Dagbjartur lauk leik í fjórða sæti í Danmörku – frábært spilamennska!
Dagbjartur Sigurbrandsson var á meðal keppenda í Royal Unibrew Championship mótinu í Danmörku sem lauk í dag, ásamt tveimur öðrum íslenskum kylfingum. Mótið er hluti af Nordic Golf League mótaröðinni, sem er sú þriðja sterkasta í Evrópu og léku allir íslensku kylfingarnir frábært golf.
Dagbjartur Sigurbrandsson endaði fjórði í mótinu á ellefu höggum undir pari í heildina. Íslandsmeistarinn var í toppbaráttu frá fyrsta hring, en hann lék hringina þrjá á 67-71-67. Frábær endasprettur skilaði honum aftur upp í efstu sætin, en Dagbjartur endaði lokahringinn á þremur fuglum í röð. Þetta er í þriðja skipti á tímabilinu sem Dagbjartur endar meðal 10 efstu kylfinga.
Dagbjartur fer upp í 20. sætið stigalistan en þess má geta að efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabils vinna sér inn fullan þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni, sem er sú næststerkasta í Evrópu.
Við óskum Dagbjarti innilega til hamingju með frábæra spilamennsku.
Recent Posts









