Haraldur Franklín í 41. sæti á Italian Challenge Open
Íslenski atvinnukylfingurinn Haraldur Franklín Magnús endaði jafn í 41. sæti Italian Challenge Open mótsins, sem fór fram dagana 7.-10. maí á Ítalíu. Mótið var hans fimmta á HotelPlanner Tour tímabilinu, en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu.
Haraldur skilaði inn gífurlega stöðugum hringjum, en hann lék á 70-70-69-70 og lauk leik á níu höggum undir pari í heildina. Samkvæmt Haraldi sjálfum var völlurinn erfiður og leikskipulagið íhaldssamt, en gott að komast út á völl.
Þetta var fimmta mót atvinnukylfingsins á tímabilinu, en það fyrsta eftir langa pásu. Skipulag mótaraðarinnar breyttist með stuttum fyrirvara í vor og hafði Haraldur því ekki leikið síðan í febrúar. Nú fer hins vegar allt á fullt og verður dagskráin þétt næstu mánuði.
Sjöunda holan reyndist gjöful, eins og sjá má á skorkorti Haralds Franklín

Recent Posts









