðstu liðin leika í 2. deild árið 2027. Evrópumót 50+ kvennalandsliða var fyrst haldið árið 2006 og fer nú fram í 20. sinn. England hefur titil að verja eftir sigur á mótinu á Spáni árið 2025. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum íslenska liðsins á mótssíðu Evrópska golfsambandsins .
Eftir Sigríður GR Golf 1. september 2026
50+ karlalandslið Íslands hefur leik á Evrópumóti landsliða í golfi í dag, þriðjudaginn 1. september. Mótið fer fram á Sedin Golf Resort í Slóvakíu og stendur yfir dagana næstu þrjá daga. Íslenska liðið keppir í 2. deild Evrópumótsins ásamt níu öðrum þjóðum. Fyrir Íslands hönd spila:  Jón Snorri Halldórsson Frans Páll Sigurðsson Sigurbjörn Þorgeirsson Siggeir Vilhjálmsson Auk Íslands taka Króatía, Tékkland, Eistland, Ungverjaland, Lúxemborg, Portúgal, Slóvakía, Slóvenía og Tyrkland þátt. Mótið er leikið sem 54 holu höggleikur og fer einn 18 holu hringur fram á hverjum keppnisdegi. Fjórir kylfingar leika í hverju liði og þrjú bestu skor liðsins telja til úrslita á hverjum degi. Samanlagt skor liðanna yfir hringina þrjá ræður lokaröðinni. Tvö efstu liðin tryggja sér sæti í efstu deild Evrópumóts 50+ karlalandsliða á næsta ári. Mótið er haldið í fyrsta sinn eftir að Evrópska golfsambandið ákvað að bæta við 2. deild vegna fjölgunar þátttökuþjóða. Keppnisrétt hafa karlkyns áhugakylfingar sem eru orðnir 50 ára og eru með 9,0 í forgjöf eða lægra. Sedin Golf Resort er staðsett við bæinn Veľké Úľany í suðvesturhluta Slóvakíu. Hægt verður að fylgjast með rástímum, stöðu og úrslitum íslenska liðsins á mótssíðunni .
Eftir Sigríður GR Golf 31. ágúst 2026
Ef þú þarft kvittun fyrir félagsgjaldi hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, þá geturðu auðveldlega sótt hana í XPS félagakerfi GR. Svona sækirðu kvittun: Farðu á XPS og skráðu þig inn með rafrænum skilríkjum. Veldu Golfklúbbur Reykjavíkur. Smelltu á nafnið þitt efst í hægra horni, veldu „ Skráningar “. Þar birtast þínar hreyfingar og sú nýjasta efst, veldu „ kvittun “. Hægri smelltu á kvittunina og veldu að prenta hana út á pappír eða prenta hana sem PDF skjal og vista í tölvunni hjá þér. ATH! Eingöngu er hægt að nálgast kvittun þegar félagsgjöld eru fullgreidd. Einfalt, þægilegt og fljótlegt  Ef þú þarft aðstoð, hafðu samband við skrifstofu GR á gr@grgolf.is
Eftir Sigríður GR Golf 31. ágúst 2026
Kæru kylfingar, frá og með þriðjudeginum 1. september 2026 mun pyslubarinn á 10. teig í Grafarholti loka fyrir veturinn. 
Show More